Dagur - 27.01.1989, Side 9
8 - DAGUR - 27. janúar 1989
27. janúar 1989 - DAGUR - 9
t
spurning vikunnar
Veist þú hve langt er milli
Reykjavíkur og Akureyrar
sé ekinn þjóðvegur nr. 1?
(Spurt í Reykjavík)
l
Erling Kristjánsson:
„Veit ég? Viltu fá þetta nákvæm-
lega? Ja, ætli þetta séu ekki
5-600 kílómetrar. Eða voru
þetta tæpir 500 kílómetar. Segj-
um bara 480 kílómetar."
Þorlákur Helgason:
„Bíddu nú við. Þ^ð er nú langt
síðan ég hef ekið þessa leið.
Ætli þetta séu ekki 455 eða 456
kílómetrar. í það minnsta var
þetta svo langt síðast þegar ég
fór.“
Björg Elísabet Guðjónsdóttir:
„Nei, ég hef ekki hugmynd um
þaö. Nei, ég treysti mér ekki til
að giska á hvað þetta er langt.“
Gylfi Guðmundsson:
„Þessi leið var 548 kílómetrar
að því er mig minnir. Eða var
það 448 kílómetrar. En ég veit
þó að hún er orðin styttri núna,
man að hún styttist töluvert
þegar gerður var nýr kafli aust-
an við Hofsós."
Halldór Bjarnason:
„Landleiðin er 450 kílómetar.
Eða öllu heldur var þetta vega-
lengdin hérna í mína tíð en
reyndar er búið að taka margar
beygjur af síðan ég keyrði þetta
síðast og leiðin er sjálfsagt orðin
styttri."
(Samkvæmt upplýsingum Vegagerðar ríkisins er nákvæm
vegalengd 432 kílómetrar)
Landbrot en ekki landvamir
Gísli Þorleifsson, bóndi á
Hofsá í Svarfaðardal, ritaði
Náttúruverndarráði og Land-
græðslu ríkisins bréf í febrúar í
fyrra til að koma á framfæri
sjónarmiðum sínum varðandi
bakkavarnir og framkvæmdir
við Svarfaðardalsá sem breyta
rennsli árinnar og veita henni í
nýjan farveg. Vegna skrifa um
þessar framkvæmdir undanfar-
ið vilja hjónin á Hofsá koma á
framfæri áliti sínu á því verki
sem undanfarið hefur verið
unnið í dalnum, þar sem það
álit mun ekki áður hafa birst
ítarlega á opinberum vett-
vangi.
Bréfið til Náttúruverndarráðs
hljóðar þannig: „í október sl.
voru hafnar framkvæmdir til
breytinga á rennsli Svarfaðar-
dalsár í landi jarðarinnar Bakka.
Undirbúningur að þessu verki
virðist hafa farið mjög leynt í
Svarfaðardal, þar sem ég frétti
ekki af þessum áformum fyrr en
framkvæmdirnar voru að hefjast.
Ég fékk teikningar af fyrirhuguð-
um breytingum á rennsli árinnar
sem ekki voru aðeins í landi
Bakka heldur einnig í landi jarð-
anna Syðra-Garðshorns, Ytra-
Garðshorns, Hofsár, Hofs,
Syðri-Grundar og Grundar.
Samkvæmt teikningunni eru hér
á ferðinni áform um algera breyt-
ingu á rennsli árinnar á nokkurra
kílómetra svæði.
Teikning gerð án vitundar
annarra bænda en
ábúenda á Bakka
Ég fór að kynna mér hver stæði
fyrir þessu og var sagt að Sigurð-
ur Hermannsson, verkfræðingur,
hefði gert teikninguna samkvæmt
tillögu Ævars Hjartarsonar ráðu-
nautar í samráði við bændurna á
Bakka, án vitundar annarra
bænda sem hlut eiga að máli.
Ekki vissi stjórn Veiðifélagsins
heldur um þessar framkvæmdir.
Ekki vissi oddviti eða hrepps-
- athugasemdir Gísla Þorleifssonar á Hofsá vegna framkvæmda við Svarfaðardalsá
Gísli Þorleifsson bóndi á Hofsá.
Mynd: TLV
nefnd hvernig framkvæma átti
þetta verk né hvaða afleiðingar
það myndi hafa.
Svarfaðardalsá hefur frá alda
öðli runnið í botni dalsins og fært
rennsli sitt milli kvfsla um af-
markaðar eyrar eða haldið sig í
farvegi milli gróinna moldar-
bakka. Nokkur áraskipti hafa
verið að því hvort hún rennur í
vestari eða eystri hluta eyranna
og af þeim sökum hefur brotnað
lítið eitt úr bökkum á stöku stað
en jafnframt hafa gróið upp eyrar
og hólmar.
Við Skakkabakka í landi
Grundar hefur tekist vel að hefta
landbrot með stórgrýti og er það
álit mitt að hægt hafi verið að
beita sömu aðgerðum hér sem
hefðu ekki jafn stórfenglegar
breytingar í för með sér.
Ef framkvæmdum verður hald-
ið áfram er gert ráð fyrir að ruðst
verði gegnum ævafornan, gróinn
bakka og í annan stað verði rifn-
ar upp grónar eða hálfgrónar eyr-
ar á löngum kafla. Einnig hljóta
verulegir ruðningar að myndast
og verða til stórra lýta. Það er
með öllu ósýnt hvernig áin hegð-
ar sér í nýjum og beinum farvegi.
Allar líkur hljóta þó að benda til
þess að hún breyti honum veru-
lega og ryðjist um meira og
minna. Ég óttast að ekki verði
staðar numið með framkvæmdir
eftir að búið er að fara gegnum
landsvæði Bakka heldur verði, af
illri nauðsyn, að ljúka við fram-
kvæmdirnar a.m.k. alla þá leið
sem þegar hefur verið teiknuð.
Þennan ótta byggi ég á að vegna
aukins straumþunga og fram-
burðar árinnar á aur og möl muni
hún auka til muna ágengni sína á
það land sem hún liggur um. Má
í því sambandi benda á að beggja
megin árinnar, þ.e. í löndum
Ytra-Garðshorns og Hofsár,
liggja slægjulönd. Einnig má
benda á að í landi Bakka er verið
að fara gegnum land sem ein-
göngu hefur verið nýtt sem beiti-
land.
Eyðilegging veiðisvæða
Ég fæ ekki séð að hugmynda-
smiðir og hönnuðir þessa „mann-
virkis“ hafi íhugað hvernig haga
eigi frárennsli á síkjum og lækj-
um frá hlíðum dalsins beggja
vegna á þessu svæði.
Traustur stofn sjógenginnar
bleikju hefur jafnan verið í Svarf-
aðardalsá. Allir, sem til þekkja
vita, að aflasælasti kaflinn í ánni
er einmitt það svæði sem breyt-
ingarnar eru hafnar á, eða eru
fyrirhugaðar á. Næsta ljóst er að
þetta er einnig megin hrygningar-
og uppeldissvæði bleikjunnar.
Þetta styður sú litla athugun sem
Tumi Tómasson, líffræðingur,
gerði í skyndingu s.l. haust, og
segir frá í skýrslu sinni. Ef haldið
yrði áfram gerð þessa skipa-
skurðar myndi neðri hluti megin-
hrygningarsvæðisins einnig eyði-
leggjast. Þar með væru ekki
aðeins eyðilagðir flestir bestu
veiðistaðirnir í ánni heldur stofn-
inum öllum stefnt í tvísýnu. Sil-
ungsveiðin hefur verið mörgum
Horft inn Svarfaðardal.
til ánægju og sumum bændum til
nokkurrar búbótar, enda hafa
stangveiðileyfi verið eftirsótt.
í stuttu máli: 1) Fyrirséð er
veruleg spilling á ásýnd dalbotns-
ins á nokkurra kílómetra kafla.
2) Álit mitt er að hægt sé að
koma í veg fyrir tjón af völdum
landbrots með öðrum hætti.
3) Verulegt landbrot á sér stað í
stað landvarnar. 4) Mikil eyði-
legging á hrygningarstöðum og
veiðistöðum bleikjunnar.
Síðast en ekki síst vil ég benda
á að mér er mjög umhugað um að
vernda náttúru dalsins sem ég hef
átt heima í allt mitt líf og er af
mörgum talinn einn fegursti dal-
ur íslands. Því bið ég Náttúru-
verndarráð um hjálp við verndun
Svarfaðardals."
„Ekki hægt að blanda
bakkavörnum saman við
þessi ósköp“
Gísli segir ennfremur um sjón-
armið sín í þessu máli í samtali
við Dag: „Eins og komið hefur
fram hér í blaðinu 11. janúar
eyðilögðust ruðningarnir í vor-
flóðunum síðustu. Þá fór sú þró-
un af stað að efni úr þessum
ruðningum barst niður eftir allri
ánni. Hjá mér gerðist það að vatn
stóð í skurðum og tjarnir í túnum
í sumar. Land Hofsár liggur svo
lágt að ekkert má hækka í ánni
svo ekki hljótist tjón af, t.d. gat
ég ekki borið á hluta af túnum
mínum í vor og er það í fyrsta
skipti sem slíkt gerist. Einnig má
sjá nú í vetur hvað áin flæðir yfir
bakkana hér fyrir neðan og tel ég
það vera fyrir hvað hún er búin
að bera í eyrarnar.
Ég vil að eftirfarandi komi
skýrt fram: Bakkavörnum, í rétt-
um skilningi þess orðs, vil ég ekki
blanda saman við þessi ósköp og
það vekur furðu mína að oddviti
segir mér að ekki sé fjallað um
þetta verk né afstaða tekin til
þess í Hreppsnefnd Svarfaðar-
dalshrepps. Þó á hún fulltrúa í
nefndinni sem er sonur Þórarins
á Bakka og beitir hann sér ötul-
lega við þessar framkvæmdir í
nafni Hreppsnefndarinnar. Skil
ég ekki þau vinnubrögð.
Vatn hefur ekki runnið yfir
bakkana á þeim stað sem gróf
ofan af lögn Vatnsveitu Dalvík-
ur. Ef áin hefði fengið að vera
áfram í sínum gamla farvegi
hefði þetta ekki gerst.
Ég get ekki skilið þau „rök“ að
áin rífi rneira úr ævafornum grón-
um bökkum, eyrum og börðum
en úr þeim lausum malarkömb-
um sem nú er verið að ýta upp.
Síðustu aðgerðir sem við urðum
vitni að fyrir skömmu sýna að
fleiri eru orðnir hræddir um
ruðningana því verið var að
breiða nót á þá. Það er orðin
skrýtin veiðiá sem er klædd
rauðri nót á bökkunum. Ég hlýt
að spyrja: Hvernig ætla þeir, sem
að slíku standa, að tryggja að
nótin losni ekki, fari niður ána og
verði öllum fiski dauðagildra sem
verður á vegi hennar, sbr. lýsingu
á álíka dauðagildrum í sjó, sem
mjög hefur verið barist gegn á
undanförnum árum.
Að Iokum segir Gísli: Til
styrktar þessum málflutningi er
ekki úr vegi að enda þessa grein á
tilvitnun í bréf sem heimildar-
menn þessarar greinar fengu í
byrjun janúar frá Náttúruverndar-
ráði. Þar segir: „Garðar, sem ýtt
er upp úr farveginum og eru úr
möl og malarkenndu efni án
bylgjuvarna eru næsta gagnslitlir
sé litið til lengri tíma en tveggja
til þriggja ára.“ EHB
Engin ólund í Ólundarmönnum:
Erum í sjöunda himni
- segja þeir Kristján, Hlynur og Jón Hjalti
um óskabarnið sitt útvarpsstöðina Ólund
„Viðtökurnar hafa verið ein-
staklega góðar, einkum og sér í
lagi á meðal yngra fólksins.“
Þannig mæla aðstandendur
Útvarpsstöðvarinnar Ólundar,
þrír ungir Akureyringar sem
leiðir voru orðnir á diskójukki
útvarpsstöðvanna frjálsu og
létu því drauminn rætast.
Draumurinn; að setja upp
útvarpsstöð, þar sem hið tal-
aða mál fengi notið sín, en yrði
eigi í bandarísku iðnaðarrokki
kæft. Stöðin hefur nú starfað í
tæpa tvo mánuði og piltarnir
eru ánægðir með viðtökurnar.
Umræddir piltar eru þeir
Kristján Ingimarsson útvarps-
stjóri, Hlynur Hallsson frétta-
stjóri og Jón Hjalti Ásmundsson
tæknistjóri. Þeir fóstbræður út-
skrifuðust af náttúrufræðibraut
Menntaskólans á Akureyri síð-
astliðið vor og eru nú í vetur önn-
um kafnir við nám og störf.
Kristján selur bækur, Jón Hjalti
er kennari og nemandi í Mennta-
skólanum; kennir stærðfræði og
nemur á eðlisfræðibraut þar sem
hann hyggur á verkfræðinám
síðar, en Hlynur er leiðbeinandi í
Barnaskóla Akureyrar, þar sem
hann leiðbeinir um móðurmál og
stærðfræði. Hann situr einnig í
öldungadeild MA og stundar af
kappi tungumálið dönsku.
Dönskuáhuga piltsins er við-
brugðið, en orðrómur sá hefur þó
flogið fyrir að einkum og sér í
lagi sé áhugi þessi tilkominn
vegna afsláttar á námi hans í
Myndlistarskólanum!
Þeir Ólundarmenn breyttu
dagskrástefnu sinni um áramótin,
í ljósi reynslunnar og bjóða nú
upp á fjölbreytta dagskrá frá
klukkan 19.00 og fram að mið-
nætti. Á föstudögum og laugar-
dögum hefjast útsendingar
klukkan 17.00 og standa allt þar
til klukkan er orðin fjegur að
nóttu.
Skólar bæjarins hafa aðgang að
útvarpsstöðinni og eru sérstakir
skólaþættir á dagskrá nokkrum
sinnum í viku. Þá geta og ein-
staklingar og fyrirtæki keypt tíma
á stöðinni í þætti þeim er nefnist
Gatið. Þeir félagar segja það
mælast einstaklega vel fyrir og
hafi fólk sýnt Gati þessu áhuga.
Sem og yfirleitt útvarpsstöðinni í
heild.
Það sem framar öðru hefur
staðið stöðinni fyrir þrifum er
skortur á fé. Ekki ný bóla svo
sem í íslensku þjóðfélagi, en
hvimleið engu að síður. í upphafi
voru hugmyndir piltanna þær að
fjármagna stöðina með frjálsum
framlögum í fyrsta lagi, seldum
aðgangi að Gatinu svonefnda í
Hafið hljóð, ég er í útsendingu!!
Það kostar 4000 krónur á dag að reka þessa útvarpsstöð! Síðan er þeim er
lesa þetta bent á þar til gerðan söfnunarbauk. Sumir gleyma honum.
öðru lagi og í þriðja lagi með
auglýsingum. Tvennt hið síðast
nefnda hefur gengið þokkalega,
en þegar kemur að framlögunum
frjálsu kveður við annan tón. Þau
hafa svo gott sem gersamlega
brugðist. Aðdáendur stöðvarinn-
ar tóku sig því saman í andlitinu
og efndu til heilmikilla tónleika í
Borgarbíói og í kjölfar þeirra má
segja að piltar hafi tekið gleði
sína. „Við erum í sjöunda
himni,“ segja þeir og brosa og
mátti vart á milli sjá hvor breið-
asta brosið átti.
Allt um það. Nú búa þeir sig af
kappi undir flutninga mikla; ætla
sér upp í ris og hreiðra þar um
sig. Við það batnar aðstaða öll til
útsendinga. Þá má nefa að nýir
menn eru komnir inn í stjórn
útvarpsstöðvarinnar, auk þeirra
þriggja sem áður eru upptaldir.
Þar er um að ræða eftirtalda:
Ástu Júlíu Theodórsdóttur,
Ásmund Ásmundsson, Kjartan
Frey Vilhjálmsson og Árna Val
Árnason. Með þetta fólk við
stjórnvölinn siglir Ólundin ótrauð
inni í ólgusjó fjölmiðlaflórunnar
hinnar íslensku. mþþ
Iðnadarhúsnæði
tíl leigu
á Oseyri 4, Akureyri ca.soofm.
Mjög gott húsnæði á góðum stað norðan við
nýju Glerárbrúna.
Fagverk sf.
Konráð Árnason heimasími 23024.
sími 21199
WraOTatamsEirrtC'
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Að Fósturskóla íslands vantar stundakennara í sálfræöi.
Umsóknarfrestur er til 5. febrúar n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist skólameistara.
Menntamálaráðuneytið.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Tölvunámskeið
Verkmenntaskólans
Kynningarnámskeið hefst
þriðjudaginn 7. februar
Tekið á móti umsóknum á skrifstofu VMA á Eyrar-
landsholti til föstudagsins 3. febrúar.
Sími 26810.
POSTUR OG SIMI
Símnotendur
Dalvík og Hrísey
Stafræna símstöðin verður tengd um mið-
nætti föstudaginn 27. janúar 1989.
Búast má við truflunum.
Munið sérþjónustu í stafræna símakerfinu.
Umdæmisstjóri.
Akureyringar
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráð-
herra verðurtil viðtals í Hafnarstræti 90,
laugard. 28. janúar frá kl. 10.00-12.00.
Framsóknarfélögin.
Húsvíkingar
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráð-
herra verður til viðtals í Garðari
laugard. 28. janúar frá kl. 15.00-17.00.
Framsóknarfélögin.
FRAMSÓKNARMENN
AKUREYRI
Bæjarmálafundur
verður sunnud. 29. janúar kí. 17.00 í Hafnarstærti 90.
Fjárhagsáætlun bæjarins rædd.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.