Dagur - 28.10.1988, Side 1

Dagur - 28.10.1988, Side 1
71. árgangur Akureyri, föstudagur 28. október 1988 Verslun á tveimur hæðum Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra: Málstaður íslend- inga skaðast - vegna uppþota og hávaða undanfarið í hvalamálinu Haildór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, hélt framsöguer- indi á aðalfundi Útvegsmanna- félags Norðurlands í gær. Hall- dór sagði Ijóst að draga þyrfti úr veiðum á þorski, karfa og rækju á næsta ári. Halldór var spurður sérstak- lega um hvalamálið áður en fund- urinn hófst. Hann sagði það skoðun sína að uppþot og hávaði um það mál í tengslum við síð- ustu atburði hefði skemmt fyrir Sólfell með 30 tonn á einni viku í gær landaði Sólfellið 30 tonnum af þorski í Hrísey eft- ir rúmlega viku veiðiferð. „Okkur gekk hörmulega þrátt fyrir að góð veiði hafi verið á miðunum,“ sagði Guðmund- ur Kristjánsson skipstjóri í samtali við Dag. „Við ætlum að bíta á jaxlinn og halda áfram með þorskinn," sagði Guðmundur en stefnt var að því að fara út aftur í dag. Sólfell á nú um 150 tonna þorskkvóta sem þeir fengu í skiptum fyrir síldarkvóta, en skipið fór aldrei á síld. Þá fær frystihúsið í Hrísey líka fisk upp í kvótann frá Dalvík. „Það leggjast allir á eitt,“ sagði Guð- mundur að lokum. VG málstað íslendinga frekar en hitt. Menn þyrftu að horfa til lengri tíma en nánustu framtíðar í öll- um málum sem snerta sjávarút- veg, hvort sem um er að ræða hvalveiðar, þorskveiðar eða aðrar veiðar. í máli Halldórs kom fram að hann telur vandasamt verk vera fyrir höndum hvað varðar sam- drátt í fiskveiðum á næsta ári. Samræmi þurfi að nást varðandi reglur um fiskveiðar mismunandi báta og skipa. Halldór sagði enn- fremur að honum fyndust ýmsar nýlegar fjárfestingar í fiskiskip- um vægast sagt vafasamar. Sjá nánar á bls. 3. EHB „Hvor þeirra er ég?“ Mynd: TLV Árlax í Kelduhverfi: Ætlar að setja upp aðstöðu fyrir matfiskeldi á Kópaskeri Mikil uppbygging mun eiga sér stað á næstunni hjá Árlaxi í Kelduhverti og verður m.a. sett upp aðstaða fyrir matfísk- eldi á Kópaskeri. Heildar starfsmannafjöldi fyrirtækisins verður orðinn um 15 manns árið 1990, þar af um helmingur staðsettur á Kópaskeri. Guðrún Þórhallsdóttir fram- kvæmdastjóri Árlax sagði í sam- Sýslumannsembætti Húnavatnssýslu: Rannsóknar sak- sóknara krafist - af Landssambandi lögreglumanna Eins og áður hefur verið skýrt frá í Degi var eigendum bátsins Þóris Jóhannssonar GK 116 afhent aftur nokkurt magn af viskí og bjór sem gert var upp- tækt er skrokkur skipsins kom til skipasmíðastöðvarinnar Mánavarar á Skagaströnd. Nokkur umfjöllun hefur orðið um þetta mál síðan í fjölmiðlum og í viðtali við DV síðastliðinn laugardag sagði Jón ísberg, sýslu- maður á Blönduósi að þetta væri ekki blaðamatur þar sem það væri ólöglegt. Góð viðurkenning það. Lögreglumaður sá er tjáði sig um þetta mál við blaðamann Dags fékk harða áminningu fyrir að skýra frá því sem þarna gerð- ist og var áminningin skrifleg og undirrituð af aðalvarðstjóra við embætti sýslumannsins. Lög- reglumanninum þótti hart að sitja undir ámæli fyrir að hafa ekki þagað yfir lögbroti emb- ættisins og vísaði máli sínu til Landssambands lögreglumanna og hafa lögfræðingar LL nú kraf- ist rannsóknar saksóknara ríkis- ins á meðferð þessa máls við embætti sýslumannsins. Nú er eftir að vita hvort jafnt verður látið ganga yfir þá nafn- ana „Jón og séra Jón“, því venju- legum tollgæslumönnum hefur verið vikið úr störfum ef upp hef- ur komist að þeir hafi tekið áfengi undan innsigli. Þetta mál á sér sennilega ekki neina hlið- stæðu og verður fróðlegt að fylgj- ast með framvindu þess. fli taii við Dag, að á hluthafafundi í haust hafi verið ákveðið að safna auknu hlutafé. Ákveðið var að safna að lágmarki 60% hlutafjár, eða 15,12 milljónum og að hámarki 75% eða 18,9 milljón- um. Fyrir var hlutafé upp á 25,2 milljónir. Nú hefur safnast nægi- lega mikið til að hægt verði að innheimta það; um 66% aukn- ing eða 16 milljónir og 595 þús- und krónur. Óselt hlutafé er nú 2,3 milljónir en segja má að búið sé að selja það. Áð þessu hlutafé standa 106 nýir hluthafar, bæði fyrirtæki, hreppar, kaupfélög og einstaklingar fyrir norðan og auk þess burtfluttir Norðlendingar búsettir í Reykjavík. „Stjórnin hefur því ákveðið að fara út í þá uppbyggingu sem ákveðin hafði verið. Við munum setja upp aðstöðu fyrir matfisk- eldi á Kópaskeri og í sama til- gangi að bæta við kerum í aðal- stöðinni í Ártungu Kelduhverfi," sagði Guðrún. Byrjað verður á áð bora eftir eldisvökva um eða upp úr næstu helgi. Nú er verið að velja úr til- boðum um kaup á efni, panta þau og hefjast framkvæmdir eins fljótt og auðið er. Stefnt er að því að framleiða um 130 tonn af matfiski á næsta ári en 1990 er stefnt að því að full afköst hafi náðst með framleiðslu 230 tonna á ári. Þá er reiknað með að alls um 15 starfsmenn hafi vinnu við fyrirtækið auk ígripafólks við slátrun, pökkun og slíkt. Fram að þessu hefur Árlax ein- göngu verið í seiðaframleiðslu. Þeir halda henni áfram og ráð- gera að vera með 75 þúsund sjó- gönguseiði umfram eigin þörf á næsta ári. Auk þess verða þeir með um 50 þúsund stórseiði til sölu á komandi vori. Þá verður bleikjueldi á næsta ári um 21 tonn og 77 tonn 1990. „Þótt erfiðleikarnir séu ekki allir að baki, þýðir ekki annað en að fara út í þetta. Við erum reyndar búin að missa af sumrinu sem er besti framkvæmdatíminn. En markaðir eru nægir og verð hátt svo um leið og við höfum eitt- hvað að selja getum við gengið inn í samning," sagði Guðrún að lokum. VG Togarar ÚS: Drangey og Skafti með góðan þorskafla Vinna í frystihúsunum þrem í Skagafírði tekur mikinn kipp þessa dagana, en bæði Drang- ey SK-1 og Skafti SK-3 komu til hafnar í vikunni með góðan þorskafla. Drangey kom sl. miðvikudag með um 135 tonn og Skafti kom til hafnar í gærmorgun með um 140 tonn. Ætti þessi afli að duga frysti- húsunum nokkra næstu daga til vinnslu, eftir dræma tið að undanförnu. Þá landaði Hegranes SK-2 afla sínum í Reykjavík í vikunni og uppistaðan í þeim afla var karfi, alls um 160 tonn. 100 tonn fóru í sölu á Faxamarkað og fengust rúmar 2,6 milljónir króna fyrir það, meðalverð því rúmar 26 krónur kíióið. Rúm 60 tonn fóru síðan í gámaútflutning. Að sögn Júlíusar Skúlasonar skipstjóra á Hegranesinu var karfinn mjög góður, meðalfallþungi um 1,3 kílógrömm, sem telst gott þegar karfi á í hlut. Hegranesið veiddi þessi 160 tonn af karfanum á 5 dögum og á nú eftir um 200 tonn af karfa- kvótanum. Skipið fer aftur á veiðar um helgina og mun þá að öllum líkindum klára karfann og selja hann ■ í Þýskalandi 14. nóvember nk. Þá verða eftir um 300 tonn af þorskkvóta skipsins. -bjb Akureyri: 3 árekstrar á sama hominu Fjórir árekstrar urðu á Akur- eyri í gærdag og þar af urðu þrír þeirra á sama horninu, eða á horni Gránufélagsgötu og Glerárgötu. Þá varð einn árekstur í gær- morgun á horni Oddeyrargötu og Brekkugötu. Ekki urðu slys á fólki í þessum óhöppum en tölu- verðar skemmdir á bifreiðunum og í einu tilvikinu þurfti að fjar- lægja báðir bifreiðarnar með kranabíl. -KK

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.