Dagur - 11.11.1988, Blaðsíða 6
« - 'ÐAGUfi -11? nóvember 1988
Jólabasarinn
okkar
verður í Blómaskálanum Vín,
sunnudaginn 13. nóv. kl. 13.30.
Kristnesspítali.
Hvað er að gerast
AKUREYRARB/tR
Hundaeigendur
Akureyri
Lögboöin hundahreinsun veröur í áhaldahúsi
Gróörarstöövarinnar á Akureyri föstudaginn 11.
nóv. kl. 16-18 og laugardaginn 12. nóv. kl. 10-12.
Hundaeigendur framvísi kvittun fyrir ábyrgðar-
tryggingu og greiði leyfisgjald kr. 3.360.-
Hundurínn skal vera fastandi hreinsunardaginn.
Eftirlitsmaður með dýrahaldi.
Rúllukragabolir í ýmsum litum.
Verð kr. 805.-
Joggingpeysur renndar.
Verð kr. 2.380.-
Jakkapeysur á fullorðna.
Verð kr. 1.925,-
Prjónapeysur á fullorðna.
Verð kr. 2.565.-
Black Jack komnar aftur.
Verð aöeins kr. 960.-
Leðurhanskar herra.
Verð kr. 1.195.-
Leðurhanskar dömu.
Verð kr. 1.150.-
lll
msL
• 9
EYFJORÐ
Hjalteyrargötu 4 • Simi 22275
Hjálparsveit skáta:
Ganga í hús og
selja sjúkraspjöld
Landssamband hjálparsveita
skáta stendur um þessar mund-
ir fyrir sölu á svonefndu
„sjúkraspjaldi heimilisins“, og
veröur spjaldið boðiö til sölu
um allt land um helgina. Mark-
mið hjálparsveitanna með söl-
unni er að stuðla að bættri
þekkingu á heimilum í skyndi-
hjálp, hvetja almenning til að
cignast nauðsynlegustu sjúkra-
gögn og alla um leið fjár til
starfsemi hjálparsveita skáta.
Gunnar Gíslason, formaður
Hjálparsveitar skáta á Akureyri,
sagði að nemendur úr Mennta-
skólanum á Akureyri, Hjálpar-
sveit skáta í Reykjadal, Björgun-
arsveitinni Dalbjörgu og féíagar úr
Hjálparsveit skáta á Akureyri
myndu ganga í hús á Akureyri til
að selja spjöldin.
Samkvæmt upplýsingum land-
læknisembættisins um slys á síð-
asta ári þurfti því sem næst þriðji
hver landsmaður að leita sér
læknisaðstoðar vegna slysa. í>eg-
ar slysin eru skoðuð nánar kemur
í Ijós að orsakir þeirra má að
verulegu leyti rekja til óhappa í
heimahúsum en þar átti fjórða
hvert slys sér stað. Því er mikil-
vægt að eiga réttan búnað heima
við þegar slys verður og einnig
ættu sem flestir að lesa bók um
skyndihjálp sem fylgir hverju
sjúkraspjaldi.
Sjúkraspjaldið er ætlað til að
festa á hurð. í því er hægt að
Landssamband Búseta:
Kynningarfundir
á Norðurlandi
Landssamband Búseta boðar til
funda um húsnæðismál á
Norðuriandi um helgina. Reynir
Ingibjartsson hjá Búseta í
Reykjavík og Guðni Jóhannes-
son, formaður landssambands-
ins, kynna félagið og þá mögu-
leika sem skapast hafa með nýj-
um lögum um kaupleiguíbúðir.
Fyrsti fundurinn verður á
Hótel Húsavík í kvöld, föstu-
dagskvöld, kl. 20.30. Á laugar-
daginn verða fundir í Tjarnar-
borg í Ólafsfirði kl. 13.30 og í
Bergþórshvoli á Dalvík kl. 17.
Fjórði fundurinn verður á sunnu-
daginn í starfsmannasal KEA á
Akureyri kl. 14 og er hann á veg-
um landssambandsins og Búseta
á Akureyri. Fundirnir eru öllum
opnir.
99
Bleiki fíllirin
66
opnaður í kvöld
í kvöld verður opnaður á Ak-
ureyri nýr skemmtistaður sem
ber nafnið „Bleiki fillinn“.
Skemmtistaðurinn er til húsa
að Hafnarstræti 100, þar sem
áður var skemmtistaðurinn
„Zebra“ og þar áður H-100.
Það eru nýir eigendur sem nú
opna með pompi og prakt nýjan
og breyttan skemmtistað í hjarta
bæjarins. Eigendur „Bleika
fílsins“ eru þeir Antonio Mellado,
Afinæfisfagnaður
til heiðurs hjónunum
Stefáni Valgeirssyni og Fjólu Guðmundsdóttur
verður í blómaskálanum Vín, sunnudaginn
20. nóvember n.k. og hefst kl. 20.30.
Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi sunnudaginn 13. þ.m.
í eftirtalin símanr.: 23880 (Haraldur),
27613 (Hörður), 31132 (Sigrún), 61515 (Jóhann).
Undirbúningsnefnd.
Guðni Árnason og Jón Ellert
Tryggvason.
Sem fyrr segir er opnunarhá-
tíðin í kvöld og eru allir vel-
komnir. Annað kvöld verða svo
gömlu dansarnir stignir og sér
hljómsveitin Útkall um fjörið.
koma fyrir grisjum, plástrum,
sótthreinsunarvökva, skærum
o.fl. sem ætti að vera til á hverju
heimili. Er ekki að efa að hjálp-
arsveitarfólkinu verður vel tekið
af Akureyringum. EHB
Sveinbjörn Dúason með sjúkra-
Spjald. Mynd: GB
Fjölskyldu-
skemmtim í
Laugarborg
í>á er komið að hinni árlegu fjöl-
skylduskemmtun kirkjukórs
Grundarkirkju en hún verður
haldin í Laugarborg föstudaginn
11. nóv. nk. og hefst kl. 21.00.
Ymislegt verður til skemmtunar
svo sem kórsöngur undir stjórn
Sigríðar Schiöth við undirleik
Þórdísar Karlsdóttur og Eiríks
Bóassonar, kvartettsöngur, ungir
og upprennandi tónlistarmenn
leika á ýmis hljóðfæri, upplestur
og flutt verða atriði úr kabarett
Leikfélags Öngulsstaðahrepps.
Kaffiveitingar eru innifaldar í
aðgangseyri. Á eftir verður stig-
inn dans við hljómsveitarundir-
leik til miðnættis eða lengur eftir
því hvað stuðið endist.
Allur ágóði rennur í orgelsjóð.
Stjórnin.
99
Rokkskór og bítla-
hár“ í SjaUanum
Föstudaginn 11. nóvember og 18.
og 19. nóvember verða aftur sýn-
ingar á söngskemmtuninni Rokk-
skór og bítlahár í Sjallanum.
Engin lát ætla að verða á vin-
sældum söngskemmtunarinnar.
Hún var fyrst sett upp á Akureyri
síðasta vetur og vegna vinsæld-
anna þar voru sýningar svo hafn-
ar á Hótel íslandi í Reykjavík nú
í haust.
Nokkrar mannabreytingar
urðu og bættust m.a. Einar
Júlíusson, Anna Vilhjálms og
Sigríður Beinteins við söngvara-
liðið. Stjórnin, húshljómsveit
Hótel íslands, hefur tekið við öll-
um hljóðfæraleik í sýningunni
undir stjórn Grétars Örvarssonar
hljómsveitarstjóra.
Um síðustu helgi var söng-
skemmtunin Rokkskór og bítla-
hár sýnd í Sjallanum og hlaut hún
góðar viðtökur. Því verða þrjár
ofangreindar sýningar á dag-
skránni um næstu og þarnæstu
helgi. Þetta verða síðustu sýning-
arnar á Akureyri, því Rokkskór
og bítlahár er svo bókað á Hótel
íslandi allt til ársloka.
Hraðskák-
mót UMSE
Hraðskákmót UMSE verður
haldið í Þelamerkurskóla sunnu-
daginn 13. nóvember og hefst
það kl. 13.30. Teflt verður í
flokki fullorðinna og unglinga.
Aðalfundur Skákfélags UMSE
verður haldinn strax að mótinu
loknu.