Dagur - 14.04.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 14. apríl 1989
spurning vikunnar
Ert þú búinn að ákveða
hvað þú ætlar að gera
í sumarfríinu?
(Spurt var í byggingavörudeild KEA
á Lónsbakka)
Þorsteinn Baldvin Þorsteins-
son:
Ég fer líklega í ferö til Reykja-
víkur snemma í júnímánuði. Á
sumrin er ég vanur að fara í
bíltúra um landið, aðallega til
Skagafjarðar og í Svartárdal.
Síðan á ég frí í ágúst, þá er
ferðinni heitið til Reykjavíkur og
síðan í Árnes- og Rangárvalla-
sýslur.
Ragnar Tryggvason:
Ætli maður dundi sér ekki bara
í sumarbústaðnum í sumar og
geri ekki mikið meira. Bústaður-
inn er í Hörgárdal, á Þelamörk-
inni. Ég fer ekki langt frá Akur-
eyri, fer yfirleitt ekki mikið á
sumrin en tek þó fimm vikna frí.
Þorkell Pálsson:
Ég fer til Noregs 1. júní með
karlakórnum Geysi. Þetta er
hálfsmánaðar ferð. Ég ætla
einnig í ökuferðir um landið í
sumar.
Þórður Rist:
Ég ferðast um landið og verð
örugglega í sumarhúsi í Vagla-
skógi. Maöurerfarinn að hugsa
af alvöru til sumarsins eftir erf-
iðan vetur. Það er mál til komiö
að huga að fríinu. Við förum
ekki til útlanda í sumar, það er
ákveðið.
Hjörleifur Markús Hjartarson:
Ég fer til Finnlands í júní, og
verð þar í nokkur ár, allavega,
því ég er að flytjast þangað,
nánar tiltekið til Pori (Björne-
borg). Ég byrja á að leita mér
að vinnu þegar þangað kemur.
í síðustu viku kynntu 8 íslensk
fyrirtæki, sem verið hafa í
Vöruþróunarátaki Iðntækni-
stofnunar, framleiðslu sína.
Hér er um að ræða 8 fyrirtæki
af 24 sem taka þátt en Vöru-
þróunarátakið er sérverkefni
Iðntæknistofnunar íslands sem
byrjaði í september 1987 og
lýkur í árslok 1989. Á kynning-
unni í síðustu viku var sýndur
fatnaður frá þremur fyrirtækj-
um, þ.e. ullarpeysur undir
nafninu Moss Natura frá Drífu
hf. á Hvammstanga, tískufatn-
aður frá Tex-Stíl hf. í Reykja-
vík og peysulína undir merkinu
Coral frá Árbliki hf. í Reykja-
vík. Þá kynntu Islensk matvæli
hf. nýja vöru sem unnin er úr
laxi, svokallaða laxasmyrju,
Bakarí Friðriks Haraldssonar
kynnti svokallaðar Ommukök-
ur og Ópal hf. kynnti sykur-
lausan Opal. Þá kynnti Marska
hf. á Skagaströnd nýja tegund
af tilbúnum sjávarréttum, en
um er að ræða saltfiskrúllur
sem eru fyrsti rétturinn í þess-
um nýja vöruflokki sjávar-
rétta. Að lokum sýndi fyrir-
tækið Trefjar hf. í Hafnarfirði
nýja línu af akrýlvörum, m.a.
nuddpotta, baðkör, vaska og
sturtubotna. Reynsla er komin
af þessum vörum erlendis en
Trefjar hf. er fyrsta fyrirtækið
til að forma slíka vöru hér á
landi.
Eins og áður segir er Vöru-
þróunarátakið sérverkefni Iðn-
tæknistofnunar. Markmið þessa
átaks er að aðstoða fyrirtæki og
einstaklinga við að þróa vörur
sem eru samkeppnisfærar á
heimamarkaði og hæfar til út-
flutnings.
Vöruþróunarátakið fer fram
með þeim hætti að sérstakur
verkefnisstjóri átaksins starfar í
þeim 24 fyrirtækjum sem taka
þátt í vöruþróuninni, við eftirlit
og stjórnun á vöruþróunarverk-
efnum. í hverju fyrirtæki er verk-
efnahópur og tengiliður sem sér
um daglega stjórn verkefnanna
en ráðgjafar eru fengnir til að
annast sérhæfða verkþætti sem
fyrirtækin sjálf eru ekki fær um
að leysa af hendi. í mörgum til-
fellum koma þar til ráðgjafar
Iðntæknistofnunar á hinum ýmsu
sviðum.
Mikil viðbrögd
frá atvinnulífínu
Mikil viðbrögð komu frá atvinnu-
lífinu haustið 1987 þegar vöru-
þróunarátakið var auglýst. Til
Iðntæknistofnunar bárust 65
umsóknir fyrir verkefni og vegna
þessa þurfti að takmarka fjölda
þeirra verkefna sem ákveðið var
að styrkja. Ákveðið var að
styrkja 17 verkefni og þremur
fyrirtækjum voru sett þau skilyrði
að eigið fé þeirra yrði aukið.
Einnig var ákveðið að vinna að
frekari fjármögnun til að styrkja
7 verkefni til viðbótar og bjóða
fimm fyrirtækjum þátttöku í átak-
inu án styrkja. Eitt þeirra þáði
boðið.
Þetta átak til vöruþróunar í
íslenskum fyrirtækjum er fjár-
Þrjú fyrirtæki sýndu fatnað á kynningu Iðntæknistofnunar. Hér sést glæsi-
legur tískufatnaður frá fyrirtækinu Tex-Stíl í Reykjavík. Myndir: jóh
Utanríl
tækin i
branði
Saltfiskrúllur frá Marska á Skagaströnd:
„Bindum mestar vonir
við Spánarmarkaðmn“
- segir Adólf H. Berndsen, framkvæmdastjóri
Marska hf. á Skagaströnd
kynnti athyglisveröan rétt á
kynningu Iöntæknistofnunar.
Hér er um að ræða eins konar
pönnukökurúllu sem er með
saltfiskfyllingu en þetta er
fyrsti rétturinn í seríu sjávar-
rétta sem væntanleg er frá
Marska. Þessar sjávarréttarúll-
ur verða markaðssettar á
mörkuðum jafnt hér heima
sem erlendis en ætlunin er að
boðið verði upp á fleiri tegund-
ir í framtíðinni.
„Við höfum unnið að undan-
förnu við þróun á þessum rúllum
bæði hvað varðar vélbúnað jafnt
sem þróun á vörunni sjálfri. Þessi
rúlla sem við kynnum hér er
hugsuð fyrir Spánarmarkað en
við höfum fyrst og fremst verið í
samstarfi við Samband íslenskra
ferskfiskframleiðenda með þenn-
an rétt. Við erum búnir að senda
sýnishorn út og teljum okkur nú
vera að nálgast það mark að geta
fengið úr því skorið hvort okkur
tekst að komast inn á markað-
inn eða ekki. Spánarmarkaður-
inn er sá markaður sem við bind-
um mestar vonir við hvað varðar
þessa tegund af rúllum en einnig
höfum við sent prufur af rækju-
rúllum á markað í Svíþjóð,"
sagöi Adólf H. Berndsen, fram-
kvæmdastjóri Marska í samtali
við blaðið.
„SÍF hefur verið með saltfisk í
neytendapakkningum á Spánar-
markaði en hér er um að ræða
nýjung og við vitum ekki til þess
að rúllur á borð við þessar hafi
áður verið á þessum markaði.
Við erum þá fyrstir til að koma
með slíka vöru inn á þennan
markað," segir Adólf, aðspurður
um hvort íslendingar hafi boðið
Spánverjum upp á hliðstæða vöru
fyrr.
Eins og áður segir eru saltfisk-
rúllurnar og rækjurúllurnar
fyrstu réttirnir í væntanlegri ser-
íu. Adólf segir að fyrst um sinn
verði megináherslan lögð á þess-
ar tvær tegundir en lítillega hafi
verið hugað að framleiðslu á
ýsurúllum.
„Við höfum að undanförnu
verið í ágætri sókn með sjófryst
ýsuflök á innanlandsmarkaði,
höfum selt mikið á Norðurlandi
og víða á höfuðborgarsvæðinu.
Þessi fiskur er seldur í neytenda-
pakkningum og hefur gengið vel
en ætlunin er að rúllurnar komi
inn á næstunni og vonandi þá líka
á innanlandsmarkað."
Adólf telur að sú aðstoð sem
fyrirtækin fá í Vöruþróunarátaki
Iðntæknistofnunar skipti þau
verulegu máli. „Við fáum fyrir-
greiðslu sem skiptir verulegu
máli til að geta verið með í þess-
ari vöruþróun þ.e. styrki og
áhættulán. Það sem ég hef kynnst
í þessu samstarfi við Iðntækni-
stofnun er gott. Þeir hafa reynst
okkur til styrktar, á því er enginn
vafi,“ segir Adólf. JÓH
Adólf
fyrirtæ
lofuðai