Dagur - 08.12.1988, Blaðsíða 16
FJARMAL ÞIN - SERGREIN OKKAR
FJARFESriNCARFELAGIÐ
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Neytendafélagið kannar verð á kjöti:
Matvörumarkaðurirai
með lægsta verðið
Flugleiðin
Akureyri-Reykj avík
síðustu dagana fyrir jól:
Ennþá eru
laus sæti
- á 18 af 28 verðflokkum
Tæplega 70% verðmunur er á
einu kílói af reyttri og sviöinni
aligæs í Matvörumarkaðinum
og Kjörmarkaði KEA í Hrísa-
lundi. I fyrrnefndu versluninni
kostar gæsin 715 krónur, en
keypt í hinni síðarnefndu er
verðið 1205 krónur. Þetta
kemur fram í verðkönnun sem
Neytendafélag Akureyrar og
nágrennis gerði og birt er í
blaðinu í dag. Tekiö skal fram
skýrt og greinilega að NAN
kannaði ekki gæði kjötsins,
heldur einungis verð.
í könnuninni var verð 28 vöru-
flokka kjöts kannað í þremur
verslunum á Akureyri, í Mat-
vörumarkaðinum, Kjörmarkaði
KEA við Hrísalund og í Hag-
kaupi. Matvörumarkaðurinn var
í 18 skipti með lægsta verð, Hag-
kaup var í þrjú skipti og Kjör-
markaður KEA í tvö skipti.
Ódýrast er að kaupa eitt kíló af
lambahrygg með beini í Hag-
kaupi, sams konar tegund af svíni
sem og hringskorinn svínabóg.
í Kjörmarkaði KEA er hagstæð-
ast að kaupa eitt kíló af nauta-
lundum og einnig eru pekingend-
urnar þar ódýrastar. Flestar aðr-
ar kjötvörur reyndust ódýrastar í
Matvörumarkaðinum. mþþ
Sjá könnun á bls. 7.
Bæjarstjórn Akureyrar:
Raunhækkrai útsvars-
álagningar milli ára
- tillaga framsóknarmanna
um lægri útsvarsprósentu var felld
Á fundi Bæjarstjórnar Akur-
eyrar á þriðjudaginn urðu
miklar umræður um útsvars-
prósentuna, en meirihluti
bæjarstjórnar gerði að tillögu
sinni að hún yrði hækkuð úr
6,7% í 7,2% á næsta ári. Til-
laga framsóknarmanna um
7,0% útsvar var felld á fundin-
um eins og áður hefur komið
fram en prósentan hækkuð
samkvæmt tillögu meirihlut-
ans.
Sigurður Jóhannesson, bæjar-
fulltrúi, sagði á fundi bæjar-
stjórnar að raunhækkun útsvars-
álags milli ára á sama tíma og
sýnilegt væri að atvinna væri að
dragast saman og búast mætti við
rýrnun á kaupmætti væri óheppi-
leg. Það væri óeðlilegt að bærinn
reyndi að auka tekjur sínar á
sama tíma og bæjarbúar, gjald-
endur útsvara í bæjarfélaginu,
sæju fram á samdráttartíma.
I greinargerð með tillögunni
segir að samkvæmt tillögu meiri-
hlutans um útsvarsprósentuna sé
gert ráð fyrir verulegri raun-
hækkun útsvarsins milli ára. Þrátt
fyrir að fjárhagsstaða bæjarsjóðs
sé erfið vegna mikillar skulda-
söfnunar sé ekki rétt að íþyngja
bæjarbúum með svo mikilli aukn-
ingu útsvars sem meirihlutinn
leggi til. Sýnilegt sé að kaupmátt-
ur launatekna fari rýrnandi á
næsta ári og gera megi ráð fyrir
minnkandi tekjum vegna minni
atvinnu á árinu 1989. f>á var lýst
stuðningi við tillögu meirihlutans
um að afnema álag á fasteigna-
skatt af íbúðarhúsnæði, en tillaga
framsóknarmanna í þá veru fékk
ekki hljómgrunn í fyrra.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir,
bæjarfulltrúi, sagði að meirihlut-
inn stæði nú að umtalsverðri
raunhækkun útsvarsálagningar
milli ára. „Við verðum að athuga
að fólk er mjög mismunandi í
stakk búið til að greiða þessa
hækkun. Ég væri fylgjandi því að
taka hærri prósentu af hærri
laununum eða þá að útsvarsprós-
entan yrði hækkuð um leið og
skattleysismörkin yrðu færð ofar.
Það stendur þó ekki í okkar valdi
að breyta þessum hlutum og því
er ég mótfallin þessari hækkun
útsvarsins," sagði Úlfhildur.
EHB
Þó svo að kominn sé 8. desember eru veðurguðirnir mönnum og málleys-
ingjum óvenju velyiljaðir. Kvikasilfur hitamælanna stígur með ólíkindum
hátt dag eftir dag. I gær lék sunnanandvari með tilheyrandi mörgum plús-
gráðum um Akureyringa og nærsveitarmenn. Þessi kona í Innbænum á
Akureyri notaði góða veðrið og hengdi upp þvott. Óvíst er um áframhald-
andi sumarskap veðurguðanna. Veðurstofan gerir ráð fyrir kólnandi veðri,
a.m.k. fyrst um sinn. Mynd: tlv
- en allt að verða fullt
2. janúar
Frá 20. desember og fram á
aöfangadag jóla eru 30 ferðir
áætlaðar á vegum Flugleiða frá
Akureyri til Reykjavíkur. Þær
upplýsingar fengust hjá Flug-
leiðum að enn væru laus sæti
alla þessa daga en fólki er hins
vegar bent á að fresta því ekki
um of að bóka sæti.
Segja má að jólavertíðin byrji
fyrir alvöru hjá Flugleiðum á
flugleiðinni Akureyri-Reykjavík
þann 20. desember. Þann dag
verða farnar 6 ferðir. Sami fjöldi
ferða verður 21. desember en
t'immtudaginn 22. desember verða
7 ferðir. Að venju nær jólavertíð-
in hámarki á Þorláksmessu, 23.
desember. Þann dag verða 9
ferðir á vegum Flugleiða. „Það er
ennþá nóg laust síðustu dagana
fyrir jól en fólk hefur verið mikið
að hringja síðustu daga," sagði
starfsmaður Flugleiða á Akureyr-
arflugvelli í gær. Á aðfangadag
jóla eru tvær ferðir áætlaðar og
eru ennþá laus sæti í þær báðar.
Álagið í fluginu verður síður
en svo minna eftir áramót. Ætla
má að mesta örtröðin verði mánu-
daginn 2. janúar. Þá eru áætlaðar
7 ferðir frá Akureyri til Reykja-
víkur og er fullbókað í fyrstu 5
vélarnar og auk þess biðlisti í þær
allar. í síðustu tvær vélarnar eru
enn nokkur laus sæti. óþh
Afurðastöðvanefnd að ljúka úttekt á mjólkuriðnaðinum:
Gert ráð fyrir tiQögum
um róttækar breytingar
Svokölluð afurðastöðvanefnd
sem Jón Helgason, fyrrverandi
landbúnaðarráðherra, skipaði
í upphafi árs 1987 til þess að
gera úttekt á mjólkuriðnaðinum
í landinu mun að öllum líkind-
um skila af sér skýrslu í febrúar
á næsta ári. Nefndarmenn eru
tveir, Margeir Daníelsson
hagfræðingur og Egill Bjarna-
son ráðunautur en þeim til
aðstoðar hafa verið þeir Hólm-
geir Karlsson mjólkurverk-
fræðingur og Helgi Sigvalda-
son verkfræðingur.
Að sögn Margeirs Daníelsson-
ar verður skýrslan afrakstur einn-
ar markvissustu úttektar sem hef-
ur verið gerð á einni atvinnugrein
hér á landi. Margeir segir að í
úttektinni verði stuðst við reikni-
aðferðina línulega bestun, þar
sem fundin er hagstæðasta afurða-
Tveggja milljarða útboð við Blönduvirkjun
hlýtur að skilja eftir mikið fjármagn í héraðinu
Nú hefur Landsvirkjun boðið
út verkþátt við Blönduvirkjun
upp á tvo milljarða króna sem
hlýtur að vera með stærstu
útboðum sem gerð hafa verið
hérlendis. Þessi mikla vinna
sem fyrirhuguð er við virkjun-
ina á næstu árum hlýtur að
lyfta vel undir atvinnulíf í Húna-
þingi á næstu árum og koma
sér vel á þeim samdráttartím-
um sem nú eru og ekki annað
að sjá en verði eitthvað viðvar-
andi.
í samtali við Dag sagði Guð-
steinn Einarsson, kaupfélags-
stjóri að þjónusta við fjögur til
fimm hundruð manns sem fyrir-
hugað er að verði á virkjunar-
svæðinu hljóti að verða mikil lyfti-
stöng fyrir byggðarlagið í heild.
Kaupfélagið hefur þjónustað
starfslið Blönduvirkjunar hvað
varðar kost og annað og sagði
Guðsteinn að það hlyti að muna
verulega um þessa aukningu.
„Þetta er ekki það stórt sam-
félag að það hlýtur að muna mik-
ið um þetta á mörguin sviðurn.
Við getum bætt við mikilli versl-
un án þess að þurfa að bæta við
mannskap eða öðru hjá okkur.
Það rekur einnig talsvert af verk-
efnum inn í viðgerðarþjónustu í
Vélsmiðjunni og flugþjónustan
hlýtur að njóta mjög góðs af
milliferðum þessara manna í og
úr fríum. Héraðið í heild sinni
hlýtur að hagnast á þessu á næsta
ári. Þetta er jákvætt fyrir byggð-
arlagið því það lítur ekki of vel út
með atvinnulífið hér eins og er,“
sagði Guðsteinn. fh
samsetningin á hverjum stað. Til
grundvallar eru lagðir framlegð-
arútreikningar sem afurðastöðv-
ar hafa látið nefndinni í té.
í skýrslunni verða hagræn
sjónarmið fyrst og fremst látin
ráða. Margeir segir að það sé
annarra, þ.á m. stjórnmála-
manna, að taka byggðasjónarmið
inn í heildardæmið.
Margeir vildi ekki gefa upp á
þessu stigi hvað nefndin muni
leggja til. Hann sagði þó að
niðurstöður og tillögur lægju nú
þegar fyrir með einstaka liði
skýrslunnar. Aðspurður um
hvort í fyrirliggj andi tillögum
nefndarmanna fælust róttækar
breytingar á skipulagi og fram-
leiðslu í mjólkuriðnaðinum sagði
Margeir að á vissan hátt mætti
líta svo á. „Ég skal ekkert segja
um hvort tekið verður mark á
þessari skýrslu. Þetta er fyrst og
fremst leiðbeiningaplagg til land-
búnaðarráðherra og forsvars-
manna mjólkuriðnaðarins. Ég er
að vona að þetta geti orðið
ákveðin leiðbeining og hverri
afurðastöð til hagsbóta," sagði
Margeir Daníelsson. óþh