Dagur - 17.05.1989, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Miðvikudagur 17. maí 1989
jgk, Tilkynning til sölu-
»8 skattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir aprílmánuð var 15. maí.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna
ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Tilkynning til launa-
skattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina mars og
apríl var 15. maí.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
AKUREVRARBÆR
Kattaeigendur
Vegna aflífunar á villiköttum í lögsagnarumdæmi
Akureyrar eru kattaeigendur beðnir að halda
heimilisköttum sínum inni frá 19. 5. til 31.5.1989.
Umhverfisdeild.
Framvegis verðvtr
aígreiðsla Dags
opin í liádeginrt
auglýsingadeild, Strandgötu 31, sími 24222
Iðnþróunarfélag
Þingeyinga
Haldið verður námskeið um
„stofnun og rekstur fyrirtækja"
í Framhaldsskólanum á Húsavík.
Námskeiðið stendur yfir:
26. maí kl. 18.00-22.00.
27. maí kl. 9.00-17.00.
2. júní kl. 18.00-22.00.
3. júníkl. 9.00-17.00.
Fyrirlesarar verða:
Ásgeir Leifsson,
iðnráðgjafi
Ásta Ólafsdóttir, B.A.
Einar Njálsson, útibússtjóri
Helgi Kristjánsson,
viðskiptafræðingur
Páll Þ. Jónsson,
markaðsfulltrúi
Örlygur H. Jónsson,
lögfræðingur
Efni:
— verkþættir við stofnun
og rekstur.
-mannlegi þátturinn.
— fjármögnun fyrirtækja.
— bókhald og reikningsskil.
— markaður og sölutækni.
— form fyrirtækja
og samningar.
Námskeiðinu fylgja vönduð gögn.
Námskeiðsgjald er kr. 8.000.
NámskeiÖiÖ er öllum opiÖ.
Þátttökutilkynningar í síma 42070 fyrir miðvikudag
inn 24. maí.
36. þing Sambands íslenskra bankamanna:
Harðlega átalið að stjómvöld skuli
grípa inn í gerða kjarasamninga
Frá 36. þingi SÍB.
36. þing Sambands íslenskra
bankamanna var haldið á Hótel
Holiday Inn dagana 13. og 14.
apríl sl. Þingið er haldið á tveggja
ára fresti og fer með æðsta vald í
öllum málum SÍB. 65 fulltrúar
sátu þingið, auk stjórnar og
starfsmanna SÍB, innlendra og
erlendra gesta og áheyrnarfull-
trúa, - alls um 100 manns.
Hinrik Greipsson, fráfarandi
formaður, flutti setningarræðu
við upphaf þingsins. Ávörp og
kveðjur fluttu Guðjón A. Krist-
jánsson, forseti FFSÍ, Örn
Friðriksson, varaforseti ASÍ,
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, Adolf Björnsson, fyrrv.
formaður SÍB, en hann hefur set-
ið öll þing sambandsins frá upp-
hafi, og Jan-Erik Lidström, fram-
kvæmdastjóri NBU, Norræna
bankamannasambandsins.
Sérstakur gestur þingsins var
Tore Andersen, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Norska banka-
mannasambandsins. Hann ræddi
um atvinnuástandið meðal
norskra bankamanna, sem hafa
misst vinnuna þúsundum saman,
og rakti viðbrögð Norska banka-
mannasambandsins. Loks svar-
aði hann fyrirspurnum fundar-
manna. Ýmsar fróðlegar og
gagnlegar upplýsingar komu
fram í erindi Tore Andersens og
var gerður góður rómur að máli
hans.
Fjöimargar ályktanir voru
samþykktar á þinginu. - um
kjaramál, fræðsíumál, jafnrétt-
ismál, lífeyrismál, starfsréttindi
o.fl., auk nokkurra breytinga á
lögum sambandsins.
í kjaramálaályktun þingsins er
lögð á það höfuðáhersla, að í
yfirstandandi kjarasamningum
verði allt lagt í sölurnar til að
hækka grunnlaun bankastarfs-
manna, sérstaklega þeirra lægst
launuðu, sem hafi á undanförn-
um mánuðum þurft að þola
mesta skerðingu ráðstöfunar-
tekna allra launþega vegna
aðgerða stjórnvalda. Þar megi
m.a. nefna matarskattinn, ásamt
hækkunum á opinberri þjónustu,
sem ríki og sveitarfélög gripu til
strax að lokinni verðstöðvun 15.
febrúar sl.
Þá segir í kjaramálaályktun
þings SÍB: „Stefnt skal að því að
ná aftur þeim kaupmætti sem var
í júní 1988 og tryggja að sá kaup-
máttur haldist með því að tengja
laun við framfærsluvísitölu
hverju sinni.
36. þing SÍB krefst þess að
störf bankamanna, sem á undan-
förnum árum hafa krafist sífellt
meiri sérþekkingar og þjálfunar,
verði metin að verðleikum og
bankastörf verði metin sem sér-
hæfð fagstörf og launuð í sam-
ræmi við það.“
Harðlega er átalið að stjórn-
völd skuli æ ofan í æ grípa inn í
gerða kjarasamninga og i gera
þannig að engu samningsrétt
vinnandi stétta. Þingið hvetur
stjórnvöld til að endurskoða
skattastefnu sína og koma í veg
fyrir skattsvik, þannig að allir
þjóðfélagsþegnar standi undir
velferðarkerfinu, enda sæmi ekki
annað stjórn sem kenni sig við
jafnrétti og félagshyggju. Þá er
þess krafist, að persónuafsláttur
verði hækkaður.
Loks hvetur þingið stjórn SÍB
til að vinna að því af öllum mætti
að fulltrúar starfsmanna fái
aðgang að fundum stjórna banka
og sparisjóða, þannig að starfs-
menn fái einhverju ráðið um
reksturinn.
Á þinginu var samþykkt reglu-
gerð nýstofnaðs vinnudeilusjóðs
SÍB og stofnfé hans ákveðið rúm-
ar 5,7 milljónir króna. Jafnframt
var samþykkt að hækka félags-
gjöld til SÍB úr 0,45% í 0,50% af
mánaðarlaunum að ári, og renni
hækkunin framvegis beint í
vinnudeilusjóðinn. Þingið kaus
þriggja manna stjórn sjóðsins.
Hinrik Greipsson, sem verið
hefur formaður Sambands ísl.
Dankamanna undanfarin fjögur
ár, gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs á þinginu. Guðjón Skúla-
son 1. varaformaður og Sólveig
Guðmundsdóttir 2. varaformað-
ur gáfu heldur ekki kost á sér til
endurkjörs. Þeim voru öllum
þökkuð farsæl störf í þágu SÍB.
í stjórn SÍB til næstu tveggja
áfá voru kjörin: Yngvi Örn Krist-
insson, Seðalbanka íslands, for-
maður; Friðbert Traustason,
Reiknistofu bankanna, 1.
varaformaður; Anna G. ívars-
dóttir, Búnaðarbanka íslands, 2.
varaformaður; meðstjórnendur
Sigurjón Gunnarsson, Lands-
bankanum, Anna Kjartansdóttir,
Landsbankanum, Páll Kolka
ísberg, Iðnaðarbankanum og
Áslaug E. Jónsdóttir, Verslunar-
bankanum. f varastjórn voru
kosin Auður Eir Guðmundsdótt-
ir, Útvegsbankanum, Sólmundur
Kristjánsson, Landsbankanum,
Smári Þórarinsson, Útvegsbank-
anum og Lilja Eyþórsdóttir,
Búnaðarbankanum.
Framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra bankamanna er Einar
Örn Stefánsson.
3000 Zetorar seldir á íslandi
- sá þijú þúsundasti fór í A.-Húnavatnssýslu
Fyrirtækið ístékk hf., sem er
dótturfyrirtæki Globus hf., hefur
undanfarin 20 ár flutt inn Zetor
dráttarvélar frá tékkneska fyrir-
tækinu Motokov.
Miðvikudaginn 12. apríl
afhenti fyrirtækið dráttarvél
númer 3000 við hátíðlega athöfn
í húsakynnum sínum að Lágmúla
5. Eigandinn, Erlendur Eysteins-
son, bóndi að Stóru-Giljá í Aust-
ur-Húnavatnssýslu, var mættur
til að taka á móti vélinni og var
hann jafnframt leystur út með
gjöfum frá ístékk hf. og
Motokov.
í máli Þórðar H. Hilmarsson-
ar, forstjóra, kom fram að
bændur, verktakar og sveitar-
félög um allt land hefðu tekið
Zetornum afburða vel allt frá því
innflutningur hófst árið 1969.
Flest árin hefur Zetorinn verið
mest selda dráttarvélin á íslandi
og nú síðast á árinu 1988.
Markaðshlutdeild Zetor drátt-
arvélanna á íslandi er sú hæsta í
heimi að sögn Motokov, þrátt
fyrir að hún sé víða mjög vinsæl í
Evrópu. Undanfarna tvo áratugi
Talið frá vinstri: Þórður H. Hilmarsson forstjóri, fulltrúi Zetor verksmiðj-
anna, Helga Búadóttir, Erlendur Einarsson og Arni Gestsson stjórnarfor-
maður Globus.
hefur hlutdeildin á íslandi verið á
bilinu 35-50%.
Að sögn Þórðar er þennan
árangur einkum að þakka mjög
samkeppnisfæru verði og góðri
endingu vélanna, en þær hafa
reynst ákaflega vel við íslenskar
aðstæður. Þá hefur ístékk hf. í
samstarfi við Globus hf. kapp-
kostað að byggja upp öflugt
þjónustunet með umboðsmönn-
um um allt land.