Dagur - 31.03.1989, Side 16
Akureyri, föstudagur 31. mars 1989
Leikhústilboð
Gratineruð humarsúpa,
innbakaðar iambalundir með wiskysósu.
Kaffi og konfekt.
Verö 1.390,-
Þrotabú Sæbliks hf. á Kópaskeri:
Bjartsýnn á sölu rækju-
verksmiðju og verbúðar
- segir Örlygur
Örlygur Hnefíll Jónsson,
bústjóri í þrotabúi Sæbliks hf.,
segist bjartsýnn á að samning-
ar takist um sölu á eignum
þess, rækjuverksmiðju og
verbúð, á Kópaskeri. Hann
segir að komið hafí fram tvö
tilboð í eignirnar á Kópaskeri
en síðan hafí tilboðin verið
sameinuð í eitt.
Þeir sem standa að því tilboði í
eignir Sæbliks hf., sem Örlygur
segist vonast til að samningar
náist um, eru frá Kópaskeri og
nágrannasveitarfélögum. „Rætt
hefur verið við þessa aðila en
ekki hefur enn verið gengið frá
Hnefill Jónsson
lausum endum. Ég bind þó vonir
við að samningar náist,“ segir
Örlygur Hnefill.
Sk,ipið Árni á Bakka ÞH-380 er
í eigu þrotabús Sæbliks hf. og
segir Örlygur Hnefill að einnig
séu í gangi samningar um sölu
hans. Hann vill ekki upplýsa
hvaða aðilar hafi sýnt áhuga á
kaupum á skipinu en segir þó að
ekki sé um að ræða heimamenn.
„Það má segja að við höfum rætt
við einn aðila öðrum fremur í
sambandi við kaup á Árna á
Bakka. Það er þó rétt að taka
fram að enn er opið fyrir menn
að kaupa skipið," segir Örlygur
Hnefill Jónsson. óþh
Fannfergið í Fljótum:
Ekki sést annar
eins snjór í 23 ár
- bændur þurft að hella niður mjólk
vegna ófærðar
Steingrímur Björnsson hjá Járn- og glervörudeild KEA brást glaður við þeg-
ar hann fékk nýia sendingu af skóflum upp í hendurnar, enda eftirspurnin
mikil. Mynd: TLV
1
|l w * ^ ííifv«
111 f|
II;'®:
Hótel Blönduós:
Búið að
ráða nýjan
hótelstjóra
- tekur til starfa
innan skamms
Sl. miðvikudag gekk stjórn
Hótels Blönduóss frá ráðningu
nýs hótelstjóra. Hann heitir
Guðmundur Egill Ragnarsson,
26 ára matreiðslumeistari úr
Reykjavík. Hann hefur starfað
hjá veitingahúsinu Veitinga-
manninum í Reykjavík, en
kemur til starfa hjá Hótel
Blönduós fyrri part aprílmán-
aðar.
Auk þess að taka við hótelstjórn
mun Guðmundur einnig hafa
yfirstjórn með eldhúsi hótelsins.
Kristófer Kristjánsson stjórnar-
formaður Hótels Blönduóss sagði
í samtali við Dag að miklar vonir
væru bundnar við Guðmund og
hann rnuni koma með ferskar
hugmyndir inn í reksturinn. Það
kom fram hjá Kristófer að
bókanir fyrir næsta sumar væru
meiri en undanfarin ár og sagði
Kristófer að það væri jákvæð vís-
bending. -bjb
Vinsælar vörur í snjóa- og hlákutíð:
Skóflur og stígvél renna
út eins og heitar hmunur
„Nei, nei, við færum okkur
bara ofar, eftir því sem snjór-
inn hækkar,“ sagði Símon
Gestsson, útibússtjóri KS í
Fljótum, í samtali við Dag,
þegar hann var spurður hvort
Fljótamenn væru á kafí í snjó.
Já, þeir bera sig vel í Fljótum
þrátt fyrir gífurlegt fannfergi.
Kunnugir menn segja að önnur
eins snjóþyngsli hafí ekki verið
í Fljótum síðan snjóaveturinn
1966 og tók Símon undir það.
Ekki hefur tekist að moka til
nokkurra bæja síðustu daga og
Bjórkaupendur og aðrir áfeng-
iskaupendur í verslun ÁTVR á
Akureyri hafa vafalaust margir
rekist á kött sem hreiðrað hef-
ur um sig innan um veigarnar í
versluninni. Reyndar hefur
kötturinn verið „fastagestur“ í
ríkinu á Akureyri um nokkurt
skeið og virðist kunna hið
besta við sig. Nú kunna ein-
hverjir að velta því fyrir sér,
hvað sé svona aðlaðandi fyrir
hefur það m.a. haft í för með sér
að sumir bændur hafa þurft að
hella niður mjólk, þar sem
mjólkurbíllinn hefur ekki komist
vegna ófærðar. Á einum bænum
hefur t.d. þurft að hella niður um
1800 lítrum af mjólk, en þangað
hefur bíllinn ekki komist í 14
daga.
Um miðjan daginn í gær var
snjórinn farinn að síga all mikið,
enda hitastigið í kringum 10
gráður. Unnið var á fullu við
mokstur til þeirra bæja sem lengi
hafa verið samgöngulausir. -bjb
kisu, en hún er ekki að sækjast
eftir áfenginu, svo mikið er
víst.
„Það er svo ósköp gott að
koma hingað,“ sagði kisa í sam-
tali við Dag, „þeir eru svo ágætir
strákarnir sem vinna hérna og
það er hlýtt hjá þeim.“ Bjórkom-
an olli því að nokkuð gestkvæm-
ara varð hjá kisu og aðspurð um
hvaða skoðun hún hefði á
bjórnum, sagðist hún vera frekar
„Jú, því er ekki að neita að
stígvélrn renna út eins og heit-
ar lummur. Mér hefur heyrst á
fólki að það sé að undirbúa sig
fyrir hlákuna. Það vill vera
viðbúið þegar hlákan skellur á
fyrir alvöru,“ sagði afgreiðslu-
andvtg honum. „Ég kann hins
vegar ágætlega við mig í þessum
bjórkassa sem mér var gefinn til
að liggja í og svo reyni ég að gefa
viðskiptavinum leiðbeinandi
augnaráð þegar þeir teygja sig
yfir mig til þess að ná sér í bjór.
Fjölmargir árekstrar urðu á
Akureyri í gær, en snjór á göt-
um var víða sundurgrafínn
vegna hlákunnar. Síðdegis í
gær hafði lögreglan á Akureyri
haft spurnir af átta árekstrum í
bænum og þykir það með
mesta móti.
Um kl. 8 í gærmorgun skullu
þrír bílar saman á Hlíðarbraut og
skemmdust þeir mikið, svo og
stúlka í skódeild Vöruhúss
KEA á Akureyri í gær, þegar
Dagur spurðist fyrir um sölu á
þeirri algengu „hlákuvöru“,
stígvélum.
Það hefur einnig verið líflegt í
stígvélasölunni í Eyfjörð-heild-
Það er nefnilega nokkuð víst að
bjórinn getur verið hættulegur,
t.d. á ég frænku í Danmörku sem
lét freistast af þessum drykk og
ég segi það satt, hún hefði frekar
átt að halda sig við rjómabland-
ið.“ VG
ljósastaur sem einn bíllinn lenti
á. Einn maður hlaut minniháttar
meiðsl í þessum harða árekstri.
Þá urðu sjö aðrir árekstrar á
Akureyri í gær en þeir voru yfir-
leitt smávægilegir og má telja að
hin erfiða færð hafi átt sök á þeim
í flestum tilvikum. Götur sem
ekki voru heflaðar niður í malbik
voru varhugaverðar og víða mátti
sjá bíla dansandi og spólandi í
djúpum hjólförum. SS
verslun að undanförnu. Af-
greiðslumaður þar sagði í gær að
það væri reyndar árviss viðburð-
ur að stígvélasalan tæki kipp í
byrjun vorhláku. Hjá Skóverelun
M H Lyngdal á Akureyri fengust
hins vegar þær upplýsingar að
sala á stígvélum hafi ekki verið
meiri á síðustu dögum en jafnan
áður. „Það er alltaf jöfn sala á
stígvélum og á henni hefur ekki
osið áberandi aukning síðustu
daga,“ sagði afgreiðslumaður í M
H Lyngdal.
En það eru ekki bara stígvél
sem renna út í snjóa- og hláku-
tíð. Skóflur eru ofarlega á vöru-
vinsældarlistanum þessa dagana.
Hjá Karli Tómassyni, hjá Járn-
og glervörudeild KEA, fengust
þær upplýsingar að skóflur af öll-
um stærðum og gerðum hafi ver-
ið rifnar út að undanförnu og
reyndar allt frá því að vetur kon-
ungur byrjaði fyrir alvöru að
hrella Norðlendinga í febrúar sl.
Ný skóflusending kom í gær til
KEA og bjóst Karl við að hún
myndi seljast strax upp.
Sami atgangurinn hefur verið í
skóflusölunni hjá Skapta hf. á
Akureyri. Þangað hafa skóflu-
hungraðir viðskiptavinir streymt
og fest kaup á þessu mikla þarfa-
þingi, enda hefur ekki af veitt í
fannfergi undanfarinna vikna.
Að sögn starfsmanns Skapta hf.
eru þess dæmi að sendingar hafi
selst upp á örskömmum tíma. Þá
segir hann að fjöldi pantana um
skóflur hafi borist frá einstakling-
um í nágrannabyggðum. óþh
Hún hefur það ágætt í „ríkinu“ á Akureyri þessi kisa sem nú er orðin fasta-
gestur í versluninni. Mynd: tlv
Frænka hefði átt að halda sig við qómablandið
Akureyri:
Átta árekstrar
- 3 bflar skullu saman á Hlíðarbraut