Dagur - 13.07.1989, Síða 3
fréttir
Nýtt aðalskipulag fyrir Ólafsfjörð:
Verður ósinn færður?
Aðalskipulag Ólafsfjarðarbæj-
ar er nú í endurskoðun og er
stefnt að því að endurskoðað
skipulag til ársins 2008 verði
staðfest öðru hvoru megin við
áramótin. Gildandi skipulag
bæjarins var staðfest árið 1979.
Benedikt Björnsson frá Skipu-
lagi ríkisins hefur unnið af krafti
að endurskoðun aðalskipulags
Ólafsfjarðar að undanförnu og á
fundum bygginganefndar nýverið
kynnti hann drög að greinargerð
með aðalskipulagi. Málið kom
einnig fyrir bæjarstjórn og var
afstaða bæjarfulltrúa til fyrirliggj-
andi hugmynda almennt nokkuð
jákvæð. Stefnt er að því kynna
aðalskipulagið fyrir bæjarbúum í
haust og að það verði síðan stað-
fest um áramótin.
Bjarni Kr. Grímsson, bæjar-
stjóri, segir að í drögum að
endurskoðuðu aðalskipulagi sé
rætt um umtalsverðar breytingar
frá gildandi skipulagi. í því er
gert ráð fyrir aðskildri byggð
beggja megin við ósinn, þ.e.a.s.
að vestan við hann rísi iðnaðar-
byggð en íbúðarbyggð austan
hans. Nú er rætt um tilfærslu óss-
ins í vestur, að vegi meðfram
flugvelli. Þannig næðist samteng-
ing íbúðarhúsa og iðnaðarsvæðis.
Bjarni segir að þetta sé hugmynd
sem eigi eftir að skoða frá mörg-
um hliðum. Hann segir að leita
þurfi umsagnar fjölmargra aðila
áður en af færslu óssins getur
orðið.
Samkvæmt drögunum er gert
ráð fyrir frekari uppfyllingu í
Ólafsfjarðarvatn sunnan Marar-
byggðar en Bjarni telur mjög
ólíklegt að sú tillaga nái fram að
ganga. Hann segir ólíklegt að
Ólafsfirðingar fallist á frekari
uppfyllingu í vatnið á þessu
svæði.
Af öðrum liðum sem ræddir
hafa verið í sambandi við endur-
skoðun aðalskipulags má nefna
tjaldstæði á svæðinu sunnan við
Hótelið. Þetta er þó atriði sem
ekki hefur verið ákveðlð. óþh
Atvinnuleysi á landinu í júnímánuði:
Atviimuleysisdögum ijölgaði
um 7% frá mánuðinum á undan
-16% aukning hjá konum en atvinnuleysi minnkaði hjá körlum
í júnímánuði sl. voru skráðir
42 þúsund atvinnuleysisdagar á
landinu öllu, 25 þúsund hjá
konurn en 17 þúsund hjá körl-
um. Þetta svarar til þess að
rösklega 1900 manns hafi að
meðaltali verið á atvinnuleysis-
skrá í mánuðinum en það jafn-
gildir 1,4% af áætluðum
mannaafla á vinnumarkaði í
mánuðinum, samkvæmt spá
Þjóðhagsstofnunar. Þetta
kemur fram í yfírliti um at-
vinnuástandið frá vinnumiðl-
unarskrifstofu félagsmálaráðu-
neytisins.
Samkvæmt þessu hefur skráð-
um atvinnuleysisdögum fjölgað
um tæp 3 þúsund eða 7% frá
mánuðinum á undan og er aukn-
ingin öll hjá konum, sem fjölgaði
á skrá um 16%, meðan körlum
fækkaði um 4% á landsvísu. Eftir
landshlutum fjölgaði skráðum
atvinnuleysisdögum mest á höf-
uðborgarsvæðinu, eða um 3 þús-
und daga en næst mest á Suður-
nesjum, um 1200 daga. Hins veg-
ar dró mest úr atvinnuleysi á
Austurlandi, þar fækkaði skráð-
um dögum um 1600 í júní.
Síðasta virka dag júnímánaðar
voru 2100 manns á atvinnuleysis-
skrá á landinu, sem gæti bent til
þess að almennt atvinnuleysi hafi
aukist undir lok mánaðarins. Þó
gæti sú staðreynd að námsmenn
leituðu nú í ríkari mæli en áður
til vinnumiðlunarinnar, átt hér
einhvern hlut að máli.
í júnímánuði í fyrra voru að-
eins skráðir rösklega 12 þúsund
atvinnuleysisdagar á landinu,
sem jafngildir 0,4% af mannafla.
Fyrstu sex mánuði yfirstand-
andi árs voru skráðir 295 þúsund
atvinnuleysisdagar á landinu
öllu. Þetta jafngildir því að 2300
manns hafi að meðaltali vcrið á
atvinnuleysisskrá á þessu tfmabili
en það svarar til 1,8% af mann-
afla á vinnumarkaði. Til saman-
burðar má geta þess að allt árið
1988, voru skráðir 215 þúsund
atvinnuleysisdagar og 153 þúsund
áriö 1987.
Möl og sandur:
Steypusalan fór
hægt af stað
Steypusala hjá Möl og sandi
fyrstu sex mánuði þessa árs var
um 10% minni en á sama tíma
í fyrra.
I lok júní höfðu verið seldir
um 3000 rúmmetrar af steypu hjá
Möl og sandi og er það rúmlega
300 rúmmetrum minna en um
svipað leyti í fyrra. Að sögn
Hólmsteins Hólmsteinssonar
framkvæmdastjóra má rekja
þetta til þess tíðarfars sem hér
ríkti fram á vor en salan í febrú-
ar, mars og apríl var mjög léleg. í
maímánuði var salan hins vegar
mun betri nú en í fyrra.
Undanfarin tvö ár hafa verið
seldir 12-14 þúsund rúmmetrar af
steypu á ári hjá Möl og sandi og
sagðist Hólmsteinn gera ráð fyrir
að þegar upp yrði staðið yrði sal-
an svipuð í ár. ET
Skógræktarferð að Hólum
Félagar í Framsóknarfélagi Akureyrar fóru í skógræktarferð um síðustu helgi. Á aðalfundi félagsins í vor var
ákveðið að setja niður trjáplöntur á Hólum í Öxnadal, jörð Vals Arnþórssonar, fyrrverandi kaupfélagsstjóra
KEA, og Sigríðar Ólafsdóttur, konu hans, og þakka þeim fyrir vel unnin störf. Gróðursettar voru ríflega 2800
plöntur og tók það ekki langan tíma því á sjöunda tug manna var um verkið. Því næst var sest kringum útigrill
og notið góðra veitinga í blíðskaparveðri. Mynd: ehb
Viíiá > jn.nphfitmtt'í'í — HliOAO — $
Fimmtudagur 13. júlí 1989 - DAGUR - 3
Aldraóir!
Fáein pláss eru laus í dvalarflokk fyrir aldraða í
sumarbúðum kirkjunnar við Vestmannsvatn,
Aðaldal, 29. júlí til 5. ágúst.
Leitið upplýsinga í síma (96-)43553.
Sumarbúðirnar Vestmannsvatni.
Sporttek/ur
af mörgum gerðum nýkomnar
★ Colt
★ Lancer
★ Galant
★ Space
wagon
★ Toyota
★ Mazda
★ Nissan
★ Ford
★ Peugeot
Tryggvabraut 14
Sími 96-21715
Iðnaðarbankinn
HLUTHAFA
FUNDUR
Hluthafafundur í Iðnaðarbanka íslands hf. verður
haldinn í Súlnasal Hótel Sögu miðvikudaginn 26. júlí
1989oghefstkl. 17:00.
DAGSKRÁ:
1. TiDaga bankaráðs um staðfestingu hluthafa-
fundar á samningi formanns bankaráðs við við-
skiptaráðherra um kaup bankans á 1/3 hluta
hlutabréfa ríkissjóðs í Útvegsbanka íslands hf.
og að rekstur Iðnaðarbanka, Verslunarbanka og
Alþýðubanka verði sameinaður í einn banka
ásamt Útvegsbankanum fyrir júlí 1990.
Jafnframt verði bankaráði veitt heimild til að
vinna að öllum þáttum er varða framkvæmd
samningsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum eða umboðsmönnum þeirra í Iðnaðarbank-
anum, Lækjargötu 12,2. hæð frá 19. júlí nk.
Samningurinn, ásamt tillögum þeim
er fyrir fundinum liggja, verður hluthöfum
til sýnis á sama stað.
Reykjavík 5. júlí 1989
Bankaráð Iðnaðarbanka íslands hf.
Höldursf.
Hjólbarðaverkstæði