Dagur - 02.12.1988, Blaðsíða 1
71. árgangur
Akureyri, föstudagur 2. desember 1988
230. tölublaö
Getraunir alla laugardaga
Akureyringar!
Spilið með
og styrkið ykkar félag
Muniö
félagsnúmerin!
KA 600 Þór 603
Lok og læs hjá frystihúsum
eftir miðjan desember:
Kvóti togara búinn
um miðjan mánuðinn
- segir Sverrir Leósson, formaður
Útvegsmannafélags Norðurlands
Allar líkur eru á því að starf-
semi frystihúsa á Norðurlandi
stöðvist um miðjan mánuðinn
vegna hráefnisskorts. Togarar
hafa nú þegar eða eru í þann
veginn að Ijúka að veiða upp í
kvóta og áætlar Sverrir
Leósson, formaður Útvegs-
mannafélags Norðurlands, að
þeir síðustu nái að þreyta þorr-
ann fram í miðjan desember.
Eftir miðjan mánuðinn er því
ekki annað fyrirsjáanlegt en
vinnslustöðvun fjölmargra fisk-
vinnslustöðva og verður að ætla
að lítið verði aðhafst í þeim fyrr
en að liðinni rúmri viku af nýju
kvótaári.
Að sögn Sverris Leóssonar eru
togarar almennt fyrr búnir með
kvóta en á síðasta ári. Hann segir
að á því séu ákveðnar skýringar:
„Aflinn á yfirstandandi ári er
minni en á fyrra ári. Síðan horfa
menn fram á enn meiri samdrátt í
afla á næsta ári. Þar af leiðandi
hefur verið minna um kvótatil-
færslur nú en á árinu 1987,“ segir
Sverrir.
Útgerðir hafa rétt á tilfærslu
5% af kvóta ársins 1989 yfir á
yfirstandandi ár. Þá er þeim
útgerðum, sem eiga afgang af
kvóta þessa árs, heimilt að færa
10% af honum yfir á næsta ár.
óþh
Ef skipið aðeins fer í för en fúnar ekki í naustum
Mynd: TLV
Skipaskipti Sauðárkrókur-Keflavík:
Skrífað undir samiiinga eftir helgi
- „Höfum aldrei verið svartsýnir,“ segir stjórnarformaður ÚS
„Þaö er ekki búið að undirrita
samninga en ég á von á að af
því verði eftir helgina. Við höf-
um aldrei verið svartsýnir, við
gerðum samkomulag við Hrað-
nystihús Keílavíkur og það
hefur aldrei verið kvikað neitt
frá því, frá því það var gert, það
stendur enn,“ sagði Marteinn
Friðriksson stjórnarformaður
Útgerðarfélags Skagfiröinga í
samtali við Dag, aðspurður um
Fyrstu frjóvguðu Gafloway-eggin flutt úr Einangrunarstöðinni
í Hrísey upp á meginlandið á næsta ári:
Nú þarf að fara að huga
að framhaldsræktiminni
Nú er í undirbúningi að taka
frjóvguð egg úr kúnum í Ein-
angrunarstöð holdanauta í
Hrísey. Ætlunin er síðan að
flytja þau egg, sem eru af
fjórða ættlið Galloway-
kynsins, í land. Fjórði ættliður
gefur 94% af hreinræktuðum
Galloway-nautgrip, fímmti
ættliður gefur 97% og sjötti
ættliður 99%.
Sigurborg Daðadóttir, fram-
kvæmdastjóri Einangrunarstöðv-
arinnar, segir að ekki sé hægt að
tímasetja • nákvæmlega hvenær
verði hafinn flutningur frjóvg-
aðra eggja frá stöðinni en búist sé
við að hann geti hafist í mars á
næsta ári.
Sigurborg bendir á að með
flutningi frjóvgaðra eggja í land
sé í raun komið að lokapunkti í
upphaflegu ætlunarverki Einangr-
unarstöðvarinnar. Hún segir að
næsta skref sé framhaldsræktun í
landi. „Nú er brýnt að taka
ákvörðun um hvernig og hverjir
standi að framhaldsræktun í
landi. Það verður að fara að taka
ákvörðun um hvort hún verði í
umsjá ríkis, búnaðarsambanda
eða bænda. Það hefur engan til-
gang að dreifa eggjum út um allt
ef afkomendum er síðan lógað
jafnóðum. Ræktunin verður að
halda áfram til að tryggja að
fimmtán ára vinna í Einangrun-
arstöðinni komi að notum.“
Um Einangrunarstöðina í
Hrísey segir lagabókstafurinn:
„Landbúnaðarráðherra skal láta
koma upp aðstöðu utan sóttvarn-
arstöðvarinnar til kynblöndunar
nautgripa með notkun sæðis úr
nautunum í stöðinni." Sigurborg
segir að eftir þessari lagagrein
hafi aldrei verið farið en hins veg-
ar hafi einstaka bændur stundað
sjálfstæða ræktun í landi með
góðum árangri. Löggjafinn kveð-
ur skýrt á um að ríkið eigi að
tryggja framhaldsræktun. Sam-
kvæmt búfjárræktarlögum er
landbúnaðarráðherra einnig
heimilað að semja við aðra aðila,
t.d. búnaðarsambönd eða
bændur, um umsjón framhalds-
ræktunar. óþh
stöðuna í skipaskiptunum við
Hraðfrystihús Keflavíkur. Af
þessum orðum má dæma að
allar líkur eru á að Aðalvík og
Bergvík sigli frá Sauðárkróks-
höfn eftir áramótin og Drang-
ey mun hverfa til Suðurnesja,
eftir að hafa verið breytt í heil-
frystiskip.
„Eldeyjarmenn hafa aldrei
verið inni í myndinni. Þeir hafa
auðvitað eitthvað verið að tala,
en ég hef ekki fylgst með því þar
ég hef ekki verið á landinu. En ég
kannast ekkert við það að neitt
hafi komið upp sem hafi truflað
þá samninga sem við vorum bún-
ir að gera við stjórn Hraðfrysti-
húss Keflavíkur. Það er ekkert
annað líklegrá en af undirritun
samninga verði á næstu dögum,
þetta eru formsatriði meira held-
ur en að það sé neinn dráttur á
gangi mála af því að menn séu að
kippa að sér höndum. Þetta er
talið báðum aðilum, og þó eink-
um Keflvíkingum, það til hags-
bóta að ég sé ekki neina ástæðu til
annars en að þeir haldi áfram í
málinu,“ sagði Marteinn enn-
fremur. -bjb
Tangi hf. Vopnafirði:
Saltað í 11.300 tuimur
- síldarsöltun lauk í gær
I gær lauk síldarsöltun hjá
Tanga hf. á Vopnafirði og var
þá búið að salta í um 11.300
tunnur. „Þetta hefur gengið
vel hjá okkur,“ segir Pétur
Olgeirsson framkvæmdastjóri.
Hraðfrystihúsið á Hofsósi:
Hyggst auka hlutafé um 30 millj.
- Kaupfélagi Skagfirðinga og Útvegsfélagi samvinnumanna
boðin kaup á 28 milljónum
A fundi stjórnar Hraðfrysti-
hússins á Hofsósi fyrir
skömmu var ákveðið að
bjóða Kaupféiagi Skagfírð-
inga og Útvegsfélagi sam-
vinnumanna aukin hlutafjár-
kaup í fyrirtækinu. Auka
á hlutaféð um 30 milljónir, úr
22 milljónum í 52. Rætt er
um að Kaupfélag Skagfírð-
inga og Útvegsfélagið kaupi
14 milljónir hvor aðili í hluta-
fjáraukningunni. Þá ætla
nokkrir einstaklingar á Hofs-
ósi og Verkalýðsfélagið
Ársæll að kaupa þær 2 millj-
ónir sem eftir verða í aukn-
ingu hlutafjár í Hraðfrysti-
húsinu á Hofsósi.
Sem og í mörgum frystihús-
um hefur rekstur Hraðfrysti-
hússins á Hofsósi gengið erfið-
lega að undanförnu og í upp-
gjöri fyrir fyrstu sjö mánuði
þessa árs var komið 20 milljón
króna tap á rekstrinum, sem er
svipað tap og allt síðasta ár.
Líklegt má telja að af kaup-
um Kaupfélags Skagfirðinga og
Útvegsfélagsins verði á hlutafé
HFH, þar sem báðir þessir aðil-
ar höfðu áður lýst áhuga sínum
á kaupunum, en viðræður
standa nú yfir. -bjb
En nú er rétt um mánuður lið-
inn frá því hafíst var handa við
að salta upp í samninga við
Sovétmenn.
Á þessari vertíð var saltað í um
100 tunnum meira hjá fyrirtæk-
inu en í fyrra. Alls unnu um 60
manns við síldarsöltunina, þar af
voru um 40 konur á planinu.
„Menn eru alltaf bjartsýnir
þegar síldin kemur,“ segir Pétur,
„það kemur svo í ljós eftir ára-
mótin hvernig söltunin kemur út.
Það er ómögulegt að segja fyrir
um það á meðan dollarinn lætur
eins og hann lætur.“
Ekkert hefur verið brætt í
loðnubræðslu Tanga á þessari
vertíð, en Pétur segir allt klárt og
að líkindum verði farið að bræða
á næstu dögum. Hráefnisstaða
Tanga er ágæt, nægur kvóti er til
fram að jólum og því næg vinna í
frystihúsinu. „Ástandið er
þokkalegt atvinnulega séð, en
það væri gaman að sjá meiri pen-
inga,“ segir Pétur Olgeirsson.
mþþ