Dagur - 07.03.1989, Blaðsíða 6

Dagur - 07.03.1989, Blaðsíða 6
- DAGUR - Þriðjudagur 7. mars 1989 Atvinnulíf á Norðurlandi: SlMI (96) 21400 Iðnaður á íslandi hefur aldrei verið í hópi hinna útvöldu - sagði Jón Sigurðarson forstjóri Álafoss hf. Stjórnunarfélag Norðurlands, norðurlandsdeiid Félags við- skipta- og hagfræðinga og Iðn- þróunarfélag Eyjafjarðar héldu fund um atvinnulíf á Norðurlandi á Hótel KEA á föstudaginn. Fundurinn var vel sóttur og verða erindi frummælenda eða kaflar úr þeim birt í Degi á næstunni. Hér birtist erindi Jóns Sigurðarsonár, forstjóra Álafoss hf., um iðnað, að mestu óstytt. Jón hóf mál sitt á umræðu um stöðu íslensks iðnaðar á undanförn- um misserum. Fyrsti hluti erindis hans fjallaði um iðnað á Akureyri og Norðurlandi og að hvaða leyti hann byggi við annars konar aðstæður en iðnaður á höfuðborðgarsvæðinu. Jón sagði að hann hefði staðnæmst við fjögur atriði sem skiptu megin- máli í þessu sambandi. í fyrsta lagi væri um að ræða kröfur lítilla sam- félaga um stöðugleika iðnfyrirtækja sem leiddu oft á tíðum til skorts á sveigjanleika fyrirtækjanna. í öðru lagi gæti stöðugur vinnumarkaður hjálpað iðnfyrirtækjum en vinnu- markaður úti á landsbyggðinni væri að öllu jöfnu stöðugri en hann er á Reykjavíkursvæðinu. í þriðja lagi byggi iðnaðurinn á Akureyri í mikilli fjarlægð frá stjórnkerfinu í höfuð- borginni. Fjórða atriðið er að lengra er á markað frá Norðurlandi og ætti iðnaður á því svæði því meira undir samgöngum en sambærilegur iðnað- ur í Reykjavík. Allir þes*sir punktar tengdust meira og minna innbyrðis. Þeir væru einnig að miklu leyti huglægs eðlis og því engin tilraun gerð til að meta tölulega áhrif þeirra á rekstur iðnfyr- irtækja á Akureyri. Sveigjanleiki iðnaðar í litlum samfélögum Kröfur lítilla samfélaga um stöðug- leika iðnaðarins geta oft leitt af sér að sveigjanleiki fyrirtækjanna verður minni en nauðsynlegt er. Það mætti öllum vera Ijóst að breytingar á rekstrarskilyrðum og ytri aðstæðum fyrirtækja gerðust oft á tíðum með skjótum hætti. Slíkar breytingar sem áður tóku áratugi taka á okkar tím- um oftast aðeins nokkur misseri. Sér- staklega ætti þetta við um iðnfyrir- tæki sem byggðu afkomu sína á neyt- endamarkaði. Þessi breyttu markaðs- skilyrði kölluðu að sjálfsögðu á við- brögð fyrirtækjanna. Rétt viðbrögð væru fyrirtækjunum lífsnauðsynleg og væri hægt að fullyrða að fyrirtæki sem ekki aðlaga sig að breyttum skilyrðum sigla beint inn í opinn dauðann. Minni samfélög verða oft fyrir verulegum áhrifum af völdum þeirra breytinga, samdráttar o.s.frv. sem verða í kjöifar hagræðingar í rekstri og viðbrögðum við breyttum markaðs- skilyrðum. Þegar viðkomandi fyrir- tæki eru verulegur hluti af vinnu- markaði í sínu sveitarfélagi væru áhrifin auðvitað langmest. Af þessari ástæðu væri oft mikil andstaða við það þegar óarðbærar einingar eru lagðar niður og mannskap fækkað. „Við þekkjum öll þann darraðardans sem byrjar þegar slíkt er í upp.sigl- ingu, þ.e. sá darraðardans sem fjöl- miðlar og stjórnmálamenn byrja að dansa. Af þessum þrýstingi leiðir sú hætta að fyrirtæki í hinum dreifðu byggðum haldi lengur áfram óarð- bærum rekstri, jafnvel að hluta til eða alveg á opinberu framfæri. Tími stjórnendanna fer þá í að viðhalda þessum óbreytta rekstri í stað þess að byggja upp sín fyrirtæki með fram- tíðina í huga. Það má einnig benda á erfiðleika slíkra iðnfyrirtækja til að taka við sér þegar markaðurinn breytist, t.d. vegna skorts á sérhæfðu vinnuafli," sagði Jón. Skortur á þjónustu gæti einnig haft þær afleiðingar að sveigjanleiki og samkeppnishæfni fyrirtækja minnk- aði verulega. Stærri fyrirtækin hefðu mörg hver þurft að reka innan sinna vébanda þjónustu sem æskilegt væri að kaupa utan að. „Það er langt frá því að þessi mál séu óleysanleg fyrir afkomuna. Stjórnendur verða að gera nauðsyn- legar breytingar og mega ekki láta utanaðkomandi þrýsting koma í veg fyrir slíkt. Oft á tíðum er mögulegt að sinna stærri mörkuðum og auka umsetningu með því að fá vöruna framleidda annars staðar, annað hvort hérlendis eða erlendis, og leysa þannig það vandamál að vinnumark- aðurinn er takmarkaður. Það væri einnig mjög til góðs ef fjölmiðlar hefðu skilning á því að fyrirtækin eiga og verða að aðlaga sig breyttum aðstæðum. Það hefur lengi verið plága sem ég held reyndar að sé að linna að það eitt hefur þótt frétt ef starfsemi í óarðbærum einingum er lögð niður eða „atvinna flutt úr landi,“ en ekki horft á þá hlið að fyrirtækið sem eftir stendur er lík- legra til að lifa af,“ sagði Jón. Yinnumarkaður er stöðugri á landsbyggðinni Þá kom Jón Sigurðarson að öðru atriðinu, vinnumarkaðnum sem iðn- aðurinn býr við á landsbyggðinni og Akureyri væri ágætt dæmi um. Stöðugleiki vinnumarkaðarins á Akureyri væri venjulega meiri en á höfuðborgarsvæðinu. Ef dæmi væri tekið af starfsemi Álafoss hf. þá væri gegnumstreymi fólks miklu meira vandamál í bækistöðvum fyrirtækis- ins í Mosfellssveit en á Ákureyri. Áhrif mikils gegnumstreymis hefðu verulega neikvæð áhrif á reksturinn því erfitt væri að halda uppi vönduð- um vinnubrögðum í vöruframleiðslu ef stöðugt væri verið að skipta um starfsfólk, hvort heldur væri í fram- leiðslunni sjálfri eða í beinni stjórnun. Þegar fyrirtækin hefðu aðgang að föstu starfsfólki ættu þau að nota tækifærið til að mennta starfsfólkið til að nýta krafta þess í framleiðslunni betur. Ef fyrirtækin gerðu sitt til að láta fólkinu líða vel í starfi og bæta úr einhæfni verkefn- anna borgaði slíkt sig alltaf. „Kollegar mínir í Reykjavík hafa oft sagst öfunda okkur hér fyrir norð- an af þessum stöðugleika í starfs- mannahaldi," sagði hann. Þriðja atriðið, fjarlægð iðnaðarins á Akureyri frá opinberri stjórnsýslu og þjónustu í Reykjavík, vekti athygli á þeirri staðreynd að þjónusta og vald væri að mestu samankomið á einum stað, í höfuðborginni. Stærri og minpi fyrirtæki hefðu margvísleg erindi til Reykjavíkur, ekki aðeins til opinberra aðila heldur einnig til sinna eigin hagsmunasamtaka. Oft á tíðum væri mjög nauðsynlegt að fyrirtækin tækju þátt í umræðum um hagsmunamál sín á ráðstefnum og fundum í Reykjavík með því að senda fulltrúa sína þangað. Því mið- ur gerði fjarlægðin það að verkum að stjórnendurnir ættu þess stundum tæplega eða ekki kost að fara suður. Þetta væri alvarlegt vegna þess að fyrirtæki dreifbýlisins hefðu þá ekki áhrif á stefnumótun í sínum eigin hagsmunamálum og bæru jafnvel skarðan hlut frá borði þegar opinber- ar stjórnvaldsaðgerðir færu fram. Þá mætti ekki gleyma því að oft væri lengra frá Reykjavík til Akureyrar en öfugt. Tvennt mætti gera til að leysa þennan vanda. í fyrsta lagi að dreifa valdinu út til hinna dreifðu byggða, í öðru lagi með því að samtök atvinnu- lífsins og aðrir beittu sér fyrir dreif- ingu ráðstefna og funda um landið. í samþykkt Félags íslenskra iðn- rekenda segir svo: „Meirihluti stjórn- armanna skal vera búsettur í Reykja- vík eða svo skammt utan Reykjavík- ur að mönnum sé auðveld fundar- sókn þangað. Stjórnarfundi skal að jafnaði halda í Reykjavík en utan Reykjavíkur þá ástæða þykir til.“ Þetta væri athyglisvert í samþykktum landssamtaka iðnaðarins. Samgöngur eru ekki í takt við tímann Hvað fjórða atriðið snerti, fjarlægð frá mörkuðum og samgöngur, mætti margt segja. Stærsti hluti neytenda- markaðar innanlands væri í Reykja- vík, reyndar þyrfti einnig nokkur hluti innflutnings og útflutnings að hafa þar viðkomu á leið sinni til endanlegs kaupanda. Það væri afger- andi nauðsyn á að samgöngum væri sinnt eins vel og hægt væri með nútímalegum tækjum og aðferðum en mikið vantaði á að svo væri. Sem dæmi mætti taka farþega- og vöru- flug til Akureyrar sem fullnægði ekki nútímakröfum og þörfum á því sviði. Álfoss hf. væri eitt fárra fyrirtækja sem stundaði beina útflutningssölu utan af landsbyggðinni. Það yrði að viðurkennast að samgöngur hefðu valdið miklum erfiðleikum, ekki síst við þær aðstæður sem ríkt hefðu undanfarið. Stóran hluta þess vanda sem af þessu stafaði mætti leysa með einföldum hætti, t.d. beinu flugi milli Akureyrar- og Keflavíkurflugvalla en þá þyrftu menn ekki að leggja leið sína til höfuðborgarinnar í hvert skipti sem þeir þyrftu að fara til útlanda. Jón Sigurðarson sagði að reynsla sín eftir 12 ára starf við stjórnun iðn- fyrirtækja á Akureyri segði að ekki væru nein vandamál sem ekki væri unnt að leysa með góðum mannskap og skynsamlegum vinnubrögðum. Tækniframfarir myndu stytta vega- lengdir, auka samkeppni og auð- velda störf í hinum dreifðu byggðum. „Af þessu mætti kannski draga þá ályktun að auðvelt væri að reka iðn- að á íslandi. Langt er frá því að svo sé. Stundum er rætt um að ísland sé á mörkum hins byggilega heims í veðurfarslegu og landfræðilegu tilliti. Ég held að þessi setning eigi miklu frekar við: Ísland er á mörkum hins byggilega heims í efnahagslegu tilliti. Ég vitna þarna til stjórnunar efna- hagsmála því fsland er örugglega á mörkum hins byggilega heims með tilliti til iðnaðarins. Kunnara er en frá þurfi að segja að á undanförnum árum, frá 1986 fram á árið 1988, ríkti mikið og einstakt góðæri í sjávar- útvegi og skammtímauppsveifla varð í þjóðartekjum. Þetta leiddi af sér mjög verulega raungengishækkun, ég vil raunar kalla hana villimann- lega, því þess eru fá dæmi að raun- gengi gjaldmiðils þjóðar hafi breyst með þeim hraða sem gerðist hjá okkur. Þetta var þolandi fyrir fisk- veiðarnar og vinnsluna um hríð végna vaxandi afla og hækkandi fiskverðs. En það var engu slíku til að dreifa hjá útflutingsiðnaðinum eða samkeppnisiðnaðinum enda er það ekki eðli hans að sveiflur séu jafn snarpar og í sjávarútvegi. Sveifl- ur iðnaðarins lúta allt öðrum lögmál- um. Áðurnefnd ár urðu iðnfyrirtækj- unum ákaflega erfið. Eigið fé þeirra brann hratt upp og brennur ennþá töluvert glatt, skuldirnar jukust og vaxtakostnaður varð gríðarlega hár, burtséð frá lántökukostnaðinum. Jón tók sem dæmi að nýlega hefði fyrir- tæki eitt tekið 10 milljóna króna lán. Lántökugjald af þeirri upphæð var 100 þús. kr., þinglýsingarkostnaður 151 þús., lántökuskattur 600 þús., matsgjald 20 þús. krónur. Þegar 10 milljónirnar voru komnar inn í fyrir- tækið var búið að draga af þeim kr. 871 þúsund eða 8,71 prósent upp- hæðarinnar. Menn gætu velt fyrir sér hvernig fyrirtækin ættu að standa undir slíkum álögum. Raungengisfölsun krónunnar, hallarekstur iðnfyrirtækja og minnkandi eiginfjárstaða Hvað raungengishækkunina snerti skipti ein hlið þess máls afar miklu, þ.e. að iðnfyrirtækin hefðu ekki fengið að njóta fallandi fiskverðs eða þess þegar menn sáu nauðsyn þess að breyta raungengi krónunnar. „Þau firna alvarlegu tíðindi hafa verið að gerast á undanförnum mánuðum að ákveðið hefur verið að falsa gengi krónunnar með millifærslu við sjáv- arútveg úr tómum verðjöfnunarsjóði um 5%. Síðan er bætt gráu ofan á svart við nýjustu fiskverðsákvörðun fyrir nokkrum dögum og 2-3% milli- færsla ákveðin til viðbótar. Þetta þýðir að raungengi krónunnar sé haldið hærra en staðist fær til lengdar og aðeins þeim útvöldu er bætt skekkjan. Þetta er vöntun upp á ein 7 prósent og reyndar meira því fisk- iðnaðurinn getur ekki búið við það til lengdar að tekjur hans aukist aðeins um 7%. Iðnaðurinn er ekki og hefur aldrei verið í hópi hinna útvöldu. Þessi staða ásamt því að eigin- fjárstaða iðnfyrirtækja er yfirleitt orðin mjög bágborin í kjölfar þessa mikla rekstrarhalla á síðasta ári gerir það að verkum að ég er mjög svart- sýnn um vanda þessara fyrirtækja. Ég tel reyndar einsýnt að miðað við óbreytt ástand verði um samdrátt að ræða í mannahaldi í iðnaði og jafnvel í verðmætamyndun. Öruggt er það að sáralítil sem engin nýuppbygging verður í iðnaði á næstunni. Ég vil enda orð mín á því að segja að ég tel að líf og dauði rnargra iðn- fyrirtækja ákvarðist á næstu mánuð- um. Þetta ákvarðast af því hvernig tekst til um stjórn efnahagsmála og því hver verður niðurstaða kjara- samninga framundan, einnig því hvort við förum í eina verðbólguhol- skefluna enn eða ekki. Spurningin er því þessi: Tekst okkur að koma ís- landi inn á þann hluta landakortsins sem flokkast undir hinn byggilega heim fyrir iðnfyrirtækin?“ EHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.