Dagur - 14.04.1989, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 14. apríl 1989
Loðskinn hf.
Sauðárkróki:
Engin yfirvinna
frá síðustu
mánaðamótum
- sökum mikillar
birgðaaukningar
vegna sölutregðu
Frá 1. apríl sl. hefur engin yfir-
vinna verið unnin hjá sútunar-
verksmiðjunni Loðskinn hf. á
Sauðárkróki, því þá var allri
yfirvinnu starfsmanna sagt
upp. Ástæðan fyrir því er sú að
illa hefur gengið að selja skinn-
in erlendis og er birgðir orðnar
miklar. Einna helst hefur tek-
ist að selja til Ítalíu, en aðrir
markaðir hafa verið svo gott
sem lokaðir.
Sölutregðan erlendis er m.a.
rakin til mikilla hlýinda í Evrópu,
en síðustu þrír vetur þar hafa
verið óvenju hlýir. Kaupendur,
sem búið var að gera samninga
við, hafa haldið að sér höndum.
Það kæmi því ekki á óvart að efst
á óskalistanum hjá Loðskinns-
mönnum, sé að kuldinn sæki á
Evrópubúa af rneiri krafti en
undanfarna vetur.
Þar sem framleiðsla verksmiðj-
unnar hefur aukist nærfellt um
helming, frá því Loðskinn keypti
sútunarverksmiðju SS á síðasta
sumri, hefur birgðahald aldrei
verið meira, lagerinn er gjörsam-
lega að springa. Þá valda háir
vextir af birgðahaldinu miklum
rekstrarerfiðleikum. Á síðasta
ári greiddi Loðskinn 50 milljónir-
króna í vexti, eða um fjórðung
af veltu fyrirtækisins. -bjb
Mcnntaskólinn og Vcrknicnntaskólinn á Akureyri eru lokaðir þessa dagana vegna verkfalla, eins og kunnugt er.
Þessi mynd var tekin í „kennaraathvarfi“ í STAK-salnum á Akureyri í gær. Mynd: tlv
Hott, hott á hesti í V-Þýskalandi:
„Nonni og Manni“ kynna íslenska
hestinn á Equitana hestasýningunni
- Garðar Þór og Einar Örn
uppáklæddir eins og í sjónvarpsþáttunum vinsælu
Þeir félagar Garðar Þór Cortes
og Einar Örn Einarsson, betur
þekktir sem bræðurnir Nonni
og Manni úr samnefndum
sjónvarpsþáttum Ágústar
Guðmundssonar, eru nú
staddir í Equitana hestasýning-
unni í V-Þýskalandi í nafni
Félags hrossabænda til að
Hitaveita í Aðaldal og Kinn:
Fyrirhugað að hefja
framkvæmdir í vor
- Kostnaður um 1 milljón á hvert býli
í síðustu viku var haldinn
stofnfundur félags um lagningu
og rekstur hitaveitu í Aðaldal
og Kinn. Ekki er endanlega
frágengið hvað margir bæir
munu gerast aðilar að lagningu
veitunnar, nú er um 44 aðila að
ræða en menn eru að bætast í
hópinn og að sögn Stefáns
Skaftasonar, ráöunauts í
Straumnesi og stjórnarfor-
manns hitaveitufélagsins, á
þeim eftir að tjölga. Einnig á
eftir að gera lokahönnun og
semja um ákveðna þætti áður
en framkvæmdir geta hafist.
vatninu. Aðspurður um kostnað
sagði Stefán að reiknað væri með
um 1 milljón króna á býli, ljóst
væri að kostnaður yrði mikjll en
kostnaður við reksturinn færi eft-
ir hvaða samningar næðust um
vatnskaupin.
Það hefur lengi verið rætt um
að leggja hitaveitu í Aðaldal og
Kinn. Stefán sagðist vona að
framkvæmdirnar yrðu til hags-
bóta fyrir svæðið, til þess væri
leikurinn gerður að tryggja bú-
setu þegar til lengri tíma væri
litið. IM'
kynna íslenska hestinn. Sýn-
ingin hófst sl. sunnudag og
stendur í 10 daga.
Félag hrossabænda fór þess á
leit við þessa ungu og vinsælu
sjónvarpsstjörnur að þeir yrðu í
kynningarbás þess á Equitana
sýningunni, sent er stærsta sýning
sinnar tegundar í heiminunt.
Halldór Gunnarsson, einn stjórn-
armanna í Félagi hrossabænda
segir að þeir „Nonni og Manni“
hafi vakið mikla og verðskuldaða
athygli á sýningunni ytra. Þeir
sitja íslenska fáka uppáklæddir í
sömu fötum og þeir komu fram í
sjónvarpsþáttunum vinsælu og
segir Halldór greinilegt að fjöldi
fólks þekki þá og vilji fræðast um
land og þjóð, og þá ekki síst hest-
ana sem þeir sátu svo vel í þátt-
unum. Halldór segist þess fullviss
að þessi nýstárlega aðferð við
kynningu á íslenska hestinum sé
mjög árangursrík. „Þeir „Nonni
og Manni“ hafa vakið mikla
athygli. Það er vert að hafa í
huga að sýningarbásar eru í 11
sambyggðum sýningarsölum og
þarna koma daglega 200-250 þús-
und manns. Það fer því ekkert á
milli mála að þátttaka í sýning-
unni er mjög ntikilvægur liður í
kynningu á íslenska hestinum,"
segir Halldór. „Það er enginn
vafi að slík sýning er stór lykill að
því að komast í samband við
kaupendur íslenska hestsins,
ekki bara frá V-Þýskalandi held-
ur einnig fjölmörgum öðrum
löndum í Evrópu,“ bætti hann
við.
Utflutningur á hrossum á þessu
ári hefur gengið mjög vel, að
sögn Halldórs. Það sem af er
árinu er búið að senda um 300
hross úr landi, en á sl. ári voru
seld um 1000 hross til aðila er-
lendis. óþh
Vopnaijörður:
Þokkalegt
alvinnuástand
Atvinnuástand á Vopnafirði
hefur verið með þokkalegasta
móti í vetur, sérstaklega hefur
verið stöðug vinna í frystihús-
inu upp á síðkastið. Heldur
daufara virðist þó vera yfir
atvinnuhorfum skólafólks í
sumar en verið hefur.
Sveinn Guðmundsson sveitar-
stjóri segir að hjá hreppnum
verði t.d. lítið annað að fá en
hefðbundna unglingavinnu fyrir
yngra fólkið. „Eldri unglingarnir
hafa yfirleitt fengið vinnu í fisk-
vinnslu, en útlitið nteð slíkt er
ekki mjög gott sem stendur,
hvernig svo sem úr því rætist,“
sagði Sveinn. VG
Boðið upp á dagvistun á Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík:
Dagvistun heppflegur valkostur
- segir Halldór Guðmundsson, forstöðumaður
Hitaveitufélagið mun taka við
rekstri hitaveitu Hafralækjar-
skóla, sem nokkrir bæir í Aðaldal
fá vatn frá, svo í raun verður
félagið nteð rekstur tveggja hita-
veitna á sínum vegum. Meiningin
er að kaupa vatnið í riýju hita-
veituna af Húsavíkurbæ og leiða
það frá Hveravöllum, austur yfir
Hvammsheiði við Ystahvamm.
Bæir í miðdal Aðaldals; við
Hvamma og Staði munu geta
fengið vatn frá hitaveitunni. Við
Mýlaugsstaði verður vatninu
veitt yfir hálsinn í Skriðuhverfi
og síðan yfir í Kinn, en þar munu
bæir frá Þóroddsstað að Hrafns-
stöðum geta fengið vatn frá veit-
unni.
Stefán sagði að fyrirhugað væri
að hefjast handa í vor og Ijúka
framkvæmdunum á tveimur ár-
um, þær væru þó háðar því að
samningar næðust um kaup á
Fyrir skömmu hófst á Dalbæ,
heimili aldraðra á Dalvík dag-
vistun fyrir aldraða. Öldruðum
á Dalvík og í þeim nágranna-
sveitarfélögum sem standa að
rekstri Dalbæjar stendur til
boða að dvelja þar í góðu yfir-
læti alla virka daga frá kl. 9
árdegis til 16.30 síðdegis og
nýta sér sömu þjónustu og
heimilisfólk. Þar má nefna
leikfimi, fót- og hársnyrtingu,
föndurvinnu, sögulestur, o.fl.
Þá er fólki boðið upp á máltíð-
ir þann tíma sem það dvelur á
Dalbæ. Dagvistunin er endur-
gjaldslaus og hefur ekki áhrif á
réttindi fólks til ellilífeyris eða
annarra tekna frá Trygginga-
stofnun ríkisins.
Að sögn Halldórs Guðmunds-
sonar, forstöðumanns Dalbæjar,
virðist gamla fólkið hafa tölu-
verðan áhuga á dagvistuninni.
Hann segir þó ekki hægt að meta
það af fyrstu dögunum hversu
margir koma til með að nýta sér
hana daglega. Halldór segir að
unnt sé að taka á móti 10-14
manns á degi hverjum í dagvistun
á Dalbæ.
Árið 1984 var veitt heimild til
reksturs dagvistunar við Dalbæ.
Þá tókst ekki að koma henni á en
nú er sem sagt gerð önnur til-
raun. „Þessa fyrstu daga bjóðum
við öllum ellilífeyrisþegum að
koma og kynnast þessu með opn-
um huga. Hafi þeir hug á að nýta
sér þessa þjónustu þarf að sækja
um það forntlega," segir Halldór.
Dagvistun á heimilum aldraðra
hefur færst í vöxt á undanförnum
árum um land allt. „Það má segja
að dagvistun sé mun heppilegri
valkostur fyrir einstaklinginn til
þess að hann geti haldið áfram
sínu eðlilega lífi á sínu eigin
heimili. Dagvistun er manneskju-
leg leið til þess að aðstoða fólk
við að halda heimili eins lengi og
það vill og getur,“ segir Halldór.
óþh
Húsavík:
■ Bæjaráð hefur samþykkt
að bæjarsjóður greíði sjúkra-
þjálfun aldraðra að fullu, þeg-
ar komiö cr umfram greiðslu-
skyldu Sjúkrasamlags og gildir
sú samþykkt fyrir árið 1989.
Bæjarsjóður greiðir í dag
hluta sjúklings í meðferð, þar
sem tiltckin greiðsluskylda
Sjúkrasamlags er fyrir hendi.
■ Ársreikningar Heilbrigðis-
eftirlits Norðurlands cystra
fyrir árið 1988, vöru lagöir
fram til kynningar á fundi
bæjarráðs nýlega. Þar kemur
m.a; fram að skuldir sveitar-
félaga á svæðinu voru kr.
667.842,- þann 31. des. 1988.
■ Bæjarstjóri kynnti nýlega á
fundi bæjarráðs, ráðninga-
samning við slökkviliðsstjór-
ana á Húsavík. Slökkviliðs-
stjórar vcröa þrír, þeir Gísli
Salómonsson, Ólafur Jónsson
og Hreinn Einarsson. Bæjar-
ráð samþykkir samninginn
sem gildir frá 1. mars 1989.
■ Bæjarráð samþykkti nýlega
að leggja til við bæjarstjórn,
aö hundaskattur og kvöldsölu-
leyfi árið 1989 verði eftirfar-
andi: Árgjald fyrir hvern hund
kr. 4500,- og árgjald fyrir
hvert kvöldsöluleyfi kr.
40.000.-.
■ Á fundi bæjarráðs í byrjun
apríl var lögð fram tillaga frá
Æskulýðs- og íþróttafulltrúa
varðandi Vinnuskóla og
Skólagarða. í tillögunni er
m.a. gert ráð fyrir að laun
unglinga í Vinnuskólanum
verði óbrcytt frá 1988. Þ.e.
laun 15 ára kr. 140,- pr. klst.,
laun 14 ára kr. 125 pr. klst. og
laun 13 ára kr. 108 kr. pr. klst.
Laun flokkstjóra verði óbreytt
og einnig forstöðumanns.
■ í tillögunni er einnig lagt til
að skólagjöld í skólagörðum
verði hækkuö úr 900.- kr. í
2000,- kr. eða um 122%. Þessi
tala er miðuð viö að ca. 70
börn verði í skólagörðunt í
sumar eins og 1988 en nú
standi skólagjöld undir efnis-
kaupum eins og raunar var bú-
ið að samþykkja i bæjarráði.
■ Einnig er gert ráð fyrir því
að þjónusta Vinnuskólans
verði á sama verði og 1988,
þ.e. lóðir verði flokkaðar í 2
stærðarflokka af forstoðu-
manni. Gjald fyrir stærri lóðir
verði kr. 3000.- en kr. 1500. -
fyrir minni lóðir. Fyrir clli- og
örorkuþega verði gjaldið kr.
1000.- fyrir stærri lóðir en kr.
500,- fyrir minni lóðir. Fyrir-
tæki greiði samkvæmt reikn-
ingi.
■ Bæjarráð samþykkir tillögu
Æskulýðs- og íþróttafulltrúa
með þeirri breytingu þó að
laun unglinga í Vinnuskólan-
um hækki í samræmi við
almennar launahækkanir milli
ára.