Dagur - 03.12.1988, Page 9
"ráttnMaeHttfl*8-
Kynning
á ensku
liðunum
Aftasta röð (frá vinstri til hægri): Pat Van den Hauwe, Dave Watson, Mike Stowell, Neville Southall, Neil McDonald, Paul Bracewell.
Miðröð: Chris Goodson, Graham Smith (framkvæmdastjóri unglingaliðs), Pat Nevin, Stuart McCall, Neil Pointon, Graeme Sharp, Wayne Clarke, lan Snodin,
Neil Adams, lan Wilson, Mick Lyons (þjálfari), Terry Darracott (aðstoðarframkvæmdastjóri), Paul Power (þjálfari unglingaliðs).
Fremsta röð: Trevor Steven, Adrian Heath (nú Espanol), Kevin Ratcliffe, Colin Harvey (framkvæmdastjóri), Peter Reid, Tony Cottee, Kevin Sheedy.
Everton er eitt stórliðanna í
Englandi, en þarf að búa við þá
áþján að vera staðsett í sömu
borg og Liverpool liðið og
skuggi þess hefur hvílt yftr
Goodison Park með fáum und-
antekningum síðustu árin. En
það hefur ekki alltaf verið þann-
ig og Everton hefur leikið sam-
fellt í 1. deild síðan 1954. Ever-
ton hefur Englandsmeistaratitla
að baki, 1891, 1915, 1928,
1932, 1939, 1963, 1970, 1985
og 1987. 2. deildarmeistari
1931 og Evrópumeistari bikar-
hafa 1985. Þá hefur liðið orðið
FA-bikarmeistari 1906, 1933,
1966 og 1984. Liðið hefur einn-
ig sigrað í FA Charity Shield 8
sinnum þar af fjórum sinnum í
röð frá 1984 til 1987.
Everton hefur marga snjalla
leikmenn í liði sínu, markvörð-
urinn Neville Southall er lands-
liðsmarkvörður Wales og talinn
besti markvörður í 1. deildinni.
Kevin Ratcliffe miðvörður og
fyrirliði liðsins er einnig í lands-
liði Waies og við hlið hans leikur
Dave Watson enskur landsliðs-
maður. lan Snodin hefur verið
færður af miðjunni í stöðu
hægri bakvarðar sem Neil
McDonald hefur nú misst. Pat
Van Den Hauwe welskur lands-
liðsmaður er vinstri bakvörður
liðsins.
Tengiliðirnir eru sterkir, bar-
áttuhesturinn Peter Reid er
enskur landsliðsmaður og Stuart
McCall einnig mjög sterkur.
Tveir landsliðsútherjar eru
hjá liðinu, þeir Trevor Steven
sem verið hefur fastamaður í
landsliði Englands og Pat Nevin
hefur leikiö fyrir Skota. Miðherj-
ar liðsins hafa verið þeir Graeme
Sharp mjög sterkur skallamað-
ur og skoskur landsliðsmaður
og hinn marksækni enski lands-
liðsmaður Tony Cottee.
Liðið hafnaði í fjórða sæti 1.
deildar í fyrra og stóð sig vel í
bikarkeppnum án þess þó að
sigra. Meiðsli settu þá strik í
Framkvœmdastjórinn
í júní 1987 hætti Howard
Kendall sem framkvæmda-
stjóri Everton og tók við Athl-
etic Bilbao á Spáni, hann hafði
þá nýlokið við að gera Everton
að Englandsmeisturum. Við
starfi hans tók Colin Harvey
sem hafði um árabil verið
aðstoðarmaður hjá Kendall.
Harvey lék 321 deildarleik fyrir
Everton og var einn hluti hins
fræga tengiliðatríós sem átti
mestan þátt í að gera Everton
að Englandsmeisurum 1970,
hinir voru Kendall og Alan Ball
sem nú er framkvæmdastjóri
Portsmouth. Harvey lék einnig
í nokkra mánuði með Sheffield
Wed. áður en hann lagði
skóna á hilluna og gerðist
þjálfari, þá lék hann einn
landsleik fyrir England. Það
kom honum mjög á óvart að fá
framkvæmdastjórastöðuna,
sem hann hafði ekki sóst eftir
og margir töldu hann ekki rétta
manninn í þetta erfiða starf,
hann væri ekki nægilega harð-
ur og stjórnsamur. Everton
tapaði Englandsmeistaratitlin-
um á hans fyrsta leiktímabili
með liðið, og hefur ekki gengið
sem best undir hans stjórn.
Colin Harvey framkvæmdastjóri
Everton.
Heyrst hafa raddir að undan-
förnu sem telja að Everton sé
að reyna að lokka Howard
Kendall til félagsins að nýju,
en stjórn félagsins ber þetta þó
allt til baka, en er þó ekki
ánægð með árangur Harvey til
þessa.
Aðstoðarmaður hans er
Terry Darracott sem er fyrrum
leikmaður með liðinu og sömu
sögu má segja um þjálfarana
Mick Lyons og Paul Power
sem báðir eru fyrrverandi leik-
menn Everton. Þ.L.A.
reikninginn, miðvallarleikmað-
urinn Paul Bracewell hefur lítið
getað leikið undanfarna mánuði
vegna meiðsla, en hann er
enskur landsliðsmaður.
Félagið gerði sér miklar vonir
um velgengni í vetur eftir kaup
á sterkum leikmönnum í sumar,
en þrátt fyrir góða byrjun hefur
liðið valdið fylgismönnum sín-
um miklum vonbrigðum það
sem af er. Liðið sigraði í sínum
tveim fyrstu leikjum í 1. deild,
þar sem Tony Cottee skoraði
fjögur mörk. Hann hefur þó átt
erfitt uppdráttar að undanförnu
og aöeins bætt við þrem mörk-
um fyrir liðið. Everton hefur leg-
ið um miðja deild og ekki sjáan-
leg merki þess að félagið blandi
sér af krafti í baráttuna um
meistaratitilinn í vetur.
Þá gerði liðið aðeins jafntefli í
3. umferð deildabikarsins á
heimavelli gegn 2. deildarliði
Oldham, en tókst þó að sigra í
síðari leiknum og er því komið
áfram í 4. umferð deildabikars-
ins.
Það virðist því sem skuggi
risans á Anfield muni enn um
sinn hvíla yfir Goodison Park.
Þ.L.A.
Kaup og sölur
Everton keypti fjóra mjög
snjalla leikmenn til félagsins í
sumar fyrir stórar upphæðir og
má segja að þar hafi Colin
Harvey tekið nokkra áhættu,
en með þessum kaupum taldi
hann sig vera kominn með lið
sem gæti endurheimt Eng-
landsmeistaratitilinn úr hendi
Liverpool. Dýrastur þessara
leikmanna var miðherjinn
Tony Cottee sem kostaði
£ 2.200.000 frá West Ham.
Hann hefur leikið landsleiki fyr-
ir England og er mjög mark-
sækinn. Útherjinn Pat Nevin
kom frá Chelsea fyrir
£ 925.000, en hann er skosk-
ur landsliðsmaður. Stuart
McCall miðvallarleikmaður var
keyptur frá Bradford fyrir
£ 850.000, hann gat valið á
milli þess að leika fyrir Eng-
land eða Skotland og valdi að
lokum Skota og hefur nú leikið
í 21 árs liði þeirra.
Sá fjórði er liðið keypti í
sumar er Neil McDonald, hægri
bakvörður frá Newcastle, hann
kostaði £ 525.000 og var
Tony Cottee var keyptur frá West
Ham fyrir £2,2 milljónir.
keyptur til að fylla stöðu Gary
Stevens landsliðsbakvarðar
Englands er var seldur til Rang-
ers í Skotlandi í sumar fyrir 1
milljón punda. McDonald hefur
leikið með 21 árs liði Skot-
lands.
Auk milljón punda sölunnar
á Gary Stevens til Rangers
voru þrír aðrir leikmenn seldir í
sumar. Markvörðurinn Alec
Chamberlain til Luton fyrir
£ 150.000, miðvörðurinn Der-
ek Mountfield til Aston Villa á
£ 450.000 og hinn fjölhæfi
Alan Harper til Sheffield Wed.
fyrir £ 250.000. Þá varð bak-
vörðurinn Paul Power að
hætta vegna meiðsla og var
gerður að þjálfara unglinga-
liðsins.
Nú nýlega var miðherjinn
Adrian Heath seldur til
spænska liðsins Espanol fyrir
um £ 500.000 og örugglega
fylgja fleiri sölur og kaup í kjöl-
farið, t.d. er miðherjinn Wayne
Clarke á sölulista og Everton
hefur augastað á ýmsum leik-
mönnum annarra liða. Þ.L.A.
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Fyrsta konan í vetur er nú
með í getraunaleiknum
Páll Pálsson sigraði Jóhann Inga son sinn í seinustu viku með
því aö hafa 6 rétta. Hann hefur nú skorað á Soffíu Jóhannsdótt-
ur starfsmann hjá Amaro en hún er gamalreyndur tippari og hef-
ur verið með í getraunum í mörg ár.
Páll segir að hann hafi oft lotið í lægra haldi fyrir henni í get-
raunum. „Hún er ansi glúrin á að hitta á rétt úrslit," sagði Páll.
Ekki vildi Soffía gera mikið úr kunnáttu sinni á þessu sviði.
„Það er mjög gaman að tippa og hef ég haldið tryggð við get-
raunirnar í gegnum tíðina, þótt ég laumi nú einstaka sinnum
lottómiða svona með.“
Páll: Soffía:
Aston Villa-Norwich 2 Aston Villa-Norwich 2
Everton-T ottenham 1 Everton-Tottenham 1
Luton-Newcastle 1 Luton-Newcastle 1
Millwall-West Ham 1 Millwall-West Ham 1
Nott.For.-Middlesbro X Nott.For.-Middlesbro X
Q.P.R.-Coventry 1 Q.P.R.-Coventry 2
Sheff.Wed.-Derby 1 Sheff.Wed.-Derby 2
Wimbledon-Southampt. 2 Wimbledon-Southampt. 1
C.Palace-Man.City X C.Palace-Man.City 2
Portsmouth-W.B.A. 1 Portsmouth-W.B.A. 1
Stoke-Chelsea X Stoke-Chelsea X
Sunderland-Watford 2 Sunderland-Watford 2
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2