Dagur - 17.05.1989, Side 3
Miðvikudagur 17. maí 1989 - DAGUR - 3
NÚ ER HANN TVÖFALDUR
Heildarvinningsupphæð var kr. 5.163.654.- 1. vinningur var kr. 2.380.521.-
Enginn þáttakandi var með fimm tölur réttar og bætist því 1. vinningur við 1. vinning á
laugardaginn kemur.
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 412.888,-
Skiptist á 7 vinningshafa og fær hver þeirra kr. 58.984,-
Fjórar tölur réttar, kr. 712.209,- skiptast á 129 vinningshafa, kr. 5.521.- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 1.658.036,- skiptast á 5.086 vinningshafa, kr. 326.- á mann.
Sölustaðir eru opnir frá mánud. til laugard. og er lokað 15 mín. fyrir útdrátt.
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.
Aðalfundur Kaupfélags Vopnfirðinga:.
31 milljón í mínus
- athyglisvert að hagnaður varð
af verslunarrekstri
Halli á rekstri Kaupfélags
Vopnfírðinga á síðasta ári nam
31 milljón króna. Hallinn varð
hins vegar 9 milljónir árið
1987. Þetta kom fram á aðal-
fundi Kaupfélagsins sl. laugar-
dag. Að sögn Magnúsar Jónas-
sonar fulltrúa, vegur hár
fjármagnskostnaður þyngst í
slæmri afkomu á sl. ári.
.Ilrjálæðislegir vextir eru að
gera út af við atvinnustarfsemi
í landinu,“ segir Magnús.
Heildarvelta Kaupfélagsins var
tæpar 400 milljónir á árinu 1988
og hafði hún aukist í samræmi við
verðlagsbreytingar milli ára.
Þrátt fyrir rúmra 30 milljóna
króna tap náðist hagnaður af
sumurn þáttum rekstrarins.
Þannig var verslunin rekin réttu
megin við núllið og það sama má
segja um skipaafgreiðslu. Hins
vegar varð verulegt tap á mjólk-
ursamlagi. Innvegin mjólk er þar
um 600 þúsund lítrar frá 12 inn-
leggjendum. Langstærstur hluti
mjólkurinnar fer til vinnslu
nýmjólkur en afgangsmjólkin er
unnin í smjör, en sú vinnsla er
einkar óhagstæð.
Að sögn Magnúsar er stjórn
Kaupfélagsins, í ljósi framkom-
ins reikningsyfirlits fyrir síðasta
ár, að kanna möguleika á sölu
eigna og rekstrarhagræðingu.
Magnús segir að í raun komi ekki
nema tvennt til greina í stöðunni,
annaðhvort að selja eignir eða
reyna að auka tekjur. Ákvörðun
urn þetta verður væntanlega tek-
in næstu daga.
Magnús segir að óneitanlega
hafi rekstur Kaupfélagsins gengið
betur það sem af er þessu ári en á
sl. ári. Fjármagnskostnaður hef-
ur lækkað en „hann er ennþá allt-
of hár.“
Að undanförnu hefur verið
rætt um uppstokkun á slátrun á
Norðausturlandi. Vopnafjörður
er inni í því dæmi og er um það
rætt að sláturhúsið þar verði úrelt
og fé flutt til slátrunar í sláturhús
á Pórshöfn. Magnús segir að
þessi mál hafi vissulega verið
rædd á aðalfundinum og fram
hafi komið að menn skilji vel
þörfina á hagræðingu í slátrun en
hins vegar séu menn ekki sáttir
við þessa lausn. „Það er augljóst
að með úreldingu sláturhússins
hér tapast vinna og tekjur úr
byggðarlaginu og þá er það auð-
vitað slæmt að þurfa að flytja
sláturfé um langan veg til Þórs-
hafnar," segir Magnús Jónasson.
Jörundur Ragnarsson, kaupfé-
lagsstjóri, lætur af því starfi í
sumar og tekur við stjórnartaum-
unum hjá Kaupfélagi Héraðsbúa
á Egilsstöðum. Þórður Pálsson
bóndi Refsstað í Vopnafirði, hef-
ur verið ráðinn kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Vopnfirðinga. óþh
Fréttatilkynning frá skólameistara M.A.:
Áætlanir skóla-
meistara um skólalok
Menntamálaráðherra hefur í
dag selt einstökum skólum sjálf-
dæmi um hvernig skólaárinu
1988-1989 verði lokið. Ég tel mér
skylt að tilkynna uni áætlanir
mínar uni skólalokin til þess að
reyna að draga úr óvissu nem-
enda og aðstandenda þeirra. Ég
legg áherslu á að allar ákvarðan-
ir, sem varða kennslu og
námsmat, eru háðar samþykki
kennara.
1. Ef verkfall kennara leysist um
hvítasunnuhelgi er stefnt að
því að kenna fyrstu tvær vik-
urnar eftir að verkfall leysist. í
1.-3. bekk verður prófað í
völdum áföngum í vikunni 29.
maí til 3. júní. Öðrum áföng-
um verður lokið með próf-
haldi í lok september áður en
nýtt skólaár hefst. Prófað
verður í 4. bekk og öldunga-
deild 5.-14. júní og brautskráð
17. júní.
Ef verkfall lcysist á tímabilinu
16.-21. maí verður kennt til 3.
júní í 1.-3. bekk en engin próf
haldin að sinni. Prófað verður
í vorannaráföngum í septem-
ber áður cn nýtt skólaár hefst.
Prófað verður í 4. bekk og
öldungadeild 5.-14. júní og
brautskráð 17. júní.
Ef verkfall leysist síðar en 21.
maí verður hvorki kennt né
prófað í 1.-3. bekk. Prófað
verður í vorannaráföngum í
september áður en nýtt skóla-
ár hefst. Skólaslit verða 17.
júní þar sem stúdentsefni fá
vottorð um skólavist sína í
Menntaskólanum á Akureyri.
Menntaskólanum á Akureyri
12. maí, 1989.
Jóhann Sigurjónsson,
skólameistari.
Frá afhendingu vcrðlaunaskjaldarins til Skjaldar hf. á Sauðárkróki. Á myndinni eru, frá vinstri: Anna Guðbrands-
dóttir gæðaeftirlitsmaður á Skildi; Óskar Hermannsson og Björn Friðbjörnsson gæðaeftirlitsmenn hjá SH; Katrín
Jóclsdóttir gæðaeftirlitsmaður og aðstoðarverkstjóri á Skildi; Jón Þorsteinsson verkstjóri á Skildi með verðlauna-
skjöldinn; Páll Pétursson gæðastjóri Coldwater; og Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri Skjaldar hf. Við
afhendingu verðlaunaskjaldarins var cinnig viðstaddur Sturlaugur Daðason framkvæmdastjóri eftirlitsdeildar SH.
Mynd: -bjb
Hraðfrystihúsið Skjöldur hf. á Sauðárkróki:
Fékk þríðja verðlauna-
skjöldiiin á fiórum árum
Hraðfrystihúsinu Skildi hfi ■ á'
Sauðárkróki var sl. föstudag
afhentur verðlaunaskjöldur frá
Coldwater Seafood Corp. fyrir
framúrskarandi framleiðslu á
síðasta ári. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem Skjöldur fær
slíka viðurkenningu, frystihús-
ið hefur tvisvar áður fengið
verðlaunaskjöld og í fyrra fékk
Skjöldur viðurkenningarskjal.
Það eru frystihús innan Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna
sem fá verðlaun af þessu tagi.
Að þessu sinni voru það, 4
frystihús og einn frystitogari
sem fengu verðlaunaskjöld.
Sex frystihús og þrír frysti-
togarar fengu viðurkenning-
arskjal.
-Pað var Páll Pétursson gæða-
stjóri hjá Coldwater, sem afhenti
Jóni Þorsteinssyni, verkstjóra á
Skildi, verðlaunaskjöldin. Jón
þakkaði fyrir skjöldinn og sagði
að hann væri enn ein viðurkenn-
ingin til handa starfsfólki
Skjaldar. Jón vildi ítreka fyrr-
sögð orð Páls, um að hver starfs-
maður væri gæðaeftirlitsmaður í
fyrirtækinu, hvert eitt gallað fisk-
flak sem færi frá frystihúsinu,
væri einu flaki of mikið.
Hin frystihúsin þrjú sem fengu
skjöld voru Grandi hf. í Reykja-
v'ík', Hráðfrystihús Eskifjarðar og
Fiskiðja Raufarhafnar. Þá fékk
Sléttbakur EA, verðlaunaskjöld
úr hópi frystitogara. Af 6 frysti-
húsum sem fengu viðurkenningu
voru tvö af Norðurlandi; Útgerð-
arfélag Akureyringa og Þormóð-
ur rammi á Siglufirði. Af þrem
frystitogurum fengu tveir ólfirsk-
ir togarar viðurkenningu, Sigur-
björg ÓF og Mánaberg ÓF.
Að sögn Páls Péturssonar
gæðastjóra, eru viðurkenning-
arnar miðaðar við landsfjórð-
unga. Hámark sex frystihús fá
verðlaunaskjöld, sem skila 95-
100% gæðurn, en að þessu sinni
fannst SH aðeins 4 frystihús eiga
skilið að fá skjöld. Viss fjöldi
húsa og skipa fá svo viðurkenn-
ingu, sem er það næstbesta ef svo
má segja. Sá tími sem Coldwater
hafði til viðmiðunar þegar verð-
launum var úthlutað, var frá 1.
maí 1988 til 30. apríl 1989. -bjb
Stutt í ferðamannastrauminn:
Fyrsta skemmtiferðaskipið
væntanlegt í byrjun júní
Alls tíu skemmtiferðaskip
munu koma til Akureyrar í
sumar í samtals 19 ferðum á
tímabflinu frá 8. júní til 7.
ágúst. Skipin hafa að venju
stutta viðdvöl á Akureyri en
þar koma farþegar til með að
stíga um borð í langferðabíla
sem flytja þá í Mývatnssveit.
Þaðan er haldið til Húsavíkur
þar sem skipin bíða ferðalang-
anna.
Fyrsta skip sumarsins verður
Fedor Dostojewski, en það skip
hefur ekki komið áður. Áætlaður
komutími þess er kl. 14.00 8.
júní, en seinni viðdvöl þess á
Akureyri verður mánuði síðar.
Tvö önnur skip sem væntanleg
eru í sumar hafa ekki komið
áður, Leonid Brezhnef sem kem-
ur 9. júní og Vasco Da Gama
sem kemur sama dag, auk þess
sem það kemur 26. júní, 14. júlí
og 31. júlí.
Af öðrum kunnuglegum
skemmtiferðaskipum er það að
segja, að Kazakhstan kemur 14. I 7. ágúst, Odessa 8. júlí, Europa
og 30. júní og 16. júlí, Maxim 10. júlí, Arkona 14. júlí, Berlín
Gorkiy 17. júní, 4. og 21. júlí og | 15. júlí og Funchal 17. júlí. VG