Dagur - 07.03.1989, Blaðsíða 9

Dagur - 07.03.1989, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 7. mars 1989 - DAGUR - 9 fslandsmótið í vélsleðaakstri: Jón Ingi íslandsmeistarí í Mývatnssveit um helgina Vélsleðamenn héldu íslands- mót sitt í MÝvatnssveit um síð- ustu helgi. A föstudag byrjaði ballið með spyrnukeppni (kvartmfla) á Mývatni og síðan var keppt í fjallaralli. Sú braut var um 55 km löng. Veður á föstudaginn var hið ákjósan- legasta en á laugardag, þegar keppt var í alhliða braut, voru veðurguðir í miður góðu skapi og gekk á með hríðaréljum og snörpum byljum. Vélsleða- menn létu þetta ekkert á sig fá og luku keppni af miklu harð- fylgi. Jón Ingi Sveinsson frá Ytra-Kálfsskinni á Arskógs- Þórsstelpurnar í 1. deildinni í handknattleik riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum fyrir sunnan um helgina. Þær töpuðu fyrir Fram á föstudags- kvöldið 20:11 og fyrir Val á laugardaginn 30:10. Þór spilaði fyrst við Framstelp- urnar á föstudagskvöldið. Fyrri hálfleikurinn var frekar slakur og virtust norðanstúlkurnar ekki vera búnar að jafna sig á flug- ferðinni. Framliðið sem nú virð- ist vera komið á skrið aftur, eftir freka slaka leiki að undanförnu, keyrði upp hraðann í byrjun og skildi hreinlega Þórsliðið eftir. Staðan í leikhléi var því 12:4 fyrir Fram. Síðari hálfleikurinn var mun betri hjá þeim rauðklæddu og veittu þær íslandsmeisturunum ágætis keppni. En getumunurinn á liðunum var of mikill og urðu Þórsstelpurnar að sætta sig við níu marka tap, 20:11. Mörk Þórs: Inga Huld Pálsdóttir 4, María Ingimundardóttir 3, Valdís Hall- grímsdóttir 3 og Harpa Örvarsdóttir 1. Mjög slakt á móti Val Leikurinn gegn Val daginn eftir var mjög slakur og vilja Þórs- stelpurnar sjálfsagt gleyma hon- um sem fyrst. Uthaldið virðist ekki vera nógu gott hjá liðinu og þegar það bættist ofan á að þrjár af lykilmönnunum, Inga Huld, Valdís og Inga Vala, voru með snert af flensu var ekki von á góðu. Það varð líka raunin að Vals- liðið hreinlega valtaði yfir gest- ina. Staðan í leihléi var 15:3 og lokatölur urðu 30:10. Og ekki orð um það meir. strönd náði bestum saman- lögðum tíma í alhliða braut og hlaut að launum nafnbótina Islandsmeistari í vélsleðaakstri árið 1989. Keppt var í fimrn flokkum í kvartmílunni, en flokkunin tók mið af vélarafli. í opnum flokki, þar sem leyfilegt var að aka breyttum sleðum, sigraði Bene- dikt Valtýsson. Hann flaug yfir snjóbreiðurnar á Pólaris Indy 650. í öðru sæti á samskonar sleða var Eyþór Tómasson. í flokki AA (vélarstærstu sleðarn- ir) var efstur á blaði Eyþór Tóm- asson á Pólaris Indy 650. í öðru sæti varð Bergsveinn Jónsson á Mörk Pórs: Inga Huld Pálsdóttir 5, Valdís Hallgrímsdóttir 2/1, María Ingim- undardóttir 2 og Harpa Örvarsdóttir 1. Mörk Vals: Katrín Fredriksen 9, Erna Lúðvíksdóttir 7/2, Ásta Stefánsdóttir 3, Ásta Sveinsdóttir 2, Kristín Arnþórsdótt- ir 2, Kristín Þorbjörndóttir 2, Kristín Pétursdóttir 1, Steinunn Einarsdóttir 1. Arctic Cat Wildcat og í þriðja sæti Finnur Aðalbjörnsson sömu- leiðis á Arctic Cat Wildcat. Flokk A (næstkraftmestu sleð- arnir) sigraði Sigurður Kristjáns- son á Pólaris Indy 600, annar varð Sigurður Valgarðsson á Pól- aris Indy 600 og Þröstur Eyjólfs- son í þriðja sæti á Arctic Cat E1 Tiger 6000. I efsta sæti í flokki B varð Guðlaugur Haraldsson á Pólaris Indy 500, annar varð Heiðar Jónsson á Yamaha Exciter og þriðji Gunnar Gunnarson á Pól- aris Indy 500. í flokki kraftminnstu sleðanna (C) varð hlutskarpastur Marinó Sveinsson á Pólaris Indy Trail, annar \arð Gunnar Hákonarson á sleða af sömu gerð og þriðji Arnar Valsteinsson á Pólaris Indy 400. í fjallarallinu geystust vélsleða- mennirnir 50-55 km leið á Reykjahlíðarheiði og Gæsafjöll- um. Fjallarallið var bæði ein- staklingskeppni og keppni milli sveita eða umboða. í hverri sveit voru þrír menn og gilti saman- lagður tími tveggja. Ingvar Grétarsson reyndist bestur fjallarallara, annan besta tímann hlaut Egill Steingrímsson og Sigurjón Gylfason vermdi þriðja sætið. Sveit Pólaris náði bestum tíma, önnur varð sveit Arctic Cat, Skidoo í þriðja og Yamaha í fjórða sæti. Á laugardaginn fór fram hin eiginlega keppni vélsleðamanna um íslandsmeistaratitilinn. Keppt var í alhliða braut og í flokki 5 var Arnar Valsteinsson hlutskarpastur, annar Gunnar Hákonarson og þriðji Ófeigur Fanndal. í alhliða braut flokki 6 (næst- stærstu sleðarnir) sigraði Jón Ingi Sveinsson, annar varð Tryggvi Aðalbjörnsson og Axel Stefáns- son varð þriðji. Loks skal getið úrslita í flokki 7 (stærstu sleðarn- ir). Ingvar Grétarsson varð þar efstur, annar Jóhannes Reykjalín og Vilhelm Vilhelmsson þriðji. óþh Inga Huld og stöllur hcnnar í Þórsliðinu fengu óblíðar viðtökur fyrir sunnan. Mynd: TLV íslandsmótið í vélsleðaakstri var haldið í Mývatnssveit um helgina. Handbolti/1. deild kvenna: Tvö Þórstöp - gegn Fram og Val Bankastarf Við leitum að starfsmanni til starfa hjá sparisjóði við alhliða bankastörf. Verslunarmenntun og eða reynsla við sambærileg störf æskileg. Vinnutíminn er frá kl. 11 til 17 (81%). Nánari upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni. FELL hf. Tryggvabraut 22, sími 25455. m Frá Bændaskólanum á Hvanneyri Námskeið á næstunni Byrjendanámskeið í kanínurækt 9.-11. mars. Námskeiðið skipulagt af Bændaskólanum á Hvann- eyri og Búnaðarfélagi íslands. Námskeið um verkun votheys í rúlluböggum 13.-15. mars. Námskeiðið er ætlað bændum sem nýlega hafa tek- ið þessa heyverkunaraðferð upp eða hyggjast gera það á næstunni. Námskeiðið er skipulagt af Bútæknideild RALA og Bændaskólanum á Hvanneyri. Námskeið í Sauðfjárrækt 16.-18. mars. Námskeiðið verður haldið í Skálholti og er skipulagt af Búnaðarsambandi Suðurlands, Bændaskólanum á Hvanneyri og Rannsóknarstofnun landbúnaðarins. Framleiðnisjóður landbúnaðarins mun veita þátttak- endum, starfsþjálfunarstyrk vegna þátttöku á nám- skeiðinu.- Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðin fer fram á skrifstofu bændaskólans í síma 93-70000. Skólastjóri. Tölvupappir Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Dagsprent hf. Strandgötu31-S24222 Akureyri

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.