Dagur - 03.12.1988, Page 4

Dagur - 03.12.1988, Page 4
4 - DAGUR - 3. desember 1988 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKFIIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÓRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Loksins lækka vextir Bankarnir hafa ákveðið að lækka nafnvexti um 6% að jafnaði í þessum mánuði og raunvextir lækka um allt að 1%. Þessi ákvörðun kemur ekki á óvart, enda hefur verðbólga hríðlækkað síðustu vikur. Það er hins vegar vonum seinna sem vextirnir fylgja þeirri þróun og vaxtalækkun kemur til framkvæmda. Reyndar þurfti ríkisstjórnin að hóta því að koma vöxtunum niður „með illu," ef forráðamenn peningastofnana létu sér ekki segjast. Margir stjórnmálamenn hafa lýst undrun sinni á því tregðulögmáli sem ríkir í bankakerfinu, þegar vaxta- lækkun er annars vegar. Það hefur sýnt sig að vaxta- lækkun kemur ekki til framkvæmda fyrr en löngu eftir að forsendur fyrir henni hafa skapast. Þetta stafar m.a. af því að samkeppnin um sparifé landsmanna er gífurlega hörð og gylliboðunum rignir yfir fjármagns- eigendur, ekki bara frá bönkum og sparisjóðum, held- ur einnig peningafyrirtækjum á hinum svonefnda gráa markaði. Þess vegna veigra bankastjórnir sér við að ganga á undan og lækka vexti af ótta við að tapa við- skiptavinum yfir til keppinautanna. Það þorir enginn að hafa frumkvæðið. Sú harða gagnrýni, sem sett hefur verið fram á bankakerfið, á fullan rétt á sér. Bankaútibúum hefur fjölgað ótrúlega hratt og starfsmannafjöldinn vaxið að sama skapi. Bankakerfið er orðið eitt stærsta báknið í þjóðfélaginu. Sem dæmi má taka að á Akureyri eru nú starfræktar 10 afgreiðslustofnanir banka og spari- sjóða. Flestum er ljóst að ekki er þörf fyrir öll þessi úti- bú á ekki stærri stað. Þó er fjöldi bankastarfsmanna og útibúa á Akureyri hlutfallslega mun minni en á höfuð- borgarsvæðinu. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, gerði íslenska bankakerfið að umtalsefni í ræðu sinni á flokksþingi Framsóknarflokksins fyrir skömmu. Þá sagði hann m.a.: „Því betur sem ég kynnist ástandi atvinnu- og efna- hagsmála sannfærist ég betur um það að íslenska bankakerfið er afar óhagkvæmt og í raun ófært um að gegna því hlutverki, sem því er ætlað, sem á að sjálf- sögðu fyrst og fremst að vera að þjóna atvinnugrein- unum. Líklega er það rétt sem ágætur maður sagði um bankakerfið: „Það er sjúkt og þarfnast alvarlegs upp- skurðar." Fullyrt er að vaxtamunur sé a.m.k. tvöfalt meiri hér en talið er sæmilegt erlendis og starfsmenn í bönkum eru margfalt fleiri miðað við umfang en er hjá öðrum þjóðum. Bankarnir stunda, í kappi við gráa markaðinn, útlán sem fyrir nokkrum árum voru talin versta okur, knúðir, að því er þeir segja sjálfir, af skammsýnum aðgerðum Seðlabankans, sem allar bitna á viðskiptabönkunum einum en hlífa gráa mark- aðnum. Endurskipulag bankakerfisins er nauðsynlegt ásamt heildarlöggjöf og stjórn á peningamarkaðnum öllum. Banka þarf að sameina, hvað sem þeir heita, og ákveða ber hámark leyfilegs vaxtamunar." Dagur tekur undir þessi orð forsætisráðherra. Bankakerfið er vægast sagt afar óhagkvæmt og þarfn- ast gagngerrar endurskipulagningar við. Það er þjóð- arhagur að gengið verði til þess verks hið fyrsta. BB. myndbandarýni Afþreying í meðallagi Vidcoland: In Praise of Older Women Útgefandi: Stcinar Leikstjóri: George Kaczender Aðalhlutverk: Tom Berengcr, Karen Black, Susan Strasberg Sýningartími: 106 mínútur Aldurstakmark: 16 ár Gamla, rangeygða frygðargellan Karen Black leikur hér stórt hlut- verk á móti hinum ágæta Tom Berenger. Myndin er að vísu nokkuð komin til ára sinna og Karen Black því enn í nokkrum blóma og ekki verður á móti mælt að hún stendur sig bara vel og slær öðrum hjásvæfum Berengers við. In Praise of Older Women fjallar um flagarann Andras Vayda (Tom Berenger), sem ekki gerir greinarmun á ást og kynlífi. Fyrstu spor hans á þeirri braut stígur hann 12 ára gamall með vændiskonu í Vín í síðari heims- styrjöldinni. Átján ára gamall er hann farinn að táldraga konur í Búdapest og verður bara vel ágengt. Ávallt eru þetta konur sem eru mun eldri en hann sjálfur. Myndin snýst að mestu um þetta kynlífsbrölt í Andras. Hann er snillingur í umgengni við þrosk- aðar konur, a.m.k. bráðna þær flestar og stökkva upp í bólið með honum. í bakgrunni er bylt- ingin í Ungverjalandi 1956 og innrás Rússa í landið. Andras kemst til Kanada og heldur áfram að fleka konur. Þótt myndin lýsi stanslausu stóð- lífi er varla hægt að kalla hana djarfa. Hún er frekar langdregin og hæg en þó eru gamansöm atriði er krydda einhæfa tilver- una. Sjálfsagt er Andras að leita að sjálfum sér með þessu atferli, sjálfsagt er hann tilfinningalega óþroskaður, sem rekja má til rauna hans á uppvaxtarárum, og því er ekki nema sjálfsagt að myndin endi á því að hann finni bæði sjálfan sig og hina hreinu til- finningu sem nefnist ást. Þessi mynd hlaut 10 útnefningar til æðstu verðlauna kanadíska kvikmyndasambandsins. Kannski segir það einhverjum eitthvað. Það segir mér hins veg- ar ekki neitt. Ógeðsleg en spennandi Videoland: Prince of Darkness Útgefandi: Myndform Leikstjóri: John Carpenter Adalhlutverk: Donald Pleasence, Lisa Blount, Victor Wong, Jameson Parker Aldurstakmark: Bönnuð yngri en 16 ára (skiljanlega) Prince of Darkness er nýjasta mynd leikstjórans John Carpent- ers en hann er kunnur fyrir hryll- ingsmyndir sínar, s.s. The Fog og Halloween. Best þykir mér hon- um takast upp þegar hann fæst við dularfulla atburði, ógn- þrungna spennu, í stað þess að velta sér upp úr blóði og líkams- leifum eins og honum hættir til í PRlNCE^pARKNESS þessari mynd. En myndin er sannarlega ógnvekjandi og skiljanlegt að hún beri titilinn „Biggest horror film of 1988“. Carpenter fæst við sjálfan myrkrahöfðingjann, eða reyndar afkvæmi hans. Ekki ætla ég að segja nánar frá efni myndarinnar því hún er virkilega spennandi og tekst leikstjóranum vel upp á köflum. Handritið er að mörgu leyti lunkið en útfærslan kannski full ógeðsleg, t.a.m. finnst mér óþarfi hjá Carpenter að hrella mann með alls kyns lindýrum og skorkvikindum. Donald Pleasence (presturinn) er ómissandi í hryllingsmyndum og tekst honum bærilega upp. Victor Wong (Birack) er líka sannfærandi svo og Lisa Blount (Catherine). Jameson Parker leikur hetjuna Brian og er þar full lítil persónusköpun á ferð- inni. Þá er gaman að sjá djöfla- rokkaranum Alice Cooper bregða fyrir. Athafnir fólksins í hinu skelfi- lega klaustri eru ekki nægilega agaðar frá leikstjórans hendi en spennan er þó alltaf til staðar og verður stundum óbærileg. Ég er ekki sáttur við endi myndarinnar, en dæmi hver fyrir sig. Tæknilega séð er myndin afar vel gerð. Erfið leit að ástínni Videoland: The Lost Boys Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: Joel Schumacher Aðalhlutverk: Jason Patrick, Kiefer Sutherland, Jami Gertz, Corey Haim, Dianne West Sýningartími: 94 mínútur Aldurstakmark: 16 ár Það er fjör að vera vampýra. Týndu drengirnir sofa allan daginn, djamma liðlanga nóttina, hlusta á geggjað rokk, eldast ekki. Þeir búa yfir óvenjulegum kröftum og blóð æsir þá. Þannig eru nú helstu fyrirbærin í hinni vinsælu kvikmynd The Lost Boys. Nútíma hryllingsmynd er hún auglýst en þó er henni gjarn- an tekið sem ævintýramynd eða jafnvel gamanmynd. Ég hef fregnað að The Lost Boys sé sérstaklega vinsæl hjá unglingum, enda eru unglingar í aðalhlutverkum og þeirra á með- al leikarasonurinn og leikarinn efnilegi Kiefer Sutherland. Þetta vekur hins vegar upp ýmsar spurningar því myndin er bönnuð börnum innan 16 ára. Hafi þetta átt að vera unglingamynd hefði Scumacher að ósekju mátt sieppa blóðbaðinu sem þarna á sér stað undir lok myndarinnar. Myndin hefði ekki orðið verri fyrir vikið. Ég hefði frekar viljað sjá The Lost Boys sem gamansama afbökun á vampýrumyndum því vissulega eru skondnir sprettir í handritinu. í þessum búningi er hún ekki nema í meðallagi sem afþreying, að mínu mati. Mörg góð atriði prýða myndina, s.s. stökkið af brúnni og fluglistir týndu drengjanna, og tæknivinna er með ágætum. Þá er Sutherland yngri góður í hlutverki Davids, en annars er leikurinn köflóttur. Já, ég bjóst við meiru. Farsakennt geimævintýri Videoland: Spacelialls Útgefandi: JB-myndhönd Leikstjóri: Mel Brooks Aðalhlutverk: Mel Brooks, John Candy, Rick Moranis, Bill Pullman. Daphen Zuniga Sýningartími: 92 mínútur Aldurstakmark: Ekkert Hverju búast menn við þegar þeir setjast niður með Mel Brooks á skjánum? Auðvitað öfgakenndu gríni, farsakenndum uppákomum og kolrugluðum söguþræði. Þetta gengur allt eftir í Spaceballs, eða Geimkúlum, og þótt myndin sé kannski ekki toppurinn á ferli Mel Brooks þá er hún í betri kanti nýlegra gamanmynda, að mínu mati. Hún er nefnilega skemmtileg, en sömu sögu er ekki hægt að segja um margar af þessum gaman- myndum. Öðrum þræði er Spaceballs ósköp ljúf ævintýramynd en hins vegar háðsk ádeila á frægar geim- myndir á borð við Star Wars, Star Trek, Alien og hvað þær nú heita allar. Helst þyrfti maður að hafa séð þessar myndir til þess að gera sér grein fyrir skopstælingu Mel Brooks. Ég hef iítið velt mér upp úr geimævintýrum en þó þekkti maður viss atriði eins og hina óborganlegu Alien-stælingu. Söguþráðurinn er í stuttu máli þessi. Vespa Drúídaprinsessa á að giftast prinsinum Valíum, en strýkur. Illmennin Hj'álmur og Skrúbbur forseti hyggjast ræna henni en hetjurnar Lone Starr og Barf koma til hjálpar. Upphefst þá mikill darraðardans þar sem barátta góðs og ills er í öndvegi. Dvergurinn Jógúrt kemur til sögunnar og hefur mikil áhrif á gang mála. Ástin lætur á sér kræla og hefur meydómsvarinn nóg að gera. Myndin er skemmtilega fráleit og leikararnir hafa greinilega gaman af ýkjukenndum hlutverk- um sínum. Mel Brooks sjálfur er í hlutverki Jógúrts og forsetans, John Candy er hálfur maður og hálfur hundur, Rick Moranis er hinn aulalegi Hjálmur og Bill Pullman leikur Lone Starr, sem er nokkurs konar Harrison Ford- týpa. Þá má ekki gleyma dekur- prinsessunni sem Daphne Zuniga lifir sig inn í. Ágæt skemmtun, er niðurstaða mín. SS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.