Dagur


Dagur - 07.03.1989, Qupperneq 5

Dagur - 07.03.1989, Qupperneq 5
Þriðjudagur 7. mars 1989 - DAGUR - 5 f/ kvikmyndarýni F Umsjón: Jón Hjaltason Spennumynd í hágæðaflokki Borgarbíó sýnir: Dáið með kvölum (Die Hard). Leikstjóri: John McTiernan. Helstu leikendur: Bruce Willis, Bonnie Bedelina og Paul Gleason. Twentieth Century Fox 1988. Ég skal ekkert vera að draga þetta neitt; Dáið með kvölum er vafalaust ein af þremur mest spennandi bíómyndum sem ég hef séð um ævina og líklega þar fremst í flokki. Pað er einna helst að Omega maðurinn, með Charlton Heston geti veitt henni einhverja samkeppni. Ég þykist vita að fæst ykkar muni Omega manninn en til þess að gera samanburðinn marktækari get ég nefnt Dauðaskot (Shoot to kill) með Sidney Poiter og Tom Berenger í aðalhlutverkum, en hún fékk á sínum tíma mikið umtal og mikla auglýsingu, enda var þar vissulega ágætisreyfari á ferðinni. Að mínu áliti er Dáið með kvölum þó enn betri spennumynd en Dauðaskot. Grunntónninn í Dáið með kvölum er svipaður og í fjölda annarra reyfara. Tilveru aðal- söguhetjunnar er ógnað, það er abbast upp á hana og hún á hend- ur sínar að verja og eiginkonu að auki. Lögreglumaðurinn John McClane kemur til Los Angeles að tala konuna sína til (Bonnie Bedelia). Áhorfandinn fær fljót- lega á tiífinninguna að eitthvað sé að í hjónabandinu. Konan hefur tekið upp skírnarnafn sitt Holly Gennaro sem er ekki gott afspurnar fyrir karlmann í Bandaríkjunum Norður- Ameríku. Og grunurinn verður að vissu. Holly er á meðal topp- anna í stórfyrirtækinu Nakatomi, hefur háar tekjur, hærri en John. Par með þarf ekkert frekar að útskýra hvers vegna grundvöllur- inn er byrjaður að skriðna undan hjónabandi þeirra þrátt fyrir að ástareldurinn logi enn glatt. Það er aðfangadagur jóla, en þá drekka Kanar sig fulla. John heldur beint af flugvellinum á vinnustað eiginkonunnar, háhýs- is Nakatomifyrirtækisins, en þar stendur yfir mikill gleðskapur starfsfólksins. Og í þessari bygg- ingu gerist nær öll bíómyndin. John er varla fyrr búinn að kasta kveðju á eiginkonu sína þegar hópur velvopnaðra fanta gerir innrás í bygginguna. Foringi þeirra er Robinson nokkur (Paul Gleason) sem á að baki sér blóði- drifinn feril sern borgarhryðju- verkamaður. Lögreglan og FBI lætur glepjast til að trúa því að hér séu enn einu sinni mættir postular mannréttinda að knýja fram eitthvert réttindamálið. En í raun og veru eru Robinson og félagar hans aðeins á eftir fjár- munurn. Fyrir tilviljun kemst John hjá því að vera gómaður af ræningjunum og myndina á enda leikur hann lausum hala í bygg- ingunni og gerir Robinson lífið leitt. Þetta er svipað einvígi og við þekkjum úr Rambó-myndun- um þar sem hetjan er látin berj- ast við ofurefli. John McClane hefur það þó umfram Rambó að vera af holdi og blóði. Skrifstofuhúsnæði Til leigu er skrifstofuhúsnæöi í Miöbænum. Húsnæöiö er laust nú þegar. Upplýsingar í síma 25609 hjá' Endurskoöunarmiðstöðinni hf. Aðalfundur Gigtarfélagsins á Norðurlandi eystra veröur haldinn í Barnaskóla Akureyrar, fimmtu- daginn 9. mars n.k. kl. 20.30. Dagskrá. Venjuleg aöalfundarstörf. Stjórnin. T1I sölu jörð í Hrafnagilshreppi, 52 hektara ræktað land. 152 hektara girt land. Bústofn: 45 kýr, 50 geldneyti, 22 ær, 2 hrútar. Góöur kvóti. Vélar að verðmæti 2,8 milljónir. Fasteignasala - Sími 26441 Hafnarstræti 108. Sölumaður: Páll Halldórsson, heimasími: 22697. I Lögmaður: Björn Jósef Arnviðarson. Nýtt á söluskrá Brekkugata: 2-3ja herb. 60 fm íbúð á jaröhæö. sér inngangur. Ástand mjög gott. Skaröshlíö: 3ja herb. rúmgóð íbúð á fyrstu hæð í blokk. Afh. samkomulag. Langahlíð: 3ja herb. raðhúsíbúð á einni hæð, stærð ca. 90 fm. íbúðinni fylgir sér geymsla í kjallara. Akurgerði: 4ra herb. raðhúsíbúð á einni hæð, ásamt bílskúr. íbúðin er mikið endurnýjuð og á sérlega góðum stað. Heiðarlundur: 5 herb. raðhúsíbúð ásamt bílskúr. íbúðin er í algjörum sérflokki hvað frágang snertir. Dalsgerði: 5 herb. 127 fm raðhúsíbúð á tveimur hæðum. Skipti hugsanleg á 3-4ra herb. íbúð. Verslun í Miðbænum, innréttingar í leiguhúsnæði, nafn og viðskiptasambönd. Nú er tækifæri fyrir samheldna fjölskyldu. Verð 1.500.000.00 Símsvari tekur við skilaboðum allan sól- arhringinn. Opið frá kl. 17-19. Fasteignasalan hf. Gránufélagsgötu 4, efri hæð, sími 21878. Hermann R. Jónsson, sölumaður heimasími utan skrifstofutíma er 25025. Hreinn Pálsson, lögfræðingur. Guðmundur Kr. Jóhannsson, viðskiptafræðingur. Fp

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.