Dagur - 06.10.1988, Page 15
6. október 1988 - DAGUR - 15
Wolfgang ásamt hluta af sundfólkinu í Óðni.
Wolfgang Sahr þjálfari Óðins.
Sund:
Ágætur árangur
á Akureyrarmóti
- 12 ára gamalt met féll
Sundmeistaramót Akureyrar
1988 var haldiö í Sundlaug Akur-
eyrar 2. október sl.
Sigurvegar í einstökum grein-
um voru:
400 m fjórsund kvenna
Elsa M. Guðmundsdóttir 5:50,94
Birna H. Sigurjónsdóttir 6:17,18
400 m fjórsund karla
Pétur Pétursson 5:48,05
Ottó Karl Tuliníus 5:48,77
200 m bringusund drengja
Ólafur R. Jónsson 3:22,35
50 m skriðsund drengja
Orri Einarsson 37,04
50 ni skriðsund hnokka
Rúnar Gunnarsson 44,40
50 m skriðsund meyja
Margrét Aðalgeirsdóttir 43,44
100 in skriösund karla
Svavar Þór Guðmundsson 58,83
100 in skriðsund drengja
Orri Einarsson 1:27,40
100 m skriðsund telpna
Elísabet Jónsdóttir 1:22,10
400 in skriðsund kvenna
Birna H. Sigurjónsdóttir 5:02,01
400 m skriðsund drengja
Björn Pálsson 5:54,59
200 m skriðsund drengja
Gísli Pálsson 2:30,80
100 m baksund kvenna
Elsa María Guðmundsd. 1:19,55
50 m baksund karla
Pétur Pétursson 36,51
50 m baksund hnokka
Rúnar Gunnarsson 56,46
50 m baksund meyja
Margrét Aðalgeirsdóttir 55,03
100 m bringusund kvenna
Þorgerður Benediktsdóttir 1:44,37
50 m flugsund karla
Sölvi Már Sveinsson HSÞ 34,95
Þrjú Akureyrarmet voru sett á
mótinu:
Elsa María Guðmundsdóttir
bætti 12 ára gamalt met Sólveigar
Sverrisdóttur t' 400 m fjórsundi
um 24 sek.
Svava H. Magnúsdóttir setti
Akureyrarmet í 400 m fjórsundi
meyja 12 ára og yngri, en Svava
synti á 7:45,70.
Birna H. Sigurjónsdóttir bætti
eigið met í 400 m skriðsundi
5:02,01.
Akureyrarineistari 1988
Karlaflokkur: Svavar Þór
Guðmundsson 591 stig fyrir 100
m skriðsund.
Kvennaflokkur: Birna H. Sig-
urjónsdóttir 543 stig fyrir 400 m
skriðsund.
Unglingar 13-14 ára: Gísli
Pálsson 362 stig fyrir 200 m
skriðsund.
12 ára og yngri: Ómar Árnason
360 stig fyrir 400 m fjórsund.
Óskar
til Víðis
Óskar Ingimundarson hefur
verið ráðinn þjálfari hjá Víði
Garði. Eins og flestir knatt-
spyrnuáhugamenn vita, þjálf-
aði Óskar lið Leifturs frá Olafs-
fírði síðustu ár.
Þar sem Leiftur féll í 2. deild
og Víðismönnum tókst ekki að
komast upp í 1. deild mætir Ósk-
ar sínum gömlu félögum í barátt-
unni á næsta ári.
EMviðurinn fyrir hendi
hér á Akureyri
- segir Wolfgang Sahr hinn nýi sundþjálfari Óðins
Sundfélagið Óðinn hefur hafíð
vetrarstarfsemi sína og ráðið til
sín erlendan þjálfara. Hann
heitir Wolfgang Sahr og er
þýskur að uppruna. Síðustu
tvö ár hefur hann þjálfað hjá
sunddeild KR, en hóf störf hjá
Óðni 1. september. Wolfgang
varð fúslega við beiðni Dags
um viðtal og fyrsta spurningin
sem hann svaraði var af hverju
hann hefði komið til Akureyr-
ar.
„Konan mín, Anna Ríkharðs-
dóttir, er ættuð héðan. Við
kynntumst í íþróttaháskólanum í
Köln, þar sem við stunduð-
um nám. Þegar við fluttum til
íslands var mér boðin staða sund-
þjálfara hjá KR-ingum og hjá
þeim starfaði ég í tvö ár.
Gunnar Eiríksson, formaður
Óðins, nefndi það við mig aö
koma til Akureyrar á sundþingi
fyrir nokkru. Þá átti ég ekki
heimangengt því ég var, fyrir
utan að þjálfa, einnig að vinna á
Reykjalundi.
Eg sagði upp í sumar og var að
leita fyrir mér með vinnu. Þá
kom þessi hugmynd aftur upp að
fara til Akureyrar og við hjónin
ákváðum að skella okkur hingað
norður."
- Hvað eru margir á æfingum
hjá Óðni?
„Við erum meö tvo hópa og
eru tæplega 20 krakkar í hvorum
um sig. Annar hópurinn er fyrir
byrjendur, en hinn fyrir þá sem
lengra eru komnir. Þaö á að fara
að auglýsa upp æfingatíma og
vonandi stækkar hópurinn enn
frá því sem nú er."
Markmið að komast í
2. deild að ári
- Hvað leggur þú áherslu á með
þínum æfingum?
„Meðan ég er að kynnast
hópnum fara allar æfingar fram í
lauginni. Núna legg ég mesta
áherslu á úthald og tækni og það
þýðir að krakkarnir synda mun
meira en þau eru vön.
Við höfurn sett okkur markmið
að komast upp í 2. deild í sund-
inu, en Óðinn er nú í 3. deild. Til
þess að ná þessu markmiði okkar
verðum við að stækka hópinn hjá
okkur.
1 jafn stóru bæjarfélagi og
Akureyri er ekki spurning að
sundfélag á að vera ofar á lands-
mælikvarða. Þetta er stór staður
og aðstaöan sem við höfum er
ágæt. Félagið hefur átt einn og
einn góðan sundmann, en það er
ekki nóg til þess að félagið standi
sig á íslandsmóti.
Þetta gerist ekki á einni nóttu
og taka verður tillit til þess að
svona uppbygging tekur nokkur
ár. En fyrsta skrefið er aö sigra í
3. deildinni næsta haust og kom-
ast þar með upp í 2. dcild."
Kröfurnar eru gífurlegar
- Ef við snúum okkur almennt
að sundíþróttinni, þá náðu
íslendingar ekki neinum sérstök-
um árangri á Ólympíuleikunum
t.d. í sundi. Er raunhæft fyrir
okkur að senda keppnisfólk í
svona stórkeppni?
„Sundfólk. eins og annað
keppnisfólk, veröur aö hafa
eitthvað til að stefna aö. Keppni,
eins og Ólympíuleikarhir, eru
einmitt tilvalið markmið fyrir
metnaöargjarnan sundmann.
Hins vegar er það rétt að sú
aðstaða og sá stuðningur sem
íslensku sundfólki er boðið upp á
gefur ekki raunhæfa möguleika
til þess að ná betri árangri en
raun ber vitni.
Þá er ég ekki að lasta það scm
gert hefur veriö fyrir afreksfólk í
sundi hér á landi. Máliö er þaö
hreinlega að kröfurnar eru orön-
ar það gífurlegar að fólk verður
að hafa æft daglega í fleiri ár til
þess að eiga raunhæfa möguleika
á aö vera í fremstu röð í sundi í
heiminum í dag.
Þetta er alltaf spurning hvert
markmið okkar er. Ef íslending-
ar senda sitt besta sundfólk og
stefna að því að vera fyrir framan
miðju, og það er það sem ég held
að gert hafi verið, þá geta þeir
verið þokkalega ánægðir með
árangurinn.
Ef liins vegar markið er sett
hærra, þá er ekki hægt að gera
annað en styðja enn betur við
bakið á besta sundfólkinu og gcfa
því kost á að æfa sína íþrótt sem
atvinnu. Það kostar hins vegar
peninga og ekki er víst að
íþróttayfirvöld séu tilbúin í siíka
atvinnumennsku."
Vantar í báða enda
- Nú eru þeir elstu sem æfa hjá
Óðni einungis 17 ára. Hver er
ástæðan fyrir því að fólk hættir
yfirleitt að æfa eftir þennan
aldur?
„Já, þetta var það sem ég tók
fyrst eftir þegar ég kom hingað til
lands. Segja má að það vanti í
báða enda hjá sundfólki hér á
landi. Krakkar byrja ýfirleitt ekki
að æfa fyrr en um 11-12 ára aldur
og svo eru þeir hættir fyrir tví-
tugsaldurinn.
Hjá strákum, sérstaklega, er
þetta of snemmt að hætta. Líkami
þeirra þroskast hægar en hjá
stúlkum og þeir eru oft ekki bún-
ir að taka út fullan líkamsþroska
fyrr en um tvítugt. Sundmaður á
því mörg sín bestu ár framundan
eftir þann aldur, en það er hend-
ing ef maður sér keppanda á
þeim aldri hér á landi.
í Þýskalandi er t.d. nemum í
framhaldsskólum veitt aðstoð til
þess að þeir geti hakliö áfram að
æfa, án þess aö það komi niður á
náminu. Hér hætta næstum allir
ef þeir halda áfram í skóla. og
svo maöur tali ekki um ef menn
fara út á vinnumarkaöinn.
Unglingaþjálfunin þyrfti að
byrja miklu fyrr og ein ástæðan
fyrir því aö ekki gengur betur aö
ná til krakkanna er skortur á
þjálfurum. Þctta er sérstaklega
áberandi úti á landi þar sem
þjálfarar stoppa yfirleitt ekki
lengur en eitt eða tvö ár. ef tekst
að fá þjálfara á annað borð."
- Hvernig líst þér á að starfa á
Akureyri?
„Ég hef fengiö mjög jákvæðar
móttökur, bæði hjá krökkunum
og forráöamönnum félagsins.
Mér skilst að frekar erfiðlega hafi
gengið að fá pláss í lauginni á
undanförnum árum, en núna hef-
ur það gengið betur. Það er því
ekki hægt að segja annað en að
ég sé þokkalega ánægður með
aðstæðurnar sem boðið er upp á
hér í bænum.
Ég hef nú ekki verið langan
tíma hér og er rétt að kynnast
krökkunum. Áhuginn er mikill
hjá þeim og hef ég trú á því að
samstarfið verði gott og árangur-
inn vonandi í samræmi við það.
Ef vel tekst til ætti félagið að
geta komist í fremstu röö innan
nokkurra ára, enda er efniviður-
inn fyrir hendi hér á Akureyri."
sagði Wolfgang Sahr þjálfari
Óöins í samtali við blaöið.