Dagur - 03.11.1988, Page 13
3. nóvember 1988 - DAGUR - 13
JóhannesarguðspjaJl er
perla Nýja testamentisins
- segir Björgvin Jörgensson en hann mun halda biblíulestra
um Jóhannesarguðspjall í kapellu Akureyrarkirkju í vetur
Björgvin Jörgensson mun
halda biblíulestra í kapellu
Akureyrarkirkju á mánudags-
kvöldum í vetur um Jóhannes-
arguðspjall. Björgvin hefur
tekið saman stórt ritverk um
þetta guðspjall en það er, eins
og hann orðar það, án efa ein
dýrmætasta bók Biblíunnar en
um leið vandmeðfarið efni.
Björgvin hélt biblíulestra í
Akureyrarkirkju síðasta vetur
um boðorðin tíu, og voru þeir vel
rómaðir og féllu í góðan jarðveg.
Hugmyndina að því að fjalla um
Jóhannesarguðspjall á líkan hátt
kviknaði, að sögn Björgvins, í
tengslum við fundina um boðorð-
in tíu.
Mikið undirbúningsstarf liggur
hér til grundvallar því Björgvin
hefur tekið saman rit um Jóhann-
esarguðspjall sem er um 180
síður. Ritverkið er í senn skýring
á guðspjallinu ásamt umfjöllun
um aðalatriði þess og spurningar
sem Björgvin mun beina til fund-
armanna til umræðu og
umfjöllunar.
- En hvers vegna er Jóhannes-
arguðspjall svona mikilvægt?
„Jóhannesarguðspjall er
greinileg sú bók Biblíunnar sem
sýnir best guðdóm Jesú Krists.
Hún hefur líka verið kölluð perla
Nýja testamentisins og hefur ver-
ið líkt við málverk á móti því að
hin guðspjöllin séu eins og ljós-
myndir. Jóhannesarguðspjall er
21 kapíluli og ég reyni að fylgja
þeirri reglu að taka einn kafla
fyrir í hverjum lestri. Stundum er
þetta allt of mikið þannig að ég
hef orðið að skipta þeim viða-
mestu í tvennt, miðað við að hver
lestur taki einn til einn og hálfan
tíma.
Björgvin Jörgensson.
Ég hef hugsað mér að stað-
næmast við aðalatriði hvers kafla
og ræða málið við þá sem hlusta á
og gefa fólki tækifæri til að spyrj-
ast fyrir urn meira. Þetta tekur
allt sinn tíma og ég get ekki sagt
fyrir um hvort mér tekst að ljúka
lestrunum öllunt á einum vetri.“
- Viltu taka dæmi um eitt slíkt
lykilatriði sem þú fjallar um?
„Þessir biblíulestrar, eða
réttara sagt guðspjallið, byggir á
ákveðnu þema sem er tekið fyrir
þegar í upphafi, en það er þema
um setninguna: „Vér sáum dýrð
hans.“ Raunverulega snúast allir
lestrarnir unt að það ljúkist upp
fyrir fólkinu að sjá þessa dýrð.
Ég álít að þetta höfði til allra
sem eru leitandi eftir sálarfriði og
fullvissu um hvað er raunveru-
lega rétt og rangt í sambandi við
sína persónu eða trú. Verkið
byrjar á kynningu á guðspjallinu
og til að vinna það hef ég notað
ýmsar grunnheimildir. Tvö fyrstu
versin í guðspjallinu eru gegnum
gangandi um það allt og ég mun
nota þau til að staðnæmast við og
spyrja spurninga. Þeir sem koma
á biblíulestrana eiga helst að hafa
með sér Biblíu eða Nýja testa-
menti til að styðjast við en það
vakna margar spurningar við lest-
ur þessa efnis."
- Þart' fólk að vera vel að sér í
Biblíunni til að geta notfært sér
þessa biblíulestra?
„Ég reyni að hafa þetta svo
einfalt að unglingur setn er að
Ijúka barnaskóla ætti að geta
fylgst með. Skýringarnar eru
nákvæmar en þó á einföldu máli
en þar sem ég er barnakcnnari er
ég vanur að tala þannig að ég sé
skilinn. Þannig á hver einasti
maður að gcta skiliö hvað er hér
á ferðinni."
- Á þetta efni erindi til nútíma-
fólks?
„Ég álít aö hver nútímamaður
og reyndar fólk á öllum tímum
álít ég að einmitt Jóhannesar-
guðspjall höfði til þeirra sem eru
uðspjall höfði til þeirra sem eru
leitandi. En þetta er ekki síður
fyrir þá sem þekkja guðspjöllin
vel en hina. Ég tel það mikinn
styrk bæði fyrir mig og aðra sem
þarna verða að hafa sóknarprest-
ana með á biblíulestrunum, en
prestarnir hafa yfirgripsmikla
fræðilega þekkingu á þessum
efnum.“
Þess skal að lokum getið að
efni hvers biblíulcstrar verður
dreift meðal fundarmanna í hvert
sinn. Síðar verður hægt að fá rit-
verk Björgvins kcypt í heilu lagi.
Fundirnir hefjast kl. 20.30. Þeir
eru ókeypis og eru allir velkomn-
ir. " EHB
Nýtt af nálinni í október:
Hausttískan handa
ungum sem eldri
Haust- og vetrartíska fyrir unga
sem eldri er meginefni í október-
útgáfu Nýs af nálinni sem send
var áskrifendum fyrir skömmu.
Skólafatnaður fyrir börnin er þar
ofarlega á blaði, peysur, buxur,
pils og fleira, jafnt á stelpur og
stráka.
Nýtt af nálinni er nýstárlegt rit
í eins konar lausblaðaformi sem
Vaka-Helgafell gefur út en kaup-
endur flokka síðan efnið í sér-
hannaðar möppur.
Meðal annars efnis október-
sendingarinnar má nefna snið að
kápum og kjólum, buxur í stór-
um númerum, herra- og dömu-
peysur, ýmislegt til skrauts og
gagns á heimilum, ásamt leið-
beiningum um hvernig skal máta
föt þegar verið er að sauma. Allt
er þetta útfært á vönduðum lit-
myndum og kapp lagt á að allar
leiðbeiningar séu sem aðgengi-
legastar.
Nýtt af nálinni kemur út mán-
aðarlega og er eingöngu selt til
áskrifenda sem eiga það sameig-
inlegt að hafa áhuga á tísku, fata-
saum og hannyrðum ýmiss kon-
ar. í hverjum mánuði fá þeir
sendar uppskriftir og tilbúnar
sníðaarkir fyrir þær flíkur sem
valdar eru hverju sinni, ásamt
nákvæmum leiðbeiningum og
ráðgjöf um hvernig hentugast sé
að vinna hverja flík. Að jafnaði
eru um 16 uppskriftir og snið
hverri sendingu. Sérstakt klúbb-
fréttablað fylgir hverri útgáfu af
Nýju af nálinni.
Nýtt af nálinni býður klúbbfé-
lögum jafnan valdar vörur á til-
boðsverði, hefur staðið fyrir
sauma- og sníðanámskeiðum,
prjónanámskeiðum og ókeypis
býður faglega ráðgjöf um allt sem
lýtur að saumaskap og hannyrð-
um. Klúbburinn hefur frá upp-
hafi notið vinsælda, en hann hef-
ur nú verið starfræktur í hálft
annað ár. Ritstjóri Nýs af nálinni
er Ragna Þórhallsdóttir.
33.
kjördæmisþing
framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi
eystra verður haldið að Hótel Reynihlíð,
Mývatnssveit dagana 4.-5. nóvember n.k.
Þingiö hefst kl. 20.00 á föstudagskvöld.
Sérmál þingsins: Áhrif efnahagsstjórnunar á þróun
byggðar.
Erindi flytja:
Ásgeir Daníelsson, hagfræöingur Pjóöhagsstofnunar.
Erna Indriöadóttir, deildarstjóri RÚVAK.
Valur Arnþórssson, kaupfélagsstjóri.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráös íslands.
t
’lftT
Gestir þingsins:
Steingrímur Hermannsson, forsætisráöherra.
Þórdís Bergsdóttir, L.F.K.
Kristinn Halldórsson, S.U.F.
Þinginu lýkur með samkvæmi á vegum Framsóknarfélags
Mývatnssveitar.
Kvöldveröur, skemmtiatriöi og dans.
Miðaverð er kr. 2.200.-
Allir velunnarar Framsóknarflokksins velkomnir.
Þátttaka tilkynnist í síma 44170, Hótel Reynihlíð fyrir
fimmtudagskvöld.
Skrifstofa sambandsins að Hafnarstræti 90, Akur-
eyri er opin frá kl. 15-18 virka daga.
Sími 21180.
Stjórn KFNE.
Dags.:
SVARSEÐILL
Beiðni um millifærslu
áskriftargjalds
□ Er áskrifandi
□ Nýr áskrifandi
Undirritaöur óskar þess aö
áskriftargjald Dags veröi
framvegis skuldfært mánaöarlega
á greiöslukort mitt.
Kortnr.:
Gildir út:
Nafnnr.:
ÁSKRIFANDI:
HEIMILI:
PÓSTNR.-STAÐUR:
SIMI:...........
Strandgötu 31 Sími 96-24222
UNDIRSKRIFT.