Dagur - 02.12.1988, Page 8

Dagur - 02.12.1988, Page 8
8 - DAGUR - 2. desember 1988 2. desember 1988 - DAGUR - 9 jj^g^_^pumin^ikunnor Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Spurt var á dagheimilinu Flúðum á Akureyri Viihelm Einarsson, 4 ára: Ég hlakka til jólanna. Þá ætla ég aö kveikja á kertunum. Mér finnst líka skemmtilegt aö leika mér, teikna og búa til hluti úr leir. Lillý Erla Adolfsdóttir, 3 ára: Mér finnst skemmtilegast aö leika mérsvonafimm mínútur í einu. Þaö er gaman aö fara í feluleik og póný. Svo hlakka ég til jólanna því mamma bjó einu sinni til piparköku-kökuhús, -bangsa og -kisu. Hún ætlar aö gera þaö aftur og ég ætla aö borða kökurnar. Anna Kristín Þórhallsdóttir, 5 ára: Mér finnst gaman aö leika mér í pónýhestaleik. Þaö er líka skemmtilegt að lita og teikna en úti finnst mér mest gaman aö feluleik og eltingaleik. Svo hlakka ég til jólanna því þá fæ ég jólapakka og jólakort. Elvar Magnusson, 4 ára: Þaö er mest gaman aö fara í feluleik, ég fel mig oft undir boröum. Samt finnst mér ennþá skemmtilegra aö leita sjálfur aö öörum. Á jólunum er gaman, þá ætla ég að baka og mér finnst piparkökur bestar. Ég vil fá bangsa í jólagjöf. Andri Már Samúeisson, 2 ára: Mér finnst skemmtilegast aö leika mér aö kubbum, ég var aö búa til eldflaug úr kubbum áöan. Svo er gaman aö teikna og leira. Enginn töframaður með pípuhatt - spjallað við Susanne Wilke gæðastjóra hjá Fiskiðju Raufarhafnar hf. Susanne Wilke er gæðastjóri hjá Fiskiðju Raufarhafnar. Hún er fædd og uppalinn í Dusseldorf í Þýskaiandi, en kom hingað til lands sem skiptinemi á vegum þjóðkirkj- unnar árið 1980. „Mér leist mjög vel á mig hér á landi og varð því eftir,“ sagði hún. I febrúar síðastliðnum hóf hún störf hjá Jökli og hefur búið á Raufarhöfn síðan ásamt fimm ára gamalli dóttur sinni, Klöru Dorotheu. Á meöan Susanne var skipti- nemi fór hún víða um landið, en settist síðan að í Reykjavík og hóf nám við Háskóla íslands, fyrst í íslensku fyrir erlenda stúd- enta en síðar einnig í þýsku. Jafnframt því stundaði hún einn- ig nám í Fiskvinnsluskólanum. „Ég hef mjög gaman af því að vinna í fiski og mig langaði líka að læra eitthvað praktískt," sagði Susanne, en hún útskrifast úr skólanum um næstu áramót. Nú er hún að afla sér reynslu sem kröfur eru gerðar um varðandi nemendur í Fiskvinnsluskólan- um, en hún sagði að í Dusseldorf væri ekki um neina fiskvinnslu að ræða. Susanne sagði starf gæðastjóra mikilvægt, en það felst m.a. í því að sjá um að vel og snyrtilega sé gengið um frystihúsið og að tryggja að gæði vörunnar séu ávallt eins og best verði á kosið. „Þessu starfi hefur ávallt verið sýndur mikill skilningur í þessu húsi,“ sagði hún. Hins vegar sagði hún að þetta starf væri því miður ekki alls staðar álitið jafn mikilvægt, þó svo að þróunin væri að verða sú að meiri áhersla væri lögð á gæðaþáttinn í fisk- vinnslunni. „Það er tiltölulega stutt síðan athygli manna beind- ist að þessum þætti, en sem betur fer er áhugi manna að aukast. Það hefur vart fallið úr dagur í vinnu hjá Fiskiðju Raufarhafnar og er útlit fyrir samfellda vinnu fram í miðjan des- embcr. Susanne Wilke gæðastjóri hjá Fiskiðju Raufarhafnar: „Þessu starfi hefur ávallt verið sýndur mikill skilningur í þessu frystihúsi.“ Mynd: TLV að enginn töframaður með pípu- hatt, sem getur kippt kanínunni upp hvenær sem er. Þetta tekur allt saman tíma.“ Susanne sagði að á hennar könnu væri einnig að sjá um vel- líðan starfsfólks á vinnustað og væri fyrirhugað að fara bráðlega af stað með leikfimi. Allt væri til- búið til að hún gæti hafist, en leiðsögnina vantaði. Væri nú unnið í að fá einhvern sem gæti tekið hana að sér. „Það skiptir miklu máli upp á gæði vörunnar að fólki líði vel á vinnustaðnum. Það er ekki við því að búast að fólk sem líður illa geti framleitt góða vöru. Þess vegna verðum við að huga að þessum málum líka.“ Hin sígilda spurning um hvern- ig henni líkaði dvölin á Raufar- höfn var að sjálfsögðu lögð fyrir Susanne. „Ég kann vel viö mig hérna. Það er heilmikið um að vera, ég held ég sé upptekin í fé- lagsstörfum þrjú kvöld í viku. Það eru ýmiss konar námskeið í gangi og hér er spilað blak. Þá var verið að stofna bókmennta- leshring á staðnum, sem er mjög spennandi. Ætli ég sé ekki upp- teknari hér en ég var í Reykja- vík,“ sagði Susanne. Hún bætti því við að sér og dóttur sinni hefði verið vel tekið á staðnum. mþþ Þetta kostar mikla þolinmæði, það þarf stöðugt að fylgjast vel með því sem fram fer í húsinu og einnig að safna upplýsingum langt aftur í tímann til að skoða þróunina,“ sagði Susanne. Hún benti á að í nokkrum frystihúsum hefði verið starfandi gæðastjóri um tíma, en um leið og eitthvað fór að þrengja að í rekstrinum væri það iðulega þannig að hann væri látinn fara fyrstur. „Við þurfum að sannfæra stjórnendur frystihúsanna um mikilvægi þessa starfs, því oft virðast þeir halda að þetta starf borgi sig ekki. Það má kannski segja að árangur af starfi gæða- stjóra komi ekki einn tveir og þrír um leið og hann hefur störf, en hann kemur síðar. Það er líka mikilvægt fyrir kaupendur fisks- ins að vita að um þessi mál sé hugsað í fyrirtækinu og gefur þeim ákveðna tryggingu fyrir góðri vöru. Gæðastjóri er auðvit- Þeir sem unnið hafa í frystihúsi vita hversu kærkomin heimsókn brýnarans er. Þessi virðist halda upp miklu fjöri þegar hann brýnir hnífana. Hjá Fiskiðju Raufarhafnar hf. á Raufarhöfn vinna nú um 50 manns og er það svipaður fjöldi og verið hefur á þessum fíma árs. Vinna hófst að nýju hjá Fiskiðjunni í febrúar á þessu ári og sagði Hólmsteinn Björnsson framkvæmdastjóri að fyrirsjáanlegt tap yrði á rekstrinum í ár. Á síðasta ári skilaði fyrirtækið um 13 milljón króna hagnaði. Rauðinúpur er búinn með út- hlutaðan þorskkvóta sinn og er nú á skrapveiðum, en hann á eitthvað eftir af karfakvótanum. Hólmsteinn sagði að útlit væri fyrir að samfelld vinna yrði í frystihúsinu fram í miðjan des- ember og hingað til hefði vart fallið úr dagur í vinnu hjá því fólki sem starfar í húsinu. Auk afla Rauðanúps á Jökull rétt á 25% af afla Súlnafellsins, en skipið er nú farið til veiða að nýju eftir vélaskipti. Um 15 trill- ur róa frá Raufarhöfn, frá þrem- ur upp í níu tonn og hefur afli er dýrt að gera ekki neitt - spjallað við Hólmstein Björnsson framkvæmdastjóra Fiskiðju Raufarhafnar þeirra verið góður á haustdögum, en Hólmsteinn sagði að frekar lélegt hefði verið hjá trillunum í sumar sem leið. Afli Rauðanúps hefði á hinn bóginn verið heldur lélegur svo til allan síðasta mánuð. Heimild er fyrir því að veiða 5% af kvóta næsta árs nú síðustu vikurnar fyrir áramót, en það gera um 80 tonn fyrir Rauðanúp. Skipið hefur þegar klipið örlítið af þeirri veiðiheimild. „Það er ekki mjög skynsamlegt hafi menn einhverja von um betri afkomu á næsta ári. Það er hins vegar dýrt að gera ekki neitt,“ sagði Hólm- steinn. mþþ Fiskiðja Raufarhafnar. Vinna hófst í nýja húsinu á þessu ári, en gamla frysti- húsið brann fyrir nokkrum árum. ,Það er útlit fyrir samfellda vinnu fram í miðjan desember, segir Hólmsteinn Björnsson framkvæmdastjóri, Myndir: TLV %AMOR Jakkaföt á dömur og herra. Skyrtur með Maó kraga. Rúllukragapeysur og -bolir. Pilsdragtir. Vorum aÖ taka upp mikiÖ affallegum peysum, buxum og skyrtum fyrir dömur og berra. Ný sending af beltum og treflum. Ferðamannabærinn Akureyri Atvinnumálanefnd Akureyrar gengst fyrir opnum fundi um framtíðarhorfur í ferða- málum á Akureyri og nágrenni. Hefurþú skoðun á því hvert hlutverk bæjarfélags á að vera í: ★ Gistihúsarekstri ★ Ferðamannaverslun ★ Uppbyggingu tjaidstæöa ★ Rekstri safna ★ Skipulagi samgangna ★ Öðrum þáttum í ferðaþjónustu Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA kl. 14.00 laugardaginn 3. desember. Allir áhugaaðilar um ferðamál hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á mótun ferða- málastefnu Akureyrarbæjar. OPIÐ HUS Vegna aukins áhuga almennings á verðbréfavið- skiptum mun Iðnaðarbankinn á Akureyri hafa opið næstu 3 laugardaga fyrir þá sem vilja kaupa eða kynna sér þau verðbréf sem bankinn hefur til sölu. Útibúið,. Geislagötu 14, verður opið frá kl. 11-15 og eru allir velkomnir. Laugardaginn 3. des- ember veröur dr. Sig- uröur B. Stefánsson, framkvæmdastjóri Veröbréfamarkaöar lönaöarbankans ásamt sölumönnum útibúsins og svara fyrirspurnum varöandi veröbréf og hlutabréf. Við vonum að sem flestir viðskiptavinir og annað áhugafólk um verðbréfaviðskipti sjái sér fært að koma og ræða málin yfir kaffibolla, í notalegu umhverfi. 0 lónaöarbankínn Geislagötu 14, Akureyri.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.