Dagur - 14.04.1989, Blaðsíða 16

Dagur - 14.04.1989, Blaðsíða 16
Akureyri, föstudagur 14. apríl 1989 Bifreiðaskoðun íslands hf. á Akureyri: Bifreiða- skoðun í fullum gangi - nú er skoðunargjald greitt á skoðunarstað Aöalskoöun bifreiða er nú í fullum gangi á Akureyri og hefur reyndar staðið yfir frá áramótum. Mikið hefur verið rætt og ritað um málefni Bif- reiðaskoðunar íslands hf., eftir að fyrirtækið tók yfir rekstur Bifreiðaeftirlits ríkisins og Ijóst er að margir bíleigendur eru ekki alveg með það á hreinu hvernig kerfíð virkar eftir þær breytingar. Sjálfar breytingarnar eru í sjálfu sér ekki miklar né flóknar. Aðalskoðun núna ræðst af aftasta tölustaf á skráningarnúmeri því sem er á ökutækinu, hvort heldur er gamla gerðin eða nýja fasta- númerið. Okutæki með tölustaf- inn 1 í enda númers átti að mæta til skoðunar í janúar, ökutæki með tölustafinn 2 í enda númers í febrúar o.s.fv. A-50 á t.d. að mæta til skoðunar í október en LA-256 í júní. Þegar mætt er til skoðunar, þarf að framvísa kvittunum fyrir því að bifreiðagjöld séu greidd, ábyrgðartrygging sé í gildi en athygli er vakin á því að skoðun- argjald er greitt á skoðunarstað, um leið og ökutækið er skoðað. Skoðunargjald fyrir ökutæki und- ir 5 tonnum í heildarþyngd er kr. 1900.-, en kr. 3800,- fyrir öku- tæki þar fyrir ofan. Bifreiðaskoðun íslands hf. á Akureyri er til húsa í suðurenda lögreglustöðvarinnar við Pórunn- arstræti, eða þar sem Bifreiðaeft- irlitið var áður til húsa. Bifreiða- skoðunarmenn vilja hvetja öku- menn til þess að koma með tæki sín til skoðunar og segja að betra sé að koma of snemma en of seint. -KK Haldið veisluna eða fundinn í elsta húsi bæjarins Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★ ★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★ Fundi og hvers konar móttökur. Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818. Skáld á Mývatni með pennann í annarri hendi og dorgina í hinni, Eyvindur Erlendsson og Þorgrímur Starri Björg- vinsson semja atriði í sjónlcikinn Fundur í hjónabasnefnd um leið og þeir sitja yfir dorgunum. Sjónlcikurinn verður frumsýndur í Skjólbrekku annað kvöld. Mynd: ef Akureyri: Lélegt heilsu- far í mars Heilsufar var með lélegasta móti á svæði Heilsugæslu- stöðvarinnar á Akureyri í mars ef marka má skýrlu um smit- sjúkdóma fyrir mánuðinn. In- flúensan Iét loks rækilega til sín taka og eru 222 slík tilfelli skráð í mars á móti einu í febrúar. Þá voru einnig mjög margir, eða 284 með kvef og sem afleiðing af þessu hvoru tveggja, einkum flensunni, hafa óvenju margir fengið lungnabólgu eða 27 manns. Af öðrum skyldum sjúkdóm- um má nefna að 11 fengu streptó- kokkahálsbólgu og 3 ejtlafár. Hlaupabóla er alltaf að stinga sér niður og sýktust 20 manns af henni á meðan 2 fengu hettusótt. Magakveisa virðist vera land- lægur kvilli á öllum árstímum, 35 manns þjáðust hennar vegna í mánuðinum, 3 fengu kláðamaur, 4 flatlús, 1 lekanda og 4 þvagrás- arbólgu. VG Norðurland vestra: Búíjártalning hófst í Skagafirði í dag - talning gengur vel í Húnaþingi nu hafín í og Skaga- Búfjártalning er Húnavatnssýslum fjarðarsýslu. Hún hófst Húnaþingi sl. mánudag en hefst í Skagafíröi í dag. Hreppstjórar og forðagæslu- menn viðkomandi hreppa sjá um talninguna, og einnig telur lögreglan í þéttbýli og í þeim hreppum sem þess er óskað. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi liefur talning gengið mjög vel og stefnt að því að klára hana í næstu viku. Auk þess að telja í þéttbýli fer lögreglan á Sauðárkróki í tvo hreppa, ásamt forðagæslumönn- um viðkomandi hreppa, eða í Hofshrepp og Lýtingsstaða- hrepp. Samkvæmt skipun Búnað- arfélags íslands verður byrjað á að tclja hesta, kindur og kýr, en ekki hefur verið ákveðið hvernig talning á öðru búfé fer fram, s.s. á loðdýrum og hænsnunr. Uppi eru efasemdir hjá bænd- um og forðagæslumönnum um gagnsemi þessarar talningar. Þeir telja að það séu að verða allra síð- ustu forvöð að telja, þar sem búfé sé farið að leita til fjalla og eigi ekki í erfiðleikum með það, þar sem girðingar séu enn á kafi í fönn. Þá telja menn að talningin Heildarvelta ÚKED rétt rúmur milljarður á árinu 1988: Reksturiiin itndir núfiinu - en hagnaður af rekstri frystihússins og bílaverkstæðis Það sem einkenndi rekstur Dalvíkurdeildar Kaupfélags Eyfírðinga á liðnu ári var sam- dráttur. Afkoman var, þegar á heildina er litið, undir núllinu. Þrátt fyrir það var ekki allur rekstur deildarinnar rekinn með tapi. Bæði frystihús og bflaverkstæði komu út með hagnaði en rekstur Svarfdæla- búðar gekk að sama skapi ekki vel. Þar jókst launakostnaður langt umfram aukningu í veltu. Heildarvelta ÚKED var rétt rúmur einn milljarður króna og beinar launagreiðslur námu 200 milljónum króna. Þar af var launahlutur sjávarútvegssviðs 125 milljónir króna. Aukning í veltu frá fyrra ári var 26,2%. Mest var aukningin á sjávarút- vegssviði 35,3%, ekki síst vegna tilkomu togskipsins Baldurs EA- 108, sem Kaupfélagið keypti á árinu fyrir 87 milljónir króna. Veltuaukningin í verslun milli ára var mun minni eða 17.7%, sem er nokkru undir verðbólgu- stigi ársins. Þar hækkuðu laun hins vegar um 32,4% frá fyrra ári. Bílaverkstæði skilaði 33% aukningu miðað við árið 1987. Mikill afli kom inn í fiskverk- unina á sl. ári, eða um 300 tonn- um meira en árið 1987. Þarræður mestu um tilkoma Baldurs. Heildaraflinn var 7000 tonn og fór hann í frystingu, söltun og herðingu. Að sögn Rögnvaldar Skíða Friðbjörnssonar, útibús- stjóra ÚKED, var liðið ár með þeim hagstæðari hvað varðar dreifingu afla til vinnslunnar yfir allt árið. Athyglisvert er að birgðir sjáv- arafurða jukust verulega hjá ÚKED á síðasta ári, sem helg- ast af sölutregðu á erlendum mörkuðum. Af þessu leiðir að afurðalán voru 25 milljónum hærri á árinu 1988 en 1987. Best gekk með sölu á saltfiski en hins vegar gekk erfiðlega að selja smáskreið (svokallaða Ítalíu- skreið). Enn er umtalsvert magn í birgðum af þessari stærðarteg- und skreiðar hjá ÚKED. Skuldir viðskiptamanna hækk- uðu um 21% á árinu og innlán minnkuðu um 20%. Því seig nokkuð á ógæfuhliðina með greiðslustöðu. Ekki hefur verið gengið frá uppgjöri Söltunarfélags Dalvík- ur, en þar á Kaupfélag Eyfirð- inga 63% hlut á móti Dalvíkur- bæ. Samkvæmt uppgjöri fyrstu 6 mánaða síðasta árs var tapið 3-4 milljónir og er reiknað með að sú mínustala eigi eftir að hækka nokkuð. óþh gagnist lítið ef markmið hennar sé að komast að því hversu mikið af kjöti sé selt framhjá kerfinu, t.d. vegna heimaslátrunar, því talningin segði ekkert til um fjölda sláturgripa næsta haust vegna misjafnrar frjósemi á búunuin o.fl. -bjb Atvinnuleysi í mars: Aldrei jafii mikið síðan skráning hófst Atvinnuleysisdagar á Islandi síðasta mánuði hafa ekki verið jafn margir síðan skráning atvinnuleysisdaga hófst árið 1975. Svarar fjöldi atvinnu- leysisdaga til þess að 2% af áætluðum mannafla á vinnu- markaði hafí verið atvinnu- laus. Til samanburðar má nefna meðaltal fyrsta ársfjórð- ungs síðustu 3ja ára sem sýnir um 1% atvinnuleysi og er það því helmingi meira nú. Þetta gerist á sama tíma og sjávarafli er víðast hvar á landinu meiri en t.d. á sama tíma í fyrra. Gefur það til kynna að atvinnu- leysið nú sé af öðrum toga spunn- ið en venjulega á þessum árstíma og sýnir fjölgun atvinnuleysis- daga á höfuðborgarsvæðinu sam- drátt í þjónustugreinum en sömu þróunar gætir víða á landsbyggð- inni. Ef litið er á einstök lands- svæði kemur í ljós, að atvinnu- leysisdögum fækkaði á Norður- landi eystra á meðan þeim fjölg- aði á Norðurlandi vestra. Mest bar á fjölgun á Akureyri, Kópa- skeri og Raufarhöfn, á meðan atvinnuleysisdögum fækkaði á Sauðárkróki, í Siglufirði, á Drangsnesi, í Hólmavík og Seyluhreppi. VG Veðurspámenn boða Mar breytingar Veðurstofa íslands er lokuð að mestu þessa verkfallsdaga. Hér á landi fínnast þó enn veðurglöggir menn og leitaði blaðamaður álits eins þeirra á veðurhorfunum. „Það er slæmt að ekki skuli geta hlýnað meira. Ég sé ekki fram á neina verulega breytingu næsta hálfan mánuðinn á Norð- urlandi,“ sagði sá veðurglöggi, og minnti á að oft hefðu komið meiri snjóavetur en sá sem nú er að líða. Um veðurútlitið lengra fram á vorið sagði hann að erfitt væri að spá um það. Eftir öðrum spámanni er haft að ekki hlýni verulega á Norður- landi fyrr en í fjórðu viku maí- mánaðar. EHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.