Dagur - 17.05.1989, Qupperneq 13
Til sölu fjórhjól, blátt Polaris Trail
boss í toppstandi, svo til ónotað.
Uppl. í síma 95-6665 á kvöldin og
um helgar.
Óska eftir að kaupa svart píanó.
Einnig til sölu á sama staö Yamaha
rafmagnsorgel, tveggja borða.
Uppl. í síma 25819 eftir kl. 19.00.
Til sölu 50 ha. IMT dráttarvél árg.
1988.
Mjög hagstætt verö.
Upplýsingar gefnar í Véladeild KEA
í síma 21400.
Eru húsgögnin í ólagi?
Tek að mér bólstrun og viðgerðir.
Áklæði og leðurlíki í miklu úrvali.
Látið fagmann vinna verkið.
K.B. bólstrun.
Norðurgötu 50, sími 21768.
Hey til sölu.
Verð 10 kr. kg. staðgreitt.
Uppl. I síma 26774.
Hestakerra til sölu.
Uppl. í síma 23650.
Til sölu Electrolux ísskápur, tví-
skiptur.
Einnig hjónarúm.
Uppl. í síma 22350 eftir kl. 18.00.
Afgreiðslustarf.
Vantar stúlku til afgreiðslustarfa
strax.
Um hlutastarf er að ræða.
Uppl. í Versluninni Esju en ekki í
síma.
Iðnfræðingur/rafvirki óskar eftir
vinnu í sumar.
Uppl. í síma (v.s.) 91-28144, (h.s.)
91-667409.
36 ára karlmaður óskar eftir
vinnu.
Hef meirapróf og rútupróf.
Get byrjað strax.
Allt kemur til greina.
Uppl. í síma 22961.
Fimmtudaginn 18. maí
11989 ki. 20.30 verður síð-
' asta spilakvöldið að svo
stöddu í Húsi aldraðra.
Allir velkomnir.
Aðgangur kr. 200.-
Fjölmennið - Góð verðlaun.
Spilanefndin.
Keppendur á reiðhjóladeginum, ásamt Sveinbirni Ragnarssyni lögreglu-
þjóni, og Steini Sigurðssyni, formanni Kiwanisklúbbsins Drangeyjar á Sauð-
árkróki.
Sauöarkrokur:
Árlegur reiðhjóla-
dagur Kiwanis
og lögreglu
- sigurverarinn
Hinn árlegi Reiðhjóladagur
Kiwanisklúbbsins Drangeyjar á
Sauðárkróki og lögreglu stað-
arins fór fram sl. laugardag.
Þrátt fyrir frekar slæmt veður
skráðu 17 keppendur sig til
leiks. Helmingur keppninnar
fór að vísu fram innanhúss, þar
sem keppt var í reiðhjólaþraut-
um í Iþróttahúsinu. Þaðan var
farið í góðakstur um götur
bæjarins. Keppt var í yngri og
eldri flokki.
Áður en keppnin byrjaði gátu
krakkarnir fengið reiðhjól sín
skoðuð, því ekki er síður mikil-
vægt að hjólin séu vel skoðuð
en stóru „blikkbeljurnar". í
íþróttahúsinu þurftu krakkarnir
að leysa hinar ýmsu þrautir á
hjólunum, og fórst þeim það
ágætlega úr hendi. Er þau höfðu
sveigt og beygt, bremsað og þeytt
hjólunum innan dyra var komið
að alvörunni, að hjóla á fjölförn-
um umferðargötum bæjarins.
Það gekk stóráfallalaust, þó
keppendur hafi kvartað undan
nokkrum tillitslausum bílstjór-
um.
Að keppni lokinni var komið
með 2 stig í plús
að því að reikna út stigin. Á með-
an þau voru talin saman, biðu
krakkarnir spennt eftir úrslitun-
um og fengu gos og með því, til
að draga úr eftirvæntingunni.
Úrslit urðu þau að í eldri
flokki sigraði Hólmar Sigmunds-
son all glæsilega, með ekkert
refsistig, en með 2 stig í plús, sem
þykir framúrskarandi árangur. í
öðru sæti var Gunnar Ingi Gunn-
arsson með 8 refsistig og þriðji
var Jónas Gunnarsson með 24
refsistig. í yngri flokknum var
keppni öllu jafnari, en hlutskarp-
astur varð Ragnar Már Magnús-
son með 14 refsistig, Hreiðar
Steinþórsson varð annar með 22
refsistig og Brynjar Gunnarsson
þriðji með 26 refsistig. Þess má
geta að brpnshafarnir í eldri og
yngri flokki eru bræður.
Það er orðin hefð fyrir þessari
keppni Kiwanismanna og lög-
reglu og voru þeir ánægðir með
framkvæmd þessa reiðhjóladags.
Það voru Kiwanismenn sem gáfu
verðlaun og meðlætið, gos og
súkkulaðikex, gáfu Vöruflutning-
ar Magnúsar Svavarssonar og
Umboðs- og heildverslunin Röst.
-bjb
Verðlaunahafar á reiðhjóladegi lögreglu og Kiwanismanna á Sauðárkróki. í
efri röð eru verðlaunahafar í eldri flokki, þeir Jónas Gunnarsson, Gunnar
Ingi Gunnarsson og Hólmar Sigmundsson. I neðri röð eru þeir sem urðu
fremstir í yngri flokknum, Brynjar Gunnarsson, Hreiðar Steinþórsson og
Ragnar Már Magnússon. Með strákunum á myndinni eru Sveinbjörn Ragn-
arsson, lögregluþjónn, og Steinn Sigurðsson, formaður Kiwanisklúbbsins
Drangey á Sauðárkróki. Myndír: -bjb
imi: BUrDACi - ií
Miðvikudagur 17. maí 1989 - DAGUR - 13
-----------------------------------
Videoleiga í fullum
rekstri til sölu
Upplýsingar í síma 22150 eftir kl. 16.00.
Verslunarhúsnæði
Óska eftir verslunarhúsnæði ca. 80-150 fm á
leigu sem allra fyrst.
Uppl. í símum 26524, 27770 og á kvöldin í síma 21171.
Blikkrás hf.
Aðalfundur
Aðalfundur Kirkjukórs Akureyrarkirkju verður
haldinn í kapellu kirkjunnar þriðjudagskvöldið
23. maí.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Sjómannadagurinn
1989
Þeir sem hafa hug á að taka þátt í kappróðri eða öðr-
um íþróttum á Sjómannadaginn þann 4. júní n.k. til-
kynni þátttöku til Baldvins eða Áka, Hafnarskrifstof-
unni í síma 26699.
Róðrarbátar Sjómannadagsráðs verða til afnota fyrir
keppnislið til æfinga í samráði við sömu aðila.
Vinsamlegast athugið að róðrarkeppnin fer
fram laugardaginn 3. júní og hefst kl. 15.00.
Sjómannadagsráð Akureyrar.
Tæknimenn
Ratsjárstofnun óskar eftir að ráða starfsmenn
vegna reksturs ratsjárstöðva hérlendis.
Umsækjendur verða að hafa lokið námi í rafeinda-
virkjun eða hafa sambærilega menntun.
Starfsmenn þurfa að sækja námskeið hérlendis á
árinu og erlendis á árinu 1990. Laun eru greidd á
námstímanum.
Umsóknareyðublöð liggjaframmi hjá Ratsjárstofnun.
Umsókn, ásamt prófskírteini eða staðfestu afriti af
því, sakavottorði og heilbrigðisvottorði, berist Rat-
sjárstofnun, Laugavegi 116, fyrir 26. maí nk.
RATSJÁRSTOFNUN
Laugavegi 116 • Pósthólf 5374 • 125 Reykjavík.
«t
INGIBJÖRG JÓHANNESDÓTTIR,
frá Syðra-Brennihóli,
andaðist að Kristnesspítala aðfaranótt 11. maí.
Verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 19. maí
kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda.
Jakobína Jóhannesdóttir,
Sigríður Jóhannesdóttir,
Haukur Bogason.