Dagur - 27.01.1989, Page 3

Dagur - 27.01.1989, Page 3
ro nnn a^i r\ 27. janúar 1989 - DAGUR - 3 Sameiningarmálið í Ólafsfirði: Rekstrarráðgjafi skoðar dæmið með heimamönnum Rekstrarráðgjafi frá Reykavflí mun væntanlega verða í Ólafs- fírði um helgina og fara með heimamönnum yfír allar hliðar hugsanlegrar sameiningar Hraðfrystihúss Magnúsar Gamalíelssonar hf. og Hrað- frystihúss Ólafsfjarðar hf. Eins og Dagur hefur greint frá er málið aftur komið til skoðunar af þeirri nefnd heimamanna sem unnið hefur að þessu máli, eftir að stjórn Atvinnutrygg- ingarsjóðs ákvað að fresta afgreiðslu sameiginlegrar umsóknar frystihúsanna að fenginni neikvæðri umsögn samstarfsnefndar hlutaðeig- andi banka og sjóða. Gunnar Hilmarsson, formaður stj órnar Atvinnutryggingarsjóðs, ítrekar að þegar fyrir liggi jákvæð umsögn samstarfsnefndarinnar um tillögur heimamanna um hvernig staðið verði að samein- ingu frystihúsanna, muni ekki standa á stjórn sjóðsins að taka afstöðu til sameiginlegrar umsóknar frystihúsanna. Samkvæmt upplýsingum Dags eru enn ýmsir lausir endar í þessu dæmi sem lúta fyrst og fremst að skuldastöðu hugsanlegs nýs frysti- húss. Pað sem lýtur að eignamati, verður eftir því sem næst verður komist, auðveldara að leysa. Bjarni Kr. Grímsson, bæjar- stjóri í Olafsfirði, segist fastlega gera ráð fyrir að tillögur rekstrar- ráðgjafans reykvíska um samein- ingardæmið liggi fyrir um eða eft- ir helgina. „Að þeim fengnum ætti að fást botn í þetta mál, ann- aðhvort af eða á,“ segir Bjarni. óþh Amtsbókasafnið á Akureyri: Hönnun nýbyggingar vart lokið fyrr en á næsta ári Á síðastliðnu sumri voru birt úrslit í samkeppni um stækkun Amtsbókasafnsins á Akureyri og er verðlaunatillagan til sýnis á safninu. Líkanið sýnir glæsi- lega byggingu sem tengist eldri byggingunni, en mörgum leik- ur forvitni á að vita hvenær Mikill samdráttur í sölu nýrra bfla - umboðsmenn búast almennt við tvenn „góðæri“ mögru ári eftir Treglega hefur gengið að selja nýja bíla fyrstu vikur ársins. Bifreiðaumboðsmenn á Akur- eyri eru sammála um að fólk hafí almennt lítið fé handa á milli. Undanfarin ár hafa selst 14 til 19 þúsund nýir bílar á ári en ýmsir telja að á þessu ári seljist mun minna, jafnvel ekki nema 4-5 þúsund nýir bílar. Sigurður Valdimarsson, sem er með umboð fyrir Nissan og Subaru á Akureyri, sagði að algengt væri í dag að fólk borgaði 25% af verði nýrra bíla á borðið en afganginn á 30 mánuðum. Þá væri mikið um að notaðir bílar væru teknir upp í nýja en tölu- verð afföll eru af verði þeirra. „Það eru alltof miklar sveiflur milli ára og fólk hefur ekki mikið traust á peningamarkaðinum. Samt er áhuginn mikill,“ sagði Sigurður. „Það kom góður kippur í söl- una í desember en þetta hefur dottið töluvert niður síðan. Samt eru menn alltaf að spá í nýja bíla en þeir velta hlutunum meira fyr- ir sér nú en áður,“ sagði Oddur Óskarsson, sölumaður nýrra bíla hjá bílasölu Höldurs hf.; umboðs fyrir Mitsubishi, Fiat, Audi, Land Rover o.fl. Oddur sagði að menn gætu ekki búist við öðru en samdrætti í bílasölu fyrstu mán- uðina eftir tvö metár í röð. Hann taldi að jafnvægi kæmist á söluna síðari hluta ársins. „Menn eiga von á gengisfellingu,“ sagði hann. „Ég er ekki trúaður á að þessi árstími gefi rétta mynd af ástand- inu. Það er reynsla mín að fólk fari af stað þegar það er búið að skila skattframtalinu,“ sagði Magnús Jónsson hjá Þórshamri hf., en þeir eru með umboð fyrir Volvo, Honda o.fl. bílategundir. Magnús sagði að mánuðirnir des- ember til febrúar væru alltaf daufir í bílasölu en óneitanlega væri þó dekkra yfir markaðnum nú en oft áður, t.d. vegna hækk- aðra skatta, tolla og annarra bif- reiðagjalda. „Það verður ekki mikið að gera í nýjum bílum á næstunni,“ sagði Þorsteinn Ingólfsson hjá Stórholti. Toyotaumboðinu á Akureyri. Þorsteinn minnti á að sveiflur sem þessar hefðu oft komið áður, t.d. var mikil sala í nýjum bílum 1984 en datt niður 1985. Það sama gerðist 1974, sem var metár, en salan snarminnkaði 1975. „Ég hef trú á að 1 til 2 ára bílar verði eftirsóttir síðar á árinu,“ sagði Þorsteinn. EHB verðlaunatillögu Guðmundar Jónssonar arkitekts verður hrint í framkvæmd. Lárus Zophoníasson bóka- vörður, sem jafnframt var ritari og faglegur ráðgjafi dómnefndar,. sagði að á þessu ári yrði áfram unnið að hönnun nýbyggingar- innar og jafnvel fram á næsta ár. Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar liggur að vísu ekki fyrir en Ijóst er að ekki verður ráðist í fram- kvæmdir næstu misserin. „Það má segja að þetta gangi allt eðlilega fyrir sig, í beinu framhaldi af samkeppninni. Hönnun er í fullum gangi og arki- tektinn hefur komið hingað og haldið fundi með framkvæmda- nefndinni og fleirum,“ sagði Lárus, en nefndina skipa þau Gunnar Ragnars, Ágúst G. Berg og Sigríður Stefánsdóttir. Amtsbókasafnið, sem jafn- framt hýsir Héraðsskjalasafn Akureyrarbæjar og Eyjafjarðar- sýslu, býr við þröngan húsakost og sífellt bætast við bækur og skjöl sem safninu ber að varð- veita. Amtsbókasafnið er prent- skilasafn og þangað berst allt efni sem prentað er eða fjölfaldað hér á landi, eða erlendis fyrir íslenska útgefendur. í nýbygging- unni er auk rýmis fyrir Amts- bókasafnið og Héraðsskjalasafn- ið gert ráð fyrir sérstakri lista- deild með myndlistarsal og fjöl- nýtisal. SS Stórutsala í nokkra daga Ótrúlegur afsláitur 'wVerslunin faúnog tlann Sunnuhlíð 12, sími 22484 Opið á laugardögum frá kl. 10.00 til 16.00. Ji ‘iíiÉ HOTEL KEA Þorramatur Þorramatur af Itlaðborði alla daga út Þorra Súlnaberg - Hótel KEA Dansleikur laugardagskvöld Hin frábær hljómsveif Ingimars Eydal leikur fyrir dansi Borðapantanir í síma 22200 Önnumst öll verðbréfaviðskipti og veitum hvers konar ráðgjöf á sviði fjármála Tegund bréfs Vextir umfram verðtryggingu Einingabréf 1,2 og 3 10,0-13,0% Bréf stærri fyrirtækja 10,5-11,5% Bréf banka og sparisjóða 8,5- 9,0% Spariskírteini ríkissjóðs ... 7,0- 8,0% Skammtímabréf 7,0- 8,0% Hlutabréf ? Gengi Einingabréfa 27. janúar 1989. Einingabréf 1 . ... 3.494,- Einingabréf 2 . ... 1.965,- Einingabreí 3 . ... 2.276,- Lífeyrisbréf .... ... 1.756.- Skammtímabréf .. 1,215 MAUPÞING NORÐURLANDS HF Ráðhústorg 5 Akureyri Sími 96-24700 Verbbréf er eign sem ber arb

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.