Dagur - 03.12.1988, Side 16

Dagur - 03.12.1988, Side 16
16 - DAGUR - 3. desember 1988 VV V 4 poppsíðan 1} Umsjón: Valur Sæmundsson. Útsendingar Ólundar FM 100,4 hefjast í dag: „Fyrst og fremst öðruvísi útvarpsstöð“ - segir Kristján Ingimarsson útvarpsstjóri Eins og kom fram á þessum vett- vangi sl. laugardag átti útvarpsstöö- in Ólund aö hefja útsendingarföstu- daginn 25. nóv. kl. 17.00. Þegar fjöldi fólks haföi stillt tækin sín á FM 100,4 og beið þess aö útvarpsstjór- inn hæfi upp raust og flytti ávarp, heyrðist ekki bofs. „Helvítis drasl þessi útvarpsstöö," hugsuöu ábyggilega margir þegar ekkert kvak haföi heyrst kl. 19.00 og slökktu á viðtækjunum. En af hverju stafaði þessi töf? Hvenær veröur byrjað aö senda út? Kristján Ingi- marsson útvarpsstjóri er mættur til að svara þessum spurningum og mörgum fleiri. „Ég vil byrja á því að biöja velunn- ara og virka hlustendur Ólundar af- sökunar á óþægindum þeim sem hljóta að hafa skapast vegna þess aö ekki var staðið við auglýsta dagskrá, en að baki lágu óviðráðan- legar ástæður," sagði Kristján með áherslu. „Smámisskilningur kom upp á varðandi leiguhúsnæðið en það var ekki tilbúið þegar stöðin hafði áformað að fara í loftið,“ bætti hann við og fékk sér sopa af kaffinu. „Útsendingar munu hins vegar hefj- ast í dag laugardaginn 3. des. á fjöl- breyttri hátíðardagskrá. Þar verður dagskrá stöðvarinnar og þeir sem að henni standa, kynnt, ávörp verða flutt, tónlistarmenn koma í heim- sókn og flytja lifandi tónlist og fólk verður tekið tali. Að sjálfsögðu verð- ur opið hús þar sem fólk getur komið, skoðað, fengið sér kaffi og meððí og jafnvel tekið þátt í lifandi dagskrá ef áhugi er fyrir hendi,“ sagði Kristján, og bætti því við að stöðin væri til húsa í Eiðsvallagötu 18. - Hvernig verður svo dagskrá Ólundar hagað? Er búið að skipu- leggja það eitthvað? „Já, við ætlum að senda út öll kvöld vikunnar milli kl. 19.00 og 24.00, en á föstudögum og laugardögum verður þó byrjað kl. 17.00. Dag- skráin verður mjög fjölbreytt, sem er hinum mikla fjölda dagskrárgerðar- fólks að þakka. Ef ég á að nefna nokkur dæmi, þá get ég minnst á menningarþætti, viðtalsþætti, tón- listarþættir eru margvíslegir, fregnir o.fl. o.fl. Ólund verður alltaf ferskt og skemmtilegt útvarp, því þar fær fólk með hugmyndir og sköpunar- gáfu að njóta sín. Frjálslega verður farið með dagskrá stöðvarinnar og alltaf eitthvað nýtt að gerast. Einnig má bæta því við að við verðum í góðu sambandi við skólana á Akur- eyri og verða sérstakir skólatímar þar sem nemendum gefst kostur á að vera með sína eigin dagskrá." - Þú nefndir þarna margvíslega tónlistarþætti. Gætirðu kannski farið nánar út í þá sálma og jafnvel svar- að því í leiðinni hvort rétt sé að ein- hverjar tónlistarstefnur eða tónlist- armenn séu á bannlista. „Við leggjum mikið upp úr því að vera með öðruvísi tónlist en hinar stöðvarnar og því spilum við næst- um allt nema listapopp og diskó- síbylju. Á Ólund heyrir þú rokk, pönk, fönk, djass, blús, nýbylgju, klassík og allt hitt sem lítið heyrist annars staðar. Það er hins vegar ekki sannleikanum samkvæmt að einhver bannlisti sé í gangi yfir lög „Erum bjartsýnir á viðtökur hlustenda." Endurskinsmerki storauka öryggi í umferðinni. íslensk útvarpshefð hefur hingað til einkennst af leiðindum." útvarpstækjum sínum, það vill eitthvað nýtt og öðruvísi. Það vill Ólund. Við óttumst ekki samkeppn- ina, því að það verður engin sam- keppni. Við erum ekki að eltast við neinn ákveðinn hlustendahóp, held- ur útvörpum við til þeirra sem vilja hlusta hverju sinni og höfum gaman af.“ - Nú er stöðin til húsa í höfuð- stöðvum Alþýðubandalagsins á Akureyri. Er þetta pólitísk útvarps- stöð? „Nei, það er misskilningur að Ólund sé í einhverjum tengslum við Alþýðubandalagið. Ólund er óháð og ólofuð stöð og ópólitísk líka. Einu tengslin við eigendur hússins er leigusamningur. En auðvitað er öllum pólitískum samtökum vel- komið að viðra skoðanir sínar á stöðinni, oins og öðrum félagasam- tökurn." - Að lokum Kristján. Hvernig kom það til að hugmyndin að útvarps- stöðinni fæddist? Ertu ekki smeykur núna þegar allt á að fara í fullan gang seinna í dag? „Hvernig hugmyndin fæddist? Það er nú saga að segja frá því. Ég var eitt sinn staddur ásamt... nei, nei við félagarnir erum bara 3 einstakl- ingar úr þeim stóra hópi sem vill kollvarpa hinni íslensku útvarps- hefð, sem hingað til hefur einkennst af leiðindum. Við urðum bara fyrstir til að gera eitthvað í málinu. Að lokum vil éa bara hvetja fólk til að taka þátt í Olund og gera hana að góðri útvarpsstöð. Eins vil ég enn og aftur minna á kaffi og meððí ( Eiðsvallagötu 18 kl. 16.00 í dag,“ sagði þessi bjartsýni athafnamaður og vil ég gjarnan þakka honum kær- lega fyrir spjallið. En þá er poppsíðunni lokið í dag, við sjáumst að viku liðinni. eða flytjendur, heldurveljum við þá þáttagerðarmenn til starfa sem vilja hjálpa okkur að byggja upp öðruvísi og gott útvarp," sagði Kristján, fékk sér annan kaffisopa og setti sig í stellingar fyrir næstu spurningu. - Hverjir standa að stöðinni? Er þetta ekki kostnaðarsamt fyrir ykkur og hvernig er meiningin að standa undir rekstrarkostnaði? „Það er fjöldi af indælu fólki sem stendur að Ólund, utan við mig, Hlyn Hallsson og Jón Hjalta Ás- mundsson, sem komum þessu af stað. Má þar nefna hinn fríða flokk dagskrárgerðarfólks ásamt ýmsum hjálparhellum. Allir sem starfa við útvarpsstöðina eru áhugamenn í sjálfboðavinnu. Þrátt fyrir það er kostnaðurinn við reksturinn um 4.000 krónur á dag. Það er að mestu leyti undir góðvild og gjaf- mildi fólks komið, hversu lengi okk- ur tekst að halda stöðinni gangandi, því að frjáls framlög og styrkir eru efst á fjáröflunarlista Ólundar. Einn- ig ætlum við að selja tíma til félaga- samtaka og einstaklinga en auglýs- ingar eru neðst á listanum." - Hvernig hafa undirtektir félaga- samtaka verið við þessu tækifæri til að kynna sig og starfsemi sína? „Við vorum að Ijúka við að senda út bréf til allra félagasamtaka á Akur- eyri þar sem við kynntum fyrir þeim þann möguleika að kynna starfsemi sína í útvarpi. Þetta er nýjung á Akureyri og ég held að viðbrögðin verði góð. Nú þegar hafa okkur bor- ist fyrirspurnir um þessa sölutíma sem við köllum „Gatið“. Ég vil skora á bæði félög og einstaklinga að not- færa sér þetta einstaka tækifæri og taka þátt í lifandi dagskrá,“ segir útvarpsstjórinn og lýkur úr kaffiboll- anum. - Eruð þið bjartsýnir á viðtökur hlustenda? Óttist þið ekkert sam- keþpni við aðrar stöðvar? „Við eigum von á góðum viðtökum. Maður bæði finnur það og heyrir, að fólk er orðið þreytt á síbyljunni, auglýsingaskruminu og slúðrinu ( Sæti Vinsældalistar Hljóðbylgjan - vikuna 26/11-3/12 1988 Áður Vikur Lag Flytjandi 1. (3.) (3) Harder I try Brother Beyond 2. (2.) (4) Kokomo .... The Beach Boys 3. (1.) (4) I’m gonna be Prodaimers 4. (17.) (2) Wild, wild west Escape Club 5. (7.) (4) Groovy kind of love Phil Collins 6. (8.) (4) You are the one A-ha 7. (22.) (2) Nothing can divide us Jason Donovan 8. (11.) (4) Blautar varir Síðan skein sól 9. (4.) (4) Je ne sais pas pourquoi Kylie Minogue 10. (N) (1) Two hearts Phil Collins íslenski listinn - vikuna 26/11-2/12 1988 Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi 1. (2.) (6) l'm gonna be 500 miles Prodaimers 2. (1.) (10) Kokorrio ; Beach Boys 3. (4.) (3) Two hearts Phil Collins 4. (7.) (5) Wild, wild west Escape Club 5. (10.) (5) Girl You know it’s true Millie Vanillie 6 (6) (8) Desiree U2 7. (18.) (4) Pað er svo undarlegt Bítlavinafélagið 8. (8.) (11) Where did I go wrong UB-40 9. (12.) (3) Never trust a stranger Kim Wilde 10. (5.) (11) Groovy kind of love Phil Collins Rás 2 - vikuna 25/11-2/12 1988 Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi 1. (1.) (5) l'm gonna be (500 miles) The Proclaimers 2. (3.) (5) Handle with care .. Traveling Wilburys 3. (2.) (10) De smukke unge mennesker Kim Larsen 4. (5.) (9) Where did I go wrong UB-40 5. (4.) (5) The harder I try Brother Beyond 6. (7.) (6) Wild, wild west 7. (6.) (12) Groovy kind of love 8. (12.) (4) Two hearts 9. (13.) (4) Það er svo undarlegt meö unga menn Bítlavinafélagið 10. (14.) (3) Ógeðslega ríkur .. Eggert Þorleifsson

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.