Dagur - 13.07.1989, Side 4

Dagur - 13.07.1989, Side 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 13. júlí 1989 ÚTGEFAND!: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREVRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 80 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Hannes Hólmsteinn fer á kostum Margt furðulegt hefur birst á prenti í gegnum tíðina en grein lektorsins landsfræga, Hannesar Hólmsteins Giss- urarsonar, í DV á þriðjudaginn kastaði þó tólfunum. Greinin ber nafnið „Sjálfstæðisflokkurinn og fjölmiðlarn- ir" og í henni grætur höfundur það sáran að Sjálfstæðis- flokkurinn eigi hvergi öruggt athvarf í fjölmiðlaheimin- um!! Hannes Hólmsteinn fullyrðir sem sagt í þessari dæmalausu grein sinni að Sjálfstæðisflokkurinn eigi sér ekkert málgagn. Flokkurinn sé þar með kominn í sömu aðstöðu og Borgaraflokkur og Kvennalisti, á sama tíma og Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Framsóknarflokk- ur ráði yfir talsverðum blaðakosti. Hann fullyrðir einnig að Ríkisútvarpið sé beinlínis fjandsamlegt Sjálfstæðis- flokknum og nefnir meðferð þess á sextugsafmæli flokks- ins því til sönnunar! Dagur fær ekki staðist að leyfa lesendum sínum að meðtaka röksnilli sagnfræðingsins orðrétta. í grein sinni segir Hannes Hólmsteinn m.a.: „Lítum snöggvast á blöð- in [þ.e. dagblöðin]. Annars vegar má sjá fjögur lítil flokksblöð. Þótt þau hafi ekki marga kaupendur og geti varla lifað án opinberra styrkja eru þau harðsnúin áróð- ursblöð, „gefa línu", hafa áhrif. Það munar um minna en þá 10-20 menn sem samtals eru þar á launum við að skrifa óhróður um Sjálfstæðisflokkinn og leiðtoga hans. Hins vegar horfum við á DV og Morgunblaðið, sem eru bæði óháð Sjálfstæðisflokknum..." Og síðar segir Hannes: „Kjarni málsins er þessi: Flokksblöðin fjögur nýtast andstæðingum Sjálfstæðisflokksins en einkablöð- in tvö [þ.e. Morgunblaðið!! og DV] nýtast hins vegar ekki flokknum. Ríkisútvarpið nýtist andstæðingum Sjálfstæð- isflokksins en einkastöðvarnar nýtast hins vegar ekki flokknum. Það er því ekki að furða að á flokkinn hafi hall- að í fjölmiðlum! “ Þessi röksemdarfærsla Hannesar Hólmsteins er með hreinum ólíkindum. Varla ætlast hann til þess að almenningur trúi því sem nýju neti að Morgunblaðið sé óháð blað, einkablað sem dragi alls ekki taum Sjálfstæðis- flokksins? Og án þess að hér verði dæmt um áróðursgildi hinna dagblaðanna er ljóst að Hannes Hólmsteinn hefur varla lesið Dag svo mikið sem í eitt skipti, því hann setur blaðið undir sama hatt og hin blöðin og segir Dag „harð- snúið áróðursblað sem gefi línu". Síðar í greininni fullyrð- ir hann að Dagur sé ekki opinn öllum þeim sem þar vilja birta efni, en það er rangt eins og flest annað í þessari dæmalausu grein. Hannes Hólmsteinn endar grein sína á því að krefjast þess að blaðastyrkir ríkisins verði felldir niður, því ein- ungis „flokksblöðin fjögur" njóti góðs af þeim. Þar bítur hann höfuðið af skömminni, því þessum svokölluðu „blaðastyrkjum" er úthlutað með tilliti til þingstyrks og Sjálfstæðisflokkurinn fær því langmest í sinn hlut. Þannig hefur það verið um margra ára skeið. Þetta hefur Hannesi Hólmsteini eflaust. ekki verið kunnugt um, eða hvað? Eflaust hefur flestum verið skemmt við lestur títt- nefndrar greinar lektorsins og er það í sjálfu sér gott. En Hannes hefur eflaust ekki sett þessa grein fram sem skemmtiefni. Svo mikið er víst að ef hún gefur rétta mynd af röksemdarfærslu höfundarins er ekki að furða þótt honum hafi gengið illa að fá nemendur til að sækja fyrir- lestra sína í Háskóla íslands síðan honum var komið þar til starfa. BB. Þessi mynd er af líkaninu sem sýnir hvernig Amtsbókasafnið mun lfta út í framtíðinni. Nýbygging Amtsbókasafnsins á Akureyri: Guðmundur Jónsson arkitekt hefur skilað teikningum verk óunnið við hönnun mannvirkisins - ennþá er allmikið Eins og flestum Akureyringum er eflaust í fersku minni var sú ákvörðun tekin á hátíðarfundi í Bæjarstjórn Akureyrar, í tilefni af 125 ára afmæli bæjar- ins, að stækka og byggja við Amtsbókasafnið. Hér var um afmælisgjöf bæjarbúa til sjálfra sín að ræða, eins og Gunnar Ragnars, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar, komst að orði við það tækifæri. Nú, tveimur árum síðar, hefur Guðmundur Jónsson, arki- tekt, skilað inn bygginganefnd- arteikningum af mannvirkinu. Tillaga Guðmundar Jónssonar fékk á sínum tíma 1. verðlaun í samkeppni sem haldin var um viðbygginguna. Lausn Guð- mundar felst í því að stækka safn- ið á þann hátt að ná fram aðlögun við eldri bygginguna og skapa þannig samræmda heildarmynd af því nýja og gamla. Markmiðið var ekki síst það, að sögn arki- tektsins, að láta gamla húsið njóta sín áfram. Tveir samningar voru gerðir við Guðmund, sá fyrri vegna forhönnunar, en sá síðari um að ljúka bygginganefndarteikning- um. Hann hefur nú lokið því verki, eins og áður sagði, en þó er allmikil hönnunar- og verk- fræðivinna ennþá eftir, t.d. að ljúka við burðarþolsteikningar, en Verkfræðistofa Norðurlands hefur það verkefni með höndum. Dómnefndin, sem úrskurðaði urn verðlaunatillöguna, saman- stóð af fagmönnum úr Arkitekta- félagi íslands og þeim Gunnari Ragnars, Sigríði Stefánsdótttur og Ágústi Berg, arkitekt, f.h. Akureyrarbæjar. Nefndin hélt áfram störfum sem samstarfs- nefnd, skipuð fulltrúum bæjar- ins, til að fylgja málinu eftir. Núverandi húsnæði Amts- bókasafnsins var tekið í notkun árið 1968, og var ákvörðun um byggingu þess einnig tekin á afmæli bæjarins; 100 ára afmæl- inu árið 1962. Arkitekt hússins var Gunnlaugur Halldórsson. Allangt er síðan að þrengjast fór að safninu og nauðsyn þess að stækka það varð ljós. Núverandi safnhús er 1.156 fermetrar að stærð, en nýbyggingin verður 2.080 fermetrar. Hér er því um mikla stækkun húsnæðisins að ræða. í nýbyggingunni verða m.a. tveir salir, 135 fermetra myndlistarsalur og 133 fermetra fjölnýtisalur. Hægt verður að slá sölunum saman í einn, og skapast aðstaða fyrir tónleikahald, sýn- ingar og ótal margt fleira í safn- inu. Þegar báðir salirnir eru full- skipaðir rúmast þar 253 manns í sæti. Aðstaða verður fyrir veit- ingasölu í húsinu, og einnig verð- ur mögulegt að njóta veitinga fyr- ir utan safnið á þar til gerðum borðum og bekkjum. Guðmundur var spurður álits á öðrum þáttum hússins, s.s. hug- myndum hans um gólfefni, liti o.s.frv. Sagði hann þá að hug- myndir sínar í því efni væru ekki fullmótaðar, en ekki færi illa á að nota standandi stafaparkett í gólfið á sölunum, og innfelldar flísar í steingólf. Litir innanhúss yrðu eflaust ljósir. Gunnar Ragnars segir að næst á dagskrá sé að halda áfram við hönnun og teiknivinnu. Ekki liggur nein kostnaðaráætlun fyrir enda hefur ekki verið forsenda til að vinna slíka áætlun ennþá, að sögn arkitektsins. Óhætt er að fullyrða að nýbyggingin verður hið glæsilegasta mannvirki og vinnuaðstaða mun gjörbreytast í safninu þegar fram líða stundir. EHB

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.