Dagur


Dagur - 08.12.1988, Qupperneq 7

Dagur - 08.12.1988, Qupperneq 7
es&rd£S&mbefc19l88 ^PAOUR & 7 Bætt bifreiðaskoðun stuðlar að auknu umferðaröryggi - ályktun frá fundi bifreiðaverkstæða og bílgreinasambandsins á Norðurlandi Fundur bifreiðaverkstæða á Norðurlandi, haldinn á Hótel KEA laugardaginn 3. desember 1988, leggur áherslu á að í sam- bandi við skipulag bifreiða- skoðunar úti á landi verði tekið upp samstarf við bifreiðaverk- stæðin við uppbyggingu þessarar þjónustu. í þessu verði tekið tillit til hagsmuna landsbyggðarinnar og nauðsynjar þess að byggja upp þjónustu við bifreiðaeigendur um allt land. Fundurinn telur sýnt að þær hugmyndir um færanlegar skoð- unarstöðvar sem kynntar hafa verið séu alls ekki framkvæman- legar og allsendis úr takt við umhverfi, veðurfar og samgöngu- möguleika og lýsir furðu sinni á því þekkingarleysi á málum landsbyggðarinnar sem þar kem- ur fram. Fundurinn telur nauð- synlegt að Bifreiðaskoðun íslands hf. kanni möguléika á því að verkstæðum verði gefinn kost- ur á því að setja upp viðbótar- búnað fyrir almenna skoðun, því ljóst er að verkstæðin þurfa hvort sem er að ráðast í fjárfestingar fyrir milliskoðun og endurskoðun ef hún á að koma að sömu notum fyrir bifreiðaeigendur í dag og að undanförnu, a.m.k. hvað varðar athugasemdir um hemlabúnað, þ.e. að þeir þurfi ekki að fara í skoðun eftir viðgerð á verkstæði. Bifreiðaverkstæðin hafa ítrek- að lýst því yfir að þau séu tilbúin að skapa þá grunnaðstöðu fyrir skoðun sem talað hefur verið um, þannig að hægt sé að skipuleggja skoðunina á þann hátt að þyki heppilegast fyrir bifreiðaeigend- ur. Mörg verkstæði hafa þegar í dag viðurkenningu til endur- skoðunar og fleiri og fleiri verk- stæði eru að fá heimild til burðar- virkismælinga og hjólastillinga og eðlilegt að búnaður og þjálfun yrðu þróuð áfram í það að hag- nýta sér húsnæði og aðstöðu verkstæðanna til að vera með almenna skoðun. Fundurinn telur ljóst af þeim gögnum og útreikningum BGS sem fram hafa verið lögð að sam- vinna við verkstæðin sé mun ódýrari kostur en færanlegar skoðunarstöðvar hvað varðar fjárfestingar og rekstur og skoðunin komist í nýtt og betra form mun fyrr. Auk þess stuðli það að uppbyggingu verkstæða og þjónustu á viðkomandi stöðum. Fundurinn vekur áthygli á því að aðilar sveitar- og bæjar- stjórna víðs vegar um land hafa ályktað um þetta mál og hvatt til samstarfs Bifreiðaskoðunar ís- lands hf. við bifreiðaverkstæðin á viðkomandi svæðum. Fundurinn ítrekar þörf sam- ráðs og samvinnu aðila í þessu máli svo hægt sé að ná sem best- um árangri við þessar breytingar á bifreiðaskoðun, bifreiðaeigend- um og þeim sem starfa við þjón- ustu við bifreiðaeigendur til hags- bóta. Odýrtoggott í jólamatinn TILBOÐ hefst á morgun föstudag Bayoneskinka kr. 721kg. Lambahamborgarhrygqur kr. 560.- kg. Selst meðan birgðir endast. Neytendafélag Akureyrar og nágrennis lagði leið sína í Mat- vörumarkaðinn, KEA Hrísa- lundi og Hagkaup og kannaði verð á kjöti, sem líklegt er að verði á borðum margra heimila um jólin. Matvörumarkaður- inn kemur best út úr þessari könnun með flestar kjötteg- undir á lægstu verði. Ýmis til- boð verða í gangi hjá verslun- unum nú í desember og er ekki getið um þau í þessari könnun, þar sem tilboðin standa oft ekki lengur en í viku. KEA Hrísalundi selur meðan birgðir endast hangikjötslæri úrbeinuð á gömlu verði 1.009,- kr. kíló- ið. Hagkaup selur svínakjöt frá Ali, sem er dýrara en ann- að svínakjöt sem þeir selja. Eins og alltaf þá leggur NAN ekki mat á gæði vörunnar, það eftirlátum við neytandanum. Verðkönnun NAN TEGUND VÖRU LAMDAKJÖT MATVÖRU- MARKAÐURINN KEA HRÍSALUNDI HAGKAUP MISMUNUR HÆSTA OG VERÐI A LÆGSTA- MISMUNUR % Lambalæri nýtt lkg 639.-X 641.- 640.50 2. — 0.03 Lambahryggur nýr lkg 606.-X 608.- 608.40 2.40 0.03 Lambalæri fyllt m. ávöxtum úrb.lkg 1.042.- Lambahamb.hryggur m.beini lkg 658.- 723 .- 614.-x 109.- 17.7 Londonlamb úr framparti lkg 744.-X 816 .- 72.- 9.6 Londonlamb úr læri lkg 1.081.- Londonlamb úrb. lkg 857.- Hangikjötslæri m.beini lkg 698.-x 792,- 705.- 94.- 13.4 Hangikjötslæri úrb. lkg 1.050.-X 1.192.- 1.14 7 50 142,- 13.5 Hangikjöt úr framparti m.beini lkg 440.-x 486.- 462.- 46.- 10.4 Hangikjöt úr framparti úrb. lkg 799.-x 892.- 800.- 93.- 11.6 SVlNAKJÖT Svínahryggur nýr lkg 959.-X 1.081.- 1.054.- 122,- 12.7 Svínahamb.hryggur m.beini lkg 1.070.- 1.197.- 899.-X 298.- 33.1 Svinahamb.hryggur úrb. lkg 1.480.-x 1.902.- 1.645.- 422 .- 28.5 Svinalæri nýtt m.beini lkg 555.-X 612.- 598.- 57.- 10.2 Svinalæri nýtt úrb. lkg 952.- Svinalæri reykt m.beini lkg 672.-X 745.- 692,- 73 .- 10.8 Svinalæri reykt úrb.(bayoneskinka)lkg 937,-x 1.036.- 944.- 99.- 10.5 Svínabógur nýr hringskorinn lkg 548,- 595.- 547.-X 48.- 8.7 Svinakambur reyktur úrb. lkg 912.-X 1.042.- 1.017.10 130,- 14.2 Svinakótelettur lkg 969.-X 1.081.- 1,062.- 112.- 11.5 NAUTAKJÖT Nautalundir lxg 1.799.- 1.669.-X 1.811.20 142.- 8.5 Innanlærisvöóvi lkg 1.070.-X 1.200.- 130.- 12.1 FUGLAKJÖT Rjúpur óhamflettar 1 stk. 350.-X 375.- 375.- 25.- 7.1 Rjúpur hamflettar 1 stk. 430.- Pekingönd lkg 658.70X 713.- 54.30 8.2 Aligæs reytt og svióin lkg 715.-X| 1.205.- 885.- 490.- 68.5 Kalkúnn lkg 966.-x 995.- 29.- 3.0

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.