Dagur - 13.07.1989, Side 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 13. júlí 1989
ára afmœli Sambands
norðlenskra kvenna
- S.N.K.afhenti peningagjöf til byggingar Kjarnalundar í tilefni afmælisins
Samband norð-
lenskra kvenna
afhenti nýlega á
fimmta hundrað
þúsund króna
peningagjöf til
heilsuhælis
Náttúrulækn-
ingafélags Akur-
eyrar í Kjarna-
lundi. Elín Aradótt-
ir afhenti peninga-
upphæöina f.h.
Sambands norö-
lenskra kvenna,
en Áslaug Krist-
jánsdóttir, formaö-
ur N.L.F.A., veitti
henni viðtöku.
Áslaug Kristjánsdóttir flutti
eftirfarandi ávarp viö þetta
tilefni:
„Ágætu gefendur, kæru konur
sem skipið stjórn Sambands
norðlenskra kvenna. Fyrir hönd
N.L.F.A þakka ég þessa höfðing-
legu gjöf og þann fórnarhug,
vinnu og vináttu sem að baki býr.
N.L.F.A. munar um minna til
byggingar Kjarnalundar, sem nú
er að verða tilbúinn undir
tréverk.
Þótt fjármunir séu það sem
þarf til byggingaframkvæmda,
svo þessi heilsulind norðlenskra
byggða komist upp til að fyrir-
byggja lasleika manna, - og
framlag ykkar þökkum við þús-
undfalt, - þá fögnum við, félagar
í N.L.F.A., því að eiga slíka
hauka í horni sem ykkur. Samtök
ykkar eiga 75 ára afmæli nú á
þessu ári, það eru samtök kvenna
sem vinna sín verk í kyrrþey og
spyrja eigi um verklaun að
kveldi.
Megi störf ykkar blómgast og
samtök ykkar halda vöku sinni
við að tengja saman starfskrafta
strjálla byggða, halda í heiðri
fornum menningararfi, en vera
um leið vel vakandi í nútíð, lifa í
nútíð en stefna fullum seglum inn
í framtíð.
Þökk sé þeim er að baki ykkur
standa og -hafa með þessari
rausnarlegu gjöf stuðlað að því
að hið forna spakmæli: Heilbrigð
sál í hraustum líkama, - rætist,
en sú er ósk og von okkar allra.
Hafið heila þökk fyrir.“
Horft yfir farinn veg
Samband norðlenskra kvenna
hélt aðalfund sinn 3.-4. júní sl.
Þá var um leið minnst 75 ára
afmælis sambandsins, og flutti
Elín Aradóttir frá Brún, formað-
ur, ræðu þar sem saga þess var
sögð í stórum dráttum. Ræða
Elínar var þannig:
„Samband norðlenskra kvenna
er 75 ára. Því finnst mér ástæða
til að horfa lítillega yfir farinn
veg.
Ekki veit ég vel um allar þær
vonir sem þær ágætu konur, sem
stofnuðu sambandið fyrir 75
árum, báru fyrir brjósti fyrir
hönd þess, en áreiðanlega hafa
þær vonað að konur á Norður-
landi gætu þar sameinað krafta
sína til að vinna að þeim verkefn-
um sem þær töldu þá best horfa
til heilla lands og þjóðar.
Á stofndeginum, sem haldinn
var á Akureyri, mættu 70 til 80
konur og stóð fundurinn í 5 daga.
Halldóra Bjarnadóttir var fund-
arstjóri. Átti hún frumkvæðið að
stofnun sambandsins og var hinn
trausti burðarás þess um fjölda
ára.
Á fundinum voru rædd fjöl-
mörg mál sem fundarkonur töldu
sig varða, svo sem menntun
kvenna, hjúkrunarmál, garð-
yrkja, heimilisiðnaður og uppeld-
ismál. í öll þau 75 ár sem síðan
eru liðin hefur umfjöllun um
þessi mál verið aðaluppistaðan á
fundum sambandsins.
Menntun og réttindi kvenna
eru mál sem komið hafa til
umræðu á flestöllum aðalfundun-
um, en þau hafa að vísu breyst
nokkuð í takt við tfmann. Nú, á
þessum fundi, hefur t.d. verið
rætt um heimilisfræðikennslu í
grunnskólum og nauðsyn þess að
hún verði aukin sérstaklega, eftir
að húsmæðraskólarnir virðast
vera dottnir út úr kerfinu.
Starfað að framfaramálum
í 75 ár
Heilbrigðis- og hjúkrunarmál
hafa verið á dagskrá öll árin. Má
þar nefna að árið 1918 hóf
S.N.K. baráttu fyrir því að reist
yrði berklahæli í Kristnesi. Var
unnið ötullega að því máli þar til
hælið komst upp.
Árið 1967 var byrjað að reisa
Vistheimilið Sólborg á Akureyri
og var safnað stórri fjárhæð til
byggingarinnar á vegum S.N.K.
til styrktar því. Síðan hefur sam-
bandið oft styrkt Sólborg með
myndarlegum peningagjöfum.
Árin 1979-80 var safnað fé til
Endurhæfingarstöðvar Sjálfs-
bjargar á Akureyri og söfnuðust
3,5 milljónir króna. Þá hefur ver-
ið safnað fé til Náttúrulækninga-
hælisins á Akureyri sem er að
rísa í Kjarnaskógi. Nú á síðasta
ári stóð yfir söfnun til þeirrar
byggingar.
Námskeið í garðyrkju o.fl.
Garðyrkja hefur öll þessi ár verið
áhugamál S.N.K. Strax á fyrstu
árum þess voru ráðnir kennarar í
garðyrkju. Sér enn merki þess
víða þar sem hávaxin tré, gróður-
sett fyrr á öldinni, setja svip sinn
á heimili og héruð. Fjöldi nám-
skeiða hafa verið haldin ásamt
fræðsluerindum um þessi mál.
Kennarar hafa ferðast til kvenfé-
laganna með leiðbeiningar um
garðyrkju, og á síðasta ári heim-
sótti t.d. Árni Steinar Jóhanns-
son mörg félög í þessu skyni. Þá
hafa verið haldin mörg námskeið
í blómaskreytingum og mat-
reiðslu grænmetis.
Árið 1974'fóru 16 unglingar af
sambandssvæðinu á 5 daga nám-
skeið í Garðyrkjuskóla ríkisins á
Reykjum. Annaðist S.N.K. það
mál. Árið 1975 fóru svo fyrstu
konurnar á 5 daga námskeið í
skólann. Síðan hafa kvennahóp-
ar frá S.N.K. farið nær árlega á
þessi námskeið, samtals 12
sinnum, og hafa rúmlega 100
konur tekið þátt. Fræðsla þessi
hefur verið mjög vinsæl.
Sambandið hefur oft gengist
fyrir heimilisiðnaðarsýningum,
sérstaklega í sambandi við aðal-
fundi. Það hefur útvegað kenn-
ara til að fara út í félögin með
námskeið á þessu sviði, og hafa
þau verið bæði fjölbreytt og
gagnleg. Auk þess, sem áður hef-
ur verið nefnt, er saumur á ís-
lenska búningnum, mokkaskinn-
um, almennur fatasaumur, mál-
un á tré, tau, silki og postulín.
Einnig má nefna námskeið í út-
skurði, bókbandi, hrosshárs-
vinnu, leirmunagerð, sauðskinns-
skógerð og íleppagerð, búta-
saumi, ullarvinnu, matreiðslu og
jólaföndri, ásamt fleiru.
Húsmæðraorlof
Árið 1972 var ákveðið að sam-
bandið gengis fyrir sameiginlegu
húsmæðraorlofi á Noröurlandi.
Voru þá starfandi margar orlofs-
nefndir, dreifðar um sambands-
svæðið, samkvæmt lögum um or-
lof húsmæðra, eaenginn sameig-
inlegur staður til fyrir konurnar
til orlofsdvalar. Var kosin nefnd
til að sjá um framkvæmd málsins,
og árið 1973 voru haldnar tvær
orlofsvikur í Húsmæðraskólan-
um á Laugalandi. Síðan hefur
þessi starfsemi haldið óslitið
áfram, við góða aðsókn, á vegum
S.N.K., og hafa orlofsnefndir séð
um dvalirnar.
Það hefur verið venja að fá tvo
til þrjá fyrirlesara á aðalfundina
til að flytja erindi um mál sem
voru á döfinni og þóttu áhuga-
verð hverju sinni. Á eftir þessum
erindum hafa komið fyrirspurnir
og oft mjög líflegar umræður.
Hafa verið tekin fyrir hin fjöl-
breytilegustu málefni á þessum
fundum, m.a. bindindismál, frið-
armál, heilbrigðismál, umhverf-
isvernd, tryggingamál, jafnréttis-
barátta kvenna, jafnvægi í byggð
landsins, ferðaþjónusta bænda,
útimarkaðir, neytendasamtök,
tannlæknaþjónusta, málvernd
o.fl.
Á stofnfundinum á Akureyri
var rætt um málgagn fyrir konur
og upp úr því var ársritið Hlín
sett á laggirnar. Hlín kom út f 43
ár og allan þann tíma sá Hall-
dóra Bjarnadóttir um útgáfuna af
miklum dugnaði. Var blaðið kær-
kominn aufúsugestur á heimilum
um allt land öll þessi ár.
Sambandið hefur gefið út
myndarleg afmælisrit á 50, 60 og
70 ára afmælum sínum. Nokkr-
um sinnum hafa verið gefnar út
fjölritaðar uppskriftir og leið-
beiningar. Þá held ég að viljinn
til að hlúa að heimilunum hafi
gengið eins og rauður þráður
gegnum allan feril sambandsins,
en heimilið er sú stofnun sem
mér virðist meðlimir S.N.K. telja
einna mikilvægasta í þjóðfélag-
inu.
Norðlenskar konur
hafa miklu áorkað
gegnum sambandið
Hér hefur verið stiklað á stóru
um störfin og áhugamálin þessi
75 ár. Erfitt er að meta hversu
sambandið hefur áorkað þennan
tíma, verður það sjálfsagt ekki í
tölum talið eða á vogum vegið. Því
hefur þó tekist að fylgjast með
tímanum, þannig að norðlenskar
konur virðast hafa áhuga á að
halda því saman og starfa að
áhugamálum þess.
Ætli að innsta eðli mannkind-
arinnar sé kannski ekki eitthvað
svipað og fyrir 75 árum. Þrátt fyr-
ir rafmagnið, fjölmiðlana, alla
bílana og fínu villurnar erum við
enn félagsverur sem viljum njóta
samvista við meðborgara okkar.
Tel ég að þau persónulegu kynni
og samskipti norðlenskra
hrafnaþing...
...en hins vegar
erum við fús
að veita ÞÉR
góða þjónustu
Við bjóðum:
Tölvuprentun
Blaðaprentun
Tímaritaprentun
Bókaprentun
Bókband
Dagsprent
Strandgötu 31 • Akureyri • S 96-24222