Dagur - 16.02.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 16.02.1989, Blaðsíða 7
félag Þingeyinga Húsavík: 1 í heimsókn Síðan hefur þessi mikla markaðs- setning átt sér stað og hefur skil- að sér jafnt inn á við og út á við. Gagnrýni í dag felst mikið frekar í því að spurt er hvort ekki sé hægt að vera með fleiri tilboð og af hverju við séum ekki með fleiri slíkar kynningar. Þau viðbrögð sem við fáum frá okkar viðskipta- vinum eru mjög jákvæð, þeir njóta þess greinilega að taka þátt í þessu með okkur. Við erum sem sagt að reyna að færa okkar kynningarstarf til við- skiptavinarins og fá hann að hluta til í lið með okkur. Því mið- ur er ekki tímabært ennþá að segja frá æfintýrum sem eiga eftir að verða hér á næstu mánuðum, en við erum með sitthvað mjög skemmtilegt í bígerð sem byggir á því að fá fólk í héraðinu til að taka þátt í leiknum." - Undanfarnar vikur hafa m.a. verið í kaupfélaginu harmoníku- tónleikar, skinnasýning, jóla- sveinahátíð, gestakokkar og svo Jón Páll. Hver fær allar þessar hugmyndir? :,Þær koma sitt úr hverri átt- inni. Hugmyndir verða til á ýms- um tímum, sumar eiga við í dag og aðrar ekki. Stundum eru gamlar hugmyndir teknar upp og hrist af þeim rykið, til að mynda með sveitaaksturinn, þegar við reyndum fyrir jólin að bjóða sveitafólki rútuferð í bæinn. Sumsstaðar gafst það vel, annars staðar ekki. Kannski var þetta ekki kynnt nógu vel og tíminn vafasamur, því margir munu hafa ve'rið í laufabrauðsgerð um þessa helgi. Þetta hafði verið reynt fyrir mörgum árum og því ekki að reyna aftur? En við getum sagt að allt starfsfólkið eigi þær hug- myndir sem framkvæmdar hafa verið.“ IM tsuður „Mér skilst að kaupfélagsmenn séu aðalgrínarar bæjarins um þessar mundir, þeir Páll og Hilm- ar sem standa að þessu. Mér líst vel á þetta hjá þeim, þetta er bara eins og að vera fyrir sunnan, hérna fæst allt. Þetta er gott framtak í svona litlum bæ og mér sýnist að menn þurfi ekki að sækja neitt suður. Það er gaman að sjá hressa krakka og ég vona að þeir komi til með að æfa og stunda íþróttir því það er betra en að leggjast í sígarettureyking- ar og drekka vín. Krakkarnir hérna eru áhugasamir og mér líst vel á þetta.“ IM Jón Páll bragðar á lúxusvínarbrauðum frá Brauðgerð KÞ. Kynningar frá Mjólkursamlagi og Brauðgerð KÞ. Ungur herra spreytir sig við lóðin með aðstoð Jóns Páls. 16. febrúar 1989 - DAGUR - 7 1000 fin leigu- húsnæði óskast ViljuiTi leigja 1000 fm geymsluhsúnæði sem fyrst. Æskileg staösetning sém næst togarabryggjunni á Akureyri. Leigutími 6 mánuðir til að byrja með. Húsnæðið þarf að vera einangrað með innkeyrslu- hurðum. Þeir sem hafa áhuga eru beðnir að leggja inn tilboð á afgreiðslu Dags merkt „Eyrin“ sem fyrst. r| Árshátíð Lettis verður haldin í Hiíðarbæ laugardaginn 18. febrúar og hefst kl. 21.00. Húsið opnað ki. 20.30. Hljómsveitin Helena fagra. Skemmtiatriði að hætti Léttismanna og Ijúffengur matur. Miðaverð aðeins kr. 1.500.- Miðar seldir í Hestasporti 13.-16. febrúar. Sætaferðir eftir ball. Skemmtinefnd. Aðalfimdur KA Aðalfundur Knattspyrnufélags Akureyrar verður haldinn föstudaginn 24. febrúar n.k. í KA-heimilinu og hefst hann kl. 20.30. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Kosning stjórnar. 4. Önnur mál. KA félagar eru hvattir til að mæta vel á fundinn og eiga síðan saman notalega stund í félagsheimilinu á eftir. Stjórnin. Vélsleða- og útivistarfólk 7ÁXXJþuotfáí' O R I % I N A L Vorum að fá vuufuom, nærfatnaðinn vinsæla. T.d. nærbuxur, nærboli, grifflur og sokka á dömur, herra og börn. Frábær fatnaður í vetrarkuldanum. EYEJORÐ QE Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275 JEy Myndir og texti: IM

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.