Dagur - 07.03.1989, Side 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 7. mars 1989
fþróftir
Handknattleikur/1. deild:
KA lagði Fram á lokasprettinum
- einstaklingsframtak Jakobs og Erlings gerði útslagið
KA sigraði Fram 29:25 í 1. deild-
inni í handknattleik í Laugardals-
höll á sunnudagskvöldið. Með
þessum sigri lyfti KA sér frá mesta
hættusvæðinu á botninum.
Það var einkum stórleikur Jakobs
Jónssonar og Erlings Kristjánssonar
sem tryggði KA tvö stig öðru fremur
í þessari viðureign. Þeir gerðu 20 af
þessum 29 mörkum og var Jakob sér-
staklega atkvæðamikill í síðari hálf-
leik.
Annars var leikurinn í járnum
mest allan tímann. Liðin skiptust á
að skora og var jafnt á flestum tölum
í fyrri hálfleik. Þegar stutt var til
leikhlés hafði Fram tvö mörk yfir
14:12, en KA gerði þrjú síðustu
mörkin í hálfleiknum og hafði því
yfir 15:14 er gengið var til búnings-
herbergja.
Staðan
1. deild
Valur 12 12-0- 0 330:244 24
KR íi 9-0- 2 278:247 18
Stjarnan 12 8-1- 3 278:255 17
FH 12 7-1- 4 327:301 15
Víkingur 12 5-1- 6 311:326 11
KA 12 5-0- 7 286:292 10
Grótta 11 3-2- 6 208:223 8
ÍBV 12 1-3- 8 247:291 5
Fram 12 1-3- 8 253:297 5
UBK 12 1-1-10 236:280 3
Erlingur skoraði níu mörk í leikr<nr
Sama sagan var uppi á teningnum í
síðari hálfleik. Framarar skoruðu tvö
fyrstu mörkin en KA náði að jafna
og skiptust liðin áfram á að skora til
skiptis.
Þegar rúmar sex mínútur voru til
leiksloka hafði Fram yfir 24:23, en
þá hljóp allt í baklás hjá liðinu og
KA-menn skoruðu sex mörk gegn
einu marki Framara. Leiknum lauk
því með sigri KA 29:25 og vænkaðist
hagur KA-liðsins mjög við þennan
sigur en á sama tíma er staða þeirra
bláklæddu orðin slæm á botninum.
Það er ekki hægt að segja að þetta
hafi verið sigur liðsheildarinnar hjá
KA. Það sem gerði gæfumuninn var
einstaklingsframtakið hjá þeim
Erlingi og Jakobi. Sá síðarnefndi átti
stórleik í síðari hálfleik og skoraði þá
átta gullfalleg mörk úr einungis tíu
skottilraunum. Erlingur var einnig
drjúgur í vörn og sókn og réðu Fram-
arar ekkert við þessar skyttur KA.
Axel Stefánsson átti einnig þokka-
legan leik í síðari hálfleik og varði
vel á mikilvægum augnablikum undir
lok leiksins.
Hjá Fram var Júlíus Gunnarsson
sterkur í fyrri hálfleik en KA-liðið
klippti vel á hann í síðari hluta leiks-
ins. Einnig var Birgir drjúgur að
vanda í vörn og á línunni. Jens Ein-
arsson varði einnig vel í markinu og
stöðvaði m.a. þrjú vítaköst KA-
manna.
Úrslit í öðrum leikjum helgarinnar
urðu þannig að FH-ingar sigruðu
Víkinga 36:27 eftir að Víkingar höfðu
verið sterkari framan af. Stjarnan
lenti í óvæntum erfiðleikum með
Breiðablik en sigraði samt 24:21.
Valsmenn unnu ÍBV örugglega
36:24.
Mörk KA: Jakob Jónsson 11/2, Erlingur
Kristjánsson 9/2, Sigurpáll Árni Aðalsteinson
3/1, Pétur Bjarnason 2, Guðmundur Guð-
mundsson 2, Friðjón Jónsson 1 og Bragi Sig-
urðsson 1.
Mörk Fram: Júlíus Gunnarsson 9/2, Birgir
Sigurðsson 6, Dagur Jónasson 3, Tryggvi
Tryggvason 3, Egill Jóhannesson 2 og Ragnar
Hilmarsson 2.
Frjálsar íþróttir:
lagði UMSE
UFA
Fyrir sKommu var haldið í íþrótta-
höllinni á Ak. stigamót í frjálsum
íþróttum milli Ungmennafélags
Akureyrar (UFA) og Ungmenna-
sambands Eyjafjarðar (UMSE).
Urslit urðu þau að UFA sigraði
með 116 stigum gegn 72 stigum
UMSE.
Mótið var ætlað krökkum á aldrm-
um 11-14 ára og átti að vera undir-
búningur fyrir MÍ 14 ára og yngri.
Úrslit urðu sem hér segir:
Stelpur 11-12 ára:
40 m hlaup sek.
1. Sigríður Hannesdóttir UFA 6,5
2. Hólmfríður Jónsdóttir UFA 6,6
3. Anna B. Blöndal UFA 6,6
4. Eva Bragadóttir UMSE 6,8
600 m hlaup mín.
1. Alice H. Björgvinsdóttir UFA 2.09,6
2. Eva Bragadóttir UMSE 2.12,5
3. Ásdís Ármannsdóttir UMSE 2.23,5
4. Elín Torfadóttir UFA 2.27,8
Langstökk m
1. Eva Bragadóttir UMSE 1,96
2. Sigríður Hannesdóttir UFA 1,93
3. Sigríður Gylfadóttir UMSE 1,89
4. Valdís Konráðsdóttir UFA 1,85
Hástökk m
1. Sigríður Hannesdóttir UFA 1,15
2. Valdís Konráðsdóttir UFA 1,00
Strákar 11-12 ára:
40 m hlaup sek.
1. Þorleifur Arason UMSE 6,3
2. Smári Stefánsson UFA 6,3
3. Heiðar Sigurjónsson UMSE 6,4
4. Arnar Vilhjálmsson UFA 6,4
600 m hlaup mín.
1. Smári Stefánsson UFA 2.05,0
2. Jóhann Finnbogason UFA 2.06,0
3. Anton Ingvarsson UMSE 2.07,0
4. Birgir Ö. Reynisson UFA 2.13,3
Langstökk m
1. Þorleifur Árnason UMSE 2,12
2. Arnar Vilhjálmsson UFA 2,05
- í keppni 11-14 ára
3. Haukur Gunnarsson UMSE 2,01
4. Smári Stefánsson UFA 2,00
Hástökk m
1. Arnar Vilhjálmsson UFA 1,25
2. Jón F. Halldórsson UMSE 1,20
3. Heiðar Sigurjónsson UMSE 1,15
4. Jón M. Jónsson UMSE 1,15
Telpur 13-14 ára:
40 m hlaup sek.
1. Jóhanna Erla Jóhannesd. UFA 5,9
2. Rósa Björnsdóttir UFA 6,0
3. Maríanna Hansen UMSE 6,1
4. Sigurlaug Hauksdóttir UMSE 6,3
800 m hlaup mfn.
1. Rósa Björnsdóttir UFA 2.59,6
2. Elísabet Jónsdóttir UFA 3.05,5
3. Hulda Hrönn UFA 3.05,9
4. Heiðrún Jóhannesd. UMSE 3.09,2
Langstökk m
1. Jóhanna E. Jóhannesd. UFA 2,34
2. Elísabet Jónsdóttir UFA 2,28
3. Lilja Rögnvaldsdóttir UMSE 2,24
4. Björk Guðgeirsdóttir UFA 2,23
Hástökk m
1. Máríanna Hansen UMSE 1,50
2. Elísabet Jónsdóttir UFA 1,40
3. Rósa Björnsdóttir UFA 1,35
4. Sigurrós Jakobsdóttir UMSE 1,30
Kúluvarp m
1. Jóhanna E. Jóhannesd. UFA 7,04
2. Stella Árnadóttir UMSE 6,83
3. Valdís Jónsdóttir UMSE 6,80
4. Hafdís Jóhannesdóttir UMSE 6,59
Piltar 13-14 ára:
40 m hlaup sek.
1. Sigurpáll Sveinsson UFA 6,0
2. Sigurbjörn Hreiðarsson UMSE 6,0
3. Stefán Gunnlaugsson UMSE 6,1
4. Henry Indriðason UMSE 6,1
800 m hlaup mín.
1. Sigurpáll Sveinsson UFA 2.55,0
Langstökk m
1. Stefán Gunnlaugsson UMSE 2,54
2. Hörður Másson UMSE 2,45
3. Sigurpáll Sveinsson UFA 2.39
4. Alfreð Markússon UFA 2,32
Hástökk m
1. Sigurpáll Sveinsson UFA 1,50
2. Bjarmi Skarphéðinss. UMSE 1,35
3. Eiríkur Magnússon UFA 1,30
4. Alfreð Markússon UFA 1,30
Kúluvarp m
1. Sigurpáll Sveinsson UFA 8,06
2. Finnbogi Reynisson UMSE 8,05
3. Eiríkur Magnússon UFA 7,57
Æfingamót UFA
Laugardaginn 18. febrúar hélt UFA
æfingamót í frjálsum íþróttum í
íþróttahöllinni á Akureyri: Kepp-
endur voru allir 10 ára og yngri.
Úrslit urðu sem hér segir:
Tátur 10 ára og yngri:
40 m hlaup sek.
1. Svala Björnsdóttir UFA 6,8
2. Assa van de Ven UFA 7,3
3. Kristín Ingimarsdóttir UFA 8,0
600 m hlaup mín.
1. Svala Björnsdóttir UFA 2.17,3
2. Kristín Ingimarsdóttir UFA 2.32,7
3. Assa van de Ven UFA 2.43,8
Langstökk m
1. Svala Björnsdóttir UFA 1,92
2. Assa van de Ven UFA 1,69
3. Kristín Ingimarsdóttir UFA 1,60
Hnokkar 10 ára og yngri:
40 m hlaup sek.
1.-2. Hilmar Kristjánsson UFA 7,0
1.-2. Anton Þórarinsson UFA 7,0
3. Vagn Kristjánsson UFA 7,1
600 m hlaup mín.
1. Bjöm Finnbogason UFA 2.17,1
2. Anton Þórarinsson UFA 2.17,1
3. Hilmar Stefánsson UFA 2.20,1
Langstökk m
1. Andri Magnússon UFA 1,94
2. Anton Þórarinsson UFA 1,88
3. Hilmar Kristjánsson UFA 1,66
Kristján Rafnsson og félagar í Þórsliðinu urðu að sætta sig við tap í síðasta heima
leiknum.
Flugleiðadeildin í körfu:
Þór tapaði fyrir UMFN
- í síðasta heimaleik vetrarins
Þórsarar urðu að sætta sig við tap
gegn Njarðvík 108:81 í sínum síð-
asta heimaleik í Flugleiðadeiidinni
í körfuknattleik í vetur. Þór byrj-
aði leikinn mjög illa og tókst
norðanmönnum aldrei að ógna
suðurnesjapiltunum að neinu
ráði.
Njarðvíkingar byrjuðu leikinn af
miklum krafti og skoruðu fimm
fyrstu körfurnar í leiknum og það
voru liðnar fimm mínútur af leiknum
þegar Þórsarar komust loksins á
blað.
Segja má að úrslit leiksins hafi ráð-
ist í fyrri hluta hálfleiksins. Tölurnar
27:5 og 39:9 sáust á skjánum og eftir
það var það nánast formsatriði að
ljúka leiknum.
Staðan í leikhléi var 48:29 og í
byrjun síðari hálfleiks kom góður
leikkafli hjá þeim rauðklæddu. Þeim
tókst að minnka muninn niður í 10
stig 68:58 en þá sögðu Njarðvíkingar
stopp og juku muninn aftur í rúm 20
stig og leiknum lauk því með örugg-
um sigri þeirra 108:81, eins og áður
sagði.
Njarðvíkingar eru með mjög
sterkt lið, þrátt fyrir að þessi leikur
hafi ekki verið neitt sérstakur hjá
þeim. Allir leikmenn liðsins fengu að
spreyta sig og dreifðist því skorunin
mikið hjá þeim. í þessum leik bar
mest á Teiti Örlygssyni, sem er prím-
usmótorinn í öllu spili hjá liðinu.
Einnig var Friðrik Ragnarsson drjúg-
ur og hitti hann mjög vel í leiknum.
Ekki er ólíklegt að spennufall hafi
orðið hjá Þórsliðinu eftir hinn mikil-
væga sigur á ÍS á fimmtudaginn.
Leikmenn liðsins voru lengi að kom-
ast í gang og eftir mjög slaka byrjun
áttu heimamenn aldrei möguleika að
vinna upp muninn. í þessum leik bar
mest á Guðmundi Björnssyni og
Eiríki Sigurðssyni, en í heild átti lið-
ið frekar slakan leik.
Stig Þórs: Eiríkur Sigurösson 19, Guð-
mundur Björnsson 19, Kristján Rafnsson 17,
Bjöm Sveinsson 10, Jóhann Sigurðsson 10,
Einar Karlsson 2, Aðalsteinn Þorsteinsson 2
og Þórður Kárason 2.
Stig UMFN: Friðrik Ragnarsson 24, Teitur
Örlygsson 15, Jóhann Sigurðsson 13, Kristinn
Einarsson 12, Helgi Rafnsson 11, Hreiðar
Hreiðarsson 9, Friðrik Rúnarsson 9,
Alexander Ragnarsson 6, Georg Birgisson 5
og fsak Tómasson 4.