Dagur - 16.02.1989, Blaðsíða 11
fþrótfir
16. febrúar 1986 - DAGUR - 11
I
Blak:
„Vantar íslandsmeistaratitil
til að fuilkomna þrennuna“
- segir Haukur Valtýsson fyrirliði KA-liðsins
Haukur Yaltýsson fyrirliði hins
sigursæla blakliðs KA er frek-
ar bjartsýnn á að liðið geti
staðið sig vel í keppninni um
íslandsmeistaratitilinn, en KA
tryggði sér Déildarmeistara-
titilinn endanlega um síðustu
helgi.
„Úrslitakeppnin verður mun
erfiðari en deildakeppnin, því nú
leggja hin liðin, ÍS, Þróttur 9g
HK, allt í sölurnar til þess að
leggja okkur að velli,“ segir
Haukur.
KA-menn eru nú strax farnir
að undirbúa sig undir keppnina,
en hún hefst að öllum líkindum
um aðra helgi með tveimur leikj-
um KA við ÍS og HK fyrir
sunnan. Haukur segir að á marg-
an hátt sé auðveldara að undir-
búa sig undir úrslitakeppnina en
deildakeppnina. „Við vitum gegn
hvaða liðum við leikum og þekkj-
um þessi lið vel því við höfum
margleikið gegn þeim í vetur. Á
móti kemur auðvitað að liðin
þekkja okkur og munu því sjálf-
sagt reyna að finna snögga bletti
á okkar leik.“
- KA-liðið fór frekar illa út úr
úrslitakeppninni í fyrra, en þar
tapaði liðið öllum leikjum sínum.
Haukur var spurður hvort hann
væri smeykur um að sagan myndi
endurtaka sig.
„Nei, það er lítil hætta á því. í
fyrra vorum við bæði með slakara
lið en nú og þar að auki vorum
við í lægð þegar keppnin fór
fram. Reyndar töpuðum við
flestum leikjunum mjög naumt,
fjórum leikjum 3:2, einum 3:1 og
einum 3:0 ef ég man rétt. Núna
erum við á leið upp úr öldudal og
ég er þess vegna hóflega bjart-
sýnn á árangur okkar í þessari
úrslitakeppni."
- Hvert af liðunum þremur
mun verða erfiðast viðureignar?
„Það er erfitt að segja um það
svona fyrir fram. HK-liðið hefur
ekki komið eins sterkt út í vetur,
eins og ég átti von á, og þess
vegna er ég hræddari við ÍS og
Þrótt.
Þróttarar byrjuðu mótið frekar
illa, en hafa verið að sækja í sig
veðrið og hafa verið illsigranlegir
í undanförnum leikjum. Hins
vegar er því ekki að leyna að eina
liðið sem við höfum lent í vand-
ræðum með í vetur eru Stúdent-
arnir. Þar' að auki hefur Norð-
firðingur Sigfinnur Viggósson
hafið æfingar aftur með þeim og
hann styrkir liðið mikið. Ég á því
von á hörku viðureignum við
þessi tvö lið, þótt alls ekki megi
vanmeta Kópavogsliðið."
- Nú ert þú orðinn 32 ára gam-
all og flestir af þínum jafnöldrum
löngu hættir í svona keppnis-
íþróttum. Hvað fær KA að njóta
krafta þinna lengi?
„Það hefur oft hvarflað að
manni að leggja skóna á hilluna
en blakið er það góð íþrótt og
félagsskapurinn skemmtilegur að
maður veigrar sér við því. Ég
ætla því ekki að gefa neinar yfir-
lýsingar nú um hvort ég muni
halda áfram eður ei. Hins vegar
liggur ljóst fyrir að þegar ég er
viss um að einhver muni geta
tekið við stöðu minni þá fer
Haukur Valtýsson að fylgjast
með leiknum úr áhorfendastúk-
unni.
Svo má nú ekki gleyma því að
ég hef aldrei orðið íslandsmeist-
ari í blaki og ómögulegt að hætta
án þess að hafa náð í þann titil.
Þegar ég lék með Stúdentum
varð ég tvisvar sinnum Bikar-
meistari og einu sinni Deildar-
meistari þannig að íslandsmeist-
aratitilinn vantar til þess að full-
komna þrennuna.“
Haukur segir að leikirnir á
Akureyri geti ráðið úrslitum
hvort KA tekst að hreppa titil-
inn. „Áhorfendur studdu vel við
bakið á okkur á heimaleikjunum
í vetur og í þeim leikjum lékum
við vel. Ég vona því að áhorfend-
ur mæti á leikina í úrslitakeppn-
inni og styðji okkur sem áður,
enda gæti það ráðið úrslitum um
hvort Islandsmeistaratitillinn
lendir hér á Akureyri í fyrsta sinn
eða fyrir sunnan.“
Haukur Valtýsson var kosinn Biakmaður ársins 1988. Hér sést Hrefna Brynjólfsdóttir afhenda honum blómvönd í
tilefni af útnefningunni. Stefán Magnússon formaður blakdeildar KA stendur á milli þeirra broshýr á svip. Mynd: ai>
Karfa:
Enn frestað hjá TindastóB
- búið að fresta fimm leikjum liðsins
Fresta varð leik Tindastóls og
Keflvíkinga sl. þriðjudags-
kvöld í Flugleiðadeildinni sem
vera átti á Sauðárkróki. Kefl-
víkingar komust ekki norður
vegna þess að Arnarflug neit-
aði að fara í loftið vegna
ótryggrar veðurspár. A sama
tíma flaug áætlunarvél Flug-
leiða til Sauðárkróks. Þó að
Keflvíkingar byðust til að verða
eftir á Króknum, var ekki hægt
að tjónka við Arnarflugs-
menn. Ekki orð um það meir.
Er þetta þriðji leikur Tinda-
stóls sem frestast og að sögn Pét-
urs H. Sigurðssonar framkvæmda-
stjóra KKÍ hefur skapast vand-
ræðaástand hjá þeim með niður-
röðun frestaðra leikja. Fyrir utan
leikinn gegn Keflavík á Tinda-
stóll eftir leik við Val og við KR í
bikarnum. Sá leikur á að fara
fram á Sauðárkróki í kvöld ef
veður leyfir. Hjá Þór hefur þurft
að fresta 2 leikjum, við Keflavík
og KR og hefur leikurinn við ÍBK
verið settur á 23. febrúar nk.
Fyrirhugað er að leikur Tindastóls
og ÍBK fari fram næsta þriðju-
dag en ekki hefur verið ákveðið
með aðra frestaða leiki Tinda-
stóls og Þórs.
í samtali við Dag í gær sagðist
Valur Ingimundarson þjálfari
Tindastóls vera orðinn þreyttur
á þessum eilífu frestunum.
„Þessar frestanir eru alltaf
slæmar, sér í lagi þegar þær koma
í hnapp. Einnig er það slæmt
þegar lið er búið að byggja sig vel
upp fyrir leik, sem er svo frestað
á síðustu stundu, eins og gerðist í
gærkvöld," sagði Valur ennfrem-
ur.
í stað leiksins gegn ÍBK tóku
leikmenn Tindastóls létta æfingu
og ætla að mæta grimmir til leiks
í kvöld, gegn KR í bikarnum, ef
þeir koma. „Það á bara að hakka
KR-ingana í kvöld," sagði Valur
að lokum. -bjb
Miimingarmót
um Bjöm Brynjar
- í Ólafsfirði á laugardaginn
Minningarmót unt Björn
Brynjar Gíslason, sem lést í
bílslysi í Noregi árið 1987,
verður haldið í Ólafsfirði á
laugardaginn 18. febrúar og
hefst kl. 12.00.
Keppt verður í svigi í flokki
fullorðinna og í flokki drengja
15-16 ára. Mótið er opið punkta-
mót og er reiknað með þátttöku
skíðamanna víðs vegar að af
Norðurlandi.
Getraunir:
Dalvík tók kipp
- KA enn efst
Það var hópurinn ROZ í
Reykjavík sem var með 12
rétta í getraunum á laugardag-
inn og var sá eini með alla
rétta. ROZ-félagar skipta því
rúmum 4,2 miljónum á milli
sín. Hér fyrir norðan tóku Dal-
víkingar mikinn kipp og eru nú
þriðja söluhæsta félagið á
svæðinu.
KA er enn söluhæst en féll nið-
ur í 4. sæti yfir allt landið. í
humátt á eftir þeim eru Þórsarar
og eru þeir 6. söluhæsta lið á
landinu. Leiftursmenn tóku
einnig góðan kipp og rjúka upp
töfluna. En lítum þá á söluna og
nú birtum við söluna hjá öllum
liðum á Norðurlandi.
1. KA Raðir 23.795
2. Þór 23.088
3. Dalvík 8.102
4. Leiftur 7.292
5. Tindast. 6.067
6. KS 4.718
7. Golf. Hús. 4.027
8. Völsungur 3.442
9. Möðruvalls. 2.235
10. Magni 1.749
11. Eilífur 1.582
12. Æskan 1.363
13. Einherji 1.277
14. Umf. Grettir 1.089
15. Hvöt 970
16. Austri Rauf. 932
17. Vorboðinn 906
18. Fram, Skagstr. 862
19. Langnesingar 806
20. Narfi, Hrísey 786
21. Neisti, Hofsó. 783
22. Eining 782
23. Árroðinn 428
24. Reynir Ársk. 362
25. Mývetningur 340
26. Snörtur Kópsk. 107
27. Sundl. Grímsey. 85
28. Víðidalur 85
29. Vaskur 77
30. Dagrenning 61
31. Höfðstrending. 40
32. Golf. Skagstr. 40
33. Framtíðin 14
34. UFA 3
Eins og sést á þessari upptaln-
ingu eru þetta alls konar félög
sem stunda getraunastarfsemi.
Vert er að hvetja forráðamenn
félaga til þess að auglýsa sín
númer með því að hengja upp
piaköt frá getraunum því þessir
peningar eru auðteknir og lítið
þarf að gera til þess að auka söl-
una umtalsvert, eins og sést hjá
Dalvíkingum sem fóru í herferð
síðustu söluviku og margfölduðu
söluna hjá sér.
Það er t.d. athyglisvert hve lít-
ið Hvöt á Blönduósi selur og
einnig hve lítið er selt hjá Reyni á
Árskógsströnd. Þessi lið gætu
sjálfsagt aukið sína sölu töluvert
án mjög mikillar fyrirhafnar.
Karfa:
ÞórogUMFG
í kvöld
- á Akureyri
Samkvæmt mótaskrá eiga
Þór og Grindavík að leika í
Fiugleiðadeildinni í körfu í
kvöld á Akureyri kl. 20.
Þrátt fyrir umhleypinga í
veðrinu undanfarna daga
þýðir ekkert annað en að
vera bjartsýnn og vona að
leikurinn fari fram.
Gindvíkingar eru með ungt
og skemmtilegt lið og hafa
kornið á óvart í vetur með
góðurn árangri. Þeirra besti
maður er hinn hávaxni Guð-
rnundur Bragason sem nú á
orðið fast sæti í íslenska lands-
liðinu.
Þórsarar hafa ekki leikið í
þó nokkurn tíma og eru orðnir
óþreyjufullir að komast í tæri
við boltann aftur. Það má því
búast við frískum Þórsurum í
leiknum í kvöld og ætti leikur-
inn því að vera hin besta
skemmtun fyrir áhorfendur.