Dagur - 27.01.1989, Page 11
hér & þor
2$8é™^8$!T-P^&r-1 h t
Ljóshærðar
eða brúnhærðar?
- Madonnu brúnhærð.
viðskiptavinir báðu um kyn-
æsandi stúlkur þá bjuggust þeir
alltaf við blondínum. Og ef beðið
var um þokkafullar stúlkur til að
leika í auglýsingum þá urðu þær
alltaf að vera ljóshærðar. Dökk-
hærðar stúlkur komust ekki á
blað, jafnvel þótt þær væru gull-
fallegar, nema þær lituðu hár sitt
ljóst.“
Þá var öldin greinilega önnur
því nú vilja allir stúlkur með
brúnt hár, meira að segja til að
leika tælandi, kynþokkafullar
konur. Þær ku hafa meiri stíl en
þær ljóshærðu og virðast greind-
ari og veraldarvanari. Nú þurfa
konur ekki lengur að vera ljós-
hærðar til að státa af kynþokka
og í því sambandi er sagt að
Madonna sé aftur orðin dökk-
hærð eftir að hafa haft ljóst, litað
hár í fjölda ára.
Sem dæmi um „brúnettur“ sem
hafa náð á toppinn í fyrirsætu- og
auglýsingabransanum á síðustu
árum eru Maria Whitaker,
Natasha Maddox og Yvetta
Angel. Blondínuímyndin sem
Marilyn Monroe skapaði er fallin
í skuggann. Ástæðan? Jú, ljós-
hærðar konur töldust einfaldar,
jafnvel heimskar, ósjálfstæðar,
viljalaus leikföng. Tímarnir hafa
breyst og brúnhærðu nútímakon-
urnar eru sterkar, sjálfstæðar,
geislandi af kynorku og þær líta
,út fyrir að hafa frumkvæði í þeim
málum, öfugt við ljóshærðu leik-
föngin.
Maria Whitaker segist einu
sinni hafa verið með ljósa hár-
kollu og litið hörmulega út. Hins
vegar væri það staðreynd að alls
kyns fýrar og slordónar stara
mun meira á ljóshærðar konur en
dökkhærðar. Menn taki dökk-
hærðar konur samt frekar alvar-
lega, þær ljóshærðu eru bara
eitthvað til að horfa á.
Blondínan Suzanne Mizzi
segir: Það er della að blondínur
séu komnar úr tísku. Ég er á kafi
í vinnu. Blondínur eru og verða
alltaf rúestu kyntáknin. - Látum
þá þessari umræðu lokið að sinni.
Suzanne Mizzi: Yið erum meira
kynæsandi.
Samantha Fox.
Maria Whitaker: Blondínur eru
bara eitthvað til að horfa á.
Madonna gerviljóska.
Yvette Angel var vinsælasta plakat-
stúlkan i fyrra.
Blondínur eða brúnettur? Já,
hvort eru nú ljóshærðar konur
eða brúnhærðar meira aðlaðandi,
kynæsandi eða skemmtilegri?
Tíska og tíðarandi mótar skoðan-
ir manna í þessum efnum og nú
er sagt að þær brúnhærðu séu
komnar í tísku á ný eftir nokk-
urra ára valdatíð ljóshærðra.
Yvonne Paul, sem er umboðs-
maður topplausra stúlkna, segist
ekki hafa tekið ljóshærða stúlku
að sér í tvö ár. Þær eru ekki í
tísku lengur. Þegar Yvonne byrj-
aði í bransanum, um 1971, voru
eingöngu ljóshærðar stúlkur í
kynningarbæklingunum. „Þegar
Tími Ijóskunnar, sem hófst með
Marilyn Monroe, er loks á enda.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Verkmenntaskólinn á Akureyri og
Verkalýðsfélagið Eining auglýsa:
Valgreinanámskeið
fyrir ófaglært starfsfólk á dagvistum, dvalar-
heimilum, leikvöllum, heimilisþjónustu og
dagmæður, hefjast miðvikud. 8. febrúar.
Innritun fer fram á skrifstofu V.M.A. sími 26810 og
stendur til mánudagsins 6. febrúar.
Frekari upplýsingar fást á skrifstofu V.M.A. og hjá
Einingu.
Umsjónarmaður.
Tölvufræðslan auglýsir:
PC - Grunnnámskeið
Námskeið fyrir byrjendur í tölvunotkun.
Kynntur er algengur notendahugbúnaður auk þess
sem fjallað er um vélbúnað PC-tölva.
Efni námskeiðsins:
★ Helstu hugtök tölvutækninnar
★ Vélbúnaður PC-tölva
★ Jaðartæki
★ Stýrikerfið MS-DOS
★ Ritvinnslukerfið Word-Perfect (Orðsnilld)
★ Töflureiknirinn Multiplan
★ Verklegar æfingar
Námskeiðið hefst miðvikud. 1. febrúar 1989.
Innritun og nánari upplýsingar eru í síma 27899 eftir
kl. 13.00.
Tölvufræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34
Eiginkona mín,
HULDA LAXDAL,
lést að morgni 26. janúar í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jón Laxdal.
Systir mín og mágkona,
MARÍA VILHJÁLMSDÓTTIR,
frá Neðri-Dálksstöðum,
verður jarðsungin frá Svalbarðskirkju laugardaginn 28. janúar
kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda.
Kristjana Vilhjálmsdóttir,
Halldór Albertsson.
Þökkum innilega samúð, hlýhug og ómetanlega hjálp við
andlát og jarðarför,
GÍSLA JÓNSSONAR,
bónda, Víðivöllum,
Skagafirði.
Unnur Gröndal,
Benedikt Björnsson,
Guðbjörg Bjarman, Teitur Gunnarsson,
Halldóra Gísladóttir, Sigurður Kristjánsson,
Gísli Sigurður Gíslason, Karolína Gunnarsdóttir,
Hólmfríður Amalía Gísladóttir, Matthías A. Þorleifsson
og barnabörn.
Þökkum auðsýndan vinarhug við andlát og útför,
STEFÁNS ÓLA STEFÁNSSONAR,
Lækjargötu 16, Akureyri
Fyrir hönd vandamanna.
Bessi Gunnarsson.