Dagur - 17.05.1989, Side 11
^lkúdágíir Wrtái^Öé' - ÓÁGÍM - lt
hér & þar
Bill Cosby: „Lísa fær ekki fleiri til-
boð frá mér.“
Svekktur
f\TÍr-
myndarfaðir
Það ku ekki vera mjög kært með
þeim Lísu Bonet og Bill Cosby
um þessar mundir, en eins og
alþjóð veit leika þau feðgin í
þáttaröðinni um Fyrirmyndar-
föðurinn. Lísa Bonet hefur nú í
tvígang hafnað tilboði Cosbys um
að koma fram í einni þeirra
þriggja þáttaraða, sem Cosby
stendur að. Lísa neitar að tala við
Cosby og móðgar hann jafnvel
með því að senda honum skila-
boð um að hann geti bara talað
við umboðsmanninn hennar!
Bill Cosby gaf Lísu Bonet
tækifæri á að koma aftur í „Vista-
skipti“ eða „Fyrirmyndarföður“
ellegar þá hún fengi nýjan þátt.
Hún þakkaði fyrir sig með því að
virða Cosby ekki viðlits. Sagan
segir að Bill Cosby sé ofsareiður
þessa dagana.
„Ég þekki engan í Hollywood
sem tæki ekki símtal frá Bill
Cosby, enda er hann einn valda-
mesti maðurinn í sjónvarpsheim-
inum vestra,“ segir vinur hans.
„En nú hefur hann verið hunsað-
ur af Lísu Bonet, ungum leikara
sem á honum velgengni sína
beinlínis að þakka. Hún er ótrú-
lega ósvífin og vanþakklát,
stelpan!“
Lísa Bonet segist vera svo
upptekin við að sinna nýfæddu
barni sínu að hún hafi ekki tíma
til að gera sjónvarpsþáttaröð.
Þeir sem eru nákomnir Lísu segja
að þetta sé bara fyrirsláttur; stolt
hennar sé sært vegna þess að
„Vistaskipti“ gengur vel án
hennar. „Lísa bjóst við því að
þátturinn hyrfi af sjónarsviðinu
þegar hún fór í barr.eignarleyfi,"
sagði heimildarmaður. „Hún
varð bæði niðurdregin og særð
þegar „Vistaskipti“ gekk jafnvel,
ef ekki betur eftir að hún fór og
ekki bætti úr skák að gagnrýn-
endur sögðu að þátturinn væri
betri án hennar.“ Þeir sem vinna
að þáttunum segjast ánægðari án
Lísu. Þeir voru óánægðir með
viðhorf Lísu því hún átti í sífelld-
um deilum við samstarfsfólk sitt
og gerði kröfur um breytingar
þegar henni sýndist svo. Hún
vildi ekki og vill ekki deila sviðs-
ljósinu með neinum.
Þrátt fyrir allt þetta bauð Bill
Cosby Lísu að leika á ný í „Vista-
skiptum“ og hann bauð henni
líka að koma aftur í „Fyrirmynd-
arföður" ef hún vildi það frekar.
En Lísa neitaði. í fyrstu sagðist
hún aldrei ætla að leika aftur en
núna segist hún ætla gera það -
en bara í kvikmyndum. Cosby
kom þá fram með tilboð um nýja
þáttaröð, þar sem Lísa færi með
aðalhlutvekið. Þar átti hún að
leika einhleypan háskólanema
sem lauk ekki námi og er að
Unnið af Tryggva Jóhannssyni, Stóru-
tjarnaskóla, í starfskynningu.
reyna að koma undir sig fótunum
í hinu daglega lífi. Enn neitaði
Lísa og nú vill hún sem sagt ekki
einu sinni tala við Cosby í
síma . . .
Fyrirmyndarfaðirinn Bill
Cosby er svekktur: „Ég get ekki
gert meira en þetta. Ef Lísa vill
hafa þetta svona, þá verður þetta
svona!"
Lisa Bonet: Segist vera hætt að leika í sjónvarpsþáttum en langar að
verða kvikmyndastjarna.
Ályktun frá aðalfundi KÞ:
Stjómvöld átalin
fyrir seinagang
Á aðalfundi Kaupfélags Þing-
eyinga kom fram að launa-
greiðslur félagsins námu rúm-
lega 140 milljónum króna árið
1988 en fjármagnskostnaður
nam 165,6 milljónum. Ragnar
Jóh. Jónsson, Þorgrímur
Starri Björgvinsson, Eysteinn
Sigurðsson, Hlífar Karlsson og
Jón Heiðar Steinþórsson lögðu
fram á fundinum ályktun sem
samþykkt var samhljóða og er
hún á þessa leið:
„í ársreikningi Kaupfélags
Þingeyinga fyrir árið 1988 kemur
fram að vaxtagjöld, verðbætur og
gengismunur eru 165,6 milljónir
króna og er nú svo komið að
þessi kostnaðarliður er orðinn
hærri en launakostnaður félags-
ins.
Ljóst er að núverandi vaxta-
stig, samfara auknum samdrætti,
er að sliga grundvallaratvinnu-
reksturinn í landinu, sem og ann-
an rekstur, ekki síst þann er snýr
að vinnslu landbúnaðar- og sjáv-
arafurða og verslunarrekstri út
um hinar dreifðu byggðir
landsins. Þessari starfsemi hefur
alltaf fylgt birgðahald, með til-
heyrandi vaxtabyrði á hverjum
tíma og kemur til með að fylgja
henni um ókomna framtíð eigi
hún að sinna hlutverki sínu.
Aðalfundur Kaupfélags Þing-
eyinga haldinn á Húsavík
fimmtudaginn 4. maí 1989, átelur
seinagang stjórnvalda við fram-
kvæmd þeirrar yfirlýstu stefnu að
lækka fjármagnskostnaðinn í
landinu.
Einnig minnir fundurinn á þá
stefnu og fyrirheit ríkistjórnar-
innar að koma dreifbýlisverslun-
inni til aðstoðar, en enn hefur
ekkert orðið af efndum þessa
fyrirheits.
Ef fram heldur sem horfir mun
rekstur þeirra fyrirtækja sem
slíkan rekstur stunda, sjálfkrafa
sigla í strand og lýsir fundurinn
ábyrgð á hendur stjórnvöldum ef
ekki verður gripið þegar til
aðgerða til að ná niður vaxtastig-
inu. Þar sem almennar aðgerðir
hafa ekki dugað, leggur fundur-
inn áherslu á þá skoðun sína að
stjórnvöldum beri skylda til að
grípa inn í vaxtaákvörðun með
beinum aðgerðum.“ 1M
Eld ridansakl úbbu ri nn
Dansleikur í Lóni, Hrísalundi 1,
laugardaginn 20. maí kl. 22-03.
Hljómsveit Bigga Mar. sér um fjöri<*
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Æ Karlakórinn Geysir
auglýsir
Vegna óviöráðanlegra atvika hefur oröiö aö fresta
fyrirhuguöum samsöng kórsins í Akureyrarkirkju 18.
og 19. maí nk.
Ákveðiö er aö samsöngur kórsins fari fram í íþrótta-
skemmunni á Oddeyri föstudaginn 26. maí nk. kl.
20.30.
Stjórnin.
Spennum bejtin
ALLTAF
- ekki stundum
P V_
IÍrS®0*"
Akureyringar
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
Áskriftar*SST 96-24222
í