Dagur - 02.03.1989, Page 7

Dagur - 02.03.1989, Page 7
2. mars 1989 - DAGUR - 7 frú Nordurland? Laufdal, Erla Haraldsdóttir, Sigtryggur Sigtryggsson, Guðrún Jóhannsdóttir og Karl Davíðsson. Kynnir í kvöld verður Jóhann Steinsson. Að sjálfsögðu verða stúlkunum veitt verðlaun sem fyrirtæki á Akureyri hafa gefið af mikilli rausn. Það þarf svo ekki að taka það fram, að sigurvegarinn í kvöld hlýtur ekki aðeins titilinn Ungfrú Norðurland, hún vinnur sér einnig rétt til að taka þátt í keppninni um Ungfrú ísland sem fram fer í Reykjavík annan í hvítasunnu, 15. maí nk. Stúlkurnar sem allar eru 18 og 19 ára gamlar hafa lagt hart að sér undanfarið við strangar æfingar og sennilega er nú farið að gæta töluverðrar spennu hjá þeim stöllum, eins og þeim gestum sem ætla sér að fylgjast með í kvöld. Stúlkurnar sex, sem taka þátt í keppninni, eru kynntar nánar hér á síðunni. Myndir: TLV Texti: VG Guðrún Karítas Bjarnadóttir: Hér er kominn annar nemandi á verslunar- sviöi Verkmenntaskólans á Akureyri. Guðrún er 18 ára Akureyringur og auk áhuga á allri útivist hefur hún áhuga áferðalögum og lestri. Hún stefnir að því að fara í viðskiptanám að loknu stúdentsprófi, en að öðru leyti er fram- tíðin óráðin. Steinunn Geirsdóttir: Steinunn er nemandi á náttúrufræðibraut Menntaskólans á Akureyri. Hún er 18 ára gamall Akureyringur, æfir handbolta með meistaraflokki kvenna hjá Þór auk þess sem hún hefur gaman að öllum öðrum íþróttum, sérstaklega fótbolta og sundi. Steinunn hefur líka gaman að dýrum en hún á bæði hund og hesta. Að loknu stúdentsprófi hyggst hún leggja stund á læknisfræðinám. Þórunn Guðlaugsdóttir: Þórunn er sú þriðja af stöllunum sem þátt taka í keppninni sem stundar nám á verslunarsviði Verkmenntaskólans á Akureyri. Hún er 18 ára gömul, er frá Akureyri og hefur áhuga á Ijós- myndun og heilsurækt. I framtíðinni stefnir hún að því að fara til útlanda í nám. Harmoniku- dansleikur A///r velkomnir Harmonikuunnendur. í Lóni v/Hrísalund, laugardaginn 1. mars frá kl. 22.00-03. íbúð til sölu! Til sölu góð 2ja herb. íbúð í svalablokk. Ibúðin er um 61 fm og er til afhendingar 1. maí. Fasteignasalan Brekkugötu 4 • Sími 21744 Gunnar Solnes hrl . Jon Kr Solnes hrl og Arm Palsson hdl Sölust. Sævar Jonatansson KARATE Byrjendanámskeið er aö hefjast laugardaginn 4. mars. Kennt í tveimum aldursflokkum, 12-14 ára og 15 ára og eldri. Upplýsingar og innritun í síma 22736 frá kl. 18.00-20.00. Karatefélag Akureyrar. Alþyðuflokksfélag Akureyrar heldur aðalfund sinn í dag fimmtudaginn 2. mars að Strandgötu 9, kl. 20.30. Fundarefni: Inntaka nýrra félaga. Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin. Dalvík - Blaðberar Vantar blaðbera í syðri hluta bæjarins. Upplýsingar í síma 96-61462. ATVINNA! Getum bætt við starfsfólki við saumaskap og fleira. Hálfsdagsstarf kemur til greina. Upplýsingar hjá starfsmannastjóra í síma 21900 (220). ✓ Alafoss hf., Akureyri

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.