Dagur - 14.04.1989, Blaðsíða 14

Dagur - 14.04.1989, Blaðsíða 14
íþróttir 14 - D^ÖÍlft -Fostudagur 14. apríí 1989 aTilkynning til launaskattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að eindagi launaskatts fyrir mánuðina janúar og febrúar er 15. apríl nk. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn- heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. Veðurathugunarmenn á Hveravöllum Veðurstofa íslands óskar að ráða tvo einstak- linga, hjón eða einhleypinga, til veðurathugana á Hveravöllum á Kili. Starfsmennirnir verða ráðnir til ársdvalar, sem væntanlega hefst seint í júlímánuði 1989. Umsækjendur þurfa að vera heilsuhraustir og reglusamir, og nauðsynlegt er, að a.m.k. annar þeirra kunni nokkur skil á meðferð véla. Tekið skal fram, að starfið krefst góðrar athyglisgáfu, nákvæmni og samvisku- semi. Laun eru samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, heilsufar, menntun, fyrri störf og meðmælum, ef fyrir hendi eru, skulu hafa borist Veðurstofunni fyrir 1. maí n.k. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Veðurstofunnar, Bústaðavegi 9,150 Reykjavík, sími 600600. Rekstraraðila- og starfsfólk vantar í sumar til að sjá um og reka Hótel Kiðagil, í Barnaskólanum í Bárðardai. Uppl. veita Egill Gústafsson í síma 43277 og Sigrún Hringsdóttir í síma 43274. Framtíðarstarf Aðstoð á tannlæknastofu Óska eftir að ráða starfskraft á tannlæknastofu frá 1. maí eða 1. júní. Listhafendur sendi umsóknir á afgreiðslu Dags fyrir 20. maí, merkt „TENNUR Laugardagur kl. 13:45 15. UEIKVIKA' 15. APRIL1989 1 X m Leikur 1 Everton - Norwich m ifl Leikur 3 Arsenal - Newcastle Leikur 4 Luton - Coventry Leíkur 5 Man. Utd. - Derby Leikur 6 Q.P.R. - Middlesbro Leikur 7 Wimbledon - Tottenham Leikur 8 Blackburn - Man. City Leikur 9 Bournemouth- Stoke Leikur 10 Bradford - Ipswich Leikur 11 Leicester - Chelsea Leikur 12 Swindon - Watford Símsvari hjá getraunum á laugardögum ef kl. 16:15 er 91-84590 og -84464. TVOFALDUR SPRENGIPOTTU tir IR í l Handknattleikur/1. deild: KA tapaði síðasta leik - gegn fallliðinu UBK 27:30 Síðasti leikur KA á keppnis- tímabilinu í handknattleik fór fram í Digranesi í Kópavogi í fyrrakvöld þar sem iiðið mætti Breiðabliki. Fyrir ieikinn bjuggust flestir við að róðurinn yrði erfiður fyrir Breiðablik enda var þeirra besti maður í vetur, Hans Guðmundsson, í banni. Þrátt fyrir þetta voru Breiðabliksmenn mun ákveðn- ari og frískari og uppskáru sigur, 30:27. KA-menn geta að stórum hluta til skrifað þennan ósigur á varn- arleikinn. Vörn þeirra var oft á tíðum steinsofandi og því var leikur einn fyrir Blikana að labba í gegnum hana. Framan af fyrri hálfleiknum var sóknarleikur KA heldur ekki nógu góður, sending- ar ónákvæmar og spilið fálmkennt. Þegar líða tók á hálf- leikinn tók Erlingur af skarið og skoraði hvert markið öðru glæsi- legra en þessi kippur hans nægði liðinu ekki til að jafna. Að sama skapi voru þeir Jón Þ. Jónsson og Pétur Ingason iðnir við að koma boltanum í KA markið. Þegar um 4 mínútur voru eftir af hálf- leiknum var munurinn eitt mark, 11:10 en þá kom afar slæmur kafli hjá KA og fyrir leikslok hafði staðan breyst í 17:12. Þegar um 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik höfðu KA-menn náð að saxa á forskot Breiðabliks. Næstu 10 mínúturn- ar var jafnt á öllum tölum en á síðustu mínútunum sigu Breiða- bliksmenn framúr á ný og unnu sanngjarnan sigur, 30:27. Þeir ljúka því mótinu í vetur á tveim- ur sigrum en sá endasprettur nægir þeim ekki til að bjarga sér frá fallinu. Þeirra hlutskipti verð- ur því að leika í 2. deild að ári. KA er hins vegar í fjórða neðsta sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Víkingur en hagstæðara rharkahlutfall. JÓH Mörk KA: Erlingur Kristjánsson 9/1, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson 6/2, Pétur Bjarnason 4, Friðjón Jónsson 3, Jóhann- es Bjarnason 3 og Guðmundur .Guð- mundsson 2. Varin skot: Axel Stefánsson 9 og Björn Björpsson I. Mörk UBK: Pétur Ingi Arason 9, Jón Þórir Jónsson 6/1, Þórður Davíðsson 4, Kristján Halldórsson 4, Andrés Magnús- son 3, Elvar Erlingsson 2, Magnús Magn- ússon 2. Varin skot: Þórir Sigurgeirsson ‘7/1. Skíði: Góður árangur á Húsavík - í stórsvigi 12 ára og yngri Húsavíkurmót í stórsvigi fyrir 12 ára og yngri var haldið sunnudaginn 2. apríl. Úrslit mótsins urðu á þessa ieið: 6 ára stúikur: Heba Maren Sigurpálsdóttir 1.50.00 Anna Karin Jónsdóttir 1.58.51 Anna Sigríður Stefánsdóttir 2.06.92 6 ára drengir: Gunnar Jósteinsson 1.17.43 Guðbjartur Fannar Benedikts 1.20.01 Sigmundur Jósteinsson 1.50.17 7-8 ára stúlkur: Heiður Vigfúsdóttir 1.16.66 Lilja Friðriksdóttir 1.17.62 Guðrún Helgadóttir 1.21.15 7-8 ára drengir: Kristbjörn þór Jónsson 1.17.99 Pétur Veigar Pétursson 1.18.57 Andri Valur ívarsson 1.21.70 9-10 ára drengir: Arngrímur Arnarsson 1.08.52 Jóhann Gunnar Sigurðsson 1.12.35 Björgvin Gylfason 1.17.41 9-10 ára stúlkur: Elín Pálmadóttir 1.16.95 Tinna Ösp Arnarsdóttír 1.17.39 Elsá Þóra Árnadóttir 1.18.55 11-12 ára stúlkur: Anna María Héðinsdóttir 1.09.88 Anna María Frímannsdóttir 1.12.12 Erla Kristín Hreinsdóttir 1.13.92 11-12 ára drengir: Sveinn Bjarnason 1.09.15 Guðmundur Helgason 1.13.00 Stefán Helgi Garðarsson 1.13.82 Knattspyrna: Leikir á Sanavelli - um helgina Sana-völlurinn er nú smám saman að komast í keppnis- hæft ástand. Nokkrir æfinga- leikir verða þar um helgina í knattspyrnunni og eru þetta þeir leikir sem Degi er kunn- ugt um. UMSEb leikur gegn SM í dag kl. 16.30. Þór spilar við Magnakl. 18.30 og við Reyni á morgun laugardag kl. 11.30. Nýja Akur- eyrafélagið TBA leikur gegn Reyni kl. 14.00 á sunnudag. Það er erfitt hlutverk að skrifa minningargrein um kæran vin og bróður í trúnni. Þó er ýmislegt, sem gerir þetta hlutskipti bæri- legra. Ljós trúarinnar ljómar og lýsir jafnvel þótt farið sé um dimma dalinn. Og í þessu Ijósi lifði Reynir Hörgdal og dó. Það e'r huggun harmi gegn. Ungur að árum heyrði hann boðskapinn um endurlausn í trúnni á lifandi frelsara, Jesú Krist. Sá boðskap- ur hitti Reyni í hjartastað og gagntók hug hans og líf upp frá því. Og trúin varð honum allt. í ijósi hennar lifði hann og hrærðist. Það er stór fullyrðing, þegar sagt er að einhver sé lærisveinn Jesú Krists. En að segja slíkt um Reyni Hörgdal er svo eðlilegt og sjálfsagt. Hann var heill og sann- ur í trú sinni og þjónustu, - óþreytandi að benda á hinn stærsta sannleika, hið hreina og ómengaða fagnaðarerindi eins og það er að finna í heilagri Ritn- ingu. „Hálfvelgja og kyrrstaða eru orð sem trúuðum manni á að standa stuggur af“, sagði Reynir. Hann boðaði orðið af karl- mennsku og þrótti. Og þrátt fyrir andleg og líkamleg áföll, átti hann mikinn styrk, sem hann þáði frá honum, sem veitir „gnógan kraft hinum þróttlitla". Reynir Hörgdal gerðist snemma félagi f KFUM á Akur- eyri. Hið sama má segja um Gídeon-félagið á Akureyri. í báðum þessum félögum starfaði hann heilshugar og gegndi þar ýmsum embættum af stakri um- hyggju og samviskusemi. Fyrir það eru honum færðar innilegar þakkir hér og nú. Samfélag trúsystkina rækti Reynir af einstæðri trúfesti. Þar fann hann rætast það sem segir í trúarjátningunni: Eg trúi á sam- félag heilagra. Og hann tók heils- hugar undir lofgjörðina um dásemd þess að dvelja ^,í Drott- ins bræðra sveit. Því yndi verður aldrei lýst, það aðeins reyndur veit“. Slíkra manna, sem Reynis, er gott og hollt að minnast. Upp í hugann koma mörg orð úr Guðs heilaga Orði, sem eiga vel við í þessu sambandi: Hann varglaður í trúnni og ljúflyndi hans var kunnugt öllum þeim sem hann þekktu. Að leiðarlokum séu hon- um færðar þakkir fyrir fórnfúst starf í ríki Drottins. Guðrúnu, Jónínu og Þorsteini svo og öðrum ástvinum, sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum þeim Guðs blessunar. Að lokum skal vitnað í fjórða kafla síðara Tímóteusarbréfs: Þú hefir barist góðu baráttunni, hef- ir fullnað skeiðið, hefir varðveitt trúna. Og nú er þér geymdur sveigur réttlætisins, sem Drottinn mun gefa þér á þeim degi, hann hinn réttláti dómari, en ekki ein- ungis þér heldur og öllum, sem elskað hafa opinberun hans. Minning: Ý Reynir Þ. Hörgdal Fæddur 6. september 1912 - Dáinn 6. apríl 1989 Kveðja frá KFUM og Gídeon-félaginu á Akureyri

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.