Dagur - 28.10.1988, Page 15

Dagur - 28.10.1988, Page 15
 ííUíiitio: - íu 28. október 1988 - DAGUR - 15 íþróttir Karfa: Þetta verður hörkuleikur - segir Valur Ingimundarson um leikinn gegn Þór „Leikurinn gegn Þór leggst þokkalega vel í mig. Þetta verður jafn leikur og ekkert gefíð eftir. Við komum til Akureyrar til að vinna sigur,“ sagði Valur Ingimundarson þjálfari Tindastóls í samtali við Dag, aðspurður um leikinn gegn Þór nk. sunnudagskvöld í Höllinni á Akureyri í Flug- leiðadeildinni í körfu. Valur sagði að munurinn á þessum liðum fælist f stærðinni, að leikmenn Þórs væru mun há- vaxnari. „Það er alltaf erfitt að koma á Akureyri og spila, Þór hefur staðið vel í bæði liðum eins og Haukum og Val. Það sem mun ráða úrslitum er bara hvort liðið nær betri degi,“ sagði Valur. Aðspurður um gengi Tinda- stólsliðsins að undanförnu sagði Valur að það væri búið að vera mjög óheppið. „Annars finnst mér liðið búið að spila vonun framar, t.d. í leikjunum gegn Haukum, Val og KR. Ég átti ekki von á þetta góðum leikjum svona snemma. Svo höfum við dottið mjög mikið niður á útivöll- um, eins og t.d. gegn Njarðvík, þar var allt annað lið á ferðinni. Það virðist vanta að menn Guðlaugur Halldórsson með hinn glæsilega „Vachun-vasa“. JÚdÓ: Guðlaugur hlaut^ tækniverðlaun JSÍ - Fjóla fékk Murata-ljónið Guðlaugur Halldórsson júdó- maður \ KA hlaut tækniverð- laun JSI í flokki karla yngri en 21 árs. Verðlaun þessi, „Vachun- vasinn“, voru gefín af Tékkan- um Michal Vachun árið 1986 en eru veitt nú í fyrsta skipti. Vachun sem hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari íslands í júdó og var staddur á Akureyri um helgina, afhenti Guðlaugi verðlaunin sjálfur á sunnudag- inn. Guðlaugur sem keppir í mínus 78 kg flokki, er vel að þessum verðlaunum kominn en hann náði frábærum árangri á keppn- istímabilinu sem nú er að ljúkja. Hann sigraði í sínum fiokki á haustmóti JSÍ fyrir tæpu ári, bæði í flokki U-21 árs og fullorðins- flokki og lagði þá m.a. íslands- meistarann í karlaflokki að velli. Guðlaugur varð íslandsmeistari í flokki karla U-21 árs og varð íslandsmeistari í sama aldurs- flokki með KA í sveitakeppn- inni. Hann keppti einnig í sveita- keppni fullorðinna á íslandsmót- inu og vann þar allar sínar glímur. Á afmælismóti JSÍ sigraði Guðlaugur í sfnum flokki og varð annar í flokki fullorðinna. Loks keppti hann fyrir íslands hönd á Norðurlandamótinu og hafnaði þar í 5. sæti í sínum flokki. Hann lagði þar m.a. Svía að velli sem stóð þó síðar uppi sem Norður- landameistari. En það voru fleiri KA-menn en Guðlaugur sem fengu verðlaun fyrir góðan árangur á keppnis- tímabilinu. Fjóla Guðnadóttir hlaut Murata-ljónið sem íslands- meistari kvenna og Svala Björns- dóttir hlaut tækniverðlaun kvenna. -KK „peppi“ sig meira upp fyrir úti- leiki. En ég á ekki von á öðru en að framhaldið lofi góðu, þetta er ekkert gert allt á einum degi,“ sagði Valur. „Það hafa alltaf verið hörku- leikir gegn Tindastól og ég hef trú á því að svo verði einnig nú,“ sagði Jóhann Sigurðsson Þórsari um leikinn á sunnudag. „Við höf- um alltaf lent í basli með Sauð- krækingana en oftast marið sigur. Nú hefur þeim bæst gífurlegur liðstyrkur þar sem Valur Ingi- mundarson er og það þyngir róðurinn fyrir okkur til muna. Við leggjum mikið upp úr því að stöðva hann og Eyjólf Sverris- son, skytturnar tvær í liðinu, og ef okkur tekst það stöndum við uppi sem sigurvegarar,“ sagði Jóhann Sigurðsson. -bjb/AP Þad verður örugglega hart barist leik Þórs og UMFT. Enska knattspyrnan: Hvar endar þetta Tottenham? hjá 1. deild. Luton-Arsenal Manchester Utd.-Norwich Newcastle-Middlesbrough Nottingham For.-Liverpool Tottenham-Southampton 2. deild. Birmingham-Stoke City Crystal Palace-Oxford Hull City-Chelsea 1:1 1:2 3:0 2:1 1:2 0:1 1:0 3:0 Fatlaðir fá 10 milljóiiir Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gær að afhenda íþróttasambandi fatlaðra 10 milljónir króna að gjöf vegna glæsilegs árangurs fatlaðra íþróttamanna á Heimsleikum fatlaðra í Kóreu á dögunum. Þess má geta að Rás 2 verður með fjársöfnun í gangi í dag til styrktar byggingu íþróttahúss fyr- ir fatlaða við Hátún í Reykjavík. Uppskeruhátíð golfaraáKróknum Golfklúbbur Sauðárkróks heldur síðbúna uppskeru- hátíð sumarsins nk. laugar- dagskvöld í skála klúbbsins að Hlíðarcnda. Hefst hún með borðhaldi kl. 20.00. Að því loknu fara fram verð- launaafhendingar fyrir ýmis mót sumarsins. Má þar fyrst nefna Meist- aramót klúbbsins og æfinga- mót, sem haldin voru einu sinni í viku á þriðjudögum. Þar fást úrslit með því að leggja saman stig kylfinga úr þeim mótum yfir sumarið. Þá má ekki gleyma Bændaglím- unni, sem fram fór fyrir skömmu, og mun sigurlið þeirrar keppni taka við vegleg- um verðlaunum. Einnig verð- ur sýnt myndband frá Bænda- glímunni. Þegar öllu þessu lýkur má búast við að kátt verði í Hlíðarendakoti fram eftir nóttu. -bjb Ipswich-Portsniouth 0:1 Oldham-Bournemouth 2:0 Plymouth-Shrewsbury 0:0 Sunderland-Blackburn 2:0 Watford-Barnsley 4:0 Bradford-Leeds Utd. 1:1 Brighton-Walsal! 2:2 Leicester-Swindon 3:3 W.B.A.-Manchester City 1:0 • Kingsley Black jafnaði fyrir Luion úr aukaspyrnu eftir að Alan Smith hafði skorað fyrir Arsenal. • Glen Cockerill skoraði bæði mörk Southampton, en áður hafði Raymond Wallace komið Tottenham yfir með sjálfsmarki. • Brian Rice og Neil Webb skoruðu mörk Forest gegn Liverpool, en auk þess misnotaði liðið vítaspyrnu. lan Rush skor- aði mark Liverpool. • Mark Hughes skoraði fyrst fyrir Man. Utd. gegn Norwich, en þeir Mike Phelan og Andy Townsend skoruðu tvívegis á síð- ustu 6 mín. leiksins fyrir Norwich. • Brasilíumaðurinn Mirand- hinha gerði tvö af mörkum Newcastle gegn Middlesbrough. • Oxford tapaði ekki aðeins leik sínum í 2. deild í vikunni heldur var framkvæmdastjórinn Mark Lawrenson rekinn eftir að hafa misst stjórn á sér þegar Dean Saunders þeirra besti leikmaður var seldur til Derby fyrir eina milljón punda án hans vitundar. Brian Horton hefur tekið við af honum. • Howard Kendall afþakkaði boð um að gerast framkvæmda- stjóri Newcastle, en hann er nú á Spáni. Þ.L.A. íþróttir helgarinnar Það er þó nokkuð um að vera á íþróttasviðinu á Akureyri um helgina. Hæst ber þar leik körfuboltaris- anna á Norðurlandi, Þórs og Tindastóls, í Iþróttahöllinni á Akureyri á sunnudags- kvöldið kl. 20. KA leikur sinn fyrsta heimaleik í 1. deildinni í blaki í Glerár- skóla á laugardaginn kl. 14.30. Einn riðill í 3. flokki kv. fer fram í Iþróttahöllinni á laugardag og keppa þar m.a. KA og Völsungur. Sú keppni byrjar kl. 12.30. Þór og Tindastóll á sunnudagskvöldið Það verður örugglega hart barist hjá nágrannaliðunum Þór og Tindastól í Flugleiða- deildinni á sunnudagskvöldið. Bæði liðin hafa sigrað í einum leik og þurfa nauðsynlega að bæta við stigum til að bæta stööu sína í deildinni. Það má búast við að fjöldi manns konri frá Sauðárkróki aö fylgjast með leiknum og er því líklegt að stemmning verði í Höllinni á sunnudagskvöldið. Gestur Éinar Jónasson, sem fengið hefur viðurnefnið útvarpsmaðurinn ósigrandi, mætir í vítaskotakeppnina og andstæðingur hans að þessu sinni er Hörður Túliníus. KA mætir HSK í blaki KA-drengirnir í blaki mæta HSK í Glerárskóla á laugar- daginn kl. 14.30. KA stóð sig mjög vel fyrir sunnan í tveim- ur fyrstu leikjunum og lögðu þá ÍS og íslandsmeistara Þróttar. Kínverjinn Fei, sem þjálfar og leikur með liðinu, virðist vera að gera góða hluti með þessa drengi og verður athyglisvert að sjá þá í sínum fyrsta heimaleik. KA og Völsungur í 3. flokki kvenna Einn riðill í 3. flokki kvenna fer fram um helgina á Akur- eyri. Þctta er svokölluð 3. deild og þar spila m.a. KA og Völsungur. Eitthvað hefur verið um að lið að sunnan hafi afboðað þátttöku í þessum riðli og sannast það hér enn einu sinni að mun lengra er frá Reykjavík til Akureyrar en frá Akureyri til Reykjavíkur. Þetta var nú bara smá úturdúr og keppnin hefst kl. 12.30 í íþróttahöllinni á laugardag. Aðrir yngri flokkar Þórs og KA keppa utan sinnar heima- sveitar. 5. flokkar KA og Þórs keppa í Breiðholtsskóla og 3. flokkur Þórs keppir í Hafnar- firði. 3. flokkur KA keppir hins vegar í Hveragerði og 3. fl.kv hjá Þór keppir f Selja- skóla. Sjómenn athugið! Ávallt til línuefni og ábót. Setjum upp línu. Ennfremur flestar aðrar útgerðarvörur SANDFELL HF v/Laufásgötu • Akureyri • s. 26120 3

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.