Dagur - 14.04.1989, Síða 7
Hvað er að gerast
Föstudagur 14*. apwíl 1989 - DAGUR - 7
Skjólbrekka:
Frumsýning á
laugardagskvöld
- á nýju íslensku verki
Fundur í hjónabandsnefnd,
nýtt íslcnskt leikrit verður
frumsýnt í Skjólbrekku,
Mývatnssveit laugardagskvöld-
ið 15. apríl kl. 21:00. Eyvindur
Erlendsson er leikstjóri og
höfundur verksins, en hefur
fengið tillegg til þess frá
heimamönnum. Það er
U.M.F. Mývetningur sem
stendur fyrir sýningunni í
tilefni af 80 ára afmæli sínu.
Þorgrímur Starri Björgvinsson
mun eiga kveðskap í verkinu,
Friðrik Steingrímsson vísur, þar
munu finnast gamansögur eftir
ýmsa liöfunda, nokkur sönglög
og tilvitnanir í skáldskap stór-
skálda. Ellefu leikendur fara með
hlutverk í sýningunni. Sr. Örn
Friðriksson verður við hljóðfærið
en Þráinn Þórisson rétti hönd við
sönglærdóm og sitthvað fleira.
Önnur sýning verður í Skjól-
brekku á sunnudagskvöld og
hefst kl. 21:00. IM
Atriöi úr sjónleiknum Fundur í hjónabandsnefnd scm frunisýndiir verdur í
Skjólbrekku 15. apríl. Mynd: Hgill Frcystcinsson
K.F.U.M. og K.:
Miðnætursamkoma
Sauðárkrókur:
60 ár frá upp-
haQ skátastarfs
í tilefni þess að 60 ár eru liðin frá
upphafi skátastarfs á Sauðár-
króki, þegar Skátafélagið And-
varar var stofnað, ætlar Skátafé-
lagið Eilífsbúar að minnast
afmælisins nk. sunnudag. Eilífs-
búar bjóða alla velkomna í
Skátaheimilið, Gúttó við Skógar-
götu, á milli kl. 12 og 14.30. Þar
verður litskyggnusýning frá
skátastarfi, gjörðabækur félags-
ins o.fl. liggur frammi til skoðun-
ar og kynning verður á skáta-
starfinu og aðstöðu félagsins.
Skátaflokkarnir Axlabönd og
Víkingar verða að starfi og taka á
móti gestum. Heitt verður á
könnunni í Gúttó á sunnudag,
fyrir alla þá sem mæta..
Að loknu opnu húsi í Gúttó
verður sérstakt afmælishóf haldið
í Naustinu.
Ærsladraugurinn á Húsavík:
Síðasta sýníng í kvöld
í Sunnuhlíð
Laugardaginn 15. apríl heldur
ungt fólk í K.F.U.M. og K. mið-
nætursamkomu í Félagsmiðstöð-
inni í Sunnuhlíð. Samkoman
hefst kl. 23.30. Mjög fjölbreytt
dagskrá er á boðstólum og miðast
allt efni samkomunnar við það,
að þcir sem eru að koma í fyrsta
skipti geti haft gagn og gaman af.
Samkomur sem þessat eru alltaf
að verða stærri og stærri þáttur í
starfi unga fólksins og hafa þær
alltat' tekist mjög vel. Þctta er því
tilvalið tækifæri fyrir ungt fólk á
öllum aldri sent hcfur áhuga á því
að eiga skcmmtilega kvöldstund
og nota tækifærið um leið að
kynnast nýjum og ferskum hlið-
unt á tilverunni.
Bamakóramót í
Hrafnagilsskóla
- Tónleikar í Akureyrarkirkju
Barnakóramót veröur haldiö í
Hrafnagilsskóla í Eyjafirði 14.-
15. apríl. Fjórir kórar munu
taka þátt í mótinu og í þeim
syngja samtals um 140 börn.
Þetta er þriðja árið sem slíkt
kóramót er haldið á Norður-
landi.
Kórarnir sem taka þátt í mót-
inu eru: Barnakór Hafralækjar-
skóla, undir stjórn Robert Fauíkn-
er, Barnakór Barnaskóla Húsa-
víkur, undir stjórn Line Werner,
Barnakór Skútustaðaskóla, undir
stjórn Margrétar Bóasdóttur og
Barnakór Tónlistarskóla Dalvík-
ur, undir stjórn Hlínar Torfa-
dóttur.
Á laugardag munu kórarnir
halda tónleika í Akureyrarkirkju
þar sem liver kór syngur sitt
prógram og kórarnir sameigin-
lega syngja prógram scm æft
verður á kóramótinu. Tón-
leikarnir hefjast kl. 17:00. IM
Miðgarður Skagafirði:
Stórtónleikar þriggja kóra
- 200 manna kór syngur í lokin
Ærsladraugurinn verður sýnd-
ur í allra síðasta sinn í Sam-
komuhúsinu á Húsavík í
kvöld, föstudaginn 14. apríl og
hefst sýningin kl. 20:30. Það er
Leikfélag Húsavíkur sem sýnir
verkiö, höfundurinn er Noel
Coward en leikstjóri Hávar
Sigurjónsson.
Þetta er 12. sýningin á verkinu
sem frumsýnt var 11. mars.
Aðsókn hefur verið í meðallagi
Kvenfélagið Hlíf á Akureyri vill
ntinna á árlega fjáröflun félagsins
nú um sumarmálin. Allur ágóði
rennur til barnadeildar FSA eins
og undanfarin ár. Kvenfélagið
Hlíl' hefur á undanförnum árum,
gefið barnadcild FSA nær öll þau
tæki sem eru á deildinni og alltaf
er þörf á frekari tækjabúnaði.
góð, og sagði María Axfjörð for-
maður leikfélagsins í samtali við
Dag, að leikfélagsfólk hefði
gjarnan viljað sjá fleiri sýningar-
gesti. Þcir sem komið hefðu á
sýningar, og hefðu á annaö borð
áhuga á verkefnunt að þessu tagi,
væru yfirleitt mjög ánægðir með
hvernig til hefði tekist. María
sagði það vonbrigði að allt fólkið
sem beðið hefði unt farsa undan-
farin ár, hefði lítið látið sjá sig á
sýningunni. IM
Síðasta vetrardag hefst
merkjasalan og vonast Hlífar-
konur eftir því að bæjarbúar taki
vel á móti nýbökuðum Islands-
meisturum KÁ í blaki. þegar þeir
banka upp á og bjóða merki
Hlífar.
Á sumardaginn fyrsta verður
Stórtónleikar verða t Félags-
heimilinu Miðgarði Skagafirði á
laugardagskvöld. Þá munu
svo kaffisala og skemmtiatriði á
Hótel KEA og hefst samkoman
kl. 15.00. Um leið og Kvenfélag-
ið Hlíf vill vekja athygli á þessum
árvissa viðburði, vill félagið einn-
ig hvetja félagskonur og velunn-
ara að koma með brauð og kökur
á Hótel KEA kl. 13.00 á sumar-
daginn fyrsta.
syngja þrír kórar, Skagíirska
söngsveitin, Karlakórinn Hcimir
og Rökkurkórinn, alls um 200
manns. I lokin munu kórarnir
taka lagið saman, og verður það
fjölmennasti skagfirski kór, sem
stigiö hefur á sviö í Miðgaröi. Að
lokinni söngskemmtun veröur
dansað fram á nótt við undirspil
hljómsveitar Ingimats Eydtils.
Tónleikarnir í Miðgaröi hefjast
kl. 20.30 og eru haldnir í tilefni
Sæluviku Skagfiröinga. Stjórn-
andi Skagfirsku söngsveitarinnar
er Björgvin Þ. Valdimarsson og
undirleikari cr Violetta Smidova.
Stjórnandi Heimis er Stefán
Gíslason og Kathrine L. Seedell
leikur undir. Stjórnandi hjá
Rökkurkórnum er Sveinn Árna-
son og undirleikari þar er Rögn-
valdur Valbergsson.
Skagfirðingar og nærsveita-
menn eru hvattir til að fjölmenna
á þennan stórmerka tónlistarvið-
burð.
Kvenfélagið Hlíf á Akureyri:
Merkjasala félagsins hefst
síðasta vetrardag
- íslandsmeistarar KA í blaki sjá um söluna
Sæluvikan:
Tónleikar
í íþrótta-
húsinu
í kvöld. föstudagskvöld, halda
Skagfirska söngsveitin og Söng-
félagið Drangey tónleika í
Iþróttahúsinu á Sauðárkróki.
Þeir eru haldnir í tengslum við
Sæluviku og hefjast kl. 21.00.
Meðal efnis á söngdagskrá er
Hallelújakórinn eftir Hendel ;iuk
fjölda laga eftir innlenda og
erlenda höfunda.
Einsöngvarar verða Halla S.
Jónasdóttir, Guðntundur Sig-
urðsson og Óskar Pétursson.
Stjórnandi á tónleikunum verður
Björgvin Þ. Valdimarsson og
undirleikari Violetta Stnidova.
AI-Anon
samtökín
á Akureyri
A1 Anon samtökin, samtök
aðstandcnda alkóhólista, halda
fundi þrisvar í viku á Akureyri.
Fundir eru að Strandgötu 21, efri
hæð, á laugardögum klukkan
14.00 og mánudögum klukkan
21.00. Á miðvikudögum eru Al
Anon fundir á neöri hæð hússins
klukkan 21.00.
Al Anon samtökin eru samtök
fólks sem hefur það sameiginlegt
að eiga aðstandanda eöa vin sem
er alkóhólisti. Markmið samtak-
anna er að hjálpa aðstandendum
á ýmsa vegu til að hjálpa sér
sjálfum. Drykkjusýki er fjöl-
skyldusjúkdómur sem lætur eng-
ann í fjölskyldunni ósnortinn.
Aðstandendur alkóhólista eru
hvattir til aö komti á einhverja
ofangreinda fundi og reyna A1
Anon leiðina.
Annað ráð ITC:
Ráðsfundur
í Mosfellsbæ
Annað ráð ITC á íslandi Iteldur
20. ráðsfund sinn nk. laugardag
15. apríl. Fundurinn er í umsjá
ITC Korpu í Mosfellsbæ og verö-
ur haldinn í Hlégarði. Skráning
hefst kl. 9. Á dagskrá eru m.a.
óundirbúnar kappræður, fræðsla
í umsjón félaga úr Öðru ráði og
erindi um streitu og streituvarnir
sent Dórothea Bergs, ITC Mjöll
á Akureyri flytur. I hádegisverð-
arhléi verður ný stjórn Annars
ráðs sett í embætti. Fráfarandi
forseti Annars ráðs er Aðalheið-
ur Jóhannesdóttir, ITC Kvisti,
Reykjavík. Fundinum lýkur um
kl. 17.00.