Dagur - 04.11.1988, Page 7
4. nóvember 1988 - DAGUR - 7
Séð yfir hluta kirkjugarðsins á Akureyri.
Mynd: TLV
inu hjá Minjasafnskirkjunni, en
hún var fyrsta sóknarkirkja
Akureyringa. Fyrstu áratugina
var boriö úr kirkjunni upp hrekk-
una í garðinn og var þaö oft hált
og erfitt á veturna. í mestu hálk-
unum var strengdur kaðall eftir
stígnum og burðarmenn fikruðu
sig eftir honum upp brekkuna
með kisturnar á milli sín.“
I kirkjugarðinum hafa nú verið
jarðsettir á 6. þúsund manns. Þar
hvíla m.a. þjóðsagnapersónur
eins og Matthías Jochumsson
skáld, í elsta hluta garðsins. I
garðinum eru að jafnaði um 90
jarðarfarir á ári. Þar starfa að
jafnaði fjórir fastráðnir menn allt
árið og á sumrin er ráðið aðstoð-
arfólk. Starfið felst aðallega í
verkstjórn og viðhaldi fyrir utan
jaröarfarirnar. Yfir sumarið ligg-
ur mesta vinnan í hirðingu; slætti
og þvílíku, frágangi á minnis-
merkjum og steinum sem koma.
Dýrlegur staður
Aðspurður sagðist Dúi kunna vel
við sig í garðinum. „Fað hefur
orðið mikil hugarfarsbreyting
þessi ár sem ég hef verið hér. Ég
man þegar ég var fyrst með
krakkana mína hér upp frá, að
fólk var að hneykslast á því að ég
væri með börnin í kirkjugarðin-
um, en þetta er dýrlegur staður.
Nú hefur umgangur um garðinn
aukist gífurlega og er sérstaklega
hátíðlegt um jólin þegar fleiri
þúsund manns koma hingað.
Ljósakrossar skátanna setja þá
líka mjög hátíðlegan svip á
garðinn. Pá hefur áhugi fólks á
að hirða um leiðin líka aukist
mikið. Þeir sem einu sinni hafa
komið, koma aftur og aftur.
í garðinum er ekki grafreitur
fyrir ösku. Dúi sagði einfaldlega
að þörfin væri ekki til staðar þar
sem enginn hafi bcðið um slíkt.
Komi hins vegar fram slík ósk,
verður orðið við henni. Einstaka
sinnum kemur aska annars staðar
að og hefur þá venjulega verið
gert ráð fyrir að grafa hana hjá
öðrum ættingja. Utför hefur þá
venjulega farið fram annars
staðar, en þegar askan er jarðsett
er prestur þó viðstaddur og
athöfnin fer hátíðlega fram.“
Hér sláum við botninn í spjall-
ið við Dúa. Skyldan kallar; hann
ók í burtu á dráttarvélinni því
upplagt er að nota góða veðrið til
garðstarfanna. VG
Dúi Björnsson er kirkjugarðs-
vörður og hefur hann gegnt því
starfi síðan 1960 að hann tók við
af föður sínum sem hafði verið
kirkjugarðsvörður á undan hon-
um eða frá 1935. Við báðum
hann að fræða okkur um hvað
gert hefur verið og hvað fram-
undan er.
„Hér hefur verið gróðursett
mikið af plöntum, götur malbik-
aðar og hellulagt víða auk þess
sem til stendur að malbika stíg-
ana milli leiðanna. Þá hefur húsið
verið stækkað og tæki keypt. Enn
er eftir að gróðursetja meira og
svo er meiningin að setja upp
klukknaport í miðjum garðinum.
Samkvæmt lögum á að hringja
kirkjuklukkum þegar borið er
inn í garðinn, en þar sem kirkjan
er ekki nálæg, verða klukkur
settar í garðinn. Þá erum við að
undirbúa nýtt land til stækkunar
á garðinum."
Um 90 jarðarfarir á ári
- Hvað er það mikil stækkun?
„Þetta er um þriðjungs
stækkun. Þar á eftir að gróður-
setja og leggja stíga, svo hér
verður hægt að jarðsetja áfram í
einhverja áratugi. Þessi garður
var tekinn í notkun 1864 í horn-
Þeir Ingólfur Herbertsson t.v. og Guðmundur Ingi Hraunfjörð eru fastir
starfsmenn í kirkjugarðinum en starf þeirra felst að stórum hluta í almennri
garðvinnu. Mynd: tlv
Lokað
Skipaafgreiðsla KEA
verður lokuð föstudaginn 4. nóvember frá kl.
12.00 á hádegi vegna jarðarfarar
Sigfúsar Jónssonar, fyrrverandi verkstjóra.
V________________I________________/
Þetta hús við Munkaþverárstræti 27
er til söiu.
Húsið er um 195 fm ásamt um 39 fm bílskúr. Mjög miklar
endurbætur hafa verið gerðar á húsinu. Má þar nefna nýlegt
þak, gluggar, gler, innrétting í eldhúsi, viðbygging, bílskúr
o.fl.
Skipti á 3ja eða 4ra herb. íbúð á Brekkunni koma til greina.
Fasteignasalan
Brekkugötu 4 • Sími 21744
Gunnar Solnes hrl . Jon Kr Solncs hrl oq Arm Palsson hdi
Solust. Sævar Jonatansson
Nviar
Bœkurnar sem beðið er eftir
Fóst í bókabúöum og
blaösölum um allt land
SNORRAHÚS
Strandgötu 31 ■ Akureyri • Sími 96-24222