Dagur - 31.03.1989, Page 15
Föstudagur 31. mars 1989 — DAGUR - 15
íþróttir
Tryggja KA-menn sér íslandsmeistaratitilinn í blaki í leiknum gegn ÍS á
sunnudaginn? Mynd: tlv
Handknattleikur/1. deild:
Valsmenn koma
íþróttir helgarinnar:
Verður KA meistari?
- leika við ÍS í blakinu á sunnudag
Það verður mikið um að vera
fyrir handboltaáhugamenn um
helgina því bæði Þórsarar og
KA-menn leika um helgina.
Það er íslandsmeistarar Vals
sem mæta KA í Höllinni á
sunnudaginn. En augu íþrótta-
áhugamanna hljóta að beinast
að leik KA og ÍS í úrslita-
keppninni í blaki á sunnudag-
inn því ef KA vinnur þann leik
eru þeir búnir að tryggja sér
í slandsmeistarat itilinn.
Blakleikur KA og ÍS er í
íþróttahöllinni á sunnudaginn kl.
14.00 og er vert að hvetja alla
íþróttaáhugamenn til þess að
mæta og sjá til þess að íslands-
meistarabikarinn komi nú norður
um heiðar.
En það er líka mikið um að
vera hjá handknattleiksáhuga-
fólki. Nýkrýndir íslandsmeistarar
Vals koma norður og keppa við
KA í íþróttahöllinni á sunnu-
dagskvöldið kl. 20. Það er orðið
töluvert langt síðan spilaður var
1. deildarleikur á Akureyri og má
því búast við fjölmenni í Höllina
á sunnudaginn.
Þórsarar leika við ÍR í 2. deild-
inni í handknattleik á laugardag-
inn í Höllinni kl. 14.00. ÍR-ingar
hafa þegar tryggt sér sæti í 1.
deildinni að ári, ásamt HK, en
Þórsliðið er enn í nokkurri fall-
hættu. Stelpurnar í Þórsliðinu í
handknattleik leika tvo leiki um
helgina við FH. Sá fyrri er á
föstudagskvöldið kl. 20.00 og sá
síðari á laugardaginn, strax eftir
leik Þórs og ÍR.
Akureyrarmótið í svigi 12 ára
og yngri verður haldið í Hlíðar-
fjalli laugardaginn 1. apríl og
hefst það kl. 11.00
Unglingameistaramótið á skíð-
um verður haldið í Reykjavík um
helgina. Fríður hópur skíða-
manna frá Akureyri, Ólafsfirði,
Dalvík, Siglufirði og Húsavík
keppir á mótinu og má líklegt
telja að þeir krakkar standi sig
með sóma.
íslandsmótið í kraftlyftingum
fer frarn í Reykjavík um helgina.
Fimm Akureyringar taka þátt í
mótinu og má búast við að þeir
komi hlaðnir gullpeningum til
baka.
- nýbakaðir íslandsmeistarar mæta KA
KA-Iiðið í handbolta hefur í
ýmsu að snúast næstu dagana.
Islandsmeistarar Vals koma
norður á sunnudaginn og leika
við KA í íþróttahöllinni á
sunnudagskvöldið kl. 20.00.
KA fer síðan suður á mánu-
dagskvöldið og leikur við KR í
LaugardalshöIIinni og er sá
leikur liður í Bikarkeppni HSÍ.
Það er orðið töluvert langt síð-
an leikið var í 1. deildinni í hand-
knattleik á Akureyri. Það er því
ekki verra að það lið sem sækir
okkur heim eru nýbakaðir
íslandsmeistarar Vals. Óþarfi er
að telja upp þann mannskap sem
skipar það lið endar er þar lands-
liðsmaður í næstum hverri ein-
ustu stöðu. Það má því búast við
að norðanmenn fjölmenni í Höll-
ina og sjái handbolta eins og
hann gerist bestur á íslandi í dag.
Bikarleikur KR og KA hefur
verið settur á mánudagskvöldið.
Bikarkeppnin hefur nú verið
hálfgert leynimót og lítil reisn
yfir þeirri keppni. En leikurinn
fer nú samt fram og er það síðasti
möguleiki KA-manna að vinna
titil í vetur.
Næsti heimaleikur KA er gegn
Gróttu á miðvikudaginn. Gróttu-
liðið hefur komið mjög á óvart í
vetur og má því búast við góðum
leik. íslandsmótinu lýkur síðan
hjá KA á föstudaginn en þá
fljúga þeir suður og keppa við
Breiðablik í Kópavoginum.
Fallbaráttan í 1. deildinni er nú
mjög hörð. KA-liðið er ekki
alveg sloppið og verður það að ná
í a.m.k. eitt stig úr þessum þrem-
ur leikjum. Framarar standa
verst þessara liða; þeir eru með
níu stig og eiga tvo leiki eftir, við
FH og Stjörnuna. ÍBV á fjóra
leiki eftir; Stjörnuna og FH á úti-
velli og Breiðablik og KR úti í
Eyjum. Það bendir því allt til
þess að Framarar fylgi Breiðabliki
niður í 2. deild, en of snemmt er
spá um það því handboltinn er
óútreiknanlegur.
Sigurður Sveinsson og félagar hans ■ íslandsmeistaraliði Vals mæta KA á
sunnudagskvöldið.
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Þórsarinn hafði belur
Þórsarinn Kristján Torfason haföi betur í viöureign sinni við KA-
manninn Sigurpál Vilhjálmsson í getraunaleiknum fyrir páska.
Kristján hefur nú skorað á annan KA-mann, Harald Sigurösson
í Útvegsbankanum og þaö verður spennandi að sjá hvor hefur
betur að þessu sinni.
Það er 1. apríl á morgun en vonandi verður ekkert plat í
leikjunum á Englandi þrátt fyrir það. Augu manna beinast að
leik Norwich og Liverpool í Norwich því bæði lið eru í harðri bar-
áttu við Arsenal um meistaratitilinn og mega ekki við því að tapa
stigum.
Haraldur:
Kristjan:
Aston Villa-Luton 1
Charlton-Middlesbro 2
Derby-Coventry 1
Everton-Q.P.R. 1
Norwich-Liverpool x
Sheff. W.-Millwall 1
Southampton-Newcastle 2
Tottenham-West Ham 1
Wimbledon-Nott. Forest 2
Brighton-Man.City 2
Leeds-Bournemouth 1
Swindon-Blackburn 1
Aston Villa-Luton 1
Charlton-Middlesbro 1
Derby-Coventry x
Everton-Q.P.R. 1
Norwich-Liverpool x
Sheff. W.-Millwall x
Southampton-Newcastle 1
Tottenham-West Ham 1
Wimbledon-Nott. Forest x
Brighton-Man. City 2
Leeds-Bournemouth x
Swindon-Blackburn x
1X21X21X21X21X2 1X21X21X21X2
Karfa:
Erlendir leikmenn á ný
- forráðamenn félaganna telja það líklegt
Bæöi norðanliðin í körfunni,
Þór og Tindastóll, halda nú að
sér höndum í þjálfaramálum
fram yfir Ársþing KKI sem
haldið verður í Reykjavík
helgina 15.-16. apríl. Aðalmál-
ið á þeim fundi verður hvort
leyfa beri erlenda leikmenn að
nýju og einnig má búast við að
fjörugar umræður verði um
Staðan
1. deild karla
Valur 15 14-0- 1431:325 30
KR 16 12-1- 3 404:370 25
Stjarnan 15 8-3- 4 343:326 19
FH 15 8-1- 6 403:381 17
Grótta 16 7-3- 6 353:348 17
Víkingur 16 6-1- 9 359:379 13
KA 15 5-2- 8 352:366 12
ÍBV 14 3-3- 8 299:332 9
Fram 16 3-3-10 354:391 9
UBK 15 1-1-13 318:383 3
leikjafyrirkomulagið í Flug-
leiðadcildinni.
„Við tökum engar ákvarðanir í
þjálfaramálum fyrr en eftir Árs-
þingið,“ segir Kristín Jónsdóttir
formaður körfuknattleiksdeildar
Þórs. Hún segir að Þórsarar séu
óánægðir með núverandi leikja-
fyrirkomulag og vilji fá því
breytt. „Það er ekki hægt að
Fá Haraldur Leifsson og félagar i
Tindastólsliðinu bandarískan þjálf-
ara?
leggja á menn í fullri vinnu að
þurfa að spila e.t.v. þrjá leiki á
viku,“ segir formaðurinn.
Tindastólsmenn, eins og Þórs-
arar, ætla ekki að gera neitt í
þjálfarmálum fyrr en eftir Árs-
þingið. Pétur Ólafsson formaður
körfuknattleiksdeildar Tindastóls
er hins vegar ekki á sama máli í
sambandi við leikjafyrirkomulag-
ið. „Ég held að við höfum ekki
efni á því að vera hringla með
fyrirkomulagið enn eina ferðina.
Það er ekki fullkomið en hefur
fleiri kosti en galla,“ segir Pétur.
í sambandi við erlenda leik-
menn vildu formennirnir ekki tjá
sig endanlega. Pétur segir að þeir
Tindastólsmenn hafi verið á móti
því í fyrra en segir að nú sé lík-
legast meirihluti fyrir að leyfa þá
að nýju. Báðir formennirnir voru
sammála að ef félögunum yrði
leyft að fá erlenda leikmenn yrði
að setja strangar reglur þannig að
félögin væru ekki að yfirbjóða
leikmennina hjá hvort öðru.