Dagur - 31.03.1989, Blaðsíða 9
Föstudagur 31. mars 1989 - DAGUR - 9
linn á Húsavík:
únsmessunótt
Ríkarður Þórhallsson:
Skrýtið að breyta sér
í miðaldatöffara“
Ríkarður Þórhallsson, nem-
andi í níunda bekk, er formað-
ur nýlega stofnaðs Leiklistar-
klúbbs Framhaldsskólans, sem
heitir Píramus og Þispa. Rík-
arður fer með hlutverk Lisand-
ers í sýningunni, af miklum
ágætum. Hann teiknaði merki
leikklúbbsins, sem prýðir m.a.
forsíðu leikskrár, og einnig
mynd á auglýsingaveggspjald.
rum, leikstjóra og starfsfólki við sýninguna var
ð með blómum og lófataki í sýningarlok.
„Ég er alveg á kafi í myndlist,
vonast til að komast í skóla á
næsta ári og læt þá myndlistina
ganga fyrir leiklistinnisagði
Rikki aðspurður um áhugamálin.
- Hefur þú leikið áður?
„Bara í skólaleikritum, en
þetta var fyrsta alvöruleikritið og
ótrúlega gaman að takast á við
það. Þetta var erfitt, en þessi
leikrit eru svo vel skrifuð og svo
fallegt mál sem notað er. Það var
svolítið erfitt að flytja textann en
hann er svo ljóðrænn að það er
ótrúlega auðvelt að læra hann.
Leikendur verða að vanda sig við
textann, því ef við færum að
flytja hann hratt mætti búast við
að áhorfendur fengju höfuð-
verk.“
- Höfðar Shakespeare til
krakkanna?
„Shakespeare höfðar til allra.
Textinn í verkinu er kannski
pínulítið háfleygur, en hann er
mjög fallegur, það þarf svolítið
að pæla í honum til að skilja hann
og þetta fær fólk til að hugsa
kannski aðeins. Þetta hefur verið
skemmtilegur tími þó við höfum
fórnað öllum okkar tómstund-
um.“
- Er það ekki þroskandi fyrir
fólk á þessum aldri að fá að taka
þátt í að setja upp svona sýn-
ingu?
„Jú, í sjálfu sér, það er mikil
lífsreynsla að fá að leika Shake-
speare. Þegar ég var yngri forð-
aðist ég Shakespeare en síðan las
ég ástarharmleikinn Rómeó og
Júlíu á ensku og eftir að ég fór að
leika í þessu fór ég að lesa Shake-
speare alveg á fullu, á ensku sem
ég les næstum því eins og móður-
rnálið."
- Nú eruð þið búin að æfa
verkið í tvo mánuði, undir stjórn
og með virkri þátttöku kennara,
hvernig finnst ykkur að vinna
svona með kennurunum í tóm-
stundum?
„Það er afskaplega gaman að
vinna svona með kennurum utan
skólatíma, þá hættum við í raun-
inni að líta á þá sem kennara
heldur bara eins og annað
fólk sem er ekki fyrir framan
mann með fangið fullt af skóla-
bókum og gefandi einkunnir. Ein-
ar er búinn að vera alveg stór-
kostlegur og hann hefur fórnað
miklu.“
- Hvernig finnast ykkur mót-
tökurnar við verkinu?
„Þær eru góðar, ég var mjög
ánægður með frumsýninguna. Ég
vil hvetja fólk til að sjá sýning-
una, þetta er ótrúlega skemmti-
legt verk. Það var mjög gaman að
leika þetta fyrir áhorfendur, fáir
höfðu séð æfingar hjá okkur og
allt í einu þegar við komum á
Lisander og Hermína, Ríkarður Þórhallsson og Þorbjörg Björnsdóttir i hlut-
vcrkuni sínuni.
sviðið voru milljón augu fyrir
framan okkur, fyrst fraus ég cn
síðan var þetta allt í lagi. Það er
miklu skemmtilegra að leika
fyrir fullu húsi áhorfenda.
Æfingatíminn hefur verið
mjög erfiður. Það er skrýtið að
breyta sér í miðaldatöffara svona
allt í einu en það sem var erfiðast
var að eiga að vera svona ástfang-
inn. Við slepptum handritinu
fljótlega, því það var ekki mikið
mál að læra textann, en við vor-
um feimin fyrst og þegar leik-
stjórinn var að stilla okkur upp til
að faðma stelpurnar hugsaöi ég:
„Úff, að þurfa að faðma þetta
fyrir framan milljón manns." Síð-
an var þetta ekkert mál og nú
gerum við þetta eins og viö höf-
um ekki annað gert um ævina.“
IM
Ásta Eir Eymundsdóttir:
„Þroskandi og lærdómsríkt“
Ásta Eir Eymundsdóttir fer
með hlutverk Helenu í verkinu
og hún er í stjórn leikiistar-
klúbbsins. Hún hefur einnig
hjálpað til hjá Leikfélagi
Húsavíkur, m.a. verið „skrá-
veifa“ en það mun þýða að
hún hefur selt leikskrár. Ásta
er í níunda bekk, því eru sam-
ræmdu prófin framundan og
hún var spurð hvort ekki hefði
verið mikið að gera síðan
æfingar hófust á Draumi á
Jónsmessunótt.
„Jú, en skólabækurnar hafa að
vísu setið svolítið á hakanum,
allavega hjá mér. Ég held samt
að það sé lítil hætta á öðru en að
við náum prófunum. Það er búið
að vera alveg meiriháttar gaman
þennan tíma. Félagsskapurinn er
skemmtilegur og gaman að setja
upp verkið og fylgjast með alveg
frá byrjun. Áður en byrjað var að
æfa vorum við í stjórn leik-
klúbbsins að sjá um að velja
verk, Einar og Þorgeir aðstoðuðu
og okkur fundust þrjú verk koma
til greina."
- Fannst ykkur ekki brekka að
ráðast í þetta?
„Mér fannst svolítið ótrúlegt
fyrst að við gætum komið þessu
upp en síðustu vikurnar var kom-
in svo mikil mynd á þetta að ég
fór að trúa að þetta gengi. Þetta
er búið að vera gaman þó ntikill
tími hafi farið í æfingar og ég hef
kynnst hinum krökkunum vel.“
- Hvernig gekk að læra text-
ann og var hann ekki strembinn?
„Mér gekk vel að læra hann,
það kom svona á æfingunum.
Það var erfiðara að leika, ég
hafði ekki leikið áður nema í
skólaleikriti í sjötta bekk, og á 1.
des. hátíðinni var stjórn leik-
klúbbsins með leikþátt.“
- Einu sinni þegar ég leit inn á
æfingu hjá ykkur, að kvöldlagi,
hafðir þú verið að keppa á blak-
móti og ekki komið heim til þín
síðan þú fórst í skólann klukkan
átta um morguninn.
„Ég var búin að spila fjóra
heila leiki í blaki og þeir voru
flestir þrjár hrinur. Það var æfing
um kvöldið og skóli um morgun-
inn og ég hringdi í mömmu og lét
hana færa mér mat á æfinguna
því ég hafði ekkert borðað síðan
átta um morguninn. Ég verð að
viðurkenna að ég var svolítið
þreytt eftir þennan dag og þegar
ég kom heim um kvöldið hljóp ég
inn í hcrbergi, lagðist upp í rúm
og sofnaði. En það var alveg tví-
mælalaust þess virði að vera með
í þessu."
- Heldurðu að það breyti þér
á einhvern hátt að hafa tek:st á
við þetta verkefni?
„Ég hef lært alveg heilmikið á
þessu, þetta er bæði þroskandi og
lærdómsríkt. Við lærum líka að
koma fram og erum ekki eins
feimin. Viðhorf mín til Shake-
speare hafa breyst, ef eitthvað
eftir hann kom í sjónvarpi dreif
ég mig sem lengst í burtu og
þorði ekkert að koma nálægt
tækinu, þetta hefur algjörlega
breyst og ég hef fengið mikið
meiri áhuga á bókmenntum og
leiklist. En núna veit ég eiginlega
ekki hvað við eigum að fara að
gera að sýningum loknum.“
- Værir þú til í að takast á við
slíkt verkefni aftur?
„Ég stefni á framhaldsnám og
býst við að verða hérna í skólan-
um og þá er ég til í að starfa
áfram með leikklúbbnum." IM
tríus, Óberon og Helena; Rúnar Sigmundsson, Heimir Týr Svavarsson og Ásta Eir
ndsdóttir í hlutverkum sínum.
dgja Steingrímsdóttir og Ríkarður Þórhallsson í
Myndir: IM
Bokki, álfur og Óberon álfakóngur;
Þorgeir Tryggvason og Heimir Týr
Svavarsson í hlutverkum sínum.