Dagur - 17.05.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 17. maí 1989
íþróttir
Milun Duricic þjálfari Þórs.
,Spila með
hjartanu“
- segir Duricic um
Milan Duricic er þjálfari Þórs-
liðsins í knattspyrnu. Hann er
44 ára gamall og þjálfaði lið
Osjiek í 2. deildinni í Júgóslavíu
áður en hann kom til Islands.
Milan er fyrrverandi atvinnu-
maður í knattspyrnu, en hefur
starfað að þjálfun í 14 ár.
Hann er þokkalega bjartsýnn á
tímabilið fyrir hönd sinna
manna: „Það hafa orðið miklar
breytingar á Þórsliðinu frá síð-
asta tímabili og það er alltaf erfitt
að byrja með nýjan mannskap.
En strákarnir hjá Þór eru áhuga-
samir og hafa lagt mikið á sig í
sambandi við æfingar þannig að
ég er þokkalega bjartsýnn fyrir
sumarið,“ sagði Milan í samtali
við Dag.
- Nú hafa margir haft á orði
að miðjumennirnir fái lítið að
vera inni í spilinu í leiknum, þ.e.
að varnarmennirnir kýli strax
fram á sóknarmennina. Er þetta
leikskipulag sem þú hefur fyrir-
skipað og verður farið eftir því í
allt sumar?
Duricic hugsaði sig örlítið um:
„Mér fannst strax í byrjun að
leikmenn væru of seinir að koma
boltanum í sókn. Ég hef því lagt
upp við rnína leikmenn að koma
boltanum eins fljótt og mögulegt
er yfir á vallarhelming andstæð-
inganna. Eins og skilyrðin hafa
verið í vetur þá er mjög erfitt að
spila netta knattspyrnu í gegnum
miðjuna og til sóknarmannanna.
Við höfum því frekar reynt að
koma boltanum fram og sækja
þar að andstæðingunum með
bæði sóknar- og miðjumönnun-
um.
Þór er með fljóta og haröa-
skeytta framlínumenn og miðju-
mennirnir eru baráttujaxlar en
ekki með mikla reynslu í 1. deild-
arknattspyrnu. Þegar aðstæðurn-
ar eru þannig þá borgar sig ekki
að leggja of mikið upp úr áferða-
fallegri knattspyrnu, heldur spila
upp á öryggið því þegar upp er
staðið eru það úrslitin sem ráða
en ekki áferðin."
- Hvar stendur Þór miðað við
önnur 1. deildarlið?
„Eins og ég sagði áður þá held
ég að liðið eigi alveg eftir að
spjara sig í sumar. Að vísu hef ég
ekki séð öll 1. deildarliðin spila
og því erfitt fyrir mig að bera þau
saman við Þórsarana. Það hafa
orðið miklar breytingar á liðinu
frá því í fyrra og það tekur alltaf
sinn tíma að berja saman nýtt lið.
Hins vegar hafa strákarnir æft vel
og ég er ánægður með þann
áhuga sem þeir sýna á að standa
sig vel. Þess vegna er ég þokka-
lega bjartsýnn fyrir sumarið,“
íslenska leikmenn
sagði Milan.
- Ef þú berð saman leikmenn
frá heimalandi þínu Júgóslavíu
og svo frá íslandi, hver er munur-
inn?
Nú hýrnaði yfir þjálfaranum:
„íslenskir leikmenn spila með
hjartanu," sagði hann og bankaði
vinstra megin á brjóstkassann á
sér. „Þeir eru mjög duglegir,
ástundarsamir, metnaðargjarnir
og spila fyrir liðsheildina en vant-
ar meiri tækni. Júgóslavar hins
vegar spila fyrir sjálfan sig, eru
latir og taka lítið tillit til félaga
sinna. Að vísu er tæknin yfirleitt
betri hjá leikmönnum heima en
það er mun skemmtilegra að
starfa með áhugamönnum með
hjarta en eigingjörnum atvinnu-
mönnum," bætti hann við ákveð-
inn á svip.
- Ef við höldum okkur við
Júgóslavíu. Hverjar eru vin-
sælustu íþróttagreinarnar þar í
landi?
„Knattspyrnan er vinsælasta
íþróttagreinin í landinu. Körfu-
knattleikur kemur þar á eftir og
er mikið stundaður um allt land.
Þrátt fyrir að Júgóslavar hafi ver-
ið heimsmeistarar í handknatt-
leik er sú íþrótt einungis sú þriðja
vinsælasta í landinu. Sundknatt-
leikur er líklegast fjórða vin-
sælasta íþróttagreinin og hefur
verið að sækja í sig veðrið á
undanförnum árum.“
- Nú ert þú búinn að vera hér í
nokkra mánuði. Er eitthvað sem
hefur komið þér á óvart á íslandi?
„Ætli það sé ekki helst fólkið.
Þegar ég fékk tilboð frá íslandi
gerði maður ráð fyrir að hér
byggi harðgert og kalt fólk. En
raunin hefur verið önnur. Að
vísu eru íslendingar harðgerðir
en mjög vingjarnlegir og allir
hafa verið boðnir og búnir að
greiða götu manns í hvívetna.
Lífskjörin eru mjög há hér á
landi en íslendingar vinna líka
mikið til þess að ná þeim gæðum.
Þrátt fyrir mikla vinnu þá virðist
fólk yfirleitt vera ánægt með lífið
og ég hef því kunnað mjög vel
við mig hér á landi.
Það hefur einnig vakið athygli
mína, nú eftir að snjóa tók að
leysa, hve margir krakkar eru að
leika sér í fótbolta út um allt. Ég
hef lagt það í vana minn að ganga
um bæinn og hvar sem auðan
blett er að finna þá eru strákarn-
ir, og jafnvel nokkrar stelpur,
mætt til þess að sparka tuðru.
Þetta er frábært því þannig eign-
ist þið góða knattspyrnumenn,"
sagði Milan Duricic þjálfari Þórs-
liðsins í knattspyrnu.
Knattspyrnuvertíðin hefst með keppni í 1. deild karla um næstu helgi.
Þórsarar leika fyrst heima við Víking á sunnudaginn kl. 14.00 á Þórs-
vellinum. Það er því vel viðeigandi að við hefjum kynninguna á lið-
unum af Norðurlandi í 1. og 2. deild á Þórspiltunum.
Tölurnar á eftir aldri leikmanna þýða leikir í 1. deild og mörk skoruð.
Jóhanncs Ófeigsson 24 ára 0/0
Júlíus Tryggvason 23 ára 81/7
Kjartan Guðmundsson 18 ára 0/0
Valdimar Pálsson 21 árs 19/2
Þorsteinn Jónsson 19 ára 0/0
Þórir Áskelsson 18 ára 0/0