Dagur - 02.12.1988, Blaðsíða 7

Dagur - 02.12.1988, Blaðsíða 7
2. desember 1988 - DAGUR - 7 Ámundi Loftsson: Nú er lag u. ■ .^ kp zZð*íá «»»^ .uM^SSn-*' 0wn«rtnn ^áWrtey s v#f' Sv 15 Það er ekki á hverjum degi að málaferlum lykti með því að báð- ir málsaðilar sigri. Eins og kunnugt er var Kaup- félag Þingeyinga dæmt í undir- rétti til að greiða þeim Þorgrími Starra Björgvinssyni Garði Mývatnssveit, og Kára syni hans, dráttarvexti vegna tafa á greiðsl- um fyrir sauðfjárinnlegg í fyrra- haust. Þarna er á ferðinni stór- fellt hagsmunamál fyrir bændur, og er vel að þessi niðurstaða er fengin. Eg mun hér reyna að varpa ljósi á þá löggjöf sem hér er um að ræða, og þá möguleika sem þessi dómsniðurstaða getur gefið bændum við að ná þessum rétti sínum fram, ef rétt er að staðið. í lögum nr. 46. 1985, þ.e. búvöru- lögunum svokölluðu, er kveðið á um hvernig afurðagreiðslum skuli hagað. 28. gr. er svohljóð- andi: „Afurðastöð er skylt að haga greiðslum til framleiðanda fyrir innlagðar búvörur í sam- ræmi við ákvæði þessara laga og þeirra samninga og ákvarðana sem teknar eru með heimild í þeim.“ í 29. gr. er svo kveðið á um síðustu leyfilegu gjalddaga þ.e. 15. október og 15. desem- ber. Þar segir ennfremur að framleiðsluráð setji nánari reglur um greiðslurnar. Framleiðsluráð hefur sett þá reglu að bændur skuli fá 75% greitt á fyrri gjald- daga og lokauppgjör á þeim síð- ari. í athugasemdum með frum- varpi laganna segir um 29. gr.: „Ákvæði þessarar greinar byggist á því að afurðastöðvum sé með afurðalánum gert kleift að upp- fylla skyldur þessar.“ Og á öðr- um stað um sömu grein. „Gerðar verði ráðstafanir til þess að fjár- magna nauðsynlegar og árstíða- bundnar birgðir landbúnaðarvara að fullu, þannig að greiðsla til bænda fyrir afurðir verði inntar af hendi þegar eða sem fyrst eftir afhendingu.“ Hins vegar er nið- urlag þessarar lagagreinar ein- kennilegt í meira lagi, en þar segir: „Heimilt er einstökum framleiðendum að semja um annan hátt á greiðslum en að ofan greinir.“ Hér vaknar því sú spurning: Hvers vegna þarf að hafa í lögum, sem eru jafn afger- andi og að framan greinir, ákvæði sem þetta? Miðað við að forsendur laganna standist er þetta ákvæði óþarft með öllu. Hér er þó kjarni málsins. „Forsendur laganna eru ekki fyr- ir hendi“, og það merkilega er, að það er viðurkennt í lögunum sjálfum, með þessu ákvæði sem síðast er vísað til. í ljósi þessa lýsi ég áhyggjum mínum vegna ummæla Hreiðars Karlssonar kaupfélagsstjóra Kaupfélags Þingeyinga í síðasta Víkurblaði, um að þetta mál þeirra Garðs- feðga sé aðför að félagskerfi bænda og kaupfélögunum. Hið rétta er að þau lög sem áttu hér að tryggja ákveðinn rétt bænda hafa stefnt kaupfélögunum í voða. „Það þarf að lagfæra.“ Á sínum tíma þegar búvöru- lögin voru til meðferðar á Alþingi átti Steingrímur J. Sig- fússon núverandi landbúnaðar- ráðherra sæti í landbúnaðarnefnd neðri deildar. Gagnrýndi hann þessa lagasmíð mjög eindregið, mest sakir þess hversu flausturs- lega var að henni unnið. Skilaði hann þá séráliti varðandi frum- varpið. Þar er að finna eftirfar- andi: „Að því er best verður séð hefur fjármagn engan veginn ver- ið tryggt með fullnægjandi hætti til þess að ákvæði um greiðslu afurðaverðs fái staðist. Frá upp- hafi virðist því hætta á að þau ákvæði verði dauður bókstafur auk þess - sem öllu er alvarlegra - að þær vonir sem þær gætu vak- ið hjá bændum yrðu falsvonir.“ Með hliðsjón af þessu sýnist mér að nú sé lag fyrir félag slát- urleyfishafa með formann sinn Hreiðar Karlsson í broddi fylk- ingar, sem hefur fengið fyrr- greinda dómsniðurstöðu að vopni, að fela nýskipuðum land- búnaðarráðherra, Steingrími J. Sigfússyni, málið í hendur, hon- um er það greinilega hugleikið og knýja á um að forsendur laganna sem varða þessi mikilsverðu rétt- indi bænda verði tryggðar. Að áfrýja þessum dómi að þessu óreyndu væri hins vegar alger afleikur og heimskuleg aðför að réttindum bænda, og ég trúi því ekki að Hreiðar Karlsson eða kaupfélögin yfirleitt vilji taka þátt í slíku. Halda menn kannski að gagnstæð dómsniðurstaða í þessu máli sé betra tæki til að ná þessu markmiði? - Svari hver fyr- ir sig. Með bestu kveðjum til bænda og kaupfélaganna. Ámundi Loftsson, Lautum, Reykjadal. í desember verður ekið sem hér segir: Laugardaginn 3. desember á 30 mínútna fresti frá Ráðhústorgi, á tímabilinu frá kl. 09.35-16.35. Laugardaginn 10. desember á 30 mínútna fresti frá endastöð við Þórunnarstræti á tímabilinu 09.10-18.10. Athugið! Nýtt leiðakerfi. Laugardaginn 17. desember á 30 mínútna fresti frá endastöð við Þórunnarstræti á tímabilinu 09.10-22.10. Forstöðumaður. Sparifjár- eigendur Hjá okkur fást nánast öll örugg veröbréf sem bjóöast á veröbréfamarkaöi á hverjum tíma. Vextir umfram Tegund bréfs verðtryggingu Einingabréf 1, 2 og 3 .... 10,0-13,0% Bréf stærri fyrirtækja 10,5-11,5% Bréf banka og sparisjóða 8,5- 9,0% Spariskírteini ríkissjóðs .. 7,0- 8,0% Skammtímabréf 7,0- 8,0% Hlutabréf ? Verðbréf er e/gn sem ber arð. Gengi Einingabréfa 2. desember 1988 Einingabréf 1 3.376,- Einingabréf 2 1.921,- Einingabréf 3 2.200,- Lífeyrisbréf 1.698,- Skammtímabréf 1,179 4J3KAUPÞING NORÐURLANDS HF Ráðhústorg 5 Akureyri • Sími 96-24700 mm hejur fengið andlitslyftingu! Tækjasýning frá kl. 10-18 laugardagiim 3. desember. Komið • Sjáið • Hlustið Látið fagmann ráðleggja Viðgerðarþjónusta • Sœkjum • Sendum Nœg bílastœði bakatil MEISTARAFÉLAG RAFEINDAVIRKJA TRYGGIR GÆÐIN Glerárgötu 32 Sími 23626 "® hljómflutningstæki ISFISHER myndbönd sdeco sjonvorp ljósritunarvélar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.