Dagur - 28.10.1988, Side 2

Dagur - 28.10.1988, Side 2
V' HIU’VAfl _ «HC. r PO 2 - DAGUR - 28. október 1988 Tjónabifreið Til sölu Subaru 1800 st. 4x4 árg. ’86, skemmdur eftir umferðaróhapp. Bifreiðin er til sýnis við skrifstofu okkar að Glerárgötu 24. Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir hádegi mánudaginn 31. október. BRUIWBtngÉUMiiSUWlS Akureyrarumboð, sími 23445. /-------------------\ Vetrarskoðun 1988 Akureyringar - Eyfirðingar Látið undirbúa bílinn undir veturínn Innifalið í vetrarskoðun okkar: ★ Vélastilling ★ Vélaþvottur ★ Hreinsun á geyma- samböndum ★ Mældur rafgeymir ★ Mæld rafhleðsla ★ Skipt um kerti ★ Skipt um platínur ★ Skoðuð viftureim ★ Stillt rúðupiss ★ Mælt frostþol á vél ★ Ljósastilling ★ Loftsía athuguð og skipt um ef þarf ★ Vætuvarið rafkerfið ★ Bensínsía athuguð og skipt um ef þarf Verð kr. 5.500.- Vandið valið - Við vöndum verkið. Steinunn Konráðsdóttir Fædd 05.10.1914 - Dáin 21.10.1988 KVEÐJA TIL ÖMMU f svölum sunnanblænum er svífur haustiö að þá fellur oft til foldar eitt fölnað rósarblað og allt sem augað gleður þá annað svipmót ber. Hún amma okkar kvaddi — hún er ei lengur hér. — Við samhljóm sumarradda þá setti okkur hljóð, að vita þig svo veika þú varst svo þreytt og móð. En ávallt samt þú áttir þann yl í líknar mund sem hlýjar barnsins hjarta á hljóðri kveðjustund. Við lítum himinljómann og Ijúfa heyrum rödd sem frið í huga færir þótt frá oss værir kvödd. Að loknu löngu stríði nú læknast hjartasár. Því amma er hjá Guði sem allra þerrar tár. Barnabörn. Bændaskólinn á Hólum: Námskeið fyrir loðdýrabændur - gæðaflokkun lífdýra og skinna kennd Þessa vikuna stendur yfír námskeið á Bændaskólanum á Hólum í loðdýrarækt fyrir bændur í loðdýrarækt. Um er að ræða 2ja daga námskeið, sem skiptist í bóklegt og verk- legt nám. Loðdýrabændum var skipt í 4 slíka hópa og alls hafa um 50 bændur víðs vegar af landinu tekið þátt, aðallega frá Norður- og Austurlandi. Sams konar námskeið verður síðan haldið á Hvanneyri. Fram- leiðnisjóður styrkir þátttak- endur á námskeiðið með uppi- halds- og ferðastyrk. Leiðbeinendur eru kennarar í loðdýrarækt við Bændaskólana á Hólum og Hvanneyri auk sér- fræðings frá Danmörku, Erik Jensen. Þá leiðbeina héraðsráðu- nautar í loðdýrarækt og menn sem hafa mikla reynslu í grein- inni. Skipulagning þessara nám- Ökumaður ófundinn Enn er óupplýst máiið er barn varð fyrir bifreið á gatna- mótum Þingvallastrætis og Mýrarvegar á Akureyri mið- vikudaginn 19. október sl. Slysið vildi þannig til, að bif- reið ók á barn á reiðhjóli með þeim afleiðingum að flytja þurfti barnið á sjúkrahús. Okumaður ók á brott og hefur enn ekki gefið sig fram. Barnið reyndist lítið meitt. VG skeiða er alfarið í höndum bændaskólanna tveggja. Námskeiðið felst í því að loð- dýrabændur fá leiðsögn í að flokka lífdýr, í þessu tilviki minka, eftir gæðum og einnig eiga þeir að flokka skinn með svipaðri aðferð. Áður en sá þátt- ur námsins hefst fá bændur bók- legt yfirlit um það af hverju það er svo mikilvægt fyrir þá að geta flokkað dýrin eftir gæðum. Með því er verið að gera loðdýra- bændum betur kleift að velja þau dýr sem fara á uppboð, frá þeim dýrum sem fá að lifa, eða með öðrum orðum að geta séð út vænlegustu dýrin frá þeim lök- ustu. Ávinningur fyrir bændur með svona námskeiði er mikill og ber þar hæst að með meiri þjálf- un þeirra í flokkun ætti að takast að koma upp betri stofnum innan búanna. Nánar verður greint frá nám- skeiðinu síðar í blaðinu. -bjb Dreifa plakötum og spum- ingalistum um umferðarmál - spjallað við Kristínu Þórisdóttur í tilefni af JC deginum JC dagurinn er á morgun, laug- ardaginn 29. október. Félagar í JC Akureyri munu ganga í hús í tilefni dagsins og leggja spurn- ingalista fyrir ungt fólk varð- andi umferðarmál. Kristín Þórisdóttir, varaforseti JC Akureyrar, svaraði nokkrum spurningum varðandi þetta verkefni félagsins. - Viltu lýsa þessu verkefni JC, Kristín? „Já, JC fer af stað með verk- efnið á JC daginn. Verkefni þetta er unnið í samvinnu við Umferð- arráð og er um að ræða plaköt sem við létum útbúa upp úr aug- lýsingunum Akstur er dauðans alvara. Við fengum leyfi til að nota myndirnar hjá Samstarfs- hópi leikara um umferðaröryggi. Á sjálfan JC daginn munum við heimsækja ungt fólk á aldrinum 17 til 20 ára sem er búsett á Akureyri. Við gefum fólkinu plaköt og spyrjum það nokkurra spurninga um umferðarmál og umferðaröryggi.“ - Hvað verður gert við niður- stöðurnar eða svörin við spurn- ingunum? „Við munum vinna úr spurn- ingunum og birta þær. Auk þess verða niðurstöðurnar sendar Umferðarráði. Þetta eru almenn- ar spurningar um umferðina.“ - Hvers vegna eruð þið í JC að einbeita ykkur að umferðarmál- um einmitt núna? „JC starfar þannig að í fyrsta lagi er það félagsskapur fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 40 ára. Félagið starfar að uppbyggingu einstaklingsins og stuðlar að and- legum og félagslegum þroska hans. Þetta byggist upp á vinnu félaganna í þágu byggðarlags og að ýmsum málefnum. Þetta ár vinnum við eftir meginþema um æskulýðsmál. Síðan er landsverk- efni undir þemanu „Maðurinn og umhverfið" og síðast en ekki síst alþjóðaverkefnið „Ungt fólk fyrir heimsfriði". Við þurftum að finna mál sem tengdist æskulýðs- málum og okkur finnst aldrei of mikið fjallað um umferðaröryggi. En ég tek fram að á JC daginn eiga öll JC félög landsins að vinna að einhverju slíku verkefni og vonandi gera þau það með tölu.“ - Hvað eru margir félagar í JC Akureyri? Kristín Þórisdóttir. „Við erum um 22 og ég vonast til að fá sem flesta til að ganga í hús á laugardaginn. Við ætlum að byrja um klukkan eitt og stefnum að því að ljúka þessu fyrir klukk- an fimm. Þetta er mikil vinna því innan bæjarmarkanna eru um þús- und manns á þessum aidri. Það er þó aldrei að vita hversu margir verða heima þegar við komum með spurningarnar.“ - Hafið þið sjálf alfarið undir- búið þetta verk? „Já, við sömdum spurningarn- ar og létum prenta plakötin. Síð- an unnum við að því að pakka þeim inn þannig að þau yrðu til- búin til afliendingar.“ - Hvernig félagsskapur er JC? „Ég tel að það sé öllum hollt að starfa að einhverju leyti í JC. Það er mjög þroskandi. JC er skipt í fjögur svið: Svið einstakl- ings, svið byggðarlags, svið al- þjóðasamstarfs og svið stjórnun- ar. Það er ýmislegt sem maður getur persónulega grætt á því að vinna að þessum verkum. Við er- um með námskeið sem haldin eru um verkefni á þessum sviðum. Núna erum við t.d. með nám- skeið sem heitir ísbrjóturinn sem er til að hjálpa fólki í mannlegum samskiptum og koma sér af stað. Við verðum einnig með námskeið sem hafa verið haldin á vegum verslunarráðs þ.e. Bansettu fundina og Óskipulagða stjórn- andann. En námskeiðahald og vinna að þroskandi verkefnum er þungamiðjan í starfi okkar hjá JC.“ EHB

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.