Dagur - 08.12.1988, Blaðsíða 15

Dagur - 08.12.1988, Blaðsíða 15
íþróftir KA sigraði ÍBV 24:19 - Liðið fór í gang í síðari hálfleik Knattspyrna: Jón Grétar í KA? Jón Grctar Jónsson sóknar- maður úr Val er e.t.v. á leið til KA næsta sumar. í samtali við Dag í gær sagðist Jón Grétar vera að hugsa málið og myndi hann gera upp hug sinn á allra næstu dögum. Jón Grétar er skæður sóknar- maður og myndi hann fylla vel upp í skarð Valgeirs Barðason- ar sem hefur ákveðið að hverfa aftur til síns gamla félags, ÍA. Antony Karl Gregory er góð- ur vinur Jóns Grétars og að sögn Jóns spilar það inn í áhuga hans á að koma til KA. Þeir léku saman í gegnum alla yngri flokka Vals og þekkja því vel til hvors annars. Valsmenn hafa nú sankað að sér mönnum, m.a. Halldóri Áskelssyni og Heimi Karlssyni, og ekki er ólíklegt að Jóni Grét- ari finnist að sér þrengt í fram- línunni. Þar eru nr.a. Sigurjón Kristjánsson, Valur Valsson, Tryggvi Gunnarsson, Jón Gunnar Bergs, Steinar Adolfs- son o.fl. þannig að samkeppnin er mikil um stöðu í framlínunni. Heyrst hefur að Róbert Har- aldsson, sem lék með KS tvö síðustu sumur, sé á leið til KA. Hann leikur nú með HK í 2. deildinni í handbolta og lýkur stúdentsprófi í vor þannig að hann myndi ekki koma norður fyrr en í vor. Það bendir því allt til að KA- menn mæti með sterkan hóp í baráttuna í 1. deildina næsta sumar. Knattspyrna/3. deild: KS og Dalvík mætast í fyrsta leik b-riðils 3. deildar Dregið var í tölluröð 3. deildar hjá KSÍ í gær. Sá leikur sem mesta athygli vekur í 1. umferð er leikur Dalvíkinga og Sigl- fírðinga á Dalvík. Nýliðinn Kormákur frá Hvammstanga fær Reyni í heim- sókn og Magni fær Austra frá Eskifirði í heimsókn á Grenivík. Þróttur Nes. mætir Valsmönnum frá Reyðarfirði á Norðfirði. í a-riðli mætast Grindvíkingar og ÍK, Leiknir og Hveragerði, Víkverji og Þróttur, Grótta og Afturelding og Reynir S. og badmintondrengirnir frá ísafirði. Þar sem reglunum um 3. deild var breytt á KSÍ-þinginu um helgina verður harðar barist í deildinni en áður. Ástæðan er sú að fimm neðstu liðin í a-riðli og sex neðstu liöin í b-riðli falla nið- ur í 4. deild. Öll liðin í b-riðli hafa nú geng- ið frá þjálfaramálum sínum. Hjá liðunum á Norðurlandi þjálfar Mark Duffield KS, Þorsteinn Ólafsson Magna, Kristinn Björnsson Dalvík, og að öllum líkindum mun Páll Leó Jónsson þjálfa Kormák áfram. Fram kærir KA - fyrir að nota Ingibjörgu með strákunum í 5. flokki KA sigraði ÍBV í gærkvöld í 1. deildinni í handknattleik með 24 mörkum gegn 19. KA þurfti töluvert fyrir sigrinum að hafa og það var ekki fyrr en í síðari hálfleik að heimamenn tryggðu sér sigurinn með góð- um kafla í byrjun hálfleiksins. KA-menn tóku Sigurð Gunn- arsson úr umferð í fyrri hálfleik og gaf það ekki góða raun. Eyja- menn spiluðu skynsamlega í sókninni, fiskuðu aukaköst sem Sigurður skoraði úr. Reyndar fór KA hræðilega með mörg dauðafæri úr hraða- upphlaupum og því tókst þeim ekki að hrista ÍBV-liðið af sér. Staðan í leikhléi var því 12:10. KA skoraði þrjú fyrstu mörk síðari hálfleiksins og þá virtust gestirnir missa móðinn. Ef örar innáskiptingar í lok leiksins hefðu ekki verið framkvæmdar hefði KA sigrað í leiknum með mun meiri mun. En lokatölur voru 24:19, eftir að KA var með 23:15 yfir þegar nokkrar mínútur voru til leiksloka. Axel Stefánsson var besti mað- ur KA í þessum leik, eins og oft Blak: Haukur valinn blakmaður 1988 Haukur Valtýsson úr KA hef- ur verið valinn blakmaður ársins 1988. Þetta er í fyrsta skipti sem blakmaður úr KA hefur verið útnefndur sá besti og er þetta mikill heiður og mikil lyftistöng fyrir starfsemi deildarinnar. Það eru Samtök íþróttafréttamanna sem standa að þessu vali. Valið á Hauki kemur ekki á óvart. Hann hefur um Iangt skeið verið einn fremsti blak- maður íslands og margreyndur landsliðsmaður. Haukur þjálf- aði KA-liðið í fyrra sem náði að komast í úrslit á íslandsmótinu og er nú einn lykilmaðurinn í hinu sterka KA-liði sem enn er ósigrað á þessu íslandsmóti. Erlingur Kristjánssun átti góðan Ieik í gærkvöld, skoraði 7 mörk. áður og varði m.a. fjögur víti. Friðjón var ágætur leiknum, skoraði falleg mörk og hefði að ósekju mátt reyna meira í sókn- Knattspyrna: Krístinn þjáJfar Dalvík Kristinn Björnsson hefur verið ráðinn þjálfari Dalvíkinga í 3. deildinni. Hann er ekki alveg ókunnugur hér norðanlands því hann þjálfaði lið Leifturs frá Ólafsfírði árið 1984 og kom því upp í 3. deild. Síðastliðin tvö ár hefur hann þjálfað Iið Stjörnunnar frá Garðabæ og kom því upp í 2. deild í haust. Kristinn kemur alkominn til Dalvíkur í apríl. Þangað til mun hann skreppa nokkrum sinnum norður og þar að auki stjórna æfingum hjá þeim strákum sem stunda nám í Reykjavík, e‘n þeir eru um átta talsins. Að sögn Snorra Finnlaugsson- ar formanns Knattspyrnudeildar UMFS ríkir mikil ánægja hjá þeim með hinn nýja þjálfara. „Kristinn hefur sýnt jjað og sann- að að hann er hæfur þjálfari og hefur gert góða hluti með þau lið sem hann hefur þjálfað." Mikil barátta verður í 3. deild- inni á næsta ári því vegna breyt- inga á reglum um deildina munu hvorki fleiri né færri en fimm af þeim níu liðum sem eru í b-riðli falla í 4. deild. inni. Pétur Bjarnason meiddist og Ólafur Hilmarsson nýtti sér það og skoraði sín fyrstu mörk fyrir KA. Erlingur var öruggur í vítunum og stóð sig vel í vörninni að halda Sigurði Gunnarssyni niðri. Guðmundur Guðmunds- son virðist kominn í gott form og er farinn að grípa eins og engill á línunni. Hjá ÍBV bar að vanda mikið á Sigurði Gunnarssyni. Jóhann Pálsson stóð sig vel á línunni og Sigurður Friðriksson var einnig ágætur í leiknum. Mörk KA: Eriingur Kristjánsson 7/4, Guö- mundur Guömundsson 6, Friöjón Jónsson 4, Jakob Jónsson 3, ólafur Hilmarsson 2, Sigurpáll Á. Aðalsteinsson 1, Pétur Bjarnason 1. Varin skot:Axel Stefánsson 18/3. Sigfús Karlsson 1. Mörk ÍBV: Sigurður Gunnarsson 6, Siguröur Friðriksson 6/2, Óskar Freyr Brynjarsson 3, Jóhann Pálsson 3, Tómas I. Tómasson 1. Varin skot: Sigmar Þröstur 13. Dómarar voru þeir Vigfús Þorsteinsson og Steinþór Baldursson og viröist þeim vanta samæfingu í flautinu. Einkum virtist Vigfús vera utangátta. Áhorfendur: Um 600. Fram hefur kært KA-Iiðið í 5. flokki fyrir að nota stúlku í liðið. Það skondnasta við þetta er að stúlkan, Ingibjörg H. Ólafsdóttir, er einungis tíu ára gömul en piitarnir í 5. flokki eru 11 og 12 ára gamlir. Þrátt fyrir þennan unga aldur er Ingi- björg einn besti leikmaður KA-liðsins og telja Framarar að hún hafí átt stærstan þátt í því að KA sigraði í riðiinum á meðan Fram-liðið sat eftir. Sigurður I. Tómasson formað- ur handknattleiksdeildar Fram sagði að þeir hefðu ákveðið að kæra þetta mál að vandlega yfir- lögðu ráði. „Fyrst það er verið að skipta þessu upp í kvenna- og karlaflokka þá á auðvitað sama yfir alla að ganga. Ef stúlka gæti spilað með strákaflokki, ætti strákur samkvæmt sömu reglum að geta spilað með stúlkna- flokki," sagði formaðurinn. Ekki náðist í neinn sem sæti á dómstól HSÍ þannig að ekki er Ingibjörg H. Ólafsdóttir er of góð að mati Framara. vitað hvenær mál Fram gegn KA verður tekið fyrir. Ef niðurstaða dómstóls HSÍ veröur KA óhagstæð getur það þýtt að allir leikir liðsins verði dæmdir tapaðir og þá fellur KA í 3. deild í stað þess að kom- ast upp í 1. deild. Úrslit í gær 1. deild karla Valur-FH 30:25 UBK-KR 23:26 Fram-Víkingur 29:29 Stjarnan-Grótta 24:19 Evrópukeppnin: Napoli-Bourdeux 1:1 Inter M.- Bayern M. 1:3 Köln-Real Sociedad 2:2 þaó hressir : - ■' fj gj|i§ IL; |)i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.