Dagur - 08.12.1988, Page 5
8. desember 1988 - DAGUR - 5
lesendahornið
Svik og prettir í bílaviðskiptum:
Tvíborgar bíl vegna
falsaðra undirskrifta
Ég vil gjarnan vara fólk við því
sem bílabraskarar eru látnir
komast upp með, svo fleiri ungir
menn þurfi ekki að lenda í sömu
vandræðum og við sem þurfum
nú að tvíborga bíl. Við bílakaup-
in fórum við eftir ráðleggingum
sem við treystum alveg, því við
fengum þær hjá starfsmönnum
hjá Höldi sf. á Akureyri.
Guðmundur, tvíburabróðir
minn, seldi í vor bíl á 480 þúsund
krónur á átta mánaða skuldabréfi
og keypti annan bíl á 600 þúsund.
Bílaviðskiptin fóru fram hjá Bíla-
sölunni Höldi sf. og samkvæmt
ráðleggingum starfsmanna þar
greiddi Guðmundur mismuninn á
Svar
bflasalans
Hjörleifur Gíslason, bflasali,
svarar:
Umræddur maður, sem nú hef-
ur verið ákærður fyrir að hafa
falsað undirskriftir afa síns og
annars manns á skuldabréf, hafði
áður keypt bíl gegnum bílasölu
okkar. I því tilviki var allt í lagi
og skuldabréf sem þá var gefið út
var greitt skilvíslega og á því var
annar ábyrgðarmaðurinn sá sami
og á síðara bréfinu. Hafði ég því
ekki ástæðu til að ætla annað en
að allt væri með felldu í síðara
skiptið. Mér finnst slæmt til þess
að vita að atvik sem þetta geti
gerst því þá bitnar óheiðarleiki
eins manns á bílasölunni og sak-
lausum kaupendum.
Ég hef rekið bílasölu á Akur-
eyri frá árinu 1980 og er þetta í
eina skiptið á þeim tíma sem ég
veit til áð málarekstur hafi orðið
vegna falsaðra undirskrifta í
þeim fyrirtækjum sem ég hef
starfað við.
bílunum en greiðslur af skulda-
bréfinu áttu að ganga upp í
greiðslur af bílnum sem hann
keypti. Til þess þurfti hann að
skrifa undir skuldabréfið sem
þriðji ábyrgðarmaður en þá
höfðu þegar tveir ábyrgðarmenn
skrifað undir bréfið og var annar
þeirra staddur á staðnum ásamt
kaupanda bílsins. Sölumaður hjá
bílasölunni skrifaði undir sem
vottur að réttri undirskrift og
fjárræði kaupanda.
í sumar fór bróðir minn að fá
tilkynningar um vanskil á
skuldabréfinu. Höfðum við þá
samband við starfsmenn bílasöl-
unnar og var sagt að ábyrgðar-
menn á skuldabréfinu væru pott-
þéttir, við gætum orðið fyrir ein-
hverjum óþægindum vegna van-
skilanna, í formi bréfaskrifta eða
símhringinga en við kæmurn aldrei
til með að þurfa að borga neitt af
skuldabréfinu. En þegar ábyrgð-
armennirnir tveir á Akureyri
fengu tilkynningu um vanskil
kærðu þeir strax fölsun á undir-
skriftum sínum á skuldabréfinu.
Bíllinn sem bróðir minn seldi,
gegn skuldabréfinu, er nú
skemmdur eða eyðilagður eftir
árekstur svo ekki er hægt að láta
kaupin ganga til baka. Lögmenn
aðilans sem keypti skuldabréfið
hafa lagt fram löghaldsbeiðni og
var Guðmundi gert að leggja
fram tryggingu fyrir greiðslu á
bréfinu.
Mér gremst að maðurinn sem
keypti bílinn geti sloppið við að
borga með því að leggja fram
falsaðar undirskriftir og skil ekki
hvers virði skuldabréf er, sem
engir ábyrðarmenn eru að. Við
bræðurnir erum tvítugir og að
vonum verulega sárir yfir þessum
eftirmálum af bílaviðskiptunum
og viljum því vara aðra unga
menn við að gæta vel að því
hvaða plögg þeir skrifa undir,
t.d. á bílasölum.
Víkingur Björnsson,
Sandfellshaga, Oxarfíröi.
Dýrt er drottins orðið
Feröalangur skrifar!
Ég var á ferð í höfuðborginni
nýlega og auðvitað mátti ég til að
berja herlegheitin í Kringlunni
auguin.
Þegar ég hafði rölt um góða
stund, keypti ég mér á skyndibita-
staðnum KVIKK, hamborgara,
gosglas og skammt af frönskum.
Borgaði ég fyrir það 685 krónur.
Hér á Akureyri keypti ég sams
konar rétt í Esso nestunum á 375
krónur - mismunurinn er því 315
krónur.
Kynningar — Tilboð
Verðum með kynningu á Fransmann kartöflum í
Kjörmarkaði KEA, Hrísalundi föstudaginn 9. des-
ember frá kl. 15-18 og laugardaginn 10. des. frá kl.
“I0--I8.
Tilboðsverð iPil
á 2.5 kg.
Land jarðepla & grænmetis
Svalbarðseyri ■ Simi 96-25800
Jölatilboð
fra Radionausti
Bang&Olufsen
T6C
14" [/erð frá Hr.
X9.900,-
20" v&ð fré hr.
29.900-,
\Jerð fré Hr.
29.900,-
Ath.
jl/C 5uper Vt15
Homið aftur
\jerð fré kr.
18.700,-
e BOND0TEC
1*dantaX-
% Ji/erri ryHsugu tylgir _
£ yfíiW hoouergufustrsujam 8.6
Minnum
Naust ©21300 • Glerárgötu 26 • 600 Akureyri
Mýjar vörur
— vandaðar vörur
Kaupmannafólag
Akureyrar
Viðskiptaviiiir
athugið!
Vöruafgreiösla á Akureyrarflugvelli verður opin
til kl. 17.00 á laugardögum til jóla.
FLUGLEIDIR
Góðarfréttir fyrir verslun og iðnað á Norðurlandi
Sambandsskip að sunnan á Akureyri alla mánudagsmorgna.
Takið vikuna snemma með
SKIPADEILD SAMBANDSINS AKUREYRI
Hafnarstræti 91-95, sími 27797