Dagur - 13.07.1989, Síða 5

Dagur - 13.07.1989, Síða 5
Fimmtudagur 13. júlí 1989 - DAGUR - 5 Valdimar Gunnarsson: 55 Hún held ég hafi tekist nógu vel“ - Nokkur orð vegna útgáfu á öllum verkum Jónasar Hallgrímssonar Þau orð sem hér eru að fyrirsögn ritaði Jónas Hallgrímsson í bréfi til Finns Magnússonar prófessors árið 1842. „Hún“ var þýðing Jón- asar á Stjörnufræði eftir danskan prófessor, Ursin að nafni. Því eins rifja ég upp þessi orð að mér hefir nú borist í hendur útgáfa á öllum verkum Jónasar Hall- grímssonar, stórum og smáum sem geta átt eitthvert erindi við almenning á íslandi. Hún held ég hafi tekist nógu vel. Það er bókaútgáfan Svart á hvítu sem bætir hér þriðja dýr- gripnum í bókasafn íslendinga, hinir fyrri vóru íslendinga sögur og Sturlunga með ærnum skýr- ingum, kortum og margháttuðum fróðleik. Þessi útgáfa á verkum Jónasar er frábrugðin fyrri útgáfum að því leyti að hér eru eícki einasta birt kvæði Jónasar, stór og smá heldur líka bréf hans, ritgerðir og dagbækur sem sýna hliðar á „listaskáldinu góða“ sem ekki hefir verið fjölyrt um. Svo góð (í merkingu Jónasar, þ.e. ljúf og fögur) sem kvæðin hans eru þá er ekki síður fróðlegt að kynnast meir manninum sem orti þessi kvæði. Það er sérstaklega merki- legt að lesa fræðilegar (á 19. ald- ar vísu) ritgerðir hans og athug- anir um jarðfræði og dýrafræði eftir þann mann sem orti „Smá- vinir fagrir foldarskart“. Og einhvers staðar í öllum þessum bréfum hlaut að standa þessi setning: „ en hvur skil- ur fegurðina nema hann geti not- ið náttúrunnar jafnframt með viti og þekkingu ...'?“ Einhverra hluta vegna hefir orðið lífseig sú þjóðsaga að Jónas hafi verið einn þeirra ungu manna sem drabbaði í Kaup- mannahöfn í stað þess að læra og ljúka prófi - ennfremur var lengi siður h'tilla karla að lítillækka Jónas Hallgrímsson til að reyna að upphefja sjálfan sig; þeir köll- uðu hann drykkjurút og ónytj- ung. En hér birtist annar Jónas en þessi drykkfelldi eilífðarstúdent á bláum klæðisfrakka. Hér kemur fram vísindamaður með yfir- gripsmikla þekkingu á sinni fræðigrein og auk þess einlæga ást á föðurlandi sínu og þjóðinni sem í því býr. Það er t.d. eftir- tektarvert að svo illa sem oft gekk að afla fjár til rannsókna fyrir hina miklu íslandslýsingu; svo erfitt sem Jónas sýnist oft hafa átt á ferðum sínum - mest vegna vanefna - þá er hann aldrei bitur, aldrei illorður og þó lætur þessi maður allt flakka í bréfum til vina sinna. Hann gerði sér grein fyrir því sem hann ætlaði að gera, hvernig hann ætlaði að gera það og til hvers það gæti orðið. Hann stendur öðrum fæti í róm- antík samtíma síns en hinum í fræðslustefnu fyrri aldar enda var samtímamönnum hans mest þörf fræðslu. Hann dáist að Eggert Ólafssyni umfram alla menn aðra og minnist hans reyndar opinber- lega sem „ . . . mesta mannsins sem ég held ísland hafi átt á seinni öldum. “ Hin nýja útgáfa á ritverkum Jónasar Hallgrímssonar. Þessi útgáfa á verkum Jónasar er þrjár viðamiklar bækur og hin fjórða og stærsta er með skýring- um og skrám og verður afar handhæg þeim sem vill rifja upp kynni af Jónasi. Kvæði Jónasar eru sett í aldursröð, þá koma ýmsar blaðagreinar, síðan bréf hans, bæði einkabréf (sem eru stórkostleg aflestrar) og opinber bréfaskipti vegna vísindastarfa. í þriðja bindinu eru svo verk Jón- asar um náttúru og landfræði. Þar er einna fremst hin yndislega ritgerð um eðli og uppruna jarð- arinnar, síðan margir þættir um jarðfræði, lýsingu Islands og um dýrafræði. Að bókarlokum er svo hin fræga þýðing Jónasar á stjörnufræði Ursins og má vera aldaufur sá maður er ekki getur haft skemmtun af því efni. Þar kemur margt skemmtilega á óvart, t.d. þessi skýring neðan- máls þegar verið er að fjalla um viðnám: „Það erhinn nafnkenndi leikur: billiard; knöttunum er hrundið með smástöngum og reknir margvíslega hvur með öðrum ofan í holur utan til á leik- borðinu. Er það hin besta skemmtun og ágætur fimleikur. “ Annað hnossgæti er í fyrsta bind- inu; það er þýðing Jónasar á grein eftir danskan fiskifræðing um fiskverkun á íslandi. Þessi grein birtist í Fjölni 1845 en hver les hana þar? Nú ætti að skylda alla sem koma nærri fiski og blöðum til að lesa þessa grein; þar er nú ekki þýðingabragurinn á eða fræðimannsklúður. Eftirtektarvert er að sjá hér að Jónas sótti a.m.k. tvisvar um prestembætti, meðfram til að tryggja sér laun - en líka til að MEISTARAFÉLAG BYGGINGAMANNA NORÐURLANDI Hafnarstræti 107 ■ simi 21022 Lokað Skrifstofan verður lokuð í dag frá kl. 12-16 vegna jarðarfarar Jónasar Sigurbjörnssonar. komast á hentugan stað til frekari vísindastarfa t.d. rannsókna á skógum og skógrækt á íslandi. Litlu fyrir dauða sinn skrifar hann vinum sínum og er þá fullur áhuga á kennarastöðu við lærða skólann heima á íslandi enda hvattur til þess. Svona má lengi telja, allskonar fróðleikur rís af síðum þessara bóka og ber vitni um skáldið, vís- indamanninn og umfram allt þjóðvininn Jónas Hallgrímsson. Ég sá einn af umsjónarmönnum þessarar útgáfu í sjónvarpi á dögunum. Hann sagði að sér hefði orðið Jónas Hallgrímsson enn kærari en áður þegar hann grúskaði í öllu þessi mikla og margbreytilega efni. Svo fer mér einnig og mun fleirum fara. Þetta þykir mér muni vera best bóka sem ég hefi lengi eignast og fer þó fjarri að ég hafi fullnotið hennar. Það verður líklega seint svo margar sem „matarholurnar“ eru þar. En miklar þakkir eiga þeir menn skildar sem gerast slíkir þjóðvinir á vorum dögum að þeir safna til þessa verks og breiða það út um landið. Vonandi er að þessum bókum verði svo vel tek- ið sem þær eíga skilið. Valdimar Gunnarsson. SANS SOUCIS Óskum að ráöa í eftirtalin störf: jRitara Til starfa á lögmannsskrifstofu. Við leitum að samviskusömum starfsmanni með góða íslenskukunnáttu og haldbæra undirstöðu í rit- vinnslu. Þarf að geta hafið störf 1. september. Bankastarf Við leitum að starfsmanni til starfa hjá spari- sjóði við alhliða bankastörf. Verslunarmenntun og/eða reynsla við sambærileg störf æskileg, Nánari upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni. f££ SB* £ £ FELL hf. Tryggvabraut 22, sími 25455. dagblaðið á landsbyggðinni : #SANSS rukvnn \é Snyrtifrædingur kynnir Sans Soucis snyrtivörur í dagkl. 13.00-18.00. Komið og kynnist frábærri vöru á ótrúlegu verði! IO% kynningarafsláttur. isa SÍMI (96) 21400

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.