Dagur - 08.12.1988, Side 14
14 - DAGUR r- 8. desember 1988-
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
Umræðufundur
Norðurlandsdeild FVH boðar til umræðu-
fundar fimmtud. 8. desember kl. 16.00 á
Hótel KEA.
Fyrirlesarar verða Már Guðmundsson efnahagsráð-
gjafi fjármálaráðherra og Vilhjálmur Egilsson fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs. Stjórnin.
Atvinnurekendur ath.
Óska eftir framtíðarstarfi á Akureyri.
Er menntaður véla- og iðnrekstrarfræðingur.
Hef margþætta reynslu af málmiðnaði og er vanur
að vinna sjálfstætt.
Upplýsingar veitir Kristján í símum 91-13119 og
92-11735.
s
Oskum eftír
að ráða fyrir einn af viðskiptavinum okkar í
eftirtalin störf.
★ Hálfsdagsstarf á skrifstofu.
Starfið felst m.a. í vinnu við umsjón bókhalds, reikn-
ingsgerð, innheimtu og önnur almenn skrifstofustörf.
Góð bókhaldskunnátta og reynsla í skrifstofustörfum
nauðsynleg.
★ Heilsdagsstarf við framleiðslustörf.
Starfssviðið er margvísleg vinna við hreinlega fram-
leiðslu hjá litlu iðnfyrirtæki.
Einungis samviskusöm og stundvís starfsstúlka ekki
yngri en 20 ára kemur til greina.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni.
= ===== FELL hf. Tryggvabraut 22, sími 25455.
í Innilegar þakkir fyrir fjölmargar
heimsóknir, skeyti, gjafir,
símhringingar og áframhaldandi
samband á 90 ára afmæli mínu
þann 25. nóvember sl.
ISérstakar þakkir til barna minna
og nánustu ættingja fyrir góð
veisluhöld.
Guð blessi ykkur öll.
JÓN FRIÐRIKSSON Á HÖMRUM.
sf---------------------------
Bróðir okkar,
STEFÁN BJÖRNSSON
frá Víkingavatni,
Brekkugötu 37, Akureyri
lést fimmtud. 1. desember að Hjúkrunarheimilinu Seli.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstud 9. desember kl.
13.30.
Hallgrímur Björnsson,
Friðbjörg Björnsdóttir,
Indriði Björnsson
Innilegar þakkir færum við öllum sem auðsýndu okkur samúð
og hýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐNÝJAR INGIBJARGAR SIGVALDASÓTTUR,
Sandhólum, Tjörnesi.
Margrét Bjartmarsdóttir, Sveinn Egilsson,
Sigrún Bjartmarsdóttir, Sigurjón Ingimarsson,
Baldur Bjartmarsson, Kristín Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Fæddur 16. desember 1906 - Dáinn 29. nóvember 1988
Sonarleg kveðja frá Lionsklúbbi Akureyrar
í dag kveðjum við félagar í
Lionsklúbbi Akureyrar Lions-
pabba okkar eins og Eyþór var
oft nefndur í okkar hópi.
Eyþór var frumkvöðull Lions-
hreyfingarinnar í Eyjafirði, eða á
svæði 6 eins og það heitir á máli
okkar Lionsmanna. Á því svæði
eru í dag 9 Lionsklúbbar og má
með réttu kalla Lionsklúbb
Akureyrar og Eyþór föður þeirra
sumra, afa annarra og jafnvel
langafa einhverra.
Eyþór stofnaði Lionsklúbb
Akureyrar 10. mars árið 1956
ásamt 15 öðrum stofnfélögum og
var fyrsti formaður hans. í byrjun
þessa Lionsárs voru aðeins þrír af
þessum stofnfélögum sem enn
sýndu klúbbnum okkar trúnað og
hollustu og var Eyþór einn
þeirra. Sumir voru horfnir yfir
móðuna miklu, aðrir höfðu helst
úr lestinni við brottflutning úr
héraði, enn aðrir hætt störfum af
áhugaleysi einu saman.
Velvilji og vinátta Eyþórs H.
Tómassonar í garð klúbbsins
okkar var einstök. Hann var
ávallt reiðubúinn að liðsinna þeg-
ar til hans var leitað og skipti þá
ekki máli hvort um vinnu eða
verðmæti var að ræða.
Eyþór stofnaði Ekknasjóð
Lionsklúbbs Akureyrar með
mjög rausnarlegu framlagi. Sjóð-
urinn hefir að markmiði að veita
litlum ljósgeisla inn í tilveru
ekkna látinna félaga í svartasta
skammdeginu.
Nú er Eyþór Helgi Tómasson
horfinn okkur að sinni að strönd
nýrra verkefna og víst er að þar
situr hann ekki auðum höndum.
Siðreglur Lions eru níu. Hin
sjötta hljóðar svo: „Gerðu vin-
áttu að markmiði, ekki að
marki. Sönn vinátta krefst einsk-
is í eigin þágu og má aldrei vera
háð-gagnkvæmum greiða.“ Þetta
voru einkunnarorð Eyþórs
„Lionspabba okkar“.
Far þú í friði, hafðu þökk fyrir
allt og allt.
Lionsklúbbur Akureyrar.
Jólin ’88 í Vín
Ingimar Eydal leikur alla sunnudaga
fram að jólum.
Málverkasýning - Sölusýning.
Aðalsteinn Vestmann.
Kynning og sala á handunnu konfekti eftir
Benedikt Grétarsson, matreiðslumeistara.
Jólatréssala er hafin.
Eingöngu íslensk jólatré úr barrskógum Þingeyjarsýslu.
Þar á meðal hinn einstaki fjallaþynur.
Opið alla daga frá kl. 10-23
Keramik jólatrésfætur. Allt efni til skreytinga.
Gjafavörur í úrvali. Glæsilegar veitingar.
Jólatilboð á ísréttum.
Opið alla daga frá kl. 10-23
Blómaskáli
við Hrafnagil.
Sími 31333
J3
Jólamerki
„Framtíðar-
innar“
1988
Jólamerki kvenfélagsins „Frarn-
tíðin“ Akureyri er komið út.
Merkið er teiknað af frú Krist-
jönu Tryggvadóttur, og prentað
hjá Prentverki Odds Björnssonar
hf. Akureyri.
Sölustaðir eru Póststofan Ak-
ureyri, Frímerkjahúsið og Frí-
merkjamiðstöðin Reykjavík.
Félagskonur sjá um sölu á
Akureyri.
Merkið kostar 10 krónur og
örkin 120 krónur. Allur ágóði
rennur í elliheimilasjóð.
Gott fólk við treystum á ykkur!
Framtíðarkonur.
Dagur
lólablað
Jólablöð Dags verða tvö talsins að þessu sinni.
Fyrra blaðið kemur út föstudaginn 16. desember
en hið síðara þriðjudaginn 20. desember.
Þeir auglýsendur sem áhuga hafa á að auglýsa í
þessum blöðum eru beðnir að hafa samband við
auglýsingadeild Dags fyrir kl. 17.00 mánudaginn
12. desember.
Jafnframt eru aðrir þeir, sem hyggjast koma tilkynn-
ingum á framfæri í blaðinu, svo sem um messur um
jól og áramót, beðnir að hafa samband við blaðið
hið allra fyrsta. Síminn er 96-24222.