Dagur - 16.02.1989, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 16. febrúar 1989
Kaupl
Jón Pál
55
Fólk horíirjákvætt til verslunar og þjónustu í hein
Undanfarna mánuði hefur KÞ
staðið fyrir ýmsum „uppákom-
um“ í verslunum sínum, þótt
heimsókn Jóns Páls slægi líklega
allt út hvað vinsældir varðar.
Dagur hafði samband við Pái Þór
Jónsson, markaðsfulltrúa kaup-
félagsins og spurði hann fyrst,
varðandi ailt þetta líf og fjör og
nýja yfirbragð, hvort kaupfélagið
ætlaði að fara að uppfylla
skemmtanaþörf bæjarbúa.
„Að vissu leyti er það ágætt ef
fólk nær að skemmta sér eitthvað
um leið og það fer að versla og
athuga þær vörur sem kaupfélag-
ið hefur til sölu. Þetta er vissu-
lega ný stefna sem kaupfélagið er
að marka sér í sínum verslunar-
deildunt. Menn hafa staðið
frammi fyrir mikilli samkeppni á
öðrum mörkuðum, sem full þörf
er á að sporna gegn. Ákveðið var
að reyna að hressa og fríska svo-
lítið upp á auglýsingastefnuna og
reyna að ná til viðskiptavinarins
með nokkuð öðrum hætti.
Þegar við á landsbyggðinni
erum að tala um samkeppni,
erum við að tala um samkeppni
við stærri þéttbýliskjarna, þegar
litið er á málið í heild. Samkeppni
sem landsbyggðin hefur átt við að
stríða undanfarin ár hefur að
mestu leyti verið við Reykjavík-
urmarkaðinn, og því nær sem
dregur Reykjavíkurmarkaðnum
því meiri verður samkeppnin. Á
undanförnum árum hefur fólki
kanpski fundist það eðlilegt að
leita inn á þennan risastóra mark-
að og versla þar í stórum stíl nán-
ast allt sitt í fáum verslunarferð-
um. Talið síðan eðlilegt að fylla
upp í með þessum dagvörum,
mjólk, brauði og slíku í sinni
heimabyggð. Það segir sig sjálft
að þetta gengur ekki þegar til
lengri tíma er litið. Fólk verður
að velja á milli hvort það vill
versla, og hafa verslun í sinni
heimabyggð, eða hvort það vill
sækja alla sína verslun og þjón-
ustu eitthvað. Það er ánægjulegt
að fólk hefur smám saman verið
að átta sig á þessu undanfarna
mánuði. Það hefur orðið geysileg
hugarfarsbreyting og fólk er farið
að horfa jákvætt til þeirrar versl-
unar og þjónustu sem heima-
byggðin býður uppá. Við höfum
að sjálfsögðu reynt að leggja
okkar að mörkum til að ýta undir
Hafliði Jósteinsson starfsmaður KÞ reynir æfingatækin.
Hreiðar Karlsson kaupfélagsstjóri, Hilmar Þorvaldsson deildarstjóri Bygg-
ingavörudeildar, Jón Páll Sigmarsson hinn sterki og Páll Þór Jónsson mark-
aðsstjóri KÞ.
Jón Páll umkringdur ungum aðdaendum i Byggingavorudedd KÞ.
þessa hugarfarsbreytingu, þannig
að fólk hafi gaman af að koma í
verslunina. Það sé ekki, eins og
oft vill verða og fólk þekkir sér-
staklega af Reykjavíkurmarkaði,
martröð líkast að mæta í stór-
markað á föstudögum. Við vilj-
um að verslunarferðir verði
meira samblandi af nauðsyn og
skemmtun.“
- Er það ekki geysilega dýrt
fyrirtæki að vera með svona
kynningar, eins og til dæmis að fá
Jón Pál hingað?
„Nei, það er það ekki. Það er
engin spurning að þetta kemur til
með að borga sig. Þegar verið er
að taka svona auglýsingu,
skemmtun eða hátíð inn, þá
erum við að kynna nýjar vörur
sem KÞ Byggingavörudeild er að
bjóða uppá í dag og erum um leið
að kynna framleiðsluvörur kaup-
félagsins. í leiðinni erum við að
bjóða fólki upp á ákveðna
skemmtun sem gerir það að verk-
um að það horfir kannski svolítið
öðrum augum á kaupfélagið sitt
heldur en það gerði áður. Jón
Páll er alls ekki það dýr að hann
standi ekki undir þessu.“
- Finnst ykkur þið verða varir
við hugarfarsbreytingu og meiri
velvilja fólks?
„Við finnum mjög sterkt fyrir
þessu. Öll þjónusta fær sinn
skammt af kvörtunum en kvart-
anirnar koma mismunandi út á
hverjum tíma. Stundum er ef til
vill kvartað yfir að ekki sé nægj-
anlega mikil sölumennska eða
nógu góð þjónusta í versluninni.
Þessu hefur ekki verið fyrir að
fara hjá okkur að undanförnu,
nema síður sé. Við byrjuðum
þetta markaðsátak á að bjóða öll-
um starfsmönnum verslunardeild-
anna á ein þrjú námskeið sem
haldin voru í byrjun nóvember.
Jón Páll Sigmarsson:
„Sýnist að menri þurfi ekki að sækja neit
Jón Páll hafði nóg að gera í
byggingavörudeildinni við að
sýna unga fólkinu þrektækin,
gefa eiginhandaráritanir og
sitja fyrir á myndum með þeim
sem vildu eignast mynd af sér
með Sterkasta manni heims.
Jón Páll gaf sér þó tíma til að
svara nokkrum spurningum
blaðamanns Dags, fyrst hvern-
ig honum Iitist á sig á Húsavík.
„Bara vel. Ég hef kontið hérna
áður, að vísu bara einu sinni, á
landsmótið. Þá var mjög gott
veður og sólskin og það er sólskin
núna. Er kannski alltaf sólskin
hérna? Að vísu var erfitt að kom-
ast hingað, ég átti að vera hérna
fyrir viku en þá var ekki flogið.“
- Það hefur lítið heyrst af þér
- Ætla að sýna Bretum hvernig á að taka á lóðunum“
undanfarna mánuði, hvað
hefurðu verið að gera?
„Ég er mest í útlöndum, að
keppa og í allskonar auglýsinga-
vinnu. Það hefur ekki heyrst af
mér síðan í september, þá vann
ég titilinn Sterkasti maður í
heinti. Mynd frá keppninni hefur
verið sýnd ails staðar nema á ís-
landi, síðast í Bretlandi á jóla-
dag, en mér sýnist að hvorki
Sjónvarpið né Stöð 2 hafi áhuga á
að sýna þetta efni. Ég er með
eintak af myndinni frá mótinu
sem krakkarnir eru að horfa á
hér í sjónvarpstækjadeildinni."
- Æfir þú mikið núna?
„Ég er alltaf í góðri æfingu og
æfi alltaf mikið. Ég hef ekki misst
úr viku síðan ég byrjaði að æfa 17
ára gamall. Æfingin skapar
meistarann."
- Það er misjafnt við hvað þú
ert að fást á hverjum tíma, ekki
satt?
„Jú, um þetta leyti í fyrra var
ég að æfa fyrir vaxtarræktarmót.
Þá var ég ögn nettari en ég er
núna. Það er vaxtarræktarmót
núna í mars og það er aldrei að
vita nema ég verði með, gefi mér
3-4 vikur í að „skera mig niður“,
eins og þeir segja.“
- Hvað er fleira framundan
hjá þér?
„Eg þarf að fara til Bretlands
eftir þrjár vikur, mæta á líkams-
ræktarstað, halda fyrirlestra og
sýna Bretum hvernig á að taka á
lóðunum. í apríl keppi ég á mót-
inu Sterkasti maður Danmerkur,
sem gestur, mánuði síðar keppi
ég í Finnlandi á mótinu Sterkasti
maður Finnlands, sem gestur. Ég
verð mikið í Bretlandi í sumar að
keppa og vinna og svo fer ég til
að verja titilinn Sterkasti maður í
heimi, líklega í Barcelona á
Spáni í haust.“
- Áttu við nokkur meiðsli að
stríða?
„Ég er alltaf eitthvað meiddur
en ég slarka alltaf í gegn.“
- Ég man að þú sagðir einu
sinna að það væri gaman að vera
svona sterkur því þá þyrftir þú
t.d. ekki neina hjálp við að færa
til þvottavélina. Nú ert þú í versl-
un sem selur m.a. þvottavélar,
ætlar þú að halda á þeim út í bíl
ef með þarf?
„Ef einhver þarf aðstoð við að
setja þvottavél út í bíl þá er ég til-
búinn að hjálpa, en fer samt bara
með eina í einu niður stigann."
- Þessi tæki sem þú ert að
kynna hérna, er þetta eitthvað
sem hentar öllum?
„Þetta eru æfingatæki, þrek-
hjól og lóð. Ég hjóla sjálfur
svona 15 mínútur á hverjum degi
á þrekhjóli. Það er betra en að
hlaupa, nú er erfitt að hlaupa úti,
það er mikil hálka og snjór og
mönnum getur skrikað fótur og
þeir dottið svo það er gott að
hjóla inni í staðinn og ég notfæri
mér það um þessar mundir. Svo
lyfti ég lóðunum að sjálfsögðu.“
- Nú hefur kaupfélagið verið
með skemmtilegar „uppákomur"
að undanförnu, hvernig líkar þér
að koma hérna í kaupfélagið og
taka þátt í skemmtilegheitunum?