Dagur


Dagur - 08.12.1988, Qupperneq 2

Dagur - 08.12.1988, Qupperneq 2
Safnastofnun Austurlands: Framhaldíð háð íjárveitingu segir bæjarstjórinn á Egilsstöðum Byggingaframkvæmdir við Safnastofnun Austurlands á Egilsstöðum eru sífellt í gangi þó að verkið gangi misjafnlega vegna skorts á fjárveitingum. Peir aðilar sem standa að bygg- ingunni eru íslenska ríkið sem byggir yfir minjasafnið að hluta, þ.e. það fjármagn sem gefið var til minjasafns á Austurlandi vegna Skriðuklausturs á sínum tíma. Norður- og Suður-Múla- sýsla byggja yfir héraðsskjalasafn og Egilsstaðabær yfir bók-asafn. Að sögn Sigurðar Símonarson- ar bæjarstjóra á Egilsstöðum, er hver aðili fyrir sig með ákveðinn hluta byggingarinnar og misjafnt á hvaða byggingarstigi hver hluti er. „Framhaldið er háð fjárveit- ingu, en samningur við ríkissjóð liggur fyrir, þar sem gert er ráð fyrir að byggingu Ijúki á um fjór- um árum.“ VG Framkvæmdahraði við Safnastofnunina er algerlega háður fjárveitingu. Mynd: GG Frá Vopnafirði. Mynd: TLV Byggingaframkvæmdir á Vopnafirði: Samdráttur á síðustu árum en aukin ásókn út á land - unnið að skipulagsmálum í vetur Byggiitgaframkvæmdir hafa talsvert dregist saman á Vopnafirði á síðastliðnum þremur árum, en á tímabili þar á undan stóðu slíkar fram- kvæmdir í miklum blóma. Omar Þ. Björgólfsson bygg- ingafulltrúi segir að frá árinu 19',8, er hann kom á staðinn hafi ævinlega verið byrjað á sex íbúðum og ekki hvikað frá þeirri tölu. Frá 1984 hafi talan lækkað um helming og að jafn- aði byrjað á tveimur til þremur íbúðum á ári. Á Vopnafirði eru nú nokkrar lausar lóðir til úthlutunar, en Ómar segir menn ekki hafa tekið við sér og sótt um þær. í vetur verður unnið að gerð deiliskipu- lags og segir hann tvö ný svæði koma til greina varðandi íbúðar- byggingar. Taldi Ómar að menn væru að bíða eftir hvort svæðið yrði ofan á áður en þeir- hæfu íbúðarbyggingar. Talsvert hefur verið byggt af iðnaðarhúsnæði á staðnum, bif- reiða- og vélaskemmur, fóður- stöð fyrir loðdýrarækt svo eitt- hvað sé nefnt. Talsvert er af laus- um lóðum undir iðriaðarhúsnæði á Vopnafirði. í vetur verður unnið af kappi við skipulagsmál og verður deili- skipulagið þar eflaust efst á teikniborðinu, auk þess sem aðalskipulag bæjarins verður skoðað nánar. Þá stendur til að gera skipulag vegna svæðis fyrir verbúðir smábátaeigenda og smábátahöfnin er ekki fullfrá- gengin. Fleiri verkefni í skipu- lagsdeildinni er m.a. hesthúsa- hverfi sem rísa á við bæinn og er fyrirhugað að þar rísi níu hús, hvert fyrir átta hesta. Hinu fyrsta er þegar lokið og er unnið að smíði tveggja til viðbótar. Ekki er farið út í byggingu Nokkuð er um skort á sjúkra- liðum á landinu og auglýsti t.d. Kristnesspítali í Eyjaflrði eftir kaupleiguíbúða á vegum sveitar- félagsins nú, en á síðustu tveimur árum hafa verið byggðar fjórar íbúðir í verkamannabústaðakerf- inu. Ómar segir að skortur á íbúðum í bænum hafi verið nokk- ur á undanförnum árum, enda hafi eftirspurnin aukist ár frá ári. í haust segir hann að losnað hafi aðeins um markaðinn, en mikið af fólki af höfuðborgarsvæðinu hafi hringt og spurst fyrir um atvinnu og húsnæði á staðnum og virtist sér sem fólk af því svæði vildi í auknum mæli flytjast út á land. mþþ sjúkraliðum til starfa nýlega. Bjami Arthursson framkvæmda- stjóri sagði ástandið ekki slæmt hjá þeim, hér væri aðeins verið að auglýsa eftir sjúkraliðum í stöður sem losna á næstunni. Kristnesspítala: Helst vel á hjúkrunar- fræðingum og sjúkraliðum - útskrift sjúkraliða frá VMA hefur bætt ástandið „Vissulega höfum við þurft að ráða ófaglært starfsfólk til þess að komast hjá því að fækka rúmum, en ástandið með sjúkraliða hefur heldur skánað undanfarin ár,“ sagði Bjarni. Hvort því er hægt að þakka beint að Verkmennta- skólinn á Akureyri útskrifar sjúkraliða, sagði hann: „Að sjálf- sögðu skilar hann árangri á svæð- inu og ég fullyrði, að betra ástand hjá okkur nú er vegna árangurs skólans." Sömu sögu er að segja varð- andi hjúkrunarfræðinga, en á Kristnesi eru nær allar stöður skipaðar. „Við höfum ekki þurft að auglýsa eftir hjúkrunar- fræðingum í mörg ár. Það er ekki mikil hreyfing meðal hjúkrunar- fræðinga og margir þeirra eru með háan starfsaldur," sagði Bjarni. Aðspurður um hugsanlega ástæðu fyrir þessu, sagðist hann helst telja að framkvæmdir við spítalann og fyrirhugaðar breyt- ingar laði að starfsfólk og haldi í það sem fyrir er. VG 2 - DrÁÖÚft - 8. déáémbéí 1908° Hótel Blönduós: Bessi hættir um áramót - tekur við Hótel Borgarnes Bessi Þorsteinsson hótelstjóri á Blönduósi hefur sagt starfi sínu lausu og tekur við stöðu hótelstjóra hjá Hótel Borgar- nesi um næstkomandi áramót. Hlutafélagið Hótel Blönduós var stofnað haustið 1981 og í febrúar 1982 réðist Bessi til hótelsins sem kokkur. Hann tók við stöðu hótelstjóra 1. okt. ’84. Sölufélag Austur-Húnvetninga er stærsti hluthafinn í Hótel Blönduósi hf. en aðrir hluthafar eru ýmis félagasamtök og ein- staklingar. Á hótelinu eru 18 gistiherbergi og þar starfa nú 6 manns en starfs- mannahald eykst svo um helming yfir sumarmánuðina. Ekki hefur verið ráðinn hótelstjóri í stað Bessa en þau mál munu verða at- huguð í rólegheitum í vetur. fh Bamsburðarleyfi kennara á hreinu - júní, júlí og ágúst reiknast sem einn mánuður Agreiningur milli ijármálaráðu- neytisins og kcnnarafélaganna um barnsburðarleyfi kennara er nú úr sögunni. Gengið hefur verið frá samkomulagi um reglur og segir í nýútkomnu félagsblaði BK, að fulltrúar beggja kennarafélaganna í samstarfsnefnd um þessi mál telji niðurstöður viðunandi. Framvegis reiknast barnsburð- arleyfi þannig, að mánuðirnir júní, júlí og ágúst teljast sem einn mánuður. Leyfið reiknast alltaf frá fæðingardegi, nema ef um er að ræða fæðingu í júní eða júlí, þá reiknast leyfið frá I. ágúst. Sem dæmi um leyfi, myndi barnsburðarleyfi vegna fæðingar barns 30. desember Ijúka 30. maí og framundan væri sumarleyfi kennara. Kennsla hæfist á ný 1. september, 8 mánuðum eftir fæð- ingu barnsins. Fæðist barn 20. ágúst, lýkur leyfi 20. janúar, 5 mánuðum eftir fæðingu barnsins og fæðist barn 15. júní, lýkur leyfi 1. janúar 6 og hálfum mán- uði eftir fæðingu því júní, júlí og ágúst teljast einn mánuður. Kennarar geta hafið töku barnsburðarleyfis allt að tveimur mánuðum fyrir áætlaðan fæð- ingardag ef þeir óska þess, en slíkt má ekki hafa áhrif til leng- ingar barnsburðarleyfis á kennslu- tímabili skóla. Veikindi á með- göngu ber að líta á sem veikinda- leyfi og að öðru leyti fer um barnsburðarleyfi kennara sam- kvæmt reglugerð um barnsburð- arleyfi opinberra starfsmanna. Reglur þessar taka gildi frá I. júní 1988. VG Veiðikeppni DNG: Sá stærsti var 160 kg - verðlaunin fóru í Garðinn Rafeindafyrirtækið DNG gekkst í sumar fyrir veiðikeppni á meðal ísienskra sjómanna sem nota tölvuvindur frá fyrir- tækinu. Sigurvegarinn var sá er veiddi stærsta fiskinn á DNG-vindu á tímabiiinu 20. júní til 31. júlí. Þeir sjómenn sem veiddu stóra fiska á DNG-vindur á umræddu tímabili, áttu að senda inn til fyrirtækisins upplýsingar um það. Stærsti fiskurinn sem veiddist og upplýsingar fengust um, var 160 kg lúða sem Þór Ingólfsson í Garðinum veiddi. Hann taldist því sigurvegari keppninnar og hlaut að launum fullkomna DNG-tölvuvindu, sem honum var afhent í Keflavík í fyrrakvöld. Næst stærsta fiskinn veiddi Baldur Bóasson frá Siglufirði, 157 kg lúðu. Þátttaka var nokkuð góð og var keppnin hörð um sigurlaunin. -KK

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.