Dagur - 07.03.1989, Qupperneq 16
r
\
Stórbætt þjónusta
Getum smíðað alla vega púströr
Eigum til beygjur 45° og 90°
Stóraukið úrval af kútum, pakkningum
og festingum í flesta bíla
12 3 4
ísetning á staðnum
Við Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700
Norðurland vestra:
Enn og aftur minnti
vetur konungur á sig
Vélsleðinn umdeildi er nú kominn í hús á Akureyri og Eyþór Tómasson lauk í gær við að setja hann saman á ný
eftir „rannsóknina“ í Mývatnssveit um helgina. Mynd: tlv
Efasemdir um Polaris snjósleða Eyþórs Tómassonar
eftir vélsleðakeppni í Mývatnssveit:
„Það er voðalega
vond lykt af þessu“
- segir Gunnar Brynjólfsson,
hjá Bifreiðum og landbúnaðarvélum
Vetur konungur minnti enn og
af'tur rækilega á sig um helgina
og í gær. A Norðurlandi vestra
„Ég held ég gangi heim“:
Ökumenn sleppa
bjórdrykkju
„Ég held ég gangi heim, held
ég gangi heim,“ syngja menn
nú óspart á Akureyri sem ann-
ars staðar og þeir sem hafa
neytt áfengis virðast fara eftir
boðskapnum í laginu. I gær
hafði lögreglan á Akureyri
aðeins stöðvað einn ökumann
grunaðan um meinta ölvun við
akstur frá 1. mars, eða frá því
byrjað var að selja áfengan
bjór hér á landi.
Þetta verða að teljast mjög
ánægjuleg tíðindi, ekki síst með
tilliti til þess að lögreglan á Akur-
eyri hefur haft strangt eftirlit með
ökumönnum frá því á B-daginn
og hefði af þeim sökum verið
hægt að búast við því að ölvun
við akstur yrði jafnvel meira
áberandi en áöur.
„Við höfum stoppað geysileg-
an fjölda ökumanna og þeir hafa
verið edrú. Svo virðist sem menn
hafi látið bílinn í friði eftir að
hafa drukkið bjór, sem bctur
fer,“ sagði Ólafur Ásgeirsson
aðstoðaryfirlögregluþ jónn.
Hann sagði að lögreglan á
Akureyri myndi þó ekki slaka á
klónni þrátt fyrir þessa góðu
niðurstöðu hcldur yrði áfram
fylgst grannt með ökumönnum
og bílar stöðvaðir í ríkum mæli,
jafnt virka daga sem um helgar.
Ferð Boeing 727 þotu Flug-
leiða til Akureyrar í fyrrakvöld
varð öllu lengri en áætlað var í
upphafi. Þotunni var skotið
inn í áætlun enda fjöldamargir
sem komast þurftu frá Akur-
eyri til Reykjavíkur. Vélin átti
að fara til Reykjavíkur kl.
19.30 á sunnudagskvöld en
komst ekki í loftið fyrr en síð-
degis í gær vegna mikillar
snjókomu á Akureyri í fyrra-
kvöld. Langan tíma tók í gær
að hreinsa snjó af vélinni og
þurfti að kalla á körfubfl frá
Rafveitu Akureyrar til að
leggja flugvallarstarfsmönnum
lið.
Að sögn Gunnars Odds Sig-
urðssonar, umdæmisstjóra Flug-
leiða á Akureyrarflugvelli, er
afar sjaldgæft að stórar þotur lok-
ist inni á Akureyrarflugvelli
v£gna snjókomu. Vegna þess hve
lítið frost var í fyrrakvöld settist
mikill snjór á þotuna og því var
mikið verk að afísa hana áður en
húri gat farið í loftið. Þessu til
viðbótar varð bilun í startbúnaði
kyngdi víða niður miklum snjó
og í gær varð að leggja niður
kennslu í skólum víða í kjör-
dæminu, eins og í Fljótum,
Hofsósi, Laugarbakka og
Hvammstanga. Veðrið var sér-
lega slæmt aðfaranótt mánu-
dags og því fylgdi mikil snjó-
koma.
I austanverðum Skagafirði, í
Fljótum og Hofsósi, var einnig
slæmt veður á laugardag og frétti
blaðið af einum bíl sem var 12
tíma á leiðinni á milli Siglufjarð-
ar og Hofsóss. Þessi leið er jafn-
an farin á þrem korterum til
klukkutíma. í Fljótum muna
menn vart meiri snjó, þar er eng-
um fært um sveitina nema á skíð-
um eða vélsleðum. Að vísu var
leiðin á milli Ketiláss og Sauðár-
króks rudd í gær, en fljótt tók að
skafa í förin.
„Þetta er það mesta sem ég hef
séð af snjó hér, og hef þó búið
hér í rúm 30 ár,“ sagði Sigurður
Sigurðsson lögregluþjónn á
Hvammstanga í samtali við Dag í
gær. Á Hvammstanga er allt á
kafi í snjó, nánast engar götur
færar og það var ekki fyrr en
seinni partinn í gær sem veðrið
lagaðist eitthvað. Svipaða sögu er
að segja frá Skagaströnd, þar er
mikill snjór og flestar götur ill-
færar, ef ekki ófærar með öllu.
Nýbúiö var a*ð ryðja helstu götur
í bænum eftir síðasta áhlaup, er
allt fylltist aftur um helgina.
Það er hins vegar annað mál
með Sauðárkrók og Blönduós.
Þar var veðráttan tiltölulega
skapleg, þótt ekki sé hægt að
hrósa henni sérstaklega. Góð
færð er um götur bæjanna og
skólahald fór fram í gær með
eðlilegum hætti. -bjb
vélarinnar í fyrrakvöld en flug-
virkjar komu frá Reykjavík í
gærmorgun til viðgerðar. Afísun
og viðgerð var lokið kl. 14 í gær
og þá gat vélin loks farið suður á
ný með þá farþega sem ekki höfðu
komist með Fokkervélum fyrr
um daginn. Engin röskun varð á
millilandaflugi vegna þessa,
Boeingþotan átti að fara til
Kaupmannahafnar í gærmorgun
en önnur vél var tiltæk í Keflavík
sem fór utan.
„Við höfum raunar aldrei feng-
ið upp svona mál. Þotur hafa orð-
ið að bíða hér yfir nótt vegna
veðurs í Reykjavík og Keflavík
en ekki vegna veðurs hér. Og
veðrið var eins óhagstætt og það
gat verið. Auðvitað hefði í þessu
tilfelli verið gott að hafa hér góð-
an afísunarbúnað fyrir flugvélar,
búnað sem kostar um 3 milljónir.
En aftur á móti gerist það ekki
nema 1-2 á vetri að slíkan búnað
þurfi að nota,“ segir Gunnar
Oddur.
Raunar var þotan ekki eina
vélin sem tepptist á Akureyri
vegna veðurs því flugbrautin
Nokkuö sérstök uppákoma
varð að aflokinni keppni í AA-
flokki á íslandsmeistaramótinu
í vélsleðaakstri í Mývatnssveit
sl. föstudag. Bestum tíma í
kvartmflunni í þessum flokki
(óbreyttir kraftmestu sleðarn-
ir) náði Eyþór Tómasson frá
Akureyri og ók hann sleða af
Það fór betur en á horfðist í
Auðbjargarstaðabrekku á
Tjörnesi um miðjan dag í gær
þegar snjóflóð lenti á veghefli
og síðar á flokki vélsleða-
manna. Engin slys urðu á
mönnum og engar skemmdir á
heflinum og sleðunum.
Fyrra snjóflóðið lenti á aftari
hluta veghefils sem var að ryðja
snjó af veginum fyrir Tjörnes.
Hefillinn kastaðist lítillega til en
stjórnandi hans náði að halda
gerðinni Polaris Indy 650.
FuIItrúum umboðs Arctic Cat
sleðanna, Bifreiða og landbún-
aðarvéla, fannst kraftur í sleða
Eyþórs furðumikill og töldu að
honum hefði verið breytt í því
skyni að auka kraftinn.
Eftir að hafa rætt málin fram
og aftur hurfu þeir Arctic Cat-
honum á veginum. Seinna flóðið
lenti á 10 vélsleðamönnum sem
voru að koma frá íslandsmeist-
aramóti vélsleðamanna í Mý-
vatnssveit um helgina.
Einn af mönnunum, Agnar
Jónsson, sagði Degi í gær að þeir
hefðu ekki verið í hættu en hins
vegar hafi þrír sleðanna farið í
kaf. Eftir nokkra stund tókst að
ná sleðunum upp úr flóðinu og
héldu þeir áfram för á heimaslóð-
ir, til Þórshafnar og Þistilfjarðar,
eins og ekkert hafi í skorist. óþh
menn frá því að kæra keppnina
en sleðinn var engu að síður tek-
inn í sundur og sáu mótshaldarar
um það. Að sögn Eyþórs Tómas-
sonar, eiganda sleðans, kom ekk-
ert í ljós við þessa athugun.
Eyþór segir að Árctic Cat-menn
hafi farið fram á að vera við-
staddir þegar sleðinn var rifinn í
sundur strax eftir keppnina en
þeir hafi síðan hafnað því og ekki
kært sig um að fylgjast með.
„Þetta er virkilega leiðinlegt allt
saman og slíkt hefur aldrei komið
fyrir áður,“ sagði Eyþór.
Gunnar Brynjólfsson, hjá Bif-
reiðum og landbúnaðarvélum,
segir það rangt að umrætt atvik
hafi verið kært. „Ef við hefðum
kært hefðum við að sjálfsögðu
verið viðstaddir þegar sleðinn var
tekinn í sundur,“ segir Gunnar.
„Það er voðalega vond lykt af
þessu öllu saman,“ bætti hann
við. Gunnar segir að þeir Arctic
Cat-menn hafi orðað það við
mótshaldara að eitthvað væri
gruggugt við sleða Eyþórs og hafi
þeir tekið undir þá skoðun. Hann
segir að eftir smá viðræður hafi
verið tekin sú ákvörðun að kæra
ekki málið en mótshaldarar hafi
áskilið sér rétt til að taka sleðann
í sundur, sem og var gert.
Aðspurður um ástæður efa-
semda Arctic Cat-mann um sleða
Eyþórs sagði Gunnar að hann
hafi greinilega gert ýmsa hluti
sem ekki eiga að vera mögulegir
„standardsleða". „Einn af okkar
mönnum fékk að prófa sleðann
eftir keppnina og í ljós kom að
hann gat ýmsa hluti sem hann á
ekki að geta. Til dæmis vann
hann á öðrum hraðasviðum en
eðlilegt er,“ sagði Gunnar Bryn-
jólfsson.
Sjá nánar um vélsleðakeppn-
ina á íþróttasíðu. óþh
Skyndileg snjókoma á Akureyri í fyrrakvöld setti flugið hressilega úr skorðum:
Boeingþota tafðist hátt í sólarhring
- afísun vélarinnar tók íjóra klukkutíma í gær
varð ófær áður en síðasta áætlun- I vél fór til Reykjavíkur í gær-
arvél Flugleiða komst í loftið. Sú | morgun. JÓH
Snjóílóð á Tjörnesi í gær:
Féll á veghefíl og
tíu snjósleðamenn
- engin slys urðu á mönnum og
engar skemmdir á heílinum og sleðunum