Dagur - 17.05.1989, Page 6
e^-ö^uW- #&toúcfagUT
Mynd: Golli
Mynd’. Golli
Mynd: KL
Mynd: KL
Mynd: Golli
Á nemendasýningu hjá
Dansstúdíói Alice
Nemendasýning hjá Dansstúd-
íói Alice fór fram í íþrótta-
höllinni á Akureyri um hvíta-
sunnuhelgina og tóku á milli
160 og 170 nemendur á aldrin-
um frá fjögurra ára og uppúr
þátt í henni. Sýningin tókst
mjög vel og komu um 500-600
manns að horfa á sýninguna.
Nemendasýningar eru haldnar
tvisvar á ári hjá Dansstúdíói
Alice, einu sinni fyrir jól og síðan
á vorin. í gegnum árin hafa sýn-
ingarnar sífellt orðið meiri um sig
og í þetta skipti dugði ekkert
annað en sjálf íþróttahöllin á
Akureyri fyrir herlegheitin. Á
vorsýningunni um helgina báru
búningar barnanna merki vor-
komunnar og bar t.d. mikið á
rósóttum pilsum sem lífguðu upp
á veðurfarið utanhúss.
Helga Alice Jóhanns dans-
kennari segir sýningar sem þessar
mjög hvetjandi fyrir börnin því
gott sé að hafa eitthvað þessu líkt
að stefna að á námskeiðunum.
„Auðvitað eru þau yngstu dálítið
taugaspennt þegar kemur að
þeim og þau eiga það til að
„frjósa" greyin litlu, en þau hafa
afskaplega gaman að þessu. Sýn-
ingarnar eru sömuleiðis mjög
góðar fyrir okkur kennarana því
við sjáum þarna greinilegar fram-
farir milli námskeiða."
Hér á síðunni má líta myndir
sem teknar voru á sýningunni um
helgina, en þær tala best sínu
mali
VG
Tónlistarskólinn á Akureyri:
Lokatónleikar
og skólaslit
Tónlistarskólinn á Akureyri
efnir til tvennra tónlcika í vik-
unni, nemendatónleika í Ak-
ureyrarkirkju og píanótónleika
í sal skólans. Skólanum verður
slitiö í Akureyrarkirkju laugar-
daginn 20. maí.
I dag, miðvikudag, verða nem-
endatónleikar í Akureyrarkirkju
og hefjast þeir klukkan 20.30.
Nemendur flytja verk eftir Bach,
Bartok, Brahms, Dowland,
Haydn, Mendelsohn, Mozart,
Nigel Lillicrap, Paganini, Ponce,
Reger, Telemann, Vivaldi og
Wood. Leikið verður á básúnur,
blokkflautu, fiðlur, gítar, orgel
selló og túbur. Eitt verk verður
flutt af einsögvara, strengjum og
orgeli. Tveir strengjakvartettar
leika og ein af strengjasveitum
skólans flytur verk sem Nigel
Lillicrap, kennari við skólann,
samdi sérstaklega fyrir hljóm-
sveitina. Aðgangur er ókeypis.
Píanótónleikar verða haldnir í
sal skólans fimmtudaginn 18. maí
klukkan 20.30.
Við skólaslit Tónlistarskólans
á Akureyri laugardaginn 20. maí
í Akureyrarkirkju klukkan 17.00,
fer fram afhending einkunna og
verðlauna. Vandað verður til
tónlistarflutnings og eru bæði
nemendur og áhugafólk hvatt til
að mæta.
Lokatónleikar Tónlistarskólans á Akureyri verða í vikunni og skólanum verður slitið á hefðbundinn hátt í Akureyr-
arkirkju. A myndinni sést Finnur Eydal leiðbeina einum nemenda sinna í saxófónleik.