Dagur - 14.04.1989, Blaðsíða 3

Dagur - 14.04.1989, Blaðsíða 3
Föstúdágur 14. apríl 1989'- DAGUR"- 3 Frumvarp um málefni aldraðra lagt fram á Alþingi: Ahersla lögð á að sníða agnúa af ýmsum þáttum laganna frá 1982 - sagði Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra, er hann mælti fyrir frumvarpinu ,Þó tvímælalaust hafi verulega áunnist í málefnum aldraðra síðustu árin eru engu að síður mörg verkefni á þessu sviði óleyst. Undanfarna átján mán- uði hefur í heilbrigðisráðu- neytinu veriö unnið að endur- skoðun laga um málefni aldr- aðra en samkvæmt ákvæðum í lögunum áttu þau að renna úr gildi 31. desember 1987. Þau hafa nú tvisvar verið framlengd, nú síðast í desem- ber s.l., til 31. desember 1989. I þessari endurskoðunarvinnu hefur mest áhersla verið lögð á að sníða af lögunum agnúa sem óneitanlega hafa komið í Ijós eftir að farið var að hrinda hinum ýmsu ákvæðum laganna frá 1982 í framkvæmd. Frum- varp það sem hér er jagt fram er árangur þessarar endur- skoðunarvinnu,“ sagði Guð- mundur Bjarnason, heilbrigð- isráðherra, er hann mælti fyrir frumvarpi um málefni aldraðra á Alþingi fyrr í vikunni. Frumvarp þetta tekur gildi þann 1. janúar á næsta ári, verði það að lögum á yfirstandandi þingi. Meðal nýmæla í því eru að á starfssvæði hverrar heilsugæslu- stöðvar starfi öldrunarnefnd, að breytt verði fjölda þeirra sem sæti eiga í þjónustuhópi aldraðra á hverju starfssvæði, að hlutverk Framkvæmdasjóðs aldraðra verði rýmkað og að hverju sveit- arfélagi verði skylt að reka heima- þjónustu fyrir aldraða í sveitar- félaginu. Nefsskattur á ný fyrir Framkvæmdasjóö aldraðra Framkvæmdasjóði aldraðra verða á ný tryggðar tekjur með nefskatti, verði frumvarpið að lögum. Nú fær sjóðurinn fjárveit- ingu á fjárlögum, 160 millj. kr. á árinu 1989, en fengi 200 milljónir í ár ef skattur yrði lagður á hvern gjaldanda. Frumvarpið leggur til að skatturinn verði 2500 kr. á hvern greiðanda við álagningu 1989 en gjaldið hækki síðan árlega samkvæmt byggingavísi- tölu. Undanþegnir gjaldinu verði einstaklingar yngri en 16 ára og eldri en 70 ára. Veigamikil nýmæli í frumvarp- inu éru einnig að skilið verði á milli opinnar öldrunarþjónustu. annars vegar og stofnanaþjón- ustu hins vegar. Hér er átt við heimaþjónustu, þjónustumið- stöðvar aldraðra, dagvist og sjálfs- eignar-, leigu- og búseturéttar- íbúðir aldraðra annars vegar og þjónustuhúsnæði, þ.e. leiguíbúð- ir og dvalarheimili sem uppfylla ákveðin skilyrði um þjónustu og hjúkrunardeildir eða hjúkrunar- heimili hins vegar. Heilbrigðis- ráðherra sagði þetta fyrirkomu- lag mjög í takt við þær breytingar sem nú séu að verða á skipulagi öldrunarþjónustu um land allt og Tryggingasjóður fiskeldislána: Fyrstu fyrirtækin fá fyrir- greiðslu í þessum mánuði Síðar í þessum mánuði verður byrjaö að útdeila fjármagni til fískeldisfyrirtækja í gegnum Tryggingasjóð fískeldislána. Umsóknir um fyrirgreiðslu úr sjóðnum hafa nú borist frá fjölmörgum fyrirtækjum en Friörik Sigurðsson, fram- kvæindastjóri Landssambands fískeldis- og hafbeitarstöðva og einn stjórnarmanna í Trygg- ingasjóði fískeldislána, segir Lögreglan á Akureyri segir: „Geymið hjólin inni aðeins lengur“ Nú þegar vorið er á næsta leiti og brúnin fer að lcttast, er vert að minna á lúmska hættu í umferðinni á þessum tíma. Börn sem fagna vorinu ekki síður en þeir fullorðnu hafa l*að er ekki alveg tímabært að hjóla úti ennþá, því snjór er cnn á gangstígum og víðar þar sem börnum þykir gaman að hjóla. Mynd: tlv Sj ávarútvegsráðuneytið: Notar ekki heimild til breytinga á aflamagni 1989 Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að ekki verði breytt fyrri ákvörðunum um há- marksafla á botnfíski árið 1989 en samkvæmt lögum um stjórn fískveiða getur sjávarútvegs- ráðherra breytt aflamagni, til hækkunar jafnt sem lækkunar, þrátt fyrir að fram á árið sé komið. Lögin kveða á um að sjávarút- vegsráðherra verði að nýta heim- ild til breytinga á áður ákveðnu aflamagni á botnfiski fyrir 15. apríl. Samkvæmt upplýsingum frá sjávarútvegsráðuneytinu eru ekki taldar forsendur til þess að breytingar verðir gerðar nú enda hafi Hafrannsóknarstofnun ekki talið ástæður til breytinga á fyrri ákvörðunum. Áður tilkynnt heildaraflamörk munu því standa óbreytt og veiðiheimildir ein- stakra skipa sem á þeim byggð- ust. JÓH nefnilcga þurft að geyma reið- hjólin sín óvenju lcngi núna, þau eru oröin óþolinmóð og vilja hjólin út strax. Lögreglan á Akureyri er þessu ekki sammála og fer þess vinsam- lega á leit við foreldra og börn þeirra, að hjólin verði geymd inni aðeins lengur því enn er að heita má ófært um gangstíga og margar götur. Það gæti leitt til þess að börn sem ekki eru orðin fær um að aka reiðhjóli á akvegum, sæju sig knúin til að leita þangað og þar með er hættunni boðið hcim. Þess er áreiðanlega ekki langt að bíða að sólin bræði það sem eftir er af snjónum og því kjörið að nota frekar tímann til þcss að yfirfara hjólin, athuga meö Ijósa- búnað og flcira svo hjóliö veröi í fullkomnu lagi þegar tíminn kemur. VG að fíestar þeirra hafí ekki veriö fylltar út í samræmi við lög um sjóðinn. - Umsóknareyöublöö voru send út til 30 fískeldisfyr- irtækja, en það er u.þ.b. sá fjöldi sem er í hefðbundnum afurðalánaviöskiptum í banka- kerfínu. „Það eru vissir þræðir sem þarf að hnýta fastar áður en hægt verður að afgreiða umsóknirnár. Það er þó Ijóst aö þetta skellur á ! þessum mánuöi," segir Friðrik. Fískeldismcnn hafa . harölega gagnrýnt scinagang viö afgrciðslu Tryggingasjóðsins endii er lausa- fjárstaða margra fyrirtækja mjög bágborin um þessar mundir. Þessi erfiða staöa hefur kornið illa viö ýmis þjónustufyrirtæki við fiskeldiö. Nægir þar að nefna Istcss hf., en útistandandi skuldir vegnii fóðurkaupa eru gríðarlega miklar. Friörik Sigurðsson segist vissu- lega geta tekið undir gagnrýni um seinagang stjórnvalda í að skip;i menn í stjórn sjóðsins cftir að lög um hann voru keyrö í gegnúm Alþingi í janúar sl. Hins vegar segist Friðrik ekki geta kyngt gagnrýni á seinagang stjórnar viö undirbúning fyrirgreiðslu úr Tryggingasjóðnum. „En vissu- lega hefði cg kosið aö þetta gengi hraðar fyrir sig. Það hlýtur að vera hagsmunamál allra," segir Friðrik Sigurösson. óþh Guðniundur Bjarnason, heilbrigðis- ráðherra. í raun eingöngu staðfesting á því. I nýja frumvarpinu er gerður skýrari greinarmunur en áður var á framkvæmdaleyfi og rekstrar- leyfi vegna dagvistar og stofnana t'yrir aldraða. Samkvæmt frum- varpinu fær enginn að hefja fram- kvæmdir við dagvist eða stofnun fyrir aldraða nema að . fengnu leyfi heilbrigðisráðherra. Sömu- leiðis að rekstur dagvistar eða stofnunar t'yrir aldraða hefjist ekki fyrr cn að fengnu rekstar- leyfi frá heilbrigðisráðherra. Greiðsla dvalarkostnaðar á (ildrunarstofnunum með nýju sniði Meö samþykkt frumvarpsins veröur mikil breyting á fyrir- komulagi greiðslu vegna dvalar á öldrunarstofnunum. Sú regla er nú við lýði að aldraðir greiða hlutdeild í dvalarheiiiiiliskostn- aði, hafi þeir lífeyrissjóðstekjur umfram frítekjumark. Þeir sem hins vegar hafa ekki aörar tekjur en bætur alm;mnatrygginga fá ákveöna fjárhæð á mánuði til ráðstöfunar frá Tryggingastofn- un ríkisins og stofnunin annast greiöslu vistkostnaðar. með svokallaðri elliheimilisuppbót. Þetta fyrirkomulag hefur á síð- ustu árum sætt töluveröri gagn- rýni og því cr því breytt í nýja frumvarpinu. Þannig mun Trygg- ingastofnun ríkisins greiða fyrir vist á stofnunum fyrir aldraða en hafi vistmaður tekjur umfram 11.000 kr. á mánuði skal hann tiikii þátt í greiöslu dvalarkostn- aðar, að hluta til eða greiða dval- arkostnað að öllu leyti. Nánari fyrirmæli um fyrirkomulag þess- ara greiöslna skal setja með reglugerö. Um heimaþjónustu aldraðra segir að henni verði breytt til samræmis viö frumvarp til laga um brcytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir aö kostnaður af heimaþjón- ustu skiptist þannig að félagslegi þátturinn verði á ábyrgð sveitar- félaga cn heilbrigðisþátturinn á vegum ríkisins. JÓH ■ •- ♦* £ mipf , _ _ , _ .. Honim tiutt $i ■ (Áður Almennar tryggingar) Veríð velkomin í nýtt og betra húsnæði Athugið: Sama símanúmer, sími 24700 áá! KAUPÞING NÖRÐURLANDS HF Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700 - H |

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.